Dagur - 07.06.1989, Page 12
DÉfiOR
Akureyri, miðvikudagur 7. júní 1989
Kodak
Express
Gæóaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
(besta ^PeóíSmyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324
Þýskur ræningi á slóðum fálka
í Mývatnssveit:
Ekki í vafa um
í hvaða erindum
þessi maður var
- segir Ingi Yngvason, fálkaeftirlitsmaður
Það sem af er þessu vori hefur
orðið vart við einn grunsam-
legan mann á varpsvæði fálka í
Mývatnssveit. Ingi Yngvason,
fálkaeftirlitsmaður, segir að
þessi maður, sem er þýskur,
hafi haldið rakleiðis á fálka-
slóðir, þar sem fuglinn hafi
áður verpt. Ingi segist hafa
fylgt manninum eftir og gert
athugasemd við ferðir hans.
„Eg er ekki í neinum vafa um í
hvaða erindagjörðum þessi
maður var hér,“ segir Ingi.
Karl Jóhannsson, hjá útlend-
ingaeftirlitinu, segir að fylgst
hafi verið með ferðum manns-
ins en ekki reynst unnt að
sanna neitt á hann.
Um þetta leyti árs má, sam-
kvæmt reynslu undanfarinna ára,
búast við að bíræfnir fálkaþjófar
ræni fálkaungum og hafi á brott
með sér út fyrir landsteinana.
Ingi Yngvason vill ekki upplýsa
hvernig eftirliti sé háttað á varp-
svæði fálkans en segir einungis að
fylgst sé mjög grannt með svæð-
inu og kappkostað að koma í veg
fyrir rán á ungum. Ingi tekur
fram að menn séu ekki einungis
smeykir við ferðir útsendara
þýskra og arabískra fálkabú-
garða, heldur hafi (slenskir
eggjasafnarar tekið egg úr fálka-
hreiðrunum. Hann sagðist þess
fullviss að ef ekki væri eftirlit
með fálkavarpinu væri stunduð
umtalsverð rányrkja á eggjum og
ungum í Mývatnssveit.
Karl Jóhannsson segir að
útlendingaeftirlitið fylgist vel
með ferðum manna sem séu á
skrá Interpol-lögreglunnar vegna
rána á sjaldgæfum fugiategund-
um. Hins vegar segir hann að
þetta eftirlit geti aldrei verið
hundrað prósent sökum þess að
fálkabúgarðarnir hafi stöðugt
nýja og nýja útsendara á sínum
snærum. í*á segir Karl nokkur
brögð af því að útsendararnir fari
landa á milli á fölskum vegabréf-
um. Hann segir þessa menn svíf-
ast einskis, enda séu miklir pen-
ingar í spilinu. Verð á fálka í
Þýskalandi er með ólíkindum
hátt og heyrast í því sambandi
tölur allt að tæpum 3 milljónum
króna.
Karli og Inga ber saman um að
líklegast sé að fálkaræningjar
komi með Norrænu hingað til
lands og keyri hér um á eigin
bílum. Þetta sé þó alls ekki algilt
eins og dæmin sanni. Karl bendir
á að smygl á fálkaungum úr landi
með Norrænu reynist erfitt, ein-
faldlega vegna þess að mikill
fnykur af fuglunum komi upp um
þjófana. óþh
Bömin með Snorra: Ellert Stefánsson, Rakel Þórarinsdóttir, Stefán Friðrik Stefánsson, Vignir Stefánsson.
Selurinn Snorri:
Óvenjulegt gæludýr í garðinum
- sefur við heita pottinn, mannelskur og blíðlyndur
Húsvíkingum fjölgáði á sjó-
mannadag er hjónin Hera
Hermannsdóttir og Stefán
Sveinbjörnsson tóku að sér
fósturbarn sem hlotið hefur
nafnið Snorri. Snorri fékk að
sofa í bílskúrnum hjá þeim
fyrstu nóttina, en það þótti svo
vond lykt af honum að hann
var settur út í garð og hefur
Aðalfundur Sambandsins:
Ólafiir kosinn stjómarformaður
Ólafur Sverrisson var kosinn
stjórnarformaður Sambands
íslenskra Samvinnufélaga til
eins árs á aðalfundi Sambands-
ins.
Ólafur hlaut glæsta kosningu,
hann fékk 86 atkvæði af 114
greiddum, eða 75% atkvæða.
Þröstur Ólafsson kom næstur
með 14 atkvæði og Valgerður
Sverrisdóttir hlaut 1 atkvæði.
Auðir seðlar voru 12 og 1 ógild-
ur. Ólafur var áður varaformaður
stjórnar Sambandsins sem tók
við formennskunni af Val Arn-
þórssyni í febrúar sl.
Þeir Þórarinn Sigurjónsson,
Kaupfélagi Árnesinga og Gunnar
Sveinsson, Kaupfélagi Suður-
nesja, voru endurkjörnir í stjórn
SÍS til þriggja ára og Þröstur
Ólafsson, Kaupfélagi Reykavík-
ur og nágrennis, var einnig kos-
inn í stjórn til þriggja ára í stað
Ingólfs Ólafssonar, sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs. Með-
stjórnandi til eins árs, í stað Ólafs
Sverrissonar, var kosin Helga
Valborg Pétursdóttir, Kaupfélagi
Þingeyinga. Fyrir í stjórninni
voru þau Hörður Zóphaníasson,
Jónas R. Jónsson, Valgerður
Sverrisdóttir og Þorsteinn Sveins-
son.
í varastjórn Sambandsins til
eins árs voru kosin þau Birna
Bjarnadóttir, Þórólfur Gíslason
og Dagbjört Höskuldsdóttir. BB
síðan fengið að sofa á kerru-
poka innan skjólveggs um
heita pottinn í garðinum.
Snorra er gefin blanda úr
mjólk og lýsi sem hann vill
helst ekki drekka úr pela held-
ur úr lófa gefandans.
Snorri er landsselskópur sem
fjölskyldan fann illa á sig kominn
og móðurlausan, langt frá sjó, er
hún var í gönguferð í fjörunni við
Saltvík á sunnudaginn. Litli sel-
kópurinn er talinn vera um hálfs-
mánaðar gamall og var hann
mjög horaður er hann fannst,
skældi hann og bar sig aumlega
enda sáust þess merki um alla
fjöruna að hann hefði skriðið um
í leit að spenanum sínum. Hann
hafði étið sand og var orðinn þurr
og skorpinn, spikið undan feldin-
um var uppurið svo skinnið virtist
alltof stórt fyrir hann. Snorri var
ekkert of hrifinn af ökuferðinni
til Húsavíkur en eftir að þangað
kom eltir hann hvern þann sem
klappar honum og er mjög mann-
elskur og blíðlyndur, enda orð-
inn uppáhald unga fólksins í
hverfinu. Snorri er strax farinn
að mýkjast og braggast enda er
honum nú vel sinnt. „Við ætlum
að fá hann til að taka svolítið við
sér en skila honum síðan til sinna
heimkynna. Við höfum heyrt að
slíkt hafi tekist," sagði Hera,
aðspurð um framtíð litla kópsins.
Það er víst að þá verður Snorra
saknað af fjölda ungs fólks er nú
fær að kynnast svo óvenjulegu og
elskulegu gæludýri, það er nefni-
lega eitthvað við hann Snorra
sem heillar alla upp úr skónum.
IM
Hróp verkalýðshreyfmgarinnar um mjólkurkaup heyrist vel:
Börn á dagvistum Akureyrar
fá engar mjólkurvörur
Ákall verkalýðshreyfingar-
innar til almennings þess efn-
is að hann kaupi ekki mjólk í
dag ug næstu daga virðist
hafa borið nokkurn árangur
a.m.k. á Akureyri. í gær
ákváðu sex dagvistir Akur-
eyrarbæjar af sjö að kaupa
ekki mjólk þessa daga og
málið átti að ræða á starfs-
mannafundi í gærkvöldi hjá
þeirri sjöundu. Hjá Mjólk-
ursamlagi KEA fengust þær
upplýsingar að eitthvaö hefði
dregið úr pöntunum í gær en
erfitt var að segja til um í hve
miklu magni það var. Þá
dróst mjóikursala í stórversl-
unum verulega saman í gær,
nema í Matvörumarkaðnum.
Það eru dagheimilin Flúðir,
Síðuscl, Sunnuból og Pálmholt
og leikskólarnir Iöavöllur og
Lundasel sem ákváðu í gær að
afpanta alla mjólk umrædda
daga. í gær átti að halda starfs-
mannafund á Árholti þar sem
taka átti ákvörðun um málið. Á
Iðavöllunt voru mjólkurbirgðir
frá mánudeginum meira að
segja látnar eiga sig í gær og
börnunum gefinn djús í sólinni.
Samkvæmt upplýsingunt Dags
munu börnin á dagvistunum fá
ávaxtasafa í stað mjólkurinnar í
dag og á morgun. Reiknað var
með að þau tækju þessu vel því
safinn er vinsæll meðal barn-
anna. í gær hafði ekki reynt á
hver viðbrögð foreldra væru við
mjólkurleysinu en þeir foreldr-
ar sem þegar vissu af því höfðu
tekið þessu vel að sögn for-
ráðamanna dagvistanna.
í stórmarkaði KEA við
Hrísalund var um verulegan
samdrátt í mjólkursölu að ræða
í gær en sá fyrirvari var gefinn,
að veður hefði verið gott og að
fólk kæmi e.t.v. á síðustu
stundu í innkaupin. I Hagkaup
var sömu sögu að segja, mjólk-
ursala almennt hafði dregist
saman og talað var urn ótrúlega
samstööu fólks. Reiknað var
rneð að f dag yröi pantað mun
minna af mjólk en venjulega.
Aöra sögu er að segja frá
Matvörumarkaðnum Kaupangi.
Þar hafði sala á mjólk verið
nokkuð eðlileg og samdráttur
ekki merkjanlegur. Viðskipta-
menn höfðu á orði að þeim
þættu mótmælin ekki beinast
gegn réttum aðilum, þ.e. bænda-
stéttinni, Búist var við að pant-
að yrði svipað magn af mjólk í
dag og venjulega. VG