Dagur - 26.07.1989, Side 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 26. júií 1989
}
f/ myndasögur dags 7j
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
rz—; —•—n—á': .. —
arðu ... Ekki
á réttri
Heið? ...'.p
rétt, er Ted Browning
ekki lengur í Singapore!
hans að hafa hann i haldi í einu skipa
•sinna...
tilfelliö, getur þú
treyst því að ég
og mínir menn
hjálpum þér að.
finna hann[
V"
legt af yður hr. Wo ...
en hvers vegna vilt þú
hafa fyrir þvi að hjálpa
okkur2,
„Höfum staðið í
sterkari liðunum44
- segir Erlingur Kristjánsson fyrirliði KA
um Fram-leikinn í kvöld
Erlingur Kristjánsson fyrirliði
KA er hæfilega bjartsýnn fyrir
leikinn gegn Fram í kvöld.
„Við höfum náð okkur vel á
strik gegn sterkari liðunum og
ég sé enga ástæðu til þess að
það eigi eftir að breytast gegn
Frömurum í kvöld,“ segir
varnarmaðurinn sterki.
Erlingur telur að leikmenn KA
hafi ekki náð að byggja sig sál-
rænt nægjanlega vel upp gegn
veikari liðunum og því hafi svo
mörg stig glatast gegn þeim
liðum. „Annars er varla hægt að
tala um veikari lið því öll félögin
virðast geta tapað stigum gegn
hvaða liði sem er, hver svo sem
staða þeirra í deildinni er,“ bætti
Erlingur við.
Leikur Fram og KA í kvöld er
fyrsti leikur 11. umferðar íslands-
mótsins og sá eini sem fram fer í
kvöld. Á morgun fimmtudag
leika ÍA og Valur á Akranesi,
FH og ÍBK í Keflavík og KR og
Víkingur að Kaplakrikanum.
Á föstudag er síðan stórleikur
á Akureyri er Þórsarar mæta
Fylkismönnum á Akureyrarvelli.
Bæði lið eru í harðri baráttu í
Erlingur Kristjánsson er hvergi
banginn fyrir leikinn gegn Fram í
kvöld.
neðri hluta deildarinnar og mega
alls ekki við að tapa einu einasta
stigi í þeim leik. Það má því
búast við hörkuviðureign á Akur-
eyrarvelli á föstudagskvöldið.
Knattspyrna/2. deild:
Heil rnnferð
í kvöld
- Leiftur-UBK og
Tindastóll-Stjarnan
Heil umferð verður í 2. deild-
inni í knattspyrnu í kvöld.
Norðanliðin verða þar í sviðs-
Ijósinu og beinist athyglin
einkum að leik Leifturs og
Breiðabliks á Ólafsfirði og leik
Tindastóls og Stjörnunnar á
Sauðárkróki. Síðan leika
Völsungar mjög mikilvægan
leik gegn Selfossi á Selfossi.
Tindastóll vann góðan sigur á
Völsungum í síðustu umferð en
liðið er samt sem áður í neðsta
sæti deildarinnar ásamt Einherja
frá Vopnafirði. Stjarnan er hins
vegar í efsta sæti deildarinnar en
tapaði síðasta leik og virðist vera
að fatast flugið. Það má því búast
við hörkuviðureign á Króknum í
kvöld.
Það verður ekki síður hart bar-
ist á Ólafsfirði í kvöld. Þar koma
Blikarnir úr Kópavogi í heim-
sókn en síðasta leik liðanna lauk
með jafntefli. Bæði lið eru um
miðja deild en botninn er ekki
langt undan og því mikilvægt fyr-
ir félögin að koma sér af hættu-
svæðinu.
Völsungar leika við Selfoss á
Selfossi og verða að vinna til að
ná sér eftir slæmt tap á Sauðár-
króki um síðustu helgi.
ÍBV tekur á móti Víði í Eyjum
en bæði lið hafa verið í topp-
baráttunni fram að þessu.
# „Þú skilur
hann
aldrei...“
Listamaöur nokkur norðan
heiða fór ákaflega mikið í
taugarnar á vörubllstjóra
einum á Akureyri. Listamað-
urinn málaði gjarnan mynd-
ir af mótífum sem bíl-
stjóranum þóttu ekki beint
gáfuleg, eða þannig. Eitt
sinn var sá síðarnefndi á
málverkasýningu, þar sem
gaf að líta verk eftir
umræddann listamann, m.a.
eina mynd af þvotti sem var
að vindþurrkast á snúru. í
kaffitíma daginn eftir barst
listamaðurinn í tal af ein-
hverjum ástæðum, og varð
einum starfsmannanna að
orði að N.N. væri nú góður
málari. Hann hafði ekki fyrr
sleppt orðinu en bílstjórinn
spratt upp, þreif í hálsmálið
á þeim sem hafði talað og
sagði: „Þú skilur hann aldrei,
hann er listamaður!“ Og þar
við sat.
# Helgarupp-
bótin
Á þessari steypustöð kom
ýmislegt fyrir eins og geng-
ur á vinnustöðum. /Etti að
vera óhætt að greina frá
sumu af því hér þar sem
fyrirtæki!i er löngu hætt
starfsemi. Eitt sumarið, fyrir
áratug eða svo, var ákaflega
kalt og rigr ingasamt. Þá
þurfti stundum að „sjóða (
brjótinn,“ þ.e. gera við grjót-
mulningstæki sem nefndist
valsabrjóturinn. I þvi verki
fólst að rafsjóða þykkt slit-
lag á stálvalsa, og tók verk-
ið iðulega nokkra daga, með
hléum. Eitt sinn voru tveir
menn þarna við vinnu og
var þeim orðið kalt. Skrapp
þá annar þeirra í hús og
fékk iánaða öndvegis Sjen-
eversflösku, „því það er svo
fjári leiðinlegt að hanga
þarna uppfrá á laugardags-
kvöldi í kulda og trekk, og
hvergi skjól,“ eins og hann
komst að orði.
# Tilraunin
Á sama vinnustað var gerð
eftirfarandi „tilraun“: Starfs-
maður keypti hálfa svarta-
dauðaflösku, stillti henni
upp á hillu (kaffistofunni og
fylgdist með hversu langur
tími liði þar til byrjað væri
að drekka úr henni, - en það
var hverjum frjálst sem
vildi, ókeypis. Þetta gerðist
á föstudegi. Flaskan kom á
hilluna klukkan eitt en var
tóm um fjögurleytið - þegar
kaffitímanum lauk.
Blak:
Hafsteinn í KA
- hyggst leika blak næsta vetur
Hafstcinn Jakobsson mun að
öllum líkindum dusta rykið af
blakskónum sínum og leika
aftur með KA-liðinu næsta
vetur. „Það er freistandi að
breyta til og það kitlar að leika
blak aftur. Það hjálpar líka
mikið til að það er hugur í lið-
inu og menn eru staðráðnir í
Hafstcinn Jakobsson.
því að verja íslandsmeistaratit-
ilinn,“ sagði Hafsteinn í sam-
tali við Dag.
Hafsteinn lék með KA vetur-
inn 1986-87 og svo nokkra leiki
veturinn 1987-88. Hann er mjög
góður blakmaður og ætti að
styrkja KA-liðið töluvert.
Ef Hafsteinn kemur til Akur-
eyrar, en hann er nú búsettur á
Ólafsfirði, mun konan hans Birg-
itta Guðjónsdóttir einnig að öll-
um líkindum leika með kvenna-
liði KA. Reyndar er Birgitta
þekktari sem frjálsíþróttakona
en hún er einnig mjög frambæri-
leg blakkona.
Fei, hinn kínverski þjálfari
KA, er væntanlegur til landsins
1. september og hefur umrótið í
Kína ekki breytt þeirri áætlun.
Hann skrifaði KA-mönnum fyrir
nokkrum dögum og var hinn
hressasti. Fei sagðist hafa verið í
fríi en vera byrjaður að æfa og
kvaðst hlakka mikið til að koma
til íslands aftur.