Dagur - 10.08.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 10.08.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 10. ágúst 1989 fréffir Sjö norölensk fyrirtæki kynna sína framleiöslu á „íslenskum dögum“ sem hefjast í dag, fimmtudag, í sex stórmörkuö- um á höfuðborgarsvæðinu. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, mun form- lega opna kynninguna kl. 17 í Miklagarði við Sund og við það tækifæri verður frumflutt lag Jóhanns G. Jóhannssonar, „Okkar framtíð“, en í texta þess eru neytendur hvattir til að velja íslenska framleiðslu- vöru. Akureyri: Meira atvinnu- leysi en á sama tíma í fyrra Mun meira atvinnuleysi var á Akureyri í júlímánuði í ár en á sama tíma í fyrra og spilar m.a. lokun Útgerðarfélags Akur- eyringa þar inn í. Um mánaðamótin voru 186 Þau norðlensku fyrirtæki sem kynna sína framleiðslu eru Kaup- félag Eyfirðinga (kjötvörur), Kaffibrennsla Akureyrar (kaffi) Flóra (smjörlíki), Sjöfn (efna- vara), Strikið (skófatnaður), Linda (sælgæti) og Kaupfélag Skagfirðinga (sængur og koddar). Eins og áöur segir liefjast kynningardagarnir í dag og standa til 25. ágúst. Á sjötta tug neytendavöruframleiðenda kynna vörur sinar í verslununum Miklagarði við Sund, Miklagarði vestur í bæ, Kaupstað í Mjódd, KRON í Eddufelli, Stórmark- aðnum Kaupgarði og Miðvangi í Hafnarfirði. Að sögn Gfsla Blöndal er hér um að ræða mjög merkilegt kynningarátak á íslenskri fram- leiðslu. „Þetta er að mínu mati eitt það merkilegasta sem gert heíur verið í að fá fólk til að velja íslenskt." óþh Upplýsingaskilti við Kröfluaileggjara veitir upplýsingar um vegakerfi og þjónustu á svæðinu. Mynd: kr Mývatnssveit: Fyrstu upplýsingaskiltin komin upp Fyrstu upplýsingaskiltin á vegum Vegagerðar ríkisins voru sett upp í Mývatnssveit sl. föstudag. Stefnt er að því að slíkum skiltum verði komið upp um allt land en þau eiga að vera leiðbeinandi og veita upp- lýsingar um vegakerfið og þjónustu. Skiltin voru reist við Kröfluafleggjarann og í Námaskarði en þar er einnig verið að vinna að gerð áningastaða eins og sagt var frá í Degi fyrr í sumar. Starfshópur innan Vegagerðar ríkisins fékk Halldór Jóhannsson landslagsarkitekt til að vinna að hönnun skiltanna og áningastaða sem þau standa við. Um er að ræða alþjóðleg upplýsingaskilti sem menn hvaðanæva að ættu ekki að eiga í vandræðum með að skilja. KR Óskar Gunnarsson forstjóri Osta- og smjörsölunnar: Kynningardagar á höfuðborgarsvæðinu: Sjö norðlensk fyrirtæki kynna sína framleiðslu . Engin hætta á smjörskorti - aukinn innflutningur á erlendu viðbiti áhyggjuefni manns á skrá og voru konur í meirihluta eða 116 en karlar á skrá voru 70. Á sama tíma í fyrra voru 56 skráðir atvinnulausir Starfsmaður Vinnumiðlunar- skrifstofunnar sagði ekki gott að segja hver ástæðan væri en aðal- lega væri um að ræða atvinnu- laust verkafólk og spilaði tíma- bundin lokun hjá Útgerðarfélagi Akureyringa þar inn í. KR Óskar Gunnarsson forstjóri Osta- og smjörsölunnar telur engar líkur á smjörskorti á landinu á næstunni þannig að innflutningur smjörs verði nauðsynlegur. Óskar telur að jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar sé orðið eins gott og mögulegt er en jafnframt telur hann að sá aukni inn- flutningur sem búist er við á erlendu viðbiti öðru en smjöri geti dregið nokkuð úr neyslu á innlendu smjöri og raskað þessu jafnvægi. að það er hægt að fá mjög góða vöru erlendis og ef innflutningur á henni verður hömlulaus þá er það áhyggjuefni," sagði Óskar og bætti því við að meðal annars af þessum sökum væri hann ekki hræddur við smjörskort. Blanda sss>* Hp?:"nr,ApPe,S'nU^fi Pure Orange Juice Því hefur verið lýst yfir í sjón- varpsfréttum að skortur verði á smjöri í byrjun næsta árs og inn- flutningur verði nauðsynlegur. „Það kemur ekki til. Það verða litlar birgðir þegar kemur fram í mars apríl en ég tel engar líkur á að smjörbirgðir klárist,“ sagði Óskar. Jafnframt sagði hann að innflutningur á smjörlíki, sem gefinn hefur verið frjáls að hluta og nokkuð hefur borið á, geti sett strik í reikninginn og valdið sölu- tregðu á smjöri. „Ef þetta kemur af auknum krafti í haust, eins og búist er við, þá getur það haft veruleg áhrif. Því er ekki að neita Neysla á smjöri hefur dregist saman og flust yfir á Smjörva og Létt og laggott. í heildina er hins vegar um að ræða aukningu sem nemur um 4% miðað við sama tíma í fyrra. Birgðir af smjöri eru talsvert minni en í fyrra og segist Óskar því fagna þeim milljón lítrum sem bætast við mjólkur- kvótann á næsta verðlagsári, í samræmi við ákvæði búvöru- samnings frá 1986. „Jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar á mjólkurvörum er eins gott og það getur orðið. Sannast sagna má ekkert út af bregða til þess að ekki fari í óefni,“ sagði hann. ET Framkvæmdastjóraskipti hjá Sjálfsbjörg á Akureyri: Birgir tekur við stjómar- taumimum 1. september l»ann fyrsta september nk. mun nýr framkvæmdastjóri taka formlega við stjórnar- taumum hjá Sjálfsbjörg á Akureyri úr hendi Tryggva Sveinbjörnssonar, sem gegnt hefur því starfi um hríð. Sá heitir Birgir Karlsson og hefur hann unnið sem skrifstofu- stjóri Sjálfsbjargar á Akureyri. Birgir er raunar nú þegar sest- ur í stól framkvæmdastjóra en Tryggvi er sem stendur í sumar- fríi. Hann kemur aftur til starfa síðari hluta ágústmánaðar og vinnur til loka mánaðarins, er hann lætur af starfi og flyst til höfuðborgarinnar. Snæbjörn Þórðarson, formað- ur Sjálfsbjargar á Akureyri, seg- ist búast við mjög svipaðri starf- semi félagsins á komandi vetri og undanfarin ár. Bjarg var eitt fyrirtækja á Akureyri sem tók þátt í maricaðs- átaki Iðntæknistofnunar á liðnum vetri. Snæbjörn segir að þessi vinna hafi að mestu legið niðri að undanförnu vegna sumarleyfa en þráðurinn verði aftur tekinn upp innan tíðar og niðurstaðna sé að vænta fljótlega. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.