Dagur - 07.10.1989, Blaðsíða 3
Laugardagur 7. október 1989 - DAGUR - 3
Reykj avík-Akureyri:
354 km af leiðinni
með bundnu slitlagi
Ratsjárstofnun:
Frestar byggingu íbúða
á Bakkafirði til vors
Á þessu ári var lagt bundið slit-
lag á 31,8 km á Ieiðinni milli
Akureyrar og Reykjavíkur.
Heildarvegalengdin milli stað-
anna er 432 km og er bundið
slitlag komið á um 354 km, eða
82% af leiðinni. Á næsta ári er
Handknattleikur:
FH spáð 1. sæti
en KA 7. sæti
Á fundi sem samtök 1. deildar-
félaga í handknattleik héldu á
fimmtudagskvöldið var birt
spá sem forráðamenn félag-
anna gerðu um stöðu liðanna í
deildinni. FH var talið sigur-
stranglegast en KA lenti í 7.
sæti samkvæmt spánni. Nánar
verður sagt frá þessum fundi
eftir helgina.
Spáin var þannig gerð að for-
ráðamenn félaganna fengu
atkvæðaseðla og röðuðu þeir
félögunum niður. Reyndar urðu
einhver mistök við útdeilingu
atkvæðaseðla þannig að einungis
sjö félög tóku þátt í spánni. Hins
vegar var hún endurtekin á fund-
inurn og þá breyttist röðin ekki
neitt. En lítum á spá félaganna:
1. FH
2. Stjarnan
3. Valur
4. Víkingur
5. KR
6. Grótta
7. KA
8. ÍBV
9. ÍR
10. HK
áætlað að leggja bundið slitlag
á 20,3 km á þessari fjölförnu
leið. Gert er ráð fyrir að stóra
stundin renni upp árið 1995 en
þá á öll leiðin að vera lögð
bundnu slitlagi.
Eftirfarandi vegakaflar á leið-
inni Reykjavík-Akureyri voru
lagðir bundnu slitlagi á árinu
1989: Vesturlandsvegur í Hval-
firði (Eyrarfjallsvegur-Kjósa-
skarðsvegur) 4,5 km, Vestur-
landsvegur í Borgarfirði (um
Svignaskarð) 7 km, Vesturlands-
vegur í Borgarfirði (um Sveina-
tungu) 4,2 km, Norðurlandsveg-
ur í Víðidal (Víðidalsvegur
vestri-Víðidalsá) 6,5 km,
Norðurlandsvegur á Vatnsskarði
4,1 km, Norðurlandsvegur í
Skagafirði (Miðhús-Víðivellir)
3,8 km og Norðurlandsvegur á
Pelamörk (Steðji-Krossastaðir)
1,7 km.
Árið 1990 er áætlað að bundið
slitlag komi á eftirfarandi kafla á
þessari sömu leið: Vesturlands-
veg í Hvalfirði (um olíustöð) 2,1
km, Vesturlandsveg á Holta-
vörðuheiði (frá Miklagili að Brú)
4.6 km, Norðurlandsveg í Skaga-
firði (frá Víðivöllum að Uppsöl-
um) 6 km og Norðurlandsveg á
Þelamörk (frá Bægisá að Steðja)
7.6 km.
Eins og ökumönnunt er kunn-
ugt var komið meira af bundnu
slitlagi á Öxnadalsheiði en það er
í dag, en það varð gjörónýtt í
Bakkaselsbrekkunni. Haukur
Jónsson hjá Vegagerð ríkisins á
Akureyri sagði að sá kafli yrði
ekki tekinn sérstaklega aftur
heldur fylgdi hann með í heildar-
áætlun um bundið slitlag á Öxna-
dalsheiðinni. Tímasetning er
1991-92. Sjá nánar meðfylgjandi
kort. SS
Nú er Ijóst að ekki verður haf-
ist handa í haust við byggingu
íbúða á Bakkafirði fyrir starfs-
menn Ratsjárstofnunar við rat-
sjárstöðina á Gunnúlfsvíkur-
fjalli. Að sögn Jóns Böðvars-
sonar, hjá Ratsjárstofnun, er
þó fastlega búist við að ráðist
verði í byggingu íbúðanna að
vori.
Út frá því var gengið að byrjað
yrði á grunnum að fjórunt starfs-
mannaíbúðum á Bakkafirði í
haust. Samningaviðræður milli
Skeggjastaðahrepps og Ratsjár-
stofnunar um íbúðirnar hafa
staðið yfir unt skeið og segir Jón
að þær séu enn í gangi þrátt fyrir
að ákveðið hafi verið að hætta
við framkvæmdir í haust.
skiptar skoðanir um ágæti þess að
staðsctja íbúðirnar á Bakkafirði.
Sveitarstjórn Þórshafnarhrepps
hefur harðlega gagnrýnt ákvörð-
un ráðherra um að byggja íbúð-
irnar á Bakkafirði og bent á að
eðlilegra væri að byggja þær á
Þórshöfn m.a. vegna þess að þar
er ýmiss opinber þjónusta. Jón
Böðvarsson segist líta svo á að
gagnrýni Þórshafnarbúa sé eðli-
Stúdentagarðarnir á Akureyri:
Afhentir formlega í dag
Stúdentagarðarnir við
Skarðshlíð á Akureyri, verða
afiientir formlega í dag. Bygg-
ing garðanna hefur gengið
mjög vel, fyrsta skóflustungan
var tekin þann 5. maí síðastlið-
inn og í vikunni fluttu fyrstu
íbúarnir inn.
Það voru SS-Byggir og Möl og
sandur hf. sem sáu um bygging-
una og ntunu verktakarnir
afhenda Sigurði P. Sigmundssyni
formanni stjórnar Félagsstofnun-
ar stúdenta, lyklavöldin við hátíð-
lega athöfn sent hefst kl. 14.30. Á
meðal gesta verða m.a. Svavar
Gestsson menntamálaráðherrra,
Sigfús Jónsson bæjarstjóri á
Akureyri og Haraldur Bessason
rektor Háskólans á Akureyri.
Þá stendur einnig til að gefa
stúdentagörðunum nafn en
hvaða nafn varð fyrir valinu, fæst
ekki uppgefið fyrr en í dag. Loks
má geta þess að almenningi gefst
Akureyrarbær:
Framkvæmdir til að
auka umferðaröryggi
Framkvæmdir til að auka
umferðaröryggi á gönguleiðum
í nágrenni Barnaskóla Akur-
eyrar eru nú vel á veg komnar,
að sögn Gunnars Jóhannes-
sonar, verkfræðings hjá Akur-
eyrarbæ.
Að sögn Gunnars er verið að
leggja lokahönd á verk við þreng-
ingu Þórunnarstrætis, en fjölfarin
gangbraut er á götunni norðan
þeirrar götu og
Hrafnagilsstrætis. Umferðin
þarna væri ekki nægilega mikil til
að bera umferðarljós.
Þá verður gerð önnur þrenging
norðan íþróttahallarinnar, við
göngustíginn til móts við Hús-
mæðraskólann. Sá kantsteinn
verður líkast til steyptur í dag
eða á morgun. Einnig er ætlunin
að setja upp svokölluð „Toronto-
ljós“ á Eyrarlandsvegi, við
gangbrautina austan og neðan
við Barnaskólann. EHB
kostur á að skoða húsakynnin í
dag frá kl. 16.30 til 18.30. -KK
„Upphaflega var gert ráð fyrir
að við byrjuðum í sumar en það
má segja að við höfum brunnið
inni á tíma. Það er út af fyrir sig
ekki hættulegt því við teljum
okkur hafa nægan tíma til að
byggja yfir starfsmenn stöðvar-
innar. Miðað er við að hún verði
ekki tekin í notkun fyrr en 1991,“
segir Jón.
Eins og frant hefur komið eru
kappsmál fyrir lítil sveitarfélög á
norðausturhorninu að ná
umræddum íbúðum bæði vegna
þjónustu við íbúana og tilfallandi
tekna af þeim. Jón segir að hann
hafi ekki orðið var við gagnrýni á
staðsetningu íbúðanna frá verð-
andi starfsmönnum á Gunnólfs-
víkurfjalli. óþh
Vaxtarræktin
íþróttahöllinni
Boöið er upp á byrjenda-
námskeið fyrir karlmenn
Námskeiðið er þrisvar í viku:
Þriðjudag kl. 20.30
Föstudag kl. 20.30
Laugardag kl. 12.00
i
Boðið verður upp á
persónulega ráðgjöf
í mataræði sé þess óskað,
ásamt því að hver og einn fær
æfingaáætlun sem honum
hentar.
Leiðbeinandi er Einar Guðmann
Alm. tímar alla virka daga
frá kl. 16.30.
Kvennatímar mánudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga
og laugardaga.
Upplýsingar í símum 27427 og 21061 frá kl. 9-12.
Vaxtarræktin
íþróttahöll
Hvort sem menn vilja byggja sig upp fyrir aðrar
íþróttir, fara í megrun eða einungis halda sér við og
koma sér í form, þá er kjörið tækifæri að nýta sér það
sem líkamsrækt hefur upp á að bjóða.