Dagur - 07.10.1989, Síða 13

Dagur - 07.10.1989, Síða 13
Jakob Frímaimsson níræður Fyrrverandi stórhöfðingi í íslenzku athafnalífi, Jakob Frí- mannsson á Akureyri, er níræður í dag, laugardaginn 7. október. Flann fæddist á Akureyri árið 1899, sonur alkunnra sæmdar- hjóna, þeirra Sigríðar Björns- dóttur og Frímanns Jakobssonar, sem þar bjuggu um áratuga skeið og nutu hvers manns trausts fyrir mannkosta sakir. Annar lands- kunnur sonur þeirra hjóna er Svanbjörn Frímannsson, fyrrv. bankastjóri Landsbanka íslands og nú eftirlaunamaður í Reykja- vík, en með þeim bræðrum hafa ávallt verið miklir kærleikar. Þótt nærfellt 20 ár séu liðin frá því að Jakob lét af sínum umfangsmiklu störfum í athafna- lífinu er starfsferill hans enn fjöl- mörgum í fersku minni og óþarft að rifja hann upp í smáatriðum, enda yrði sú upptalning alltof löng fyrir stutta afmæliskveðju. Helztu atriði má þó rifja upp til uppfyllingar í fátæklegri ritsmíð: Hann starfaði að afloknu Verzl- unarskólanámi, um 53 ára skeið, hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, fyrst við almenn verzlunarstörf, síðan sem fulltrúi kaupfélagsstjórans, Vilhjálms Þórs, og að lokum sem kaupfélagsstjóri um rúmlega þriggja áratuga skeið, eða þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir á öndverðu ári 1971. Hann var áratugum saman stjórnar- maður í Sambandi íslenzkra sam- vinnufélaga og árum saman for- maður stjórnarinnar, áratugum saman stjórnarmaður í Sam- vinnutryggingum g/t og Olíu- félaginu h.f., auk fjölmargra atvinnufyrirtækja annarra þar sem sérstaklega má nefna Flugfélag íslands h.f., síðar Flug- leiðir h.f. eftir sameininguna við Loftleiðir h.f., en Jakob var mik- ill áhugamaður um flugmál og einn af frumkvöðlum að stofnun - Afmæliskveðja Flugfélags Akureyrar, sem var forveri Flugfélags íslands. Hann var bæjarfulltrúi á Akureyri um áratuga skeið og heiðursborgari Akureyrar síðustu fimmtán árin, sá eini núlifandi. Hvar sem hann kom við sögu var hann kjörinn til forystu sakir hæfileika sinna, ávallt boðberi öryggis, festu og framþróunar fremur en byltinga og gat að störfum loknum litið til baka yfir óvenju glæstan og far- sælan feril, sem var landi og þjóð til heilla. Gæfuspor hans sjást enn víða í atvinnulífinu og þá sérstaklega í heimabyggðum. Yfir þau mun ekki fenna langa hríð. í upphafi nefndi ég Jakob fyrr- verandi stórhöfðingja í íslenzku athafnalífi og vissulega lét hann af störfum fyrir mörgum árum, svo sem hér hefur fram komið. En Jakob Frímannsson verður ávallt og hefur alltaf verið mikill höfðingi, þannig er öll hans persónugerð, þannig er maður- inn allur. Góðar gáfur samfara traustri persónugerð og glæsi- leika gera menn að höfðingjum og þannig hefur Jakob verið í yfirlætisleysi sínu og hógværð, leiðtogi í blíðu og stríðu. Þessa höfum við notið, samferðamenn hans um lengri eða skemmri veg. Við hyllum hann því í dag með miklu þakklæti í huga.. Eiginkona Jakobs er Borghild- ur Jónsdóttir, ættuð frá Reyðar- firði, og manni sínum samstiga alla tíð í lífi og starfi, þannig að höfðingsskapurinn var þeirra sameign. Fjölmargir minnast með hlýju og þakklæti margra ánægjustunda á heimili þeirra að Þingvallastræti 2 á Akureyri, sem var ávallt opið vinum og vanda- mönnum - öllum góðum gestum, sem að garði bar. Nú hin allra síðustu árin hafa þau dvalið á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akur- eyri við góða umönnun starfs- fólksins þar, sátt við lífið og til- veruna, ern og hress í anda mið- að við aldur og ylja sér við minningar um litríkt og gefandi líf, sem enn varir og tekur nú út sitt síðasta og e.t.v. fegursta þroskastig í sívaxandi ljóma þess almættis, sem öllu ræður og allra bíður. Guð blessi þeirra fagra ævi- kvöld. Á þessum merku tímamótum í lífi Jakobs sendum við Sigríður og börn okkar þeim Jakobi og Borghildi, og fjölskyldu þeirra allri, hugheilar hamingjuóskir og þökkum trausta vináttu allt frá fyrstu kynnum. Við teljum okkur vita, að þau heiðurshjónin taki á móti gestum á Hótel KEA í dag. Þangað stefnum við nú hraðbyri, ef veðurguðirnir lofa, og hlökk- um til endurfundanna. Lifið heil. Valur Arnþórsson. Atlantshafsbandalagið veitir fræðimannastyrki Atlantshafsbandalagið mun að venju veita nokkra fræðimanna- styrki til rannsókna í aðildarríkj- um bandalagsins á háskólaárinu 1990-1991. Markmið styrkveit- Fræðslumiðstöð Rauða kross íslands hefur gefið út námsskrá fyrir haustönn 1989 og vorönn 1990. Boðið er upp á 29 mismunandi námskeið og eru þau ýmist ætluð almenningi eða sjálfboðaliðum Rauða krossins auk þess sem haldin eru nokkur starfsmennt- unarnámskeið. Fjölmörg námskeið í skyndi- hjálp verða í boði um land allt en deildir Rauða krossins eru nú 47 talsins. Rauði kross íslands leit- ast við að setja upp námskeið í skyndihjálp fyrir einstaka hópa og sníða þau að þörfum þeirra og óskum. Boðið verður upp á námskeið í skyndihjálp fyrir for- eldra og er þar sérstaklega fjallað um slysahættur og leiðir til að koma í veg fyrir slys, einnig námskeið sem ætlað er ferða- mönnum iannanlands. inganna er að stuðla að rann- sóknum og aukinni þekkingu á málefnum er snerta Átlantshafs- bandalagið og er stefnt að útgáfu á niðurstöðum rannsóknanna. Mörg ný námskeið eru í boði fyrir unglinga í Ungmennahreyf- ingu RKÍ svo sem fjölmiðlanám- skeið, félagsmálanámskeið, námskeið fyrir ungt fólk sem er á faraldsfæti og fólk sem hefur áhuga á sjálfboðaliðastörfum bæði innanlands og utan. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu RKÍ, í síma: 91-26722. Alþjóðadeild utanríkisráðu- neytisins veitir upplýsingar um fræðimannastyrkina og lætur í té umsóknareyðublöð. Styrkirnir nema nú um 277 þús. íslenskum krónum (180 þús. belgískum frönkum) og er ætlast til að unnið verði að rannsóknum á tímabilinu frá maí 1990 til árs- loka 1991. Einnig er greiddur nauðsynlegur ferðakostnaður, en gert er ráð fyrir að rannsóknir geti farið fram í fleiri en einu ríki Atlantshafsbandalagsins. Styrkirnir skulu að jafnaði veittir háskólamenntuðu fólki. Styrkþegum ber að skila loka- skýrslu um rannsóknir sínar á ensku eða frönsku til alþjóða- deildar utanríkisráðuneytisins fyrir árslok 1991. Umsóknir um fræðimannastyrki Atlantshafs- bandalagsins skulu berast til alþjóðadeildar utanríkisráðu- neytisins eigi síðar en 15. des- ember 1989. Aðalfimdur Handknattleiksdeildar Þórs verður haldinn í íþróttahúsi Glerárskóla sunnudag- inn 15. október kl. 14.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórn Handknattleiksdeildar Þórs. Fræðslumiðstöð Rauða kross íslands: 29 mismunandi nám- skeið í boði í vetur Laugardagur 7. október 1989 - DAGUR - 13 spurning vikunnar Borðarðu slátur? Birgir Heiðar Josepsson nemi: „Gleymdu því.“ Helgi Ólafsson nemi: „Já það geri ég." Jonas Gunnarsson nemi: „Auðvitað.“ Kristinn Kristjánsson nemi: „Keppur er skreppur." Hjalti Árnason afgreiðslusveinn: „Nei takk. Ég borða ekki gall- blöðrur og innyfli úr öðrum dýrum."

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.