Dagur - 07.10.1989, Side 16
Akureyri, laugardagur 7. október 1989
Dæmi um vöruverð: Coca-Coia 2 lítrar 99 kr. Coca-Cola 11/2 lítri 91 kr. Sykur 2 kg 138 kr. Nýjar kartöflur 2 kg 158 kr. Egg pr. kg 356 kr. Hrossabjúgu pr. kg 252 kr. Verslunin ÞOEPIE Móasíöu 1 • Sími 27755. Opið alla daga vikunnar frá kl. 8-23 Heimsendingar- þjónusta. .30. K
íslensk bókaútgáfa:
Útgefendur mótfallnir
virðisaukaskattinum
- titlafjöldi jólabóka svipaður og í fyrra
Nýja línubcitingavélin frá Hafspili hf. til í slaginn. Hreinn Elliðason segir að unnið sé að framlciðslu og hönnun vél-
arinnar í samvinnu við sjómenn og útgerðarmenn á Hornafirði. Myml: kl
Ný línubeitingavél frá Hafspili hf.
Otlit er fyrir að svipað magn af
jólabókum komi út í ár og fyrir
síðustu jól en engar tölur liggja
fyrir um fjölda titla ennþá. Jón
Veðurguðir
í helgarskapi:
Kuldakastið
bíður fram
yfir helgi
Gunnar Fanndal, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu íslands,
segir að Norðlendingar þurfí
ekki að kvíða helgarveðrinu.
Áfram verði hæglætisveður en
búast megi þó við að eftir
morgundaginn fari heldur að
kólna.
„Á laugardag verður líklega
hægviðri hjá ykkur, sennilegast
skýjað en úrkomulítið eða úr-
komulaust. Á sunnudaginn fer
hann í vestan eða norðvestanátt
og líklega einhverjar smáskúrir.
Á laugardaginn verður nokkuð
hlýtt þarna hjá ykkur en hiti á
síðan að fara niður undir frost-
markið upp úr helginni þannig að
eftir daginn á morgun sígur hita-
súlan niður á við. Eg get því ekki
sagt annað en útlitið sé þokkalegt
hjá ykkur,“ segir Gunnar
Fanndal, veðurfraeðingur. JÓH
Yfirvinnu var sagt upp í Slipp-
stöðinni á Akureyri fyrir hálf-
um mánuði og tekur uppsögn-
in gildi á mánudag. Ekki er vit-
að hvenær yfírvinna hefst
almennt á ný hjá stöðinni.
Að sögn Gunnars Skarphéð-
inssonar, starfsmannastjóra, var
yfirvinnu sagt upp í öllum deild-
um vegna verkefnaskorts, en
þróunin hefur verið sú að verk-
efni hafa færst meira yfir á
sumarmánuðina en áður þannig
að minna verður um vinnu aðra
mánuði. Þessi þróun, auk sam-
dráttar í nýsmíðum, væri mjög
bagaleg fyrir Slippstöðina, því
menn gerðu sér grein fyrir að
stöðin gæti ekki lifað á sveiflu-
kenndum viðhaldsverkefnum ein-
göngu.
Yfirvinnu í Slippstöðinni var
sagt upp á svipuðum tíma í fyrra,
og var hún ekki tekin upp á ný
fyrr en síðastliðið vor.
Nýr kjarasamningur hefur ver-
ið undirritaður milli Slippstöðv-
arinnar hf og stéttarfélaga
starfsmanna, en þau eru sex
talsins. Samningurinn gildir til 1.
mars á næsta ári, en hvað launa-
Karlsson, formaður Félags
íslenskra bókaútgefenda, sagði
að það yrði eflaust ekki ljóst
fyrr en í byrjun desember hve
margar bækur kæmu út fyrir
jólin en hann bjóst þó við að
magnið yrði svipað og í fyrra.
Samkeppni er hörð meðal
bókaútgefenda og þeir vilja sem
minnst segja um helstu tromp sín
á hinum stóra jólabókamarkaði.
Þá segja útgefendur að það skýr-
ist oft ekki fyrr en á síðustu
stundu hvort sumar bækur kom-
ist út í tæka tíð, enda vilja skil á
handritum dragast.
„Það er engin spurning að
þjóðin vill lesa bækur en þetta er
þungur róður samt sem áður.
Bókin er að keppa við fjölmargt
annað og nú erum við að berjast
gegn virðisaukaskattinum sem á
að leggja á bækur, en útgefendur
reyna hvað þeir geta að halda
bókaverði niðri. Bókaútgáfa er
náttúrlega erfið í svona litlu
málsamfélagi," sagði Jón Karls-
son um stöðuna í bókaútgáfu.
Það hefur mælst illa fyrir hjá
bókaútgefendum að virðisauka-
skatturinn eigi að leggjast á bæk-
ur en ekki blöð og tímarit, en
sem kunnugt er hefur söluskattur
á bókum lengi verið þyrnir í aug-
um útgefenda. Um verð á jóla-
bókunum sagði Jón að það yrði á
bilinu 2-3000 krónur, en auðvitað
misjafnt eftir eðli og umfangi
bókanna. SS
hækkanir varðar er hann um
flest hliðstæður við ASÍ samning-
ana sem gerðir voru síðastliðið
vor. EHB
„Það er mikið um að vera og
mikið framundan,“ segir
Hreinn Elliðason hjá Hafspili
hf á Akureyri, en fyrirtækið
vinnur nú að framleiðslu og
þróun á nýrri gerð línubeit-
ingavéla, í samvinnu við sjó-
menn og útgerðarmenn á
Hornafírði.
Hreinn sagði að undanfarna
mánuði hefði verið unnið að
ákveðinni endurskipulagningu
hjá fyrirtækinu, og væri nú bjart-
ara framundan. Menn sæju fram
á mikla vinnu allt til áramóta,
a.m.k.
Hjá Hafspili hf eru framleiddar
margar gerðir af vindum og spil-
um í skip og báta, eins og nafn
fyrirtækisins gefur til kynna.
Nýlega voru seldar níu vindur og
spil frá Hafspili í Bjart NK frá
Neskaupstað, svo eitt dæmi sé
nefnt, einnig hefur verið mikið
selt af línuspilum um land allt og
eru margar pantanir fyrirliggj-
andi á slíkum spilum.
Erfiðleikar útgerðarinnar hafa
bitnað illa á þjónustufyrirtækjum
og aðilum sem framleiða hluti til
útgerðar, og fór Hafspil ekki
varhluta af þeim fremur en aðrir.
„Maður bíður alltaf eftir aðgerð-
um ríkisvaldsins til að hjálpa
útgerðinni og er búinn að bíða
lengi,“ segir Hreinn.
Miklar vonir eru bundnar við
línubeitingavélina, og segir
Hreinn hana vera bæði ódýra og
einfalda miðað við aðrar gerðir á
markaðnum.
Asiaco hf tók nýlega að sér að
vera söluaðili um land allt fyrir
Frá því verkfall rafíðnaöar-
manna hjá ríkinu hófst hefur í
tvígang þurft að sækja um
undanþágu til viðgerða hjá
Pósti og síma á Norðurlandi, í
bæði skiptin vegna bilunar í
stafrænu símstöðinni á Sauðár-
króki. Síðara tilvikið var í
gærmorgun en þá voru fjórir
hreppar í Skagafirði síma-
sambandslausir. Um er að
ræða Viðvíkursveit, Hóla-
hrepp, Rípurhrepp og Hegra-
nes. Ársæll Magnússon,
umdæmisstjóri Pósts og síma
á Norðurlandi sagðist í gær
gera ráð fyrir að undanþága
fengist fíjótt og ætti viðgerð að
hafa lokið í gærkvöld.
„Alls eru 10 rafiðnaðarmenn
hjá Pósti og síma á Norðurlandi í
verkfalli. Á Akureyri höfum við
getað sinnt viðgerðum þar sem er
starfandi tæknifræðingur í sér-
búnaðinum og hann er ekki í
verkfalli. Enn sem komið er hafa
vélar og tæki frá Hafspili hf, en
Asiaco er eitt stærsta fyrirtækið á
íslenskum veiðarfæramarkaði.
Hreinn er nýkominn úr hálfs
mánaðar löngu söluferðalagi um
Austfirði. „Það er mikilvægt að
fara á staðina, kynna sér hlutina
og hitta sjómenn og útgerðar-
menn að máli. Við væntum mikils
af samstarfinu við Asiaco, og
höfum ástæðu til þess, eins og
þegar er farið að koma í ljós,“
sagði Hreinn Elliðason. EHB
ekki komið upp vandamál en við
gætum verið illa settir ef upp
koma erfið vandamál því einn
maður getur ekki ráðið við allt.
En sem betur fer höfum við ekki
orðið fyrir alvarlegum bilunum,"
segir Ársæll.
„Það hefur alltaf verið þannig
hjá Pósti og síma gagnvart dreif-
býlinu að við höfum haft ákveðin
forgang í sambandi við viðgerðir
enda teljum við að þar sé nauð-
syn á að hafa símann í lagi. Við
vitum um aðrar smábilanir en
förum ekki fram á hluti sem við
fáum neitun á. Slíkt verður að
bíða en hvað dreifbýlið varðar
þá er þetta að mínu mati spurn-
ing um öryggi," segir Ársæll.
„Hér hefur verið mjög góð
samvinna við okkar menn og hér
gengur enginn í þeirra verkefni.
Þeim er því sýnd fyllsta tillitssemi
enda hefur ekki komið til neinna
vandræða í verkfallinu,“ bætti
Ársæll við. JÓH
I gærmorgun rifu starfsmenn Akureyrarbæjar gripahús í Búðargili á
Akureyri. Lögregla fylgdist með þessum aðgerðum að beiðni bæjaryfír-
valda þar sem húsið var rifið gegn vilja eiganda þess. Samkvæmt upplýs-
ingum varðstjóra var húsið rifíð án nokkurra mótmæla. Mynd: kl
Slippstöðin á Akureyri:
Uppsögn yfirviimu
tekur gildi
Rafiðnaðarmenn í verkfalli:
Tvær undanþágubeiðmr
vegna bilunar í
síma á Sauðárkróki
- Qórir hreppar í Skagafirði síma-
sambandslausir í gærmorgun