Dagur - 13.10.1989, Page 5
Föstudagur 13. október 1989 - DAGUR - 5
Bréf tíl þíngmaims
í tilefni bréfs frá þingmanni
Heill og sæll, þingmaður minn,
Halldór Blöndal.
Ég þakka þér bréf þitt. Ég var
að rölta í kringum rolluskjáturn-
ar mínar hérna á túninu þegar ég
sá póstbílinn koma. Af því að
stutt var niður á veg, skrapp ég
gangandi niður eftir, því ég vissi
sem var að Dagur var að koma.
Jú, mikið rétt, Dagur var í póst-
kassanum og svo bréfið frá þér.
Mikið fjandi komstu mér
skemmtilega á óvart!
Ég vil, áður en lengra er
haldið, segja þér frá því hvernig
stendur á því að ég kaupi Dag.
Svo er mál með vexti að pabbi
keypti Dag og afi á undan
honum. Þannig er það nú. Ég
sakna þess, Halldór minn, að ég
skuli aldrei sjá greinarkorn frá
þér með mynd í Degi. Er hann
ekki frjáls og óháður eins og
Mogginn og DV-ið? Mig minnir
að allir þingmenn kjördæmisins
liafi látið ljós sitt skína í Degi á
þessu ári nema þú. Og ekki sá ég
betur en það væri viðtal við for-
manninn þinn, hann Þorstein,
fyrir skömmu í blaðinu. Ég hef
heyrt að þú hafir skrifað greinar í
Morgunblaðið, en ég sé það blað
aldrei og þaðan af síður DV. Ég
held að það sé ekki nema einn
hér í sveit sem kaupir Moggann,
en það er Gunnar í Búðarnesi.
Allur vandinn úr sögunni?
Ég er nú ekki að fara fram á það
við þig að þú látir ljós þitt skína
eins skært í blaðinu og hann Árni
Gunnarsson. Mikill bölvaður
hvellur var þetta á Húsavík út af
ummælum Árna. Fannst þér
nokkuð? Já, en það er nú alltaf
svo mikið loft í þessum Þingey-
ingum. Ertu ekki sammála því?
Þetta var útúrdúr hjá mér og
alltof langur, því ég ætlaði að
ræða við þig um bréfið þitt. Ég
rölti nú heim og tyllti mér á koll í
eldhúsinu. Ég lagði auðvitað Dag
til hliðar og fór að lesa bréfið frá
þér. Eins og þú veist, Halldór
minn, stendur nú sláturtíðin sem
hæst og ég er búinn að fara tvær
ferðir til Akureyrar með sláturfé,
en á eina eftir. Hrútaskammirnar
er ég búinn að setja inn í hús, því
það fer nú að styttast í að að þeir
geri eitthvert gagn, ef það er þá
nokkurt gagn í því að fjölga fénu
eins og nú árar. Ég hef í fullri
alvöru verið að velta því fyrir
mér, hvort ég ætti nokkuð að
vera að hleypa til þetta árið. Það
er auðvitað stór spurning. Ef allir
bændur slepptu því þetta árið að
fjölga fénu, mundu þá ekki öll
vandræði sauðfjárbænda verða úr
sögunni? Þessu hef ég stundum
verið að velta fyrir mér í haust.
Kannsi er þetta bölvuð vitleysa í
mér. Hvað finnst þér?
Allir einir
Jæja, Halldór minn. Þá er ég
búinn að lesa innganginn á bréf-
inu þínu og enn bíður Dagur. Já,
þú ert einn. Það er auðvitað
hábölvað að vera einn. Ég er líka
einn og meira að segja aleinn, því
ég er kvenmannslaus núna. Þú
hlýtur að vera mér sammála að
ekkert er eins dapurlegt og að
kúra einn í rúminu á köldum
vetrarnóttum. Ég var svo skolli
heppinn í sumar, að hjá mér var
sem ráðskona einstæð móðir með
tvö börn og ég er ekkert að leyna
því að ég lifnaði allur. En nú er
bölvaður drungi farinn að ásækja
mig á ný.
Eg veit ekki af hverju mér datt
þessi fyrripartur af vísu í hug
þegar ég hafði lesið innganginn
þinn. Það er mér alveg óskiljan-
legt:
Halldór Blöndal, alþingismaður
„ Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima. “
En nú spyr ég þig: Eru ekki all-
ir þingmenn kjördæmisins einir?
Árni einn, Málmfríður ein,
Steingrímur, sá hábölvaði og
hálfsköllótti kommúnisti, sem nú
situr í stól landbúnaðarráðherra,
hann sem lét telja hjá mér allar
skepnur í vetur (tíkin slapp
naumlega), og nú má maður tæp-
lega slátra nokkurri skepnu
heima. Allt kjöt þarf að vera
stimplað og svo má maður ekki
einu sinni gefa vinum og ættingj-
um í matinn. Þetta er nú meiri
bölvaður yfirgangurinn. Já, það
er slæmt að kommarnir skuli vera
í ríkisstjórn. Ég skil nú bara ekk-
ert í honum Steingrími - og hann
sem var alinn upp á Gunnars-
stöðum, þar sem voru að ég held
einu sinni um þúsund fjár. Þeir
hafa vonandi ekki gleymt að telja
á Gunnarsstöðum.
Dýrasti
knattspyrnumaöurinn
Jæja, Halldór minn. Þetta var nú
nokkuð langur pistill um hann
Steingrím, en við höfum nú alltaf
verið sammála um það að
skamma þessa bölvaða komma
ærlega. Þá er það hann Stefán
karlinn Valgeirsson. Við verðum
víst að setja spurningarmerki við
hann. Stefán er jú með aðstoð-
armann. Steingrímur Hermanns-
son keypti víst Stefán, þegar
þessi bölvaða ríkisstjórn var
mynduð. Hann er áreiðanlega
dýrasti knattspyrnumaður sem
keyptur hefur verið - og maður-
inn kominn á þennan aldur.
Aldrei þurftu Frakkarnir að
borga svona mikið fyrir Albert.
Þeir halda varla vatni á Englandi,
Ítalíu og Spáni þegar talað er um
einhverja fótboltamenn, sem
keyptir eru fyrir einar tvær millj-
ónir punda. Hvað eru margar
íslenskar í pundinu núna? Eru
það ekki um það bil eitt
hundrað? Eru þá ekki dýrustu
fótboltamenn keyptir á um 200
milljónir? Við sjáum á þessu að
Stefán hefur verið skolli dýr; sá
dýrasti í heimi. Kostaði hann
ekki 37 milljarða, rúmlega? Já,
mikill er andskotinn, Halldór
minn. Fannst þér ekki Stefán
karlinn fá aldeilis ókeypis auglýs-
ingu um daginn? Hann var bara í
öllum fjölmiðlum á aðra viku. Og
enginn minntist á þig. Ég man
ekki betur en að þú sitjir með
Stefáni í bankaráði Búnaðar-
bankans og stjórn Byggðastofn-
unar. Þú hlýtur að liafa eitt
atkvæði á báðum þessum
stöðum. Er það ekki? Ekki ræður
karlvargurinn öllu einn? Því trúi
ég illa. Já, Halldór minn, mér
finnst þessir stóru fjölmiðlar í
Reykjavík hafa farið illa að ráði
sínu að minnast ekki einu orði á
þig. Þú ert nú líka með í að út-
hluta milljörðunum, en þeir tala
bara um Stefán. Já, hún er oft
skrýtin þessi pólitík. Mér finnst
að þú eigir líka að fá aðstoðar-
mann, ekkert síður en Stefán.
Þrjátíu milljarða menn
Jæja. Ég var nú nærri búinn að
gleyma framsóknarmönnunum,
þeim Guðmundi og Valgerði.
Þau eru tvö. Það er nú meinið -
og Guðmundur ráðherra. Þú
hefðir nú alveg eins getað verið
ráðherra í ríkisstjórn Þorsteins,
en strákarnir í Reykjavík hirtu
öll ráðherrasætin þá. Hefur þér
aldrei dottið í hug, Halldór minn,
að tala við hann Steingrím
Hermanns, af því að hann er allt-
af að kaupa nýja fótboltamenn?
Nú síðast Júlla Sólnes og Óla Þ.
Varst þú ekki liðtækur í fótbolta
þegar þú varst í M.A. í gamla
daga? Þér hefur auðvitað ekki
dottið þessi möguleiki í hug, að
Steingrímur keypti þig. Mér
finnst það standa Stcingrími
nærri að kaupa þig og Matthías
gamla Bjarnason og ég er viss um
að þið eruð þrjátíu milljarða
menn.
Bara búinn með
innganginn
Jæja, Halldór minn, ég get því
miður ekki haft þetta lengra að
sinni. Ég verð að skreppa út á tún
og líta eftir rolluskjátunum og
henda nokkrum stráum í hrút-
ana. Ég veit að þú hefur líka
staðið í ströngu um helgina á
Landsfundinum. Ég kveð þig því
að sinni. Ég vona þó að ég geti
haldið áfram með þetta bréfkorn
mitt fljótlega, því eins og ég sagði
þér var ég bara búinn að lesa inn-
ganginn að bréfi þínu þegar ég
fór að hripa þessi orð til þín . . .
Bestu kveðjur,
Hokrari í Hörgárdal.
Því ekki
að hvílast vel?
Dýnur í öll rúm - stífar eða mjúkar
- 35 kg svampur.
Latexdýnur ★ Eggjabakkadýnur.
Sauma yfir dýnur og púða. - Úrval áklæða.
Sendi í póstkröfu.
Svampur og Bólstrun
AustursíÖu 2, sími 96-25137.
Hjukrunarfræð-
ingar athugið!
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka,
Ólafsfirði, auglýsir eftir hjúkrunarforstjóra.
Upplýsingar um starfið og starfskjör (húsnæði og
fríðindi), veita forstöðumaður í síma 96-62480 og
formaður stjórnar í síma 96-62151.
%
Kaupmenn!
Fundur verður haldinn laugardaginn
14. október kl. 14.00 að Hótel KEA.
Fundarefni:
Áhrif og framkvæmd virðisaukaskatts.
Á fundinn mæta, Guðjón Oddsson,
formaður Kaupmannasamtaka Islands
og Magnús Finnsson
framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands,
og munu þeir flytja ávörp og svara fyrirspurnum.
Kaupmannafélag Akureyrar.
©
Verðlækkun
Iferdfrá 7.990,-kr.
baminu þinu
öruggu?
Vönduðustu barna-bílstólarnir
á markaðinum, 3 gerðir.
’Slnestin