Dagur - 24.10.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 24.10.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 24. október 1989 íþróttir Enska knattspyrnan: Dýrlingamir léku Liverpool grátt - Óvænt úrslit í 1. deild - Everton í efsta sæti Jimmy Case og félagar hjá Southampton fóru illa með Liverpool á laugar- dag. Case sem lengi lék með Liverpool leikur hér á John Barnes. Það gekk mikið á í Ensku knattspyrnunni um helgina, mikið skorað í flestum Ieikjum og óvænt úrslit litu dagsins Ijós. Það bendir allt til þess að keppnin í 1. og 2. deild verði mjög spennandi í vetur og ógerlegt á þessu stigi að spá fyrir um úrslit. En rennum þá yfir þá leiki sem fram fóru um helgina. Ovæntustu úrslitin urðu á The Dell í Southamton þar sem heimamenn fengu Liverpool í heimsókn. Liverpool hefur oft gengið illa í Southampton og ýmsir af stuðningsmönnum liðs- ins voru hræddir fyrir þennan leik. En þeir óttuðust að lið þeirra yrði að gera sér jafntefli að góðu og enginn þeirra hefur búist við þeirri útreið sem lið þeirra fékk. Southampton lék mjög vel í leiknum, enginn þó betur en Matthew Le Tissier sem átti sannkallaðan stórleik. Auk þess að skora sjálfur eitt af fjórum mörkum Southampton í leiknum átti hann þátt í hinum mörkunum þrem. Rodney Wallace skoraði tvívegis og Paul Rideuot gerði einnig mark fyrir Southampton sem hafði yfir 2:0 í leikhléi. Eina mark Liverpool í leiknum skor- aði Peter Beardsley úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. Árangur Sout- hampton í haust er mjög athygl- isverður, liðið er aðeins stigi á eftir toppliðinu, en margir spáðu Southampton falli fyrir leiktíma- bilið. Liverpool missti af efsta sætinu við þennan ósigur, en á þó leik til góða. Á meðan Liverpool var tekið í Úrslit 1. deild Coventry-Manchester Utd. 1:4 Crystal Palace-Millwall 4:3 Derby-Chelsea 0:1 Everton-Arsenal 3:0 Luton-Norwich 4:1 Manchester City-Aston Villa 0:2 Q.P.R.-Charlton 0:1 Southanipton-Liverpool 4:1 Tottenhain-ShelTield Wed. 3:0 Wimbledon-Nottingham For. 1:3 2. deild Blackburn-Watford 2:2 Bournemouth-Portsmouth 0:1 Brighton-Newcastle 0:3 Ipswich-Plymouth 3:0 Leeds Utd.-Wolves 1:0 Leicester-Swindon 2:1 Oldham-Middlesbrough 2:0 Oxford-Barnsley 2:3 Port Vale-West Ham 2:2 Sheffield Utd.-Stoke City 2:1 Sunderland-Bradford 1:0 W.B.A.-Hull City 1:1 Úrslit í vikunni. 1. deild Tottenham-Arsenal 2:1 2. deild Bamsley-Sheffield Utd. 1:2 Hull City-Oldham 0:0 Plymouth-Leicester 3:1 Portsmouth-Leeds Utd. 3:3 Stoke City-W.B.A. 2:1 Swindon-Oxford 3:0 Watford-Bournemouth 2:2 Wolves-Port Vale 2:0 Bradford-Ipswich 1:0 Middlesbrough-Brighton 2:2 Newcastle-Blackburn 2:1 West Ham-Sunderland 5:0 bakaríið á The Dell notfærðu nágrannar þeirra Everton sér tækifærið og skutust á toppinn í 1. deild eftir sannfærandi heima- sigur gegn Englandsmeisturunum Arsenal. Það var útherjinn snjallli Pat Newin sem skoraði tvö af mörkum Everton gegn Arsenal og bakvörðurinn Neil McDonald bætti því þriðja við í 3:0 sigri liðsins. Everton sem hafði eitt mark yfir í hálfleik leik- ur mjög skemmtilega knatt- spyrnu um þessar mundir og get- ur hæglega blandað sér af alvöru í baráttuna um Englandsmeist- aratitilinn í vetur. Arsenal hins vegar er örugglega fegið að þess- ari viku er lokið, þar sem liðið tapaði einnig á miðvikudaginn gegn erkifjendunum Tottenham. Chelsea er að gera það gott þessa dagana og er í 2.-4. sæti í deildinni, aðeins stigi á eftir Everton. Á laugardaginn mætti Chelsea liði Derby á útivelli og sigraði með eina markinu í leikn- um. Kerry Dixon skoraði hið mikilvæga mark fyrir Chelsea í síðari hálfleik. Það eru gífurlegar sveiflur hjá Tottenham, ýmist er liðið í hópi fallbaráttuliða eða það rífur sig upp eins og nú hefur gerst og leikur þá eins og verðandi Eng- iandsmeistari. Eftir mjög góðan sigur gegn Arsenal fyrr í vikunni varð Sheffield Wed. engin hindr- un fyrir Tottenham í London á laugardaginn. Landsliðsmiðherj- inn Gary Lineker skoraði tvö mörk fyrir Tottenham í fyrri hálf- leik, en hann hefur nú svo sann- arlega fundið skotskóna eftir slaka byrjun með liðinu. í síðari hálfleiknum bætti Paul Moran þriðja marki Tottenham við, en hann hafði komið inná sem vara- maður. Leikmenn Sheffieldliðs- ins áttu ckkert svar og liðið er nú að dragast afturúr á botni 1. deildarinnar. Manchester Utd. hrökk í gang er liðið lék á útivelli gegn Coventry. Úrslitin 4:1 sigur Manchesterliðsins kemur á óvart eftir slakt gengi liðsins það sem af er. Mark Hughes miðherji Utd. skoraði tvö af mörkum liðsins og þeir Steve Bruce og Mike Phelan sitt markið hvor. Kevih Drinkell sem Coventry keypti nýlega frá Rangers skoraði eina mark Coventry í síðari hálfleik, en lið- ið var 2:0 undir í leikhléi. Við sigurinn færðist Utd. upp stiga- töfluna um nokkur sæti, en staða liðsins fyrir þennan leik var ákaf- lega ljót. Ekki er ólíklegt að þessi góði sigur liðsins gefi leikmönn- um byr undir vængi og það séu° bjartari tímar framundan. Flest mörkin í 1. deild á laug- ardaginn voru skoruð í leik Crystal Palace á heimavelli gegn Millwall, en bæði þessi lið eru úr Lundúnum. Crystal Palace hafði að lokum betur eftir mjög sveiflu- kenndan leik, en liðið komst í 3:0 í fyrri hálfleik. Millwall tókst að skora eitt mark fyrir hlé og jafn- aði síðan 3:3 í síðari hálfleik. En leikmenn Palace voru ekki á því að láta sigurinn ganga sér úr greipum og skoruðu sigurmark sitt fyrir leikslok. Það voru markahrókarnir Ian Wright og Mark Bright sem skoruðu sín tvö mörkin hvor fyrir Crystal Palace, en fyrir Millwall gerðu þeir Jeff Hopkins sjálfsmark, Tony Cascarino og Steve Anthro- bus sitt markið hver. Norwich átti ekki möguleika gegn Luton á gervigrasinu þar og tapaði stórt 4:1. Kingsley Black skoraði eina markið í fyrri hálf- leik fyrir Luton, en í þeim síðari bættu þeir John Dreyer, Danny Wilson og Steve Williams við mörkum fyrir Luton. Eina mark Norwich sköraði síðan Malcolm Allen í síðari hálfleiknum. Nottingham For. er á hraðri siglingu upp stigatöfluna eftir heldur slaka byrjun. Wimbledon fékk Forest í heimsókn um helg- ina og gestirnir fóru burt með öll stigin eftir 3:1 sigur. Leikmenn Forest höfðu náð forystu 2:1 í leikhléi og bættu síðan þriðja marki sínu við eftir hlé. Eina mark Wimbledon skoraði mið- vörðurinn Eric Young, en fyrir Nottingham For. skoruðu þeir Steve Hodge, Garry Parker og Stuart Pearce. Lið Q.P.R. er alveg vonlaust þessa dagana og er nú komið í hóp neðstu liða. Á laugardaginn tapaði Q.P.R. heima fyrir ná- grönnum sínum Charlton sem ekki telst til betri liða 1. deildar. Paul Mortimer skoraði sigurmark Charlton og eina mark leiksins í síðari hálfleik. Á sunnudag fór síðan fram leikur Manchester City gegn Aston Villa á heimavelli þeirra fyrrnefndu. Þar höfðu gestirnir betur og sigruðu með tveimur mörkum gegn engu. Mörk Aston Villa gerðu Tony Daily og Ian Olney. Leikurinn var nokkuð harður og voru þeir Trevor Morley hjá City og Stuart Gray hjá Villa reknir af leikvelli. 2. deild Sheffield Utd. heldur sínu striki í 2. deild, liðið sigraði Stoke City 2:1 og er nú í efsta sæti, tveim stigum á undan Newcastle og Leeds Utd. Newcastle vann góðan sigur á útivelli gegn Brighton 3:0 og Leeds Utd. sem í vikunni missti unnin leik gegn Portsmouth nið- ur í jafntefli á síðustu mínútu leiksins, sigraði Wolves á Elland Road. Þegar aðeins mín. var til leiksloka í leik Portsmouth og Leeds Utd. hafði Leeds Utd. for- ystu 3:1, en Portsmouth tókst að jafna 3:3. 28.204 áhorfendur sáu Leeds Utd. sigra Wolves 1:0 á laugardag. Bobby Davison skor- aði eina mark leiksins fyrir Leeds Utd. á 6 mín. leiksins. Þ.L.A. Staðan 1. deild Everton 10 6-1-3 17:12 19 Liverpool 9 5-3-1 22: 8 18 Chelsea 10 5-3-2 14: 8 18 Southampton 10 5-3-2 21:16 18 Arsenal 10 5-2-3 16:10 17 Norwich 10 4-5-1 15:1117 Tottenham 10 5-2-3 18:16 17 Nott.Forest. 10 4-3-3 14:10 15 Aston Villa 10 4-3-3 11:10 15 Millwall 10 4-2-4 18:17 14 Crystal Palace 10 4-2-412:2114 Coventry 10 4-1-5 8:14 13 Luton 10 3-3-4 10: 9 12 Man.Utd. 9 3-2-4 17:16 11 Derby 10 3-2-5 8:10 11 Man.City 10 3-1-6 15:17 10 QPR 10 2-3-5 8:11 9 Charlton 10 2-3-5 8:11 9 Wimbledon 10 1-5-4 9:14 8 Sheff.Wed. 10 1-3-6 2:19 6 2. deild Sheff.Utd. 13 8-4-1 23:13 28 Leeds Utd. 13 7-5-1 21:13 28 Newcastle 13 8-2-3 24:14 26 Plymouth 13 7-1-5 24:13 22 Sunderland 13 6-4-3 20:19 22 West Hain 13 6-4-3 21:14 22 Oldham 13 6-3-4 17:14 21 Blackburn 12 4-7-1 21:12 19 Brighton 13 6-1-6 20:19 19 Swindon 13 5-4-4 20:16 19 Wolves 13 5-3-5 22:19 18 Bourncmouth 135-3-5 22:2218 W.B.A. 13 4-4-5 21:20 16 Ipswich 13 4-4-5 19:20 16 Watford 13 4-4-5 14:16 16 Port Vale 13 3-6-4 13:14 15 Barnsley 13 4-3-6 15:24 15 Bradford 13 3-5-5 14:12 14 Oxford 13 3-4-6 17:23 13 Middlesbr. 12 3-3-6 17:2112 Stoke 13 1-8-4 13:18 11 Portsmouth 13 1-6-6 12:2111 Leicester 13 2-3-8 12:22 9 Hull 13 0-8-5 14:20 8

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.