Dagur - 24.10.1989, Side 16
oAsm
Akureyri, þriðjudagur 24. október 1989
DaLcrblaðið ét lanclsh>ycycjðinni
Áskriftarsíminn er 96-24222
Sauðárkrókur Húsavík
95-35960 96-41585 ' ÍM®®SE
Vikulega að sunnan.
Vörumóttaka í Reykjavík til kl. 16:00 á mánudögum.
Vörumóttaka á Akureyri til kl. 12:00 á fimmtudögum.
Allar nánari upplýsingar hjá EIMSKIP Akureyri,
sími 24131.
EIMSKIP
Almennur hreppsfundur í Presthólahreppi:
„Mönnum finnst skrítið
að úrelda ágætis sláturhús“
- segir Sigurður Árnason, bóndi Hjarðarási
Fjölmennur almennur hrepps-
fundur á Kópaskeri 19. októ-
ber sl. mótmælir þeim hug-
myndum sem fram hafa komið
um úreldingu sláturhússins á
Kópaskeri. I ályktun fundarins
sem send var landbúnaðarráð-
herra segir orðrétt: „Fundur-
inn bendir á álit sláturhúsa-
nefndar skipaðri af landbúnað-
arráðherra 1987, en þar segir
m.a.: „Sláturhúsið á Kópa-
skeri er nýlega endurbætt og
ekki gert ráð fyrir að þar þurfí
frekari fjárfestingar á komandi
árum... Nýtingu mætti auka
með því að flytja þangað slátr-
un frá Þórshöfn og Vopnafirði,
en á þeim stöðum báðum eru
léleg sláturhús á undanþágu.“
Fundinn sóttu um 80 manns og
segir Ingunn St. Svavarsdóttir,
sveitarstjóri Presthólahrepps, að
einhugur hafi ríkt meðal fund-
armanna.
Á fundinum var samþykkt
önnur svohljóðandi ályktun:
„Almennur hreppsfundur hald-
inn á Kópaskeri 19. október 1989
skorar á búnaðarfélögin í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu að kalla til
sameiginlegs fundar nú þegar um
framtíð slátrunar í sýslunni.“
„Mönnum finnst skrítið að
úrelda ágætis sláturhús á Kópa-
skeri og byggja upp nýtt hús á
öðrum stað. Ætli megi ekki segja
að það sé málið í hnotskurn,"
segir Sigurður Árnason, bóndi
Hjarðarási í Presthólahreppi.
Hann segir að atvinnumálin
standi mjög höllum fæti á Kópa-
skeri og nágrenni og það hafi ýtt
undir samþykkt áðurgreindrar
ályktunar. „Eg á frekar von á að
erfitt reynist að ná samstöðu hér
á Norðausturhorninu um fyrir-
komulag slátrunar í framtíðinni.
Hér er um ræða byggðapólitískt
mál og atvinnuástandið hér hefur
sitt að segja með okkar afstöðu,"
segir Sigurður. óþh
x Veðrið á Norðurlandi:
Éljagangur framundan
í gærmorgun var éljagangur í
Grímsey og á annesjum
norðanlands og benti það til
þess að vetur væri nú genginn í
garð. Hjá Veðurstofu Islands
fengust þær upplýsingar í gær
að skil væru á leið austur yfir
land og fylgdi þeim éljagangur
á annesjum.
í gærkvöld var hins vegar von á
nýrri lægð til landsins með suð-
vestanátt og hlýrra veðri. Á
morgun er síðan búist við
norðanátt og býst Veðurstofan
við einhverjum éljum á Norður-
landi á miðvikudag og fimmtu-
dag, sérstaklega þó á annesjum.
Pað er því full ástæða til að
minna ökumenn á að setja
vetrarhjólbarða undir bílinn
enda kominn vetur samkvæmt
almanakinu. SS
- segir Ungfrú Dalvík 1989
„Þetta er alveg rosaleg tilfinning. Ég er varla búin að átta mig á
þessu enn,“ sagði Árndís Guðný Grétarsdóttir, skömmu eftir að
hún var valin Ungfrú Dalvík 1989. Kjör á Ungfrú Dalvík 1989 fór
fram í Víkurröst á Dalvík sl. laugardagskvöld og var „umgjörð“
þess allt hið glæsilegasta. „Ég get ekki neitað því að ég var rosa-
lega stressuð. Ég var nærri dottin í stiganum þegar ég gekk fyrst
fram í salinn. Því verður ekki neitað að það er erfitt að koma
fram í svona keppni, ekki síst þegar allir í salnum þekkja mann,“
sagði nýkjörin Ungfrú Dalvík 1989, Árndís Guðný Grétarsdótt-
ir. Á myndinni sést er Sigríður Haraldsdóttir, sem sæti átti í sex
manna dómnefnd, krýnir Ungfrú Dalvík. Sjá myndir frá keppn-
inni á bls. 4. Texti og mynd: óþh
Aðalfundur Félags ferðaþjónustu bænda:
Syðri-Hagi verðlaunaður
- fólk ánægt með
Félag ferðaþjónustubænda
hélt aðalfund sinn um helgina
á ferðaþjónustubænum Efsta-
landi í Olfusi. Fundurinn stóð
frá laugardagsmorgni til
sunnudagskvölds og mættu á
fundinn um 40-50 manns. Á
fundinum var í fyrsta sinn veitt
viðurkenning fyrir góða ferða-
þjónustu og hlutu hjónin
Ármann Rögnvaldsson og Ulla
Maja Rögnvaldsson í Syðri-
Haga á Árskógsströnd hana að
þessu sinni.
Hjónin í Syðri-Haga hafa nú í
nokkur ár verið með í ferðaþjón-
ustu bænda. Þau hafa meðal ann-
ars byggt upp gamalt hús fyrir
gistinguna og hafa þau nú tvö hús
fyrir gistinguna. Að auki eru þau
með heimagistingu og bjóða
ferðafólki upp á ýmsa aðra þjón-
ustu. Að sögn Margrétar
Jóhannsdóttur, hjá Félagi ferða-
þjónustubænda, réðu umsagnir
gesta á Syðri-Haga nokkru um
þessa verðlaunaveitingu. „Fjöl-
útkomuna í sumar
margir gestir hafa haft samband
við okkur og lýst sérstakri ánægju
með þennan bæ,“ segir Margrét.
Margrét segir að á aðalfundin-
um hafi skýrt komið fram að
ferðaþjónusta bænda hafi nú
skapað sér fastan sess í þjónustu
við ferðafólk hér á landi. Hvað
varði verkefnin sem unnið sé að
þessa dagana þá fari nú fram
flokkun á gististöðum í ferða-
þjónustu bænda.
„Hvað nýliðið sumar varðar þá
var fólk mjög ánægt með útkom-
una. Nýtingartölur höfum við
ekki enn fengið í hendur en mér
er óhætt að fullyrða að þetta hafi
verið eitt af betri sumrum sem
komið hafa með tilliti til nýting-
ar,“ segir Margrét.
í nýrri skrá sem tekin hefur
verið saman um ferðaþjónustu
bænda eru 111 bæir skráðir í
Félagi ferðaþjónustubænda. í
einu er áætlað að ferðaþjónusta
bænda geti tekið á móti um 2000
manns. JÓH
AAKUREYRI
ALLA FIMMTUDAGAI
„Þetta er rosaleg tilfmnmg“