Dagur - 21.11.1989, Page 1
72. árgarigur Akureyri, þriðjudagur 21. nóvember 1989 223. tölublað
LACOSTE
Peysur ★ bolir
sloppar
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Verkstæðishús Foss hf. á Húsavík:
Landsbankiim bauð
hæst á uppboði í gær
Véla- og bifreiðaverkstæði í
eigu þrotabús Foss hf. á Húsa-
yík var slegið Landsbanka
Islands á uppboði í gær.
Landsbankinn bauð 27 millj-
ónir króna í húsið en Iðnlána-
sjóður bauð 26 milljónir. Fleiri
aðilar buðu í húsið en þessir
Alþýðubandalagið:
Daivíkingar
öskureiðir
Fastlega er búist við að kjör
Steingríms J. Sigfússonar,
landbúnaðar- og samgöngu-
ráðherra, í sæti varaformanns
Alþýðubandalagsins á lands-
fundi flokksins um helgina
cigi eftir að draga dilk á eftir
sér í starfi Alþýðubandaiags-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra.
Steingrímur J. Sigfússon,
þingmaður Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi eystra, bauð sig
fram á móti sitjandi varafor-
manni og fyrsta varamanni á
lista Alþýðubandalagsins í kjör-
dæminu, Svanfríði Ingu Jónas-
dóttur á Dalvík. Deildar mein-
ingar eru um það í herbúðum
Alþýðubandalagsins í kjördæm-
inu hvort líta beri á framboð
Steingríms gegn Svanfríði sem
persónulegt eða málefnalegt
uppgjör. Stuðningsmenn Stein-
gríms telja framboð hans komið
til vegna málefnaágreinings en
margir stuðningsmanna Svan-
fríðar líta hins vegar á framboð
hans sem persónulegt gagnvart
varaþingmanninum.
Dagur hefur fyrir því traustar
heimildir að fjöldi Alþýðu-
bandalagsfólks úr stuðningsliði
Svanfríðar og Ólafs Ragnars í
kjördæmi íhugi að segja sig úr
flokknum. Á Dalvík mun til
dæmis vera ríkjandi mikil reiði í
herbúðum Álþýðubandalags-
fólks vegna „atlögu" Stein-
gríms, eins og það er orðað,
gegn Dalvíkingnum Svanfríði
Ingu Jónasdóttur. Sjá í DAGS-
Ijósinu á bls. 6: „Málefnalegt
eða persónulegt uppgjör" óþh
tveir bitust að lokum um hús-
eignina.
Örlygur Hnefill Jónsson, bús-
stjóri, segir að enn vanti talsvert
upp í kröfur í búið. Enn er nokk-
uð af lausafé úr búinu óselt en
Örlygur segist ekki vilja segja til
um hvort það verði boðið upp
sérstaklega.
„Á þessu stigi get ég ekki sagt
til um hvort þetta fer á uppboð
en með einhverju móti verður
reynt að koma þessu í verð,“ seg-
ir Örlygur.
Verkstæðishúsið að Garðars-
braut 48 er að hluta til gamalt en
stórt vélaverkstæði var byggt árið
1984. Fasteignamat hússins er um
34 milljónir króna.
Foss hf. varð gjaldþrota þann
16. maí sl. JÓH
Húsvískar endur bíða eftir því að hendur fari á loft og fleygi til þeirra brauði.
Mynd: IM
Aðalfundur Félags dráttarbrauta og skipasmiðja á Akureyri um síðustu helgi:
Fyrirtæki í skipaiðnaöi þurfa að
leita leiða tQ að auka samvinnu
- hagræðingarátak nauðsynlegt, segir Jósef H. Þorgeirsson, formaður FDS
Fyrirtæki í skipaiðnaði þurfa
að leita leiða til að sameinast
eða að auka samvinnu bæði
við einstök viðfangsefni og
almennt.
Þetta er m.a. niðurstaða aðal-
fundar Félags dráttarbrauta og
skipasmiðja sem haldinn var á
Akureyri um helgina. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa voru hald-
in þrjú framsöguerindi um
málefni skipasmíðastöðva. Bogi
Sigurðsson frá Útflutningsráði
íslands ræddi 'um markaðsmál
skipasmíðastöðva, Sigurður
Ringsted, forstjóri Slippstöðvar-
innar, fjallaði um framleiðni og
hagræðingu í skipasmiðjum og
Þorleifur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands iðnaðar-
manna fjallaði í sinni framsögu
um aðstöðumál og hagræðingu í
skipasmíðaiðnaðinum.
Áð sögn Jósefs H. Þorgeirs-
Bílvelta í Þingvallastræti á Akureyri:
Snerist í þrjá hringí og valt
lýst eftir vitnum og ökumanni hvítrar fólksbifreiðar
upplýsingar,"
Síðdegis á laugardag var „svín-
að“ fyrir fólksbíl á Akureyri
með þeim afleiðingum að bfll-
inn valt, og er hann mikið
skemmdur. Ökumaðurinn,
Björn Erlendsson, lýsir eftir
Þrotabú Árlax:
Samvinnubankiiiii rekur
stöðina út vikuna
Samvinnubankinn rekur lax-
eldisstöðina Árlax í Keldu-
hverfi til næstkomandi mánu-
dags en fyrirtækið varð gjald-
þrota á dögunum.
Þessi ákvörðun var tekin eftir
fund stærstu kröfuhafa í síðustu
viku en þar var ákveðið að gera
úttekt á stöðu stöðvarinnar og
kanna hvað gera þyrfti svo unnt
verði að reka stöðina áfram.
Að sögn Örlygs Hnefils Jóns-
sonar, bússtjóra, er ljós vilji
kröfuhafanna til að halda rekstr-
inum áfram og áðurnefndri könn-
un því ætlað að finna hagkvæm-
ustu leiðina til áframhaldandi
reksturs. JÓH
vitnum að atvikinu.
Björn ók bíl sínum, bláum
Subaru 4 dyra fólksbíl árg. 1979,
austur Þingvallastræti. Er hann
kom að gatnamótum Skógar-
lundar ók bíll skyndilega í veg
fyrir hann úr suðri, og sinnti ekki
biðskyldu.
Birni tókst að sveigja framhjá
þeim sem „svínaði" með þeim
afleiðingum að Subaru- bíllinn
snerist þrjá hringi á götunni og
hafnaði síðan á hliðinni í snjó-
ruðningi á umferðareyju.
„Ég náði ekki númeri eða gerð
bílsins sem þessu olli, en hann
var hvítur og frekar lítill. Lög-
reglan segist ekkert geta gert
nema ég komi sjálfur með frekari
upplýsingar um hver þetta hafi
verið. Maður gerir allt sem mað-
ur getur til að forða slysum en ef
engin vitni gefa sig fram þá sit ég
uppi með tugþúsunda króna tjón
eða ónothæfan bíl. Ég skora því
á vitni til að gefa mér sjálfum eða
lögreglunni
Björn.
segir
EHB
Norðurland:
Lágheiðin
jeppafær
Um helgina var víða erfíð færð
á Norðurlandi, sérstaklega á
föstudaginn. Þá lentu bflstjór-
ar í erfíðleikum í Kinn vegna
skafrennings og þurftu nokkrir
að skilja bíla sína eftir. Hálka
var töluverð á vegum norðan-
lands.
Hjá Vegagerð ríkisins á Akur-
eyri fengust þær upplýsingar að á
föstudaginn hefði snjómokstur
verið í fullum gangi og t.d. hefði
ekki verið unnt að ljúka við hann
í Kinninni fyrr en í gær.
Vegir á Norðurlandi voru
greiðfærir í gær og Lágheiðin enn
jeppafær. SS
sonar, formanns Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja, var sá
vandi sem skipasmíðaiðnaðurinn
stendur nú frammi fyrir mikið
ræddur á fundinum. Jósef segir
að forsvarsmenn stöðvanna
bendi á ýmis atriði sem betur
mætti fara hjá stjórnvöldum
gagnvart skipasmiðjunum en hins
vegar leggi þeir áherslu á að
skipasmíðastöðvarnar þurfi að
hafa frumkvæði að ýmsum
aðgerðum til að bæta stöðu
þeirra í samkeppni við erlenda
skipasmíði.
Jósef segir að huga beri að því
að fá fjársterka aðila til að leggja
fram eigið fé í endurskipulagn-
ingu skipaiðnaðarfyrirtækja. Jósef
segir að fundurinn hafi lagt
áherslu á eflingu markaðsstarfs,
bæði á innlendum sem erlendum
markaði. Þá segir hann að fyrir-
tækin þurfi að gera átak í hag-
ræðingu, þar sem lögð verði
áhersla á samspil verkáætlana og
hönnunar m.t.t. framleiðslu og
verkskipulags. Stjórnvöld
aðstoði við þetta starf með því að
auðvelda útvegun verkefna sem
eru nauðsynleg forsenda þess að
hægt verði að vinna að slíku
skipulagsstarfi innan fyrirtækj-
anna.
Jósef vísar einnig til þeirrar
samþykktar aðalfundarins að
fyrirtækin þurfi að taka upp
verkáætlanir í ríkari mæli og að
athuga möguleika á sveigjanlegri
verðstefnu með það að markmiði
að jafna árstíðabundnar sveiflur í
eftirspurn. Þannig megi hvetja
útgerðarmenn til að dreifa við-
haldi skipa jafnar eftir árstíðum.
óþh