Dagur - 21.11.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 21.11.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 21. nóvember 1989 - DAGUR - 7 „Gvuuð Stefán, þú gleymdir að bera á þig Roll-onið fyrir leikinn,“ gæti Haukur Valtýsson verið að segjá við Stefán Jóhannesson. Svo var nú ekki því þeir félagarnir voru að fagna vel heppnaðri hávörn. Mynd: ap Blak: Þróttur lagður með núlli - öruggur KA-sigur á laugardaginn KA fór létt með Þrótt frá Reykjavík í karlaflokki á Islandsmótinu í blaki. Loka- staðan var 3:0, 15:12, 15:4 og 15:9, og var sigur KA-liðsins aldrei í hættu. Leiknum seinkaði um klukku- tíma því Þróttarar kom of seint frá Reykjavík. Ástæðan var sú að Arnarflugsvél, sem ferja átti blakarana, tafðist á Húsavík og komu rauðröndóttu piltarnir nánast beint í leikinn. Þar að auki mættu Þróttararnir einungis sex í leikinn því einn leikmanna liðsins veiktist á síðustu stundu. En það var ekki að sjá að flug- þreyta eða leikmannafæð hrjáði Reykjavíkurliðið í byrjun því þeir komust í 8:0. KA-menn voru þá algjörlega úti á þekju og sendu boltann hvað eftir annað í netið eða misstu auðveld smöss í gólfið. En heimapiltarnir náðu að taka sig saman í andlitinu og fóru að spila eins og menn. Þá var ekki að sökum að spyrja að stigin fóru að koma og skoruðu þeir fimm í röð. Þróttarar tóku þá vel á móti og skiptust liðin á að vinna uppgjöfina. Brátt kom þó að því að KA- strákarnir náðu yfirhöndinni, þeir komust í 10:9 og þá var ljóst í hvað stefndi. Þróttarar klóruðu að vísu aðeins í bakkann undir lokinn en lokatölur í hrinunni urðu 15:12. Næsta hrina var mun auðveld- ari fyrir þá gulklæddu. Þeir skor- uðu nokkur falleg stig í byrjun og þá var eins og allur vindur væri úr Þrótturunum. Móttakan var mjög slök hjá þeim og fékk Leif- ur Harðarson fáa sem enga al- mennilega bolta til að spila upp með. Niðurstaðan gat ekki orðið önnur en sú að KÁ myndi rúlla yfir gestina og það gerðu þeir 15:4. Mun meiri barátta var í Þrótt- ararliðinu í þriðju hrinunni en það dugði ekki til því KA-liðið sýndi þá sannkallaða meistara- takta. Sóknarleikurinn var mjög frískur og sáust margar fallegar fléttur hjá strákunum. Einnig var hávörnin mjög góð og hirti hún hvað eftir annað smöss frá Þrótt- urunum. En Þróttur náði samt að skora 9 stig í lotunni og munaði þar mestu um að uppgjafir KA- manna voru slakar og fóru þær hver á fætur annarri í netið. Það sama var upp á teningnum gegn Strassen um daginn og þarf KA- liðið greinilega að æfa uppgjaf- irnar betur. En lokatölurnar 15:9 í hrinunni og 3:0 sigur því stað- reynd. KA-liðið virðist vera að ná fyrri styrkleika á ný eftir að hafa hökt eilítið í fyrstu leikjunum í haust. Eins og áður sagði þá sáust oft mjög skemmtilegir taktar hjá leikmönnum og verða þeir ekki auðsigraðir í vetur ef þeir halda áfram á sömu braut. í þessum leik bar mest á þeim Arngrími Arngrímssyni, sem átti mjög góðan leik, og svo var Haukur Valtýsson góður. Sérstaklega var gaman að sjá Hauk fara upp í hávörn með öðrum hvorum Stef- áninum og blokkera boltann. Þróttarar voru daprir í þessum leik og munu sjálfsagt hugsa KA- mönnum þegjandi þörfina fyrir næsta leik í Reykjavík. Knattspyrna: Ejjólfur til Noregs - ræðir við forráðamenn Brann Eyjólfur Sverrisson, knatt- spyrnumaður úr Tindastóli, er farinn til Bergen í Noregi til að líta á aðstæður hjá knatt- spyrnuliðinu Brann. Fór hann utan í gær og er væntanlegur aftur á sunnudaginn. Allt hefur verið á huldu um hvar Eyjólfur muni leika næsta sumar en nú virðist einhver hreyfing vera komin á málin. Teitur Þórðarson, þjálfari Brann, hefur verið í sambandi við Eyjólf undanfarna daga og virðast þær viðræður hafa gengið það vel að Teitur hefur ákveðið að bjóða honum til Noregs. Trúlegt þykir að Eyjólfi verði boðinn samningur, en í samtali sem hann átti við Dag kom fram að hann myndi íhuga öll tilboð vandlega og ekki flana að neinu. En hann teldi mjög litlar líkur á því að hann yrði um kyrrt á Sauð- árkróki. Stuttgart í Vestur-Þýskalandi, sem bauð Eyjólfi til æfinga nú í haust hafði einnig sýnt áhuga á viðræðum við hann en Degi er ekki kunnugt um lyktir þess máls. Áhugi erlendra liða á Eyjólfi kviknaði eftir frækna frammi- stöðu hans með U-21 árs lands- liðinu í sumar, þar sem hann skoraði fjöldann allan af mörkum. Einnig hefur hann ver- ið iðinn við kolann hjá sínu félagi, Tindastóli og varð nt.a. markahæstur allra í annari deild- inni í sumar. Spennandi verður að sjá hvar þessi marksækni knattspyrnu- maður kemur til með að leika á næstunni og eitt er víst að miðað við frammistöðu hans undanfarin ár verður ekkert lið svikið af því að hafa hann í sínum röðum. kj Gunnar Gunnarsson verður aðstoðarþjálfari Kostics með Þórsliðið. Knattspyrna: Gassi aðstoðarþjálfari Þórs - mun einnig þjálfa 2. flokkinn Eyjólfur Sverrisson ræðir nú við Teit Þórðarson hjá Brann. Gunnar Gunnarsson, betur þekktur sem Gassi, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meist- araflokks Þórs í knattspyrnu. Hann mun einnig þjálfa 2. flokk félagsins eins og hann gerði síðastliðið sumar. „Þetta leggst auðvitað mjög vel í mig og ég hlakka til þess að tak- ast á við þetta verkefni,“ sagði Gunnar í samtali við Dag. „Sem þjálfari stefnir maður auðvitað alltaf á toppinn og að komast í þjálfun í 1. deild er markmið sem flestir þjálfarar hljóta að stefna að. Það er gaman að hafa þjálfað þessa stráka í 2. flokknum undanfarin ár og eiga nú þess kost að fylgja þeim áfram upp í meistaraflokkinn,“ bætti hann við. Gunnar segist búast við að Þórsliðið eigi eftir að koma á óvart næsta sumar. Deildin verði jöfn en mannskapurinn sé fyrir hendi hjá Þór til að gera góða hluti og það verði því að stefna hátt. Ekki er alveg frágengið hvenær Gunnar hefur störf en von er á Kostic frá Júgóslavíu í byrjun febrúar. Það má því búast við því að Gunnar stjórni liðinu á þeim innanhúsmótum sem framundan eru, m.a. punktamóti KSÍ á Akranesi um næstu helgi. Eins og kunnugt er þá mun Luca Kostic þjálfa meistaraflokk- inn hjá Þór og mun mikið mæða á Gassa því Kostic mun að sjálf- sögðu einnig spila með meistara- flokknunt. Reyndar verða þeir báðir að einhverju leyti saman með 2. flokkinn enda eru þar margir piltar sem munu banka á dyrnar hjá meistaraflokknum næsta sumar. Gunnar hefur undanfarin átta ár stundað þjálfun og er því margreyndur þjálfari. Hann hóf feril sinn hjá yngri flokkum KA, var síðan eitt ár með SMÖ en hefur undanfarin tvö ár þjálfað 2. flokkinn hjá Þór.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.