Dagur - 21.11.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 21. nóvember 1989 - DAGUR - 5
ALLT-hugbúnaður og
virðisaukaskatturinn
- kynningarfundur a
Hótel Norðurlandi í dag
Bókhaldsstofan Fell ásamt tölvu-
fyrirtækinu Trón mun í samvinnu
við ALLT-hugbúnað vera með
kynningu á nýrri útgáfu ALLT-
hugbúnaðar sem er aðlöguð að
bókhaldshlið virðisaukaskattsins.
Einnig verða kynntar aðrar nýj-
ungar sem komið hafa fram á
árinu svo sem afstemmingakerfi,
spjaldskrá, strikamerkingar o.fl.
í dag nota yfir 430 fyrirtæki
ALLT-hugbúnaðinn og á Norð-
urlandi hefur Fell-Trón staðið
fyrir öflugri þjónustu- og sölu-
starfsemi. ALLT-bókhalds- og
sölukerfin eru mjög fjölhæf og
eru notendur í öllum greinum
atvinnulífsins.
Kynningin er á Hótel Norður-
landi í dag, þriðjudag, kl. 13.00
til 19.00 og á morgun, miðviku-
dag, er notendum ALLT-hug-
búnaðar boðið til vinnufundar á
Fell, Tryggvabraut 22.
íslensku stúlkurnar sem tóku þátt í Smirnoff fatahönnunarkeppninni meðal
nema á síðasta ári.
Alþjóðapóstfélag stofnað:
Hlutverk félagsins að vinna að
eflingu miliiríkjaþjónustunnar
Sextán Evrópulönd: Bretland,
írland, Belgía, Luxemborg,
Vestur-Þýskaland, Frakkland,
Spánn, Portúgal, Ítalía,
Grikkland, Kýpur, Danmörk,
Finnland, Noregur, Svíþjóð og
ísland ásamt fimm löndum utan
Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada,
Japan, Ástralíu og Nýja Sjálandi,
eiga aðild að nýstofnuðu Álþjóða-
póstfélagi - International Post
Corporation, Unipost - með
aðsetri í Bruxelles.
Hlutverk félagsins er að vinna
að eflingu milliríkjapóstþjónust-
unnar, fyrst og fremst forgangs-
póstþjónustunnar, EMS, en
einnig bréfa- og bögglapóstþjón-
ustunnar.
í þessu skyni er á vegum
félagsins unnið að samræmingu
þjónustunnar í aðildarlöndunum
hvað snertir framkvæmd hennar
og unnið að setningu raunhæfra
gæðastaðla og gæðaeftirlits. Með
reglulegu millibili verða gerðar
gæðakannanir og markaðsrann-
sóknir.
Félagið gerir samstarfssamning
við aðildarlöndin þar sem settir
eru staðlar um þjónustustig það
sem hlutaðeigandi land skuld-
bindur sig til að halda.
Sérstök tölvuvædd kerfi varð-
andi skráningu, leit og eftir-
grennslan EMS forgangspóst-
sendinga verður komið á í aðild-
arlöndunum og byggist það á
strikamerkingum. Síðar meir
verður slíkt kerfi tekið upp fyrir
allan bókfærðan póst.
Samstarfssamningur eins og að
framan greinir var undirritaður í
Reykjavík mánudaginn 30. októ-
ber sl. af þeim Guy Meynié,
framkvæmdastjóra Unipost og
Ólafi Tómassyni, póst- og síma-
málastjóra.
Frá undirritun samstarfssamnings. Frá vinstri: Guðmundur Björnsson
aðstoðarpóst- og símamálastjóri, Olafur Tómasson, póst- og símamálastjóri,
Guy Meynié framkvæmdastjóri Unipost og Bragi Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri viðskiptasviðs.
Frá kynningu á ALLT-hugbúnaði sem haldin var fyrir skemmstu.
Samkeppni ungra
norrænna fatahönnuða
DAGA
FORSKOT
Með okkar áætlun
styttist biðin
eftir innflutningi
frá Reykjavík
um © daga.
LESTUNARHAFNIR
INNANLANDS
REYKJAVÍK
Alla miðvikudaga
VESTMANNAEYJAR
Alla föstudaga
HÚSAVÍK
Alla sunnudaga
íslenskum nemum í fatahönn-
un gefst nú öðru sinni kostur á
að taka þátt í norrænu fata-
hönnunarkeppninni meðal
nema. Keppnin sjálf verður
haldin í Helsinki í Finnlandi
29. janúar 1990. Stigahæsti
keppandinn frá hverju Norð-
urlandanna fær auk verðlauna
boð um að taka þátt í The
Smirnoff Fashion Show í Royal
Albert Hall í London 1. mars
1990 þar sem hátt í eitt hundr-
að ungir fatahönnuðir sýna
verk sín. Norðurlandameistar-
inn fær að auki 5.000 finnsk
mörk í verðlaun (um 75 þús-
und krónur íslenskar).
Það er Evrópudeild banda-
ríska stórfyrirtækisins Heublein,
sem m.a. framleiðir Smirnoff,
einn vinsælasta vodka heims, sem
gengst fyrir keppninni er nú verð-
ur haldin í sjötta sinn. Upphaf-
lega var keppnin bundin við fata-
hönnunamema í Bretlandi en fyr-
ir tveimur árum var ákveðið að
efna til sérstakrar keppni á
Norðurlöndunum. í fyrra tóku
sex íslenskar stúlkur þátt í þeirri
keppni, þar af fimm nemar við
Fataiðnaðardeild Iðnskólans í
Reykjavík. Sigurvegari varð
Guðrún Hrund Sigurðardóttir,
nemi við Kpbenhavns Mode- og
Designskole í Kaupmannahöfn.
Þema keppninnar að þessu
sinni er höfuðskepnurnar fjórar:
Vatn, vindur, jörð og eldur. Þeir
fjórir keppendur íslenskir, sem
hlutskarpastir verða fyrir augum
íslensku dómnefndarinnar taka
þátt í keppninni í Helsinki. Sig-
urvegarinn frá hverju landi fær
auk verðlauna boð um að taka
þátt í The Smirnoff Fashion
Show í Royal Albert Hall.
Skilafrestur er til 15. desember
næstkomandi. Úrslit í keppninni
hér heima verða tilkynnt 16. des-
ember 1989. íslensku dómnefnd-
ina skipa: Arna Kristjánsdóttir,
fatahönnuður, tískuritstjóri Vik-
unnar; Eva Vilhelmsdóttir, fata-
hönnuður og Henrik Árnason,
auglýsingahönnuður.
AKUREYRI
Alla mánudaga
ÍSAFJÖRÐUR
Alla þriðjudaga
Aðrar hafnir eftir þörfum.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
AKUREYRI
27797
A x A A A A A j
TÁKN traustra flutninga
Hjá okkur er lágt vöruverö
og gott að versla
x Franskbrauð kr. 93.-
I llbOO 2 lítrar mjólk kr. 125,-
Tilboð á kjötvörum og ýmsu öðru í gangi.
Verslunin
_ ÞDEPIB c
, Móasíöu 1 • Sími 27755. E
Opiö alla daga vikunn.tr frá kl. 8-23.30.
Heimsendirtgarþjónusta.
V/SA
Borgarafundur
um atvinnumál
á Akureyri
verður haldinn f Sjallanum
þriðjudaginn 21. nóvember kl. 20.00.
Frummælendur verða:
Hólmsteinn Hólmsteinsson, formaöuratvinnumálanefndar Akureyrar.
Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri lönþróunarfélags
Eyjafjarðar.
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri.
Þorsteinn Konráðsson, formaður starfsmannafélags Slippstöðvarinnar.
Fundarstjóri verður Jóhann Sigurjónsson, skólameistari M.A.
Fundurinn er öllum opinn!
Atvinnumálanefnd Akureyrar.