Dagur - 21.11.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 21. nóvember 1989
Opnun Plús markaðar á föstudag seinkaði:
Innsláttur á vöruverði tíma-
frekari en reiknað var með
- segir Hrafn Hrafnsson
1
fréttir
h
„Jú, opnunin tafðist nokkuð
vegna þess að innsláttur á
vöruverði var mun þyngri í
vöfum en við höfðum reiknað
með,“ segir Hrafn Hrafnsson,
eigandi Matvörumarkaðarins á
Akureyri um opnun Piús
markaðarins við Fjölnisgötu
síðastliðinn föstudag. Ætlunin
var að verslunin yrði opnuð kl.
13 en það var ekki fyrr en kl.
18 sem opnað var fyrir fyrstu
gestum.
Hrafn segir að margt fólk hafi
komið í verslunina á föstudags-
kvöld og hún nánast verið full þar
til lokað var kl. 22. Opnunartími
verður hins vegar alla jafna frá
kl. 13 til 18.30 og á laugardögum
verður opið frá 10-14.
Hrafn segist leggja mikið upp
úr að selja akureyrskar fram-
leiðsluvörur í nýju versluninni.
Þessu hafi viðskiptavinir tekið
mjög vel og merkjanleg sé vakn-
ing meðal fólks um að kaupa vör-
ur framleiddar í heimabyggð.
í Plús markaðinum er tekið við
greiðslukortum, ólíkt mörgum
verslunum af þessari gerð.
Ástæðuna segir Hrafn þá að nýja
kassakerfið spari útreikninga á
kortaviðskiptunum en stærstur
Reykjahverfi:
Hreppsneftid
vill hafa MSKÞ
„Hreppsnefnd Reykjahrepps
mótmælir harðlega öllum
áformum um að leggja
M.S.K.Þ. niður. Hrepps-
nefndin telur mjólkursamlagið
vel rekið, með hallalausan
rekstur, góðan tækjakost en
samt með litlar skuldir. Þá
myndi það hafa slæmar afleið-
ingar fyrir atvinnulíf á Húsavík
og nágrenni og veikja stöðu
bænda í héraðinu ef Mjólkur-
samlag K.Þ. yrði lagt niður.“
Svohljóðandi ályktun var sam-
þykkt á fundi Hreppsnefndar
Reykjahrepps 14. nóv. sl. og
mun fleiri ályktana svipaðs efnis
vera að vænta frá Húsvíkingum
og Þingeyingum á næstunni. Mun
m.a. verða fjallað um slíka álykt-
un á fundi Bæjarstjórnar Húsa-
víkur í dag. IM
hluti kostnaðar verslunareigenda
vegna greiðslukortanna megi
rekja til þessarar skrifstofuvinnu.
„Þessar vélar hafa ekki verið
gerðar fyrir íslenskar aðstæður
fyrr en nú og það skýrir hvers
vegna verslunareigendur hafa
ekki tekið þær í notkun fyrr,“
segir Hrafn. JÓH
Laugar í Reykjadal.
Fullorðinsfræðsla reynd í Framhaldsskólanum á Laugum:
Bændur áhugasamir um tölvu-
fræði, bókhald og frönsku
- fjöldi nemenda skólans jókst um 50%
„Það hófu 70 manns nám í full-
orðinsfræðslunni í október,“
sagði Páll Dagbjartsson skóla-
meistari Framhaldsskólans að
Laugum í Þingeyjarsýslu í
samtali við Dag, en á vegum
skólans er nú hafin kennsla
fullorðinna í öldungadeild.
Með tilkomu fullorðinsfræðsl-
unnar fjölgaði nemendum
skólans um 50% en nemendur
í dagskóla eru um 130 talsins.
Þetta er í fyrsta skipti sem
kennsla „öldunga“ er reynd á
Laugum en undirbúningur hófst í
sumar. Send voru dreifibréf á öll
heimili í þeim sveitarfélögum
sem aðild eiga að starfseminni og
var alls ekki búist við svo miklum
viðbrögðum. Að sögn Páls varð
raunin sú að sumir áfangar hafi
fyllst, aðsóknin hafi verið svo
mikil.
Boðið er upp á nám í all
nokkrum fögum og er t.d. mikill
áhugi á tölvufræði og bókfærslu.
„Við erum með eina 10-11
nemendur skráða í frönsku, sem
er nú ekki altítt upp til sveita á
íslandi,“ sagði Páll.
Nemendur í fullorðinsfræðsl-
unni á vegum Framhaldsskólans
að Laugum eru á öllum aldri og
var elsti nemandinn sem skráði
sig kominn á áttræðisaldur. Þeir
sem hófu nám í haust geta haldið
áfram að safna sér einingum til
stúdentsprófs síðar, eftir því sem
tíminn vinnst en í fyrstu verður
hverjum áfanga skipt, þannig að
hluti verður fyrir áramót og
Fundarboð!
Almennir stjórnmálafundir verða
haldnir á eftirtöldum stöðum:
Blómaskálanum Vín Eyjafirði miðvikud. 22. nóv.
kl. 21.00.
Frummælendur:
Guðmundur Ágústsson, alþingismaður.
Sveinbjörn Jónsson, oddviti Suðureyri.
Stefán Valgeirsson, alþingismaður.
Þórshöfn fimmtud. 23. nóv. kl. 21.00.
Raufarhöfn föstud! 24. nóv. kl. 21.00.
Lundi í Öxarfirði laugard. 25. nóv. kl. 2 e.h.
Frummælendur á fundinum í Norður-Þingeyjarsýslu verða
Guðmundur Ágústsson alþingismaður og Stefán Valgeirs-
son alþingismaður.
Rætt verður um stjórnmálaviðhorfið,
efnahagsástandið og fjölmiðlafárið.
Stefán Valgeirsson, Guðmundur Ágústsson og
Sveinbjörn Jónsson.
seinni hluti eftir áramót. „Það
þýðir ekkert upp til sveita að
byrja fyrr en um miðjan október
og svo stefnum við að því að
ljúka þessu um miðjan mars áður
en vorverk bænda hefjast fyrir
alvöru.“
Kennsla fer fram á fimm stöð-
um í sýslunni, á Laugum, í
Reykjahlíð, á Skútustöðum,
Hafralæk og Stóru-Tjörnum.
Umsjónarmaður fullorðinsfræðsl-
unnar er Ari Páll Kristinsson, en
kennarar skólans sjá um kennsl-
una, auk tveggjá annarra og fara
þeir á milli. „Það er minna mál
að flytja einn kennara en tíu
nemendur og fólkið sækir frekar í
þetta ef það færist nær. Við próf-
um líka fjarkennsluform þar sem
póstþjónustan verður notuð í
einhverju formi, svo við notum
allar aðferðir í þessari tilraun
okkar,“ sagði Páll að lokum. VG
Byggðamerki samþykkt fyrir
Svarfaðardals- og Presthólahrepp:
Táknrænn vorboði c
bátur í ólgusjó
Samþykkt hafa verið byggða-
merki fyrir tvo hreppa í
Norðurlandskjördæmi eystra,
Svarfaðardalshrepp og Prest-
hólahrepp. Á merki Svarfaðar-
dalshrepps er lóa en á merki
Presthólahrepps er útfærður
bátur í ólgusjó.
Á síðasta ári bauðst Erlingur
Páll Ingvarsson, myndlistarmað-
ur, til að gera tillögur að byggða-
merki fyrir hreppsnefnd Svarfað-
ardalshrepps. Tillaga Erlings Páls
var lögð fyrir hreppsnefnd til
umsagnar í júlí sl. og samþykkti
hreppsnefndin að gera hana að
byggðamerki hreppsins. Á merk-
inu er hinn kunni vorboði, lóan.
Höfundur segir um hugmynd
sína að sér þætti friðlynd fugla í
utanverðri sveitinni sterkt ein-
kenni á dalnum. Lóan hefði já-
kvæða merkingu í hugum lands-
Bátur í ólgusjó er tákrænn fyrir sjó-
sókn í Presthólahreppi.
manna og væri hún því einkenni
fyrir sveit sem byði bæði menn og
dýr velkomin. Þá sagði Erlingur í
umsögn sinni að sterk hefð væri
fyrir notkun dýra í skjaldar-
merkjafræðinni. Merkilegt væri,
að ekkert sveitarfélag hefði nýtt
sér lóuna fyrr.
Grunnur skjaldarins er í ljós-
grænum lit. Skjaldarrönd og lín-
ur í myndinni eru dökkgrænar,
en hvítur grunnur undir lóunni.
Þá hefur Presthólahreppur tek-
ið upp byggðamerki. Hrepps-
nefnd óskaði eftir hugmyndum
hreppsbúa og annarra um
merkið. Ragnhildur Skarphéð-
insdóttir, landslagsarkitekt, kom
með nokkrar hugmyndir og valdi
hreppsnefndin eina þeirra. Á
merkinu er útfærður bátur í ólgu-
sjó. Merkið er í antikbláum lit.
óþh
Lóan telst gott einkenni fyrir sveit
sem býður menn og dýr velkomin.
■ Bæjarráð hefur falið bygg-
ingardeild bæjarins að undir-
búa útboð á lokaáfanga húss-
ins Helgamagrastræti 53, mið-
að við að útboð geti farið fram
í desember n.k.
■ Bæjarráð leggur til að 27.
nóvember n.k. verði boðað til
stofnfundar hlutafélags,
Krossanes hf., sem yfirtaki
eignir. skuldir og rekstur
Krossanesverksmiðjunnar.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá bæjaryfirvöldum í Bayeux
í Normandí í Frakklandi, þar
sem mælst er til vinabæja-
sambands milli Bayeux og
Akureyrar. Bæjarráð fól
bæjarstjóra að svara erindinu.
■ Bæjarráð samþykkti nýlega
að veita Sundfélaginu Oðni,
styrk úr Bæjarsjóði að upphæð
kr. 75.000.-, vegna keppnis-
ferðar 16-18 ungmenna til
Þýskalands í desember.
■ Bæjarráð hefur hafnað
málaleitan frá húseigendum í
Keilusíðu 7-9 um tjónabætur
úr Bæjarsjóði, vegna vatns-
streymis upp úr niðurföllum í
kjallara húsanna í leysingum á
sl. vori.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að taka tilboði frá Möl og
sandi hf. í byggingu 225 ferm.
dagvistar við Þverholt og falið
byggingadeild að ganga frá
samningi við fyrirtækið, innan
ramma fjárhagsáætlunar
bæjarsjóðs. Tilboð Malar og
sands hf., hljóðar upp á kr.
11.558.790,- en undanskilið í
tilboði eru innréttingar,
lagnir, málning ó.fl. sem áætl-
að er að kosti kr. 5.850.000,-
auk lauss búnaðar og frágangs
á lóð og útileiktækja.
■ íþróttaráð hefur samþykkt
að leggja fram kr. 150.000.-,
vegna rannsóknar á kostnaði
við rekstur og staðsetningu
gervigrasvallar.
■ Umhverfisnefnd hefur bor-
ist bréf frá Ferðaskrifstofu
Akureyrar, þar sem sótt er um
leyfi til þess að sleppa eldislaxi
í nyrðri Leirutjörn. Nefndin
frestaði'afgreiðslu málsins.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
með 2 atkvæðum gegn 1 að
veita Hótel Norðurlandi hf.
einfalda bæjarábyrgð að upp-
hæð 10 milljón króna, vegna
láns hjá Lánasjóði Vest-
Norden gegn fullnægjandi
tryggingu. Áður hafði erindi
Hótels Norðurlands verið
ítrekað í atvinnumálanefnd en
nefndin vísað málinu til bæjar-
ráðs.
■ Heilbrigðisnefndin á Akur-
eyri leggur til við bæjarstjórn
og bygginganefnd að húsið
Hafnarstræti 84 verði rifið.
Húsið er óíbúðarhæft með
öllu, hefur verið umhirðulaust
um langa hríð og er til óþrifn-
aðar og hættu.