Dagur - 21.11.1989, Síða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 21. nóvember 1989
íþróttir
F
Knattspyrna:
Leiftursmenn fá
liðsauka í boltann
Leiftursliðinu í knattspyrnu hefur
bæst liðsauki fyrir næsta sumar.
Þorlákur Árnason sóknarmaður
úr Þrótti Nes. hefur ákveðið að
ieika með Ólafsfirðingum næsta
sumar og líkur benda til þess að
Örn Torfason, bróðir Ómars
Torfasonar þjálfara, gangi einnig
til liðs við Leiftur.
Þorlákur var einn aðalmarkaskor-
ari Þróttaraliðsins síðastliðið sumar
en þess má geta að hann er vara-
markvörður Gróttuliðsins í 1. deild-
inni í handknattleik í vetur.
Örn Torfason er ísfirðingar að ætt
og uppruna en lék með Víkingum í
1. deildinni í knattspyrnu síðastliðið
sumar. Hann lék 13 leiki með Vík-
Þorlákur Árnason leikur með Leiftri
næsta sumar.
ingsliðinu og mun örugglega styrkja
Leiftursliðið mikið.
Ekki er vitað annað en flestir leik-
menn Leifturs sem léku með liðinu
síðastliðið sumar verði áfram með.
Þó liggur ljóst fyrir að Rúmeninn
Arthur Ubrescu kemur ekki aftur til
Ólafsfjarðar og enn er ekki ljóst
hvort Gústaf Ómarsson getur komið
aftur vegna vinnu sinnar. Hann býr
nú í Reykjavík.
Leiftursliðið tekur þátt í punkta-
móti KSÍ í innanhússknattspyrnu um
næstu helgi á Akranesi og verður það
fyrsta mótið sem Ómar Torfason
stjórnar liði sínu í. Liðið er með
Valsmönnum, Fram og Víði í riðli.
Ekki er vitað hvort hinir nýju leik-
menn Víðis munu leika með liðinu á
þessu móti.
Mótið á Akranesi er punktamót
fyrir 1. deildarfélögin en síðan er
nokkrum liðum, þ.á.m. Leiftri, boð-
ið að taka þátt sem gestaliði.
Karitas Jónsdóttir skoraði mörg falleg stig fyrir KA og hér er eitt þeirra í uppsiglingu
Mynd: AP
Blak:
KA-stúlkur fóru létt með Þrótt
KA-stúlkurnar voru engir eftir-
bátar strákanna og sigruðu Þrótt-
arstúlkurnar einnig 3:0, 15:9,
15:5 og 15:10. Þróttarstúlkurnar
mættu einungis sex í leikinn en
- sigruðu 3:0
það hefði ekki skipt máli þótt þær
hefðu verið fleiri því þær áttu ekki
möguleika gegn frísku KA-liði.
KA gaf strax tóninn í fyrstu hrin-
unni með því að skora fjögur fyrstu
stigin. Þróttarar jöfnuðu 5:5 en KA
komst strax yfir aftur. Það var nokk-
uð hart barist í hrinunni en að lokum
náði KA yfirhöndinni og sigraði
Handknattleikur/3. deild:
Priðji sigur Völsimga í röð
- nú urðu Hafnfirðingar fyrir barðinu á Húsvíkingum
Völsungar unnu sinn þriðja sigur í
röð í 3. deildarkeppninni í hand-
knattleik er þeir lögðu ÍH frá
Hafnarfirði að velli á Húsavík
26:20 á laugardaginn. „Við erum
óstöðvandi,“ sagði Arnar Guð-
iaugsson þjálfari Völsunga
kampakátur eftir leikinn en langt
er síðan handknattleikslið frá
Húsavík hefur unnið þrjá leiki í
röð.
Arnar sagði nú einnig að menn
yrðu að halda haus þrátt fyrir þessa
þrjá sigra því það væri ýmislegt sem
þyrfti að laga fyrir næstu leiki. „Ef
við náum hagstæðum úrslitum úr
næstu leikjum stöndum við mjög vel
í baráttunni,“ bætti hann við.
Leikur Völsunga og ÍH var jafn og
spennandi ailan tímann þrátt fyrir að
sex mörk skyldi að liðin undir lokin.
Reyndar komu ÍH-menn með svip-
uðu hugarfari og Fylkir og Grótta að
það væri nú bara skylda að leggja
þessa Húsvíkinga að velli. Þeir hit-
uðu upp með því að spila innanhúss-
fótbolta og það kann ekki góðri
lukku að stýra.
Völsungarnir voru fyrri til að
skora í leiknum og voru alltaf með
forystuna í leiknum. Hafnfirðingarn-
ir hleyptu þeim hins vegar ekki langt
frá sér og það var ekki fyrr en undir
lok hálfleiksins að heimamenn skor-
uðu tvö mörk í röð og náðu þar með
þriggja marka forystu, 13:10.
Síðari hálfleikur var mjög jafn og
spennandi. Völsungarnir héldu alltaf
forystunni en náðu ekki að hrista ÍH-
menn af sér. Þegar um 5 mínútur
Helgi Helgason skorar sitt „venjulega“ eina mark fyrir Völsunga gegn IH.
Mynd: AP
voru til leiksloka hafði Völsungur
eins marks forystu 20:19 en Hafn-
firðingar voru með boltann. En
vörnin var þétt hjá þeim grænklæddu
og Eiríkur Guðmundsson varði vel í
markinu og þann Berlíharmúr tókst
Hafnfirðingum ekki að fella. Nokkur
vel útfærð hraðaupphlaup Völsunga
í lokin tryggðu Húsvíkingum öll stig-
in í leiknum.
Mörk Völsunga: Haraldur Haraldsson 6,
Vilhjálmur Sigmundsson 6, Ásmundur Arn-
arsson 5, Jóhann Pálsson 4, Tryggi Þór
Guðmundsson 4 og Helgi Helgason sitt
venjulega eina mark.
Markahæstu menn ÍH: Hilmar Barðason 6
og Guðjón Guðmundsson 5.
Í5:9.
Önnur hrinan þróaðist mjög svip-
að og önnur hrinan hjá strákunum.
Þróttarstúlkurnar virtust missa
móðinn og eftirleikurinn var því auð-
veldur fyrir heimaliðið. Lokatölur,
15:5 fyrir KA.
Þróttarstúlkurnar komu ákveðn-
ar til leiks í þriðju hrinunni og skor-
uðu fjögur fyrstu stigin. KA minnk-
aði muninn í 4:6 en Þróttarar komust
í 5:9. Áhorfendur héldu nú að
Reykjavíkurliðið ætlaði að ná í
aukahrinu en heimastúlkurnar voru
nú ekki á þeim buxunum og náðu að
jafna 10:10. Eftirleikurinn var auð-
veldur og skoruðu KA-stúlkurnar
fimm síðustu stigin. Lokatölur urðu
því 15:10.
Bestu leikmenn KA voru Særún
Jóhannsdóttir og Halla Haraldsdótt-
ir. Einnig átti Karitas Jónsdóttir
ágætan leik. Annars er allt liðið mjög
jafnt og ætti að geta gert góða hluti í
vetur.
Dómarar voru þeir hinir sömu og í
karlaleiknum, Björgólfur Jóhanns-
son löggiltur endurskoðandi og Hall-
dór Jónsson framkvæmdastjóri, og
stóðu þeir sig vel að vanda.
Knattspyrna:
VMA úr leik
VMA tapaði illa fyrir Ármúla-
skólanum í framhaldsskólamótinu
í knattspyrnu á Sana-vellinum á
föstudaginn. VMA, með alla sína
1 deildar leikmenn, náði sér aldrei
á strik og tapaði 2:0 fyrir frískum
Ármúlapiltum.
Ekki er ólíklegt að VMA-piltarnir
hafi vanmetið andstæðinga sína því
alla baráttu vantaði í liðið. Engilbert
FriöfinnsSon skoraði í fyrri hálfleik
fyrir Ármúlann og Ásmundur Vil-
helmsson í þeim síðari.
Rósberg Óttarsson markvörður
VMA bjargaði liði sínu frá enn
stærra tapi þegar hann varði vfta-
spyrnu í síðari hálfleik. Þar með er
draumur Akureyringa um fram-
haldsskólameistara úti, a.m.k. þetta
árið.
Þess má geta að enginn 1. deildar-
leikmaður lék með Ármúlanum en
sjö með VMA-liðinu.
Árni Þór Árnason í kröppum dansi.
Þriðjudagur 21. nóvember 1989 - DAGUR - 9
Enska knattspyrnan:
Siggi skoraði fyrir Arsenal
- Hörkubarátta í 1. deild
Baráttan um meistaratitilinn
virðist ætla að verða jafnari að
þessu sinni en oft áður. Mörg
lið koma til greina og Liver-
pool sem hefur verið nánast
ósigrandi undanfarin ár virðist
ekki jafnt sterkt og áður. Það
er því allt útlit fyrir jafna og
spennandi keppni allt til loka
keppnistímabilsins í vor. En
lítum þá á leikina sem leiknir
voru sl. laugardag.
Meistarar Arsenal tóku á móti
liði O-P.R. sem vann sér það til
frægðar um síðustu helgi að sigra
Liverpool. Þrátt fyrir að Arsenal
léki ekkert sérstaklega vel í
leiknum dugði það þó liðinu til
að vinna öruggan sigur og komast
í efsta sæti 1. deildar í fyrsta
skipti á þessu keppnistímabili.
Alan Smith skoraði eina markið í
fyrri hálfleik af stuttu færi fyrir
Ársenal og Lee Dixon bætti síð-
an öðru marki liðsins við úr víta-
spyrnu sem dæmd var á brot gegn
Kevin Richardson. Fallegasta
markið skoraði þó Sigurður Jóns-
son tveimur mín. fyrir lok leiks-
ins með þrumuskoti frá vítateig.
Þetta var fyrsta mark Sigurðar
fyrir Arsenal eftir að liann kom
til félagsins frá Sheffield Wed.
Marktækifæri Q.P.R. í leiknum
voru ekki umtalsverð og liðið
varð fyrir því áfalli að Mark
Falco var borinn af leikvelli eftir
samstuð við Tony Adams. Ray
Wilkins sem Q.P.R. keypti í vik-
unni frá Rangers lék ekki með
liðinu í leiknum, en hann kemur
Staðan
1. deild
Arsenal 14 8-3-3 26:15 27
Chelsea 14 7-5-2 22:11 26
Liverpool 13 7-3-3 27:11 24
Aston Villa 14 7-3-4 23:16 24
Norwich 14 5-7-2 21:16 22
Tottenham 13 6-3-4 21:20 21
Everton 14 6-3-5 21:21 21
Southampton 14 5-5-4 25:22 20
Man. Utd. 13 6-2-5 23:20 20
Coventry 14 6-2-6 12:19 20
Nott. Forest. 14 5-4-5 19:14 19
Derby 14 5-3-6 17:12 18
Luton 14 4-5-5 14:14 17
Wimbledon 14 3-7-4 12:15 16
Millwall 14 4-3-7 21:22 15
Crystal Palace 14 4-3-7 16:29 15
QPR 14 3-5-6 13:16 14
Charlton 14 3-5-6 11:15 14
Man. City 14 4-2-8 19:27 14
Sheff. Wed. 14 3-3-8 6:22 12
2. deild
Sheff.Utd. 18 11-6-1 31:17 39
Leeds Utd. 18 11-5-2 32:19 38
Newcastle 18 9-6-3 34:20 33
Sunderland 18 9-5-4 31:25 32
West Ham 18 8-6-4 27:18 30
Oldham 18 8-6-4 24:19 30
Ipswich 18 8-5-5 29:25 29
Swindon 17 8-4-5 30:19 28
Blackburn 17 6-10-1 29:18 28
Plymouth 18 8-3-7 31:22 27
Wolves 18 6-6-6 26:23 24
Brighton 18 7-2-9 27:27 23
Bournemouth 17 6-4-7 25:28 22
W.B.A. 18 5-6-7 31:29 21
Oxford 18 5-5-8 24:28 20
Port Vale 18 4-8-619:2120
Portsmouth 18 3-7-8 19:27 18
Watford 18 4-5-9 17:24 17
Bradford 18 3-8-7 20:20 17
Barnsley 18 4-5-9 20:39 17
Middlesbr. 17 3-6-8 20:28 15
Leicester 18 3-6-9 19:29 15
Hull 18 1-11-6 17:24 14
Stoke 18 2-8-8 17:30 14
örugglega til með að styrkja liðið
verulega með sinni miklu leik-
reynslu.
Chelsea missti af efsta sæti
deildarinnar er liðið varð að láta
sér jafntefli duga á heimavelli
gegn Southampton. Það leit
reyndar lengi út fyrir að Chelsea
næði ekki stigi úr leiknum því
Southampton komst í 2:0. Breyt-
ingar urðu hjá Chelsea í vikunni,
þjálfarinn Ian Porterfield hætti
og gerðist framkvæmdastjóri hjá
Reading, Graham Roberts leik-
maður liðsins og fyrirliði tók við
þjálfarastöðunni. Matthew Le
Tissier skoraði bæði mörk Sout-
hampton, það fyrra úr vítaspyrnu
eftir hálftíma leik og síðan bætti
hann við fallegu marki á 67. mín.
Leikmenn Chelsea fóru mjög illa
með sín tækifæri í leiknum allt
þar til á 74. mín. Kenneth Monk-
ou tókst þá loks að finna leiðina í
mark Southampton með góðu
skallamarki. Strax á næstu mín.
jafnaði Kevin Wilson metin fyrir
Chelsea með marki af stuttu færi.
Chelsea sótti mjög undir lokin og
Kerry Dixon fékk upplagt tæki-
færi til að skora sigurmarkið, en
jafnteflið sanngjörn úrslit og
frammistaða Southampton í vet-
ur hefur komið mjög á óvart.
Crystal Palace keypti nýjan
markvörð í vikunni, Nigel Martin
frá Bristol Rovers fyrir milljón
pund og er hann því dýrasti
markvörður á Englandi. Hann
var keyptur til að styrkja vörn
liðsins, en ekkert lið hefur fengið
á sig jafn mörg mörk og Palace.
Ekki byrjaði hann þó vel hjá sínu
nýja félagi og fékk á sig þrjú
mörk í heimaleik gegn Totten-
ham. Mark Bright náði forystu
fyrir Palace eftir 22 mín. leik, en
fimm mín. síðar hafði Tottenham
tekið forystuna. David Howells
og síðan Gary Lineker úr víta-
spyrnu skoruðu fyrir liðið. í upp-
hafi síðari hálfleiks sótti Palace
mjög og náði að jafna á 16. mín.
með marki Bright úr þvögu. En
Tottenham var ekki á því að láta
jafnteflið duga og undir lokin
tókst Vinny Samways að skora
sigurmark liðsins úr aukaspyrnu
sem breytti um stefnu eftir að
hafa lent í varnarmanni. Paul
Ian Rush tryggði Livcrpool sigur
gegn Millwall með marki 19 mín.
fyrir leikslok.
mark fyrir Arsenal um helgina.
Gascoigne átti mjög góðan leik
fyrir Tottenham að þessu sinni,
stöðugt á ferðinni og dreif félaga
sína áfram.
Everton er í vandræðum um
þessar mundir, margir af leik-
mönnum liðsins eru meiddir og
liðið leikur ekki eins vel og fyrr í
haust. Á laugardag fékk Everton
lið Wimbledon í heimsókn. Það
það var fátt um fína drætti í þeim
leik. Kevin Sheedy náði forystu
fyrir Everton með marki úr víta-
spyrnu á 4. mín. síðari hálfleiks
eftir að brotið hafði verið á
Graeme Sharp. Wimbledon gafst
ekki upp og Dennis Wise var tví-
vegis nærri því að jafna fyrir liðið
og tveimur mín. fyrir leikslok
varði Neville Southall mjög vel
frá Paul McGee. Það var komið
framyfir venjulegan leiktíma er
Wimbledon tókst loks að jafna,
Charlton Fairweather átti þá
skalla að marki sem Southall
varði en tókst ekki að halda og
Steve Cotterill fylgdi fast eftir og
potaði boltanum í mark. Derby
vann auðveldan sigur á heima-
velli gegn Sheffield Wed., þrátt
fyrir að Dalian Atkinson ætti
mjög góðan leik fyrir Sheffield og
væri óheppinn að skora ekki
strax á 5. mín. er hann skaut
naumlega framhjá. Derby náði
forystunni á 13. mín. með marki
Paul Goddard. í síðari hálfleikn-
um virtust leikmenn Wed. gefast
upp og Derby hafði tögl og
hagldir í leiknum. Dean Saund-
ers skoraði síðara mark liðsins
rétt fyrir leikslok, en mörkin
hefðu getað orðið mun fleiri.
Man. Utd. vann góðan sigur á
útivelli gegn Luton, Danny Wall-
ace gaf Utd. óskabyrjun með
marki á 4. mín. eftir sendingu frá
jMark Hughes. Clayton Black-
Á sunnudag léku Millwall og
Liverpool fyrir framan sjón-
varpsmyndavélarnar á Eng-
landi. Eftir heldur slakt gengi
Liverpool að undanförnu,
tókst þeim að rétta úr kútnum
og vinna góðan sigur á útivelli.
Liverpool náði forystunni í
leiknum er John Barnes skoraði,
en Millwall tókst að jafna fyrir
more bætti öðru marki Utd. við á
28. mín. með fallegu skoti eftir
undirbúning Brian McClair og 15
mín. fyrir leikslok gerði Hughes
þriðja mark Utd. með glæsilegu
skoti af löngu færi. Luton lék oft
vel í leiknum, en varð að láta
mark frá Danny Wilson eftir
klukkutíma leik duga.
Nottingham For. fór létt með
Man. City á útivelli, Nigel
Clough skoraði tvívegis í fyrri
hálfleik og var annað markið
skorað úr vítaspyrnu. í síðari
hálfleik bætti Brian Rice þriðja
marki Forest við án þess að
heimamenn gætu svarað fyrir sig.
Þá gerðu Norwich og Charlton
markalaust jafntefli í leik sínum
og verða það að teijast slæm úr-
slit fyrir Norwich.
Coventry hefur aldrei unnið
sigur gegn Aston Villa á Villa
Park og á því varð ekki breyting
nú. í fjörugum og góðum leik
hafði Villa undirtökin og sigraði
4:1. Ian Ormondroyd skoraði
glæsimark snemma leiks fyrir
Villa, efst í markhornið og síðan
skoraði Trevor Peake miðvörður
Coventry sjálfsmark. Mick Gynn
lagaði stöðuna fyrir Coventry
með marki fyrir hlé, en í síðari
hálfleik bætti Ormondroyd sínu
öðru marki við og lokaorðið átti
síðan David Platt með marki úr
vítaspyrnu sem dæmd var á
Peake fyrir að fella Platt í víta-
teignum.
2. deild
• Sheffield Utd. er enn efst í 2.
deild þrátt fyrir að liðið næði að-
eins jafntefli heima gegn Brad-
ford. Jim Gannon náði forystu
fyrir Sheffield í síðari hálfleik,
Paul Jewell jafnaði fyrir Brad-
ford er 4 mín. voru til leiksloka.
• Leeds Utd. er nú aðeins stigi á
eftir Sheffield eftir að hafa sigrað
Watford á Elland Road. Gary
Ian Orniondroyd kom mikið við
sögu er Aston ViIIa sigraði Coven-
try og skoraði tvö mörk.
hlé. David Thompson miðvallar-
spilari Millwall var þar að verki.
Sigurmark Liverpool kom síðan
þegar 19 mín. voru til loka leiks-
ins og var það sjálfur Ian Rush
sem sá um að koma boltanum í
netið. Við sigurinn færðist
Liverpool upp í þriðja sætið í 1.
deild með 24 stig, en Aston Villa
hefur einnig 24 stig í fjórða sæti.
Þ.L.A.
Mark Bright skoraði bæði mörk
Crystal Palace gegn Tottenham, en
það dugði skammt.
Penrice sem Watford keypti frá
Bristol Rovers í vikunni skoraði í
sínum fyrsta leik fyrir félagið og
náði þannig forystu fyrir Wat-
ford. Chris Fairclouh og Andy
Williams skoruðu fyrir Leeds
Utd. í síðari hálfleiknum og
tryggðu liði sínu öll stigin.
• Newcastle í þriðja sæti gerði
jafntefli úti gegn Barnsley, David
Currie skoraði fyrst fyrir Barns-
ley, en Mick Quinn náði að jafna
fyrir Newcastle.
• Mike Stockwell skoraði sigur-
mark Ipswich gegn Leicester.
• Marco Gabbiadini, Gary
Owers og Richard Ord skoruðu
mörk Sunderland gegn Ply-
mouth.
• West Ham sigraði Middles-
brough með mörkum þeirra
Stuart Slater og Julian Dicks úr
víti.
• Oxford missti markvörð sinn
Alan Judge meiddan útaf i fyrri
hálfleik gegn Hull City, en tókst
þó að halda markalausu jafntefli.
Þ.L.A.
Úrslit
1. deild
Arsenal-Q.P.R. 3:0
Aston Villa-Coventry 4:1
Chelsea-Southampton 2:2
Crystal Palace-Tottenham 2:3
Derby-Sheffield Wed. 2:0
Everton-Wimbledon 1:1
Luton-Manchester Utd. 1:3
Man. City-Nottingham For. 0:3
MiIIwall-Liverpool 1:2
Norwich-Chariton 0:0
2. deild
Barnsley-Newcastle 1:1
Bournemouth-Stoke City 2:1
Leeds Utd.-Watford 2:1
Leicester-Ipswich 0:1
Oldham-Brighton 1:1
Oxford-Hull City 0:0
Portsmouth-W.B.A. 1:1
Port Vale-Swindon 2:0
Sheflield Utd.-Bradford 1:1
Sunderland-Plymouth 3:1
West Ham-Middlesbrough 2:0
Wolves-Blackburn 1:2
Liverpool vann
Millwall á útivelli