Dagur - 24.11.1989, Side 5

Dagur - 24.11.1989, Side 5
Föstudagur 24. nóvember 1989 - DAGUR - 5 fréttir Fjármálaráðherra kynnir frumvarp um virðisaukaskatt: Gert er ráð fyrir einu skatt- i og 26% skatthlutfalli þrepi Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráöherra hefur sent frá sér drög aö frumvarpi um breytingar á lögum um virðis- aukaskatt en þar er gert ráð fyrir einu þrepi í virðisauka- skatti. Frumvarpsdrögin eru nú til skoðunar í einstökum þingflokkum en ljóst er að ekki eru allir sáttir við eitt skattþrep í virðisaukaskatti og samkvæmt heimildum blaðsins er meirihluti þingmanna fylgj- andi tveggja þrepa virðisauka- skatti. Engu að síður stefnir fjárinálaráðherra að því að leggja frumvarpið fram á Alþingi strax í næstu viku. Samkvæmt frumvarpsdrögun- verður álagning virðisauka- um skattsins 26% en að ákveðnar vörur eins og t.d. mjólk, dilka- kjöt, fiskur og ferskt íslenskt grænmeti, fái endurgreiddan helming þeirrar upphæðar og bera því um 13% virðisauka- skatt. Þá er gert ráð fyrir því í drögunum að blöð, tímarit, landsmála- og héraðsfréttablöð og afnotagjöld útvarps- og sjón- varps verði undanþegin virðis- aukaskatti en þó verða bækur ekki undanþegnar skattinum fyrr en seint á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir því að á sölu auglýsinga í prent- og ljósvakamiðlunum leggist virðisaukaskattur en í gamla söluskattskerfinu voru auglýsingar í prentmiðlunum undanþegnar söluskatti en ekki auglýsingar í ljósvakamiðlunum. Þá er gert ráð fyrir því að sala á heitu vatni og rafmagni til hús- hitunar og sala veiðileyfa verði undanþegin virðisaukaskattinum og einnig sala listamanna á eigin verkum og uppboð listmuna og starfsemi safna. Sama gildir um aðgangseyri að tónleikum, leik- sýningum og leikhúsum, svo framarlega að þær samkomur tengist á engan hátt öðru sam- komuhaldi eða veitingastarfsemi. Loks er gert ráð fyrir því að íþróttastarfsemi, aðgangseyrir að sundstöðum, skíðalyftum, íþrótta- mótum, íþróttasýningum og heilsuræktarstofnunum verði undanþeginn virðisaukaskatti, svo og rekstur skóla, menntastofn- ana, skólamötuneyta svo og öku- kennsla. Einnig er opnað fyrir það í frumvarpsdrögunum að endur- greiða byggjendum íbúðarhús- næðis virðisaukaskatt vegna vinnu á byggingarstað og vegna meiriháttar viðhalds íbúðarhús- næðis, sem ekki var gert ráð fyrir áður. En þar er gert ráð fyrir því að umrætt viðhald sé viðurkennt af húsnæðisstofnun og lánshæft. -KK Húseigendur athugið! Parketpússningar! Tek að mér að leggja og pússa parket, einnig að pússa og gera við gömul viðargólf. Er með fullkomnustu vélar hér norðanlands. Smíðavinna! Öll almenn smíðavinna innanhúss og utan. Vanur maður - Vönduð vinna. Gestur Björnsson, sími 26806. A næstu dögum kemur út merkur upplýsingabæklingur um íslenska skipasmíði: Tromp á hendi skipasmíðastöðvanna - „bæklingurinn lýsir einfaldlega staðreyndum“ Einhvern næstu daga verður gefínn út kynningarbæklingur á íslenskum skipasmíðaiðnaði sem Félag dráttarbrauta og skipasmiðja og Iðnaðarráðu- neytið hafa á síðustu mánuð- um unnið að. Kynningarbækl- ingurinn var unninn í fram- baldi útgáfru Appledorc- skýrslunnar svonefndu, sem út kom í maí sl. og greindi frá niðurstööuin athugunar á íslenska skipasmíða- og skipa- viðgerðaiðnaðinum. Bæklingurinn var kynntur á nýafstöðnum aðalfundi Félags dráttarbrauta og skipasmiðja á Akureyri og þá greindi Árni Gunnarsson, alþingismaður, frá honum á borgarafundi um atvinnumál í Sjallanum á Akur- eyri sl. þriðjudagskvöld. Árni sagði þar m.a. að upplýsingar í bæklingnum ættu án efa eftir að vekja mikla athygli og þar væri skýrt frá ýmsum staðreyndum sem styddu þá skoðun að í mörg- um tilfellum væri mun hagstæð- ara að srníða skip innanlands þó svo að tilboð íslensku stöðvanna væru eilítið hærri. segir Baldur Pétursson Baldur Pétursson, viðskipta- fræðingur í Iðnaðarráðuneytinu, er einn þremenninga sem unnu uppkast að bæklingnum. Hann sagði í gær í samtali við Dag að í bæklingnum væri komið á fram- færi tölulegum upplýsingum frá íslensku skipasmíðastöðvunum sem telja yrði tromp á hendi í baráttu þeirra fyrir tilverurétti sínum. „Bæklingurinn lýsir ein- faldlega staðreyndum. Meðal annars er gerður samanburður á erlendum og íslenskum skipa- smíðum. í fyrsta lagi er í mörgum tilfellum ekki hægt að bera sam- an gæði og í öðru lagi efni skip- anna. Priðja og stærsta atriðið og það sem hvað mestu máli skiptir er reynslan af skipunum t.d. bilanatíðni og annað siíkt. í Ijós kemur að íslensku stöðvarnar standa þar sterkt að vígi og miklu betur en margar erlendu stöðv- anna.“ Ætlunin er að dreifa bæklingn- um, sem verður bæði á íslensku og ensku, til fyrirtækja í Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja til nota við eigin kynningu. Þá verð- ur honum dreifl til útgerða í landinu og notaður á sýningum. í framhaldi af útkomu bæklingsins Nýr bátur til Sauðárkróks átti að afhenda hann í september sl. en vegna óvæntra tafa var það ekki hægt fyrr en nú. Skipverjar sigldu bátnum heim en ferðin mun þó ekki hafa gengið áfalla- laust. M.a. varð að draga bátinn til hafnar í Danmörku vegna vél- arbilunar. En heim er hann kom- inn og mun halda við fyrsta tæki- færi á veiðar. Ætlunin er að veiða innfjarðarrækju fyrir Rækju- verksmiðjuna Dögun. kj Nýjasti báturinn í flota Sauð- krækinga kom til heimahafnar í fyrsta skipti um kl. átta á mið- vikudagsmorguninn. Eigandi bátsins er Steingrímur Garð- arsson útgerðarmaður, en hann átti áður vélbátinn Tý SK 33. Nýi báturinn, Jökull SK 33, er 70 tonna stálbátur smíðaður í Úska í Póllandi. Smíði hans hef- ur tekið rúmt ár og upphaflega Messur um jól og áramót Athygli sóknarpresta á Norðurlandi er hér með vakin á því að venju samkvæmt mun Dagur birta upplýsingar um messur um jól og áramót í Jólablaði Dags þann 20. des- ember nk. Sóknarprestar á Norðurlandi eða formenn sóknarnefnda eru beðnir að koma upplýsingum um messuhaldið á framfæri við aug- lýsingadeild Dags við fyrstu hentugleika og eigi síðar en 13. desember nk. Síminn er 96- 24222. er stefnt að kynningarstarfi á veg- um FDS og átaki fyrirtækjanna í markaðs- og sölumálum. óþh Laus embætti er forseti ísiands veitir Eftirtalin embætti héraðsdýralækna eru laus til umsóknar: 1. Embætti héraðsdýralæknis í Isafjarðarumdæmi. Umsóknarfrestur er til 20. desember nk., en emb- ættið veitist frá 1. janúar 1990. 2. Embætti héraðsdýralæknis í Barðastrandarum- dæmi. 3. Embætti héraðsdýralæknis í Strandaumdæmi. 4. Embætti héraðsdýralæknis í Norðausturlands- umdæmi. Þrjú síðast talin embætti eru laus nú þegar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist til landbúnaðarráðuneytisins, Rauðar- árstíg 25, 150 Reykjavík. Landbúnaðarráðuneytið, 22. nóvember 1989. VéMeðasýning VéMe5amarka5ur Nýju 1990 árgerðirnar af Arctic Cat í sýningarsal Höldurs sf., Tryggvabraut 10, nk. laugardag og sunnudag frá kl. 13-18. Sjáið tækninýjungarnar frá Ærctco, sem hafa nú lang mesta söluaukningu allra vélsleðaframleið- enda. LJthiiíirkíiöur! Viltu selja - Viltu kaupa - Notaðir sleðar - kerrur o.fl. Komið með gamla sleðann á sýningarsvæðið við hliðina á sýningar- salnum. Hjörleifur bílasali skráir og annast viðskiptin. Höldursf. Tryggvabraut 10, símar 21715 og 27015 Bifreiðar og Landbúnaðarvélar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.