Dagur - 24.11.1989, Qupperneq 13
Föstudagur 24. nóvember 1989 - DAGUR - 13
Kveðjuorð:
■j1 Gimnþórunn Rútsdóttir
Fædd 11. ágúst 1940 - Dáin 18. nóvember 1989
Fótmál dauðans fljótt er stigið
fram að myrkum grafarreit,
mitt er hold til moldar hnigið
máski fyrr en af ég veit.
Heilsa, máttur, fegurð, fjör,
flýgur burt sem elding snör.
Hvað er lífið? Logi veikur,
lítil bóla, hverfull reykur.
Björn Halldórsson frá Laufási
Það var okkur mikil harmafregn
þegar við fréttum að vinkona
okkar Gunnþórunn væri dáin,
langt fyrir aldur fram.
Það er erfitt að skilja tilgang
lífsins þegar kona á besta aldri er
kölluð burt svo snögglega. Hún
var alltaf svo glöð og hress og
kenndi sér einskis meins, en
dauðinn gerir ekki boð á undan
sér.
Við kynntumst Gunnþórunni
mjög vel því þegar við vorum litl-
ar stelpur og áttum heima í næsta
húsi vorum við nánast daglegir
gestir á heimili hennar og alltaf
var okkur jafn vel tekið.
Já, þær voru margar stundirnar
sem við áttum með henni og fjöl-
skyldunni. Þó minnumst við
kannski helst stundanna á gaml-
árskvöld þegar líða fór að mið-
nætti, þá brást ekki að Gunnþór-
unn, Eddi og krakkarnir komu
yfir á pallinn til okkar og þá var
glatt á hjalla.
Gunnþórunn hafði sjálf á orði
að stórt skarð hefði verið höggvið
í okkar fjölskyldu er kona mín og
móðir okkar dó snögglega um
jólaleytið fyrir fáum árum.
Nú er þetta stóra skarð höggv-
ið í hennar fjölskyldu. Og það
verður aldrei bætt. Þó ferðum
hafi fækkað hin síðari ár var allt-
af góður samgangur.
Gunnþórunn var fædd 11. ágúst
1940 og var því aðeins 49 ára er
hún lést. Hún lætur eftir sig eig-
inmann, Eðvarð Jónsson, og þrjú
börn; Viðar Örn f. 30. mars 1961,
Margréti Dóru f. 3. febrúar 1963
og Eddu Rut f. 22. apríl 1977,
einnig aldraða foreldra.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við þig elsku Gunnþór-
unn mín. Guð leiði þig á ókunn-
um slóðum um himinsins stig.
Hafðu þökk fyrir allt.
Elsku Eddi, Viðar, Magga
Dóra, Edda Rut, Margrét og
Rútur, við biðjum góðan guð að
styrkja ykkur í þessari miklu
sorg, en munið að þó dimm ský
sorgar grúfi nú yfir, brýst sólin
fram fyrr en varir.
„Sorgin er gríma gleðinnar. Og
lindin, sem er uppspretta gleðinnar,
var oft full af tárum. Og hvernig ætti
það öðruvísi að vera? Peim mun dýpra
sem sorgin grefur sig í hjarta manns,
þeim mun meiri gleði geturþað rúmað.
Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert
glaður og þú munt sjá, að aðeins það
sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig
glaðan þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá huga þinn og þú munt sjá
að þú grætur vegna þess sem var gleði
þín. “ Kahlil Gibran
Röggi, Steina, Freyja,
Edda og Sólveig.
Eins og tilveran getur verið björt
og gjöful, getur hún einnig orðið
grimm og krefjandi, en svo
fannst okkur þegar við fréttum
að Gunnþórunn vinkona okkar
hefði kvatt þennan heim svo
skyndilega og óvænt. Við sem
umgengumst hana svo náið, sá-
um hana ætíð fyrir okkur sem
glaðværa, dugmikla en þó um-
fram allt heilsuhrausta, enda
hafði henni sjaldan orðið mis-
dægurt um ævina, og því kemur
skyndilegt fráfall hennar svo sárt
við okkur öll.
Gunnþórunn var fædd að
Bakkaseli í Öxnadal, en fluttist
ung með foreldrum sínum þeim
Rúti Þorsteinssyni og Margréti
Lúhersdóttur að Engimýri í sömu
sveit, þar sem hún ólst upp með
bróður sínum Þorsteini, nú
bónda að Þverá í Öxnadal.
Ung stúlka fluttist hún til
Akureyrar og hóf störf á Fata-
verksmiðjunni Heklu, þar sem
hún kynntist manni sínum
Eðvarði Jónssyni. Áður en til
hjúskapar kom á milli þeirra, fór
Gunnþórunn til náms í Hús-
mæðraskólann á Laugalandi í
Eyjafirði, en að skólagöngu lok-
inni gengu þau í hjónaband þann
23. júlí 1960. Þau hófu búskap
sinn í leiguíbúð við Skipagötu, en
byggðu sér síðan sitt eigið hús-
næði að Byggðavegi 148, þar sem
þau bjuggu síðan alla tíð. Gunn-
þórunn var mikil húsmóðir í sér
og bjó manni sínum og börnum
vistlegt og fagurt heimili, sem bar
handlagni hennar og dugnaði
fagurt vitni. Börn þeirra hjóna
eru þrjú, elstur er Viðar Örn,
fæddur 1961, þá Margrét Dóra
fædd 1963 og yngst er Edda Rut
fædd 1977.
Það er mikill missir eiginmanni
og börnum, að sjá á bak eigin-
konu og móður sem alla tíð
umvafði þau ástúð og umhyggju,
en Gunnþórunn bar ætíð hag eig-
inmanns og barna fyrir brjósti.
Þau Eddi og Gunnþórunn voru
alla tíð einstaklega samhent
hjón, bæði í einkalífinu og í dag-
legum störfum. Nú nokkur und-
anfarin ár hafa þau ásamt Mar-
gréti systur hans rekið sitt eigið
fyrirtæki, Prjónastofuna Glófa.
Gunnþórunn var ekki sú mann-
gerð sem situr með hendur í
skauti ef eitthvað er að gera,
heldur sístarfandi, og þegar kall-
ið kom var hún í miðri önn
dagsins. Þannig var hún, dugnað-
arforkur þegar þess þurfti með,
alvörugefin og ábyrgðarfull þegar
það átti við, og glaðvær og hress
á góðri stund.
Þegar við nú lítum til baka yfir
nær þrjátíu ára tímabil tryggrar
vináttu og ánægjulegra samveru-
stunda, er sannarlega margs að
minnast. Þá koma helst upp í
hugann samverustundir þær er
við áttum saman í fríum okkar
heima og heiman, og allar unaðs-
stundirnar í Vaglaskógi þar sem
við dvöldum löngum saman á
sumrin yfir helgar í góðra vina
hópi. Þær voru ófáar gönguferð-
irnar sem Gunnþórunn dreif okk-
ur með sér í um skóginn, full
orku og glaðværðar, enda nátt-
úrubarn að upplagi, sprottin úr
jarðvegi hinnar íslensku sveitar,
úr dalnum „þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla“.
Minningarnar eru margar og
kærar. Við erum þakklát fyrir að
hafa átt Gunnþórunni að, bæði
sem mágkonu og einlægan vin.
Og þó hún sé nú horfin til ann-
arra heimkynna, mun minningin
um hana lifa áfram með okkur
ástvinum hennar um ókomin ár.
Edda, börnunum og foreldrum
hennar sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Við kveðjum þig nú elsku
Gunnþórunn hinstu kveðju, og
biðjum þér Guðs blessunar.
Blessuð sé minning þín.
Aðalbjörg og Tryggvi.
Elskuleg skólasystir okkar og
vinkona er látin. Mikill er
söknuður okkar og hryggð, en
jafnframt þakklæti fyrir að hafa
átt hana að félaga og vini. Langt
er síðan við hittumst allar að
hausti til árið 1959 að Húsmæðra-
skólanum að Laugalandi. Flestar
okkar voru ungar að árum og
sumar hverjar höfðu sjaldan eða
aldrei farið að heiman áður, og
vissu ekki hvað framundan var.
En þessi hópur var mjög sam-
hentur og alveg ákveðinn í að
láta hvergi bugast, og því urðu
langir vetrardagar oftar stuttir og
skemmtilegir en langir og leiðin-
legir.
Ein úr þessum hópi var Gunn-
þórunn, þá nýtrúlofuð Eðvarði
Jónssyni verkstjóra á Heklu.
Hún hafði ákveðið að nema hús-
stjórn um veturinn til að geta sem
best tekist á við það stóra hlut-
verk að vera eiginkona og móðir.
Það rækti hún af einstakri trú-
mennsku og kærleika. Allt sem
hún gerði lék í höndum hennar
enda áttu þau hjónin gullfallegt
heimili sem alltaf stóð opið vin-
um og ættingjum, af alkunnum
rausnarbrag. Við munum aldrei
gleyma henni og minnumst þess-
arar fallegu, grönnu, dökkhærðu
stúlku, sem lifði lífinu svo lifandi
og kom alltaf svo miklu í verk, en
hafði samt alltaf tíma til að rækja
vináttuböndin.
Elsku Eddi, börn, aldraðir for-
eldrar, bróðir og ættingjar, megi
Guð styrkja ykkur og blessa.
Skólasysturnar frá Laugalandi.
SJÁUMST
MEDENDURSKMI
yUMFERÐAR
RÁÐ
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtalinni fasteig fer
fram á eigninni sjálfri,
á neðangreindum tíma:
Ránargata 6, Akureyri, þingl. eig-
andi Stefán Sigtryggsson, mið-
vikud. 29. nóv. ’89, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., innheimtumað-
ur ríkissjóðs, Ólafur Gústafsson
hrl., Veðdeild Landsbanka íslands
og Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjaríógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Foreldrafélag G.A.
Áhugasamir foreldrar unglinga í Gagnfræða-
skóla Akureyrar boða til endurvakningar for-
eldrafélags við skólann, mánudaginn 27.
nóvember kl. 20.30 í sal skólans.
Foreldrar.
Bændur!
Eigum til sláttuþyrlur og
heyþyrlur á vetrarverði.
Veladeild
Óseyri 2 • Símar 21400 og 22997.
BORÐTENNIS-
ÆFINGAR
Hér er tækifærið sem borðtennisáhugamenn
hafa beðið eftir.
(þróttafélagið Akur býður upp á æfingaaðstöðu fyrir
þá sem vilja æfa borðtennis.
Æfingarnar standa öllum opnar og eru þær á
Bjargi, Bugðusíðu 1 og er þjálfari á staðnum.
Æfingatímar: mánudaga kl. 19.15-20.45
miðvikudaga kl. 18.30-20.00
föstudaga kl. 16.15-17.45
íþróttafélagið Akur.
V " x'
Skemmtiklúbburinn
Líf og fjör
Góðir félagar!
Dansskemmtun verður í Allanum, Skipagötu 14, 4. hæð,
laugardaginn 25. nóvember nk.
frá kl. 22.00-03.00.
Húsið opnað kl. 21.30.
Við mætum öll vel og stundvíslega og verðum í stuði
með Hljómsveit Bigga Mar.
Gestur kvöldsins er Hjördís Geirsdóttir.
Sjáumst alveg eldhress
og munum eftir félagsskírteinunum.
Stjórnin.
---- 7
Hjartkær eiginkona mín,
GUNNÞÓRUNN RÚTSDÓTTIR,
Byggöavegi 148, Akureyri,
lést á Borgarspítalanum laugardaginn 18. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. nóvember
kl. 13.30.
Fyrir hönd foreldra hennar, barna okkar og annarra vanda-
manna.
Eðvarð Jónsson.