Dagur - 25.11.1989, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 25. nóvember 1989
Hamingjan kemur með póstmum
Góðan daginn, kæru lesendur.
Alkunna er plága sú sem nefn-
ist keðjubréf. Þessi hvimleiða
tómstundaiðja virðist útbreidd
um allan heim og berst öðru
hverju til íslands. Mig grunar
líka að óprúttnir menn í
höfuðborginni búi slík bréf til
og dreifi um landsbyggðinna.
Akureyringar hafa ekki farið
varhluta af ósómanum að
undanförnu og má þar nefna
svokölluð hamingjubréf. Slíkt
bréf barst mér í hendur á
dögunum frá konu sem var
alveg í öngum sínum, en upp-
haf bréfsins hljóðar svo:
„Þetta bref er sent til þin svo
þu fair happ og hamingju.
Upprunalega brefið var skrifað
i NEW ENGLAND. Brefið
hefur farið umhverfið jorðina
a.m.k. 10 sinnum. Hamingja
er þer send. Innan fjogra daga
eftir að þu hefur fengið brefið
kemur happið til þin. Þetta er
ekkert grin.“
Framhaldið er auðvitað
þetta venjulega stagl um að
fjölrita bréfið og senda, þá
komi hamingjan gangandi í
gulum skóm, en gíeymi maður
að senda bréfið blasir við
atvinnumissir, fátækt og eymd.
í þessu bréfi eru reyndar ekki
hinar algengu feigðarspár sem
gjarnan fylgja þeim sem
ákveða að henda bréfinu, en
hjátrúin er sterk í íslendingum
og þeim hættir til að taka
keðjubréf alvarlega. í mínum
huga eru þessi bréf ekkert ólík
gluggapóstinum og þau eiga að
fara sömu leið, beint í ruslið.
„Ertu vitlaus maður? .Þú ert
búinn að snerta bréfið og þá
verður þú að senda það
áfram.“ Þar gól konan og fálm-
aði eftir hamingjubréfinu í
rusladallinum, en það var
sundurtætt.
„Láttu ekki eins og bestía,
kona. Ég hef annað að gera en
fást við hvíandi kvenpersónur
og bréfsnepla.“
Konan virtist sár, öllu held-
ur ösku-sjóðandi reið. Hún
skaut hökunni fram og grænar
glyrnurnar leiftruðu af vonsku.
Ef augun eru spegill sálarinnar
þá verða næg verkefni fyrir
vissa stétt manna á næstunni.
„Þú ert tilfinningalaus
nrotti, nvæsti min yndistrioa.
„Við þurftum einmitt á ham-
ingju að halda fyrir jólin en nú
hefurðu kastað tækifærinu á
glæ. Hvernig eigum við að geta
haldið jól í þessu skuldafeni
sem þú hefur sökkt okkur í?“
Jólunum er borgið. Hamingjan kom gangandi í gulum skóm og gerði konuna
blíða og undirgefna.
matarkrókur
Suðrænt
og seiðandi
Jólin nálgast og eldhúsber-
serkir af báðum kynjum
hugsa sér gott til glóðarinnar.
Matarkrókurinn mun vœnt-
anlega taka nokkrum breyt-
ingum áður en hátíð Ijóss og
friðar fœrist yfir en uppskrift-
irnar í dag eru þó ekki
bundnar við nein sérstök
tilefni. Suðurhafskjúklingur
er krydd í tilveruna á frost-
köldum vetri og gulrótarkaka
er tilvalin fyrir gesti og gang-
andi. Vel á minnst, við vilj-
um nota tækifœrið og aug-
lýsa eftir uppskriftum að
jólasœlgæti fyrir sykursjúka.
Ef þið lumið á slíkum upp-
skriftum vinsamlegast hafið
þá samband við undirritað-
an.
Sudurhafskjúklingur
1 kjúklingur
2 msk. hveiti
'ó msk. karrý
1 tsk. salt
Sósa:
1 laukur
5 sneiðar bacon (reykt flesk!)
1 msk. karrý
1 msk. hveiti
1 epli
1 msk. tómatkraftur
IV: dl kjötsoð
'/2 dós ananas
Meðhöndlun: Hlutið kjúklinginn
í sundur. Veltið bitunum upp úr
krydduðu hveiti og steikið þá á
pönnu, sjóðið í 20 mínútur. Setj-
ið kjúklingabitana síðan í eldfast
mót og hellið sósunni yfir. Sósan
er búin þannig til: Rífið laukinn
og skerið baconið í bita. Steikið á
pönnu og stráið karrýi yfir og lát-
ið þetta malla augnablik. Því
næst bætið þið hveiti, tómat-
krafti, soði og ananassafa út í og
sjóðið sósuna í 10 mínútur. Að
lokum er epla- og ananasbitum
bætt í sósuna áður en henni er
hellt yfir kjúklingabitana. Rétt-
urinn er bakaður í ofni í 30
mínútur og borinn fram með
hrísgrjónum.
Gulrótarkaka
2 egg
2 dl sykttr
2 dl hveiti
I tsk. natron
1 tsk. kanill
1 tsk. vanillusykur
1 tsk. lyftiduft
1 dl matarolía
3 dl rifnar gulrœtur
Krem:
50 g rjómaostur
30 g smjörlíki
2 dl flórsykur
1 tsk. vanillusykur
Þú gætir reynt að éta minna,
sleppt því að fara í lagningu og
kaupa þér jólaföt og heimtað
kauphækkun, hugsaði ég en
sagði ekki orð. Þau eru gagns-
laus þegar þörfin er mest.
„Mér kæmi ekki á óvart þótt
þú misstir vinnuna fyrst þú
reifst bréfið. Þar var sagt frá
einhverjum John Holmes sem
var rekinn fjórum dögum eftir
að hann sleit keðjuna. Þú gætir
jafnvel misst eitthvað fleira,“
hreytti hún út úr sér og kastaði
til höfðinu svo hárstrýið þyrl-
aðist upp undir loft. „Guð, ég
verð að panta lagningu á
morgun,“ stundi hún á hljóp
inn á bað.
Sælir eru einfaldir, fátækir,
fatlaðir og aldraðir, hugsaði ég
með mér og tölti um stofuna.
Árans tannpínan blossaði upp.
Ég sem ætlaði að þrauka fram
yfir jólin, enda voru ekki nema
fimm ár síðan ég fór síðast til
tannlæknis. Það kom ekki til
greina að fara fyrir jól. Ég gat
ekki hugsað mér að borga jóla-
matinn fyrir fjölskyldu tann-
læknisins þegar ég megnaði
ekki að kaupa svín ofan í mig
og mína. Nei, hann skyldi fá
að plokka einhverja aðra fyrir
jólasteikinni.
Ég skenkti mér kók í glas og
lagði höfuðið í bleyti. Meðan
kolsýrt sykurvatnið át sig í
gegnum glerung tanna minna
datt mér snjallræði í hug. Á
einu bretti gæti ég bjargað
ærunni gagnvart konunni og
gert hana meyra sem kjöt af
nýslátruðu. Já, ég ætlaði að
skrifa henni hamingjubréf,
sem ég og gerði:
„Kæri viðtakandi. Bréf þetta
færir þér óumræðilega ham-
ingju, sérstaklega yfir jólin. Þú
munt finna hjá þér gríðarlega
þörf fyrir að láta vel að maka
þínum, elska hann og dá. Bréf-
ið hefur farið 25 sinnum kring-
um jörðina og fært milljónum
manna frið og farsæld. Konur
hafa fallið í öngvit af einskærri
hamingju. Bréf þetta er upp-
runanlega frá Theresu Charles
og hefur hamingja hennar
smitað út frá sér. Þú þarft ekki
að fjölrita bréfið, geymdu það
bara ofan í skúffu hjá þér og
þá mun hamingjan brosa við
þér. Ef þú hendir bréfinu fer
hins vegar illa fyrir þér. Tómas
frændi reif sitt bréf og hann átti
ömurlega ævi í kofanum. Þá er
betra að hlýða fyrirmælunum
og umfram allt leggja áherslu á
að vera makanum undirgefin
og þjónustufús. Þannig virkar
hamingjan. Glædelig jul,
hilsner fra Danmark.“
Bréfið kom í pósti daginn
eftir, stílað á konuna. Fýld
grönin geiflaðist í brosi þegar
hún las bréfið. Hún stakk því
ofan í skúffu með sæluglampa í
augum. Já, það er víst engin
ástæða til að kvarta lengur.
Þetta verður ábyggilega bæri-
legast aðventa.
Hallfreður
Örgumleiðason:
Suðurhafskjúklingur veitir yl á frostköldum vetri.
Svona gerum við: Þeytið saman
egg og sykur, blandið þurrefnun-
um saman við. Að síðustu er
matarolíu og rifnum gulrótum
bætt út í deigið. Setjið það í
smurt kringlótt mót og bakið við
175 gráður í u.þ.b. 40 mínútur.
Kremið: Látið allt hráefnið í
kremið í skál og hrærið. Kremið
er síðan sett ofan á kökuna þegar
i hún er orðin köld. Skreytið
gjarnan með söxuðum möndlum.
Þess má geta að gulrótarkakan er
best daginn eftir að hún er bökuð
I og verði ykkur síðan að góðu. SS