Dagur - 25.11.1989, Page 7

Dagur - 25.11.1989, Page 7
1 kórstarf Laugardagur 25. nóvember 1989 - DAGUR - 7 J, Endalaus leit að Fjöldi kóra á íslandi hlýtur að vera heimsmet, að minnsta kosti ef miðað er við þá gatslitnu höfðatölureglu. Þjóðin er bókstaflega öll syngjandi. Við höfum kóra af öllum stærðum og gerðum, karlakóra, blandaða kóra, kvennakóra, sönghópa, kvartetta, tríó og ég veit ekki hvað. Það er enginn maður með mönnum nema hann syngi, ef ekki í kór þá í sturtu í takt við fossnið vatnsins úr Damixa-blöndunartækjunum. Á Norðurlandi er söng- hreina tóninum! starf kröftugt og svo hefur verið um aldir alda. Það má ekki á milli sjá hverjir eru öflugustu söngmennirnir, Húnvetningar, Skagfirðingar, Eyfirð- ingar eða Þingeyingar. Á þessum vettvangi verður ekki lagt mat á það. Til að fræðast eilítið um hvað felst í kórstarfi og hvað er svona heillandi við kórstarf hafði Dagur tal af fjórum norðlenskum söngfuglum og einum síungum kórstjóra. óþh Björg Baldvinsdóttir, félagi í Kór Akureyrarkirkju: Maður byggir upp sinn innri mann „Maður er manns gaman. Elsti félaginn hjá okkur hefur sungið í um 60 ár og sem betur fer fáum við marga unga stráka til liðs við okkur,“ segir Þorvaldur Óskarsson, á Sleitu- stöðum í Hólahreppi og formaður Karlakórsins Heimis í Skagafirði. „Það er eins og kórstarf eigi víða erfitt uppdráttar en þá sögu höfum við í Heimi sem betur fer ekki að segja. Áhugi manna í Heimi er síður en svo dvínandi. Þvert á móti er áhuginn meiri en kannski nokkru sinni fyrr. Eitthvað hefur það að segja að áhugi fyrir söng er og hefur alltaf verið mikill í Skagafirði." Þorvaldur segir mikinn tíma fara í kórstarfið en hann sjái ekki eftir honum. Hann nefn- ir að það vilji oft gleymast að kórfélagar geti ekki sinnt þessu áhugamáli nema því aðeins að maki og aðrir í fjölskyldunni geri þeim það kleift. Þorvaldur hefur sungið í kór í um 30 ár en síðustu 20 ár hefur Heimir átt hug hans allan. Að jafnaði er æft tvisvar í viku frá veturnóttum til sumarmála. Þá er yfirleitt gert hlé á æfingum og þráðurinn tekinn upp á ný að afloknum sauðburði og haldnir árlegir tónleikar. „Ég hef gaman af öllum lögum sem við tökumst á við í kórnum. Kannski eru þau lög skemmtilegust sem eru erfiðust í flutningi. Svo er auðvitað gaman að syngja létt og skemmtileg lög. Það má heita að ég sé alæta á tónlist. Þó finnst mér lítið til diskótónlistar koma. Hún er það versta sem ég heyri. Sinfóníur finnst mér lítt áheyrilegar í útvarpi en aftur á móti gaman að hlusta á þær á tónleikum.“ Þorvaldur Óskarsson, form. Karlakórsins Heimis: Erfiðustu lögin eru skemmtilegust „Það gefur manni mikla lífsánægju og -fyllingu að syngja í kór. Ég held að enginn maður fari í kór bara fyrir félagsskapinn. Söngurinn er númer eitt. Flutningi á söng fylgir mikill spenningur og þegar honum er lokið fer um mann ólýsanleg tilfinning. Ef vel gengur fyll- ist maður þakklæti og gleði lengi á eftir. Ég er orðin allt of gömul til að syngja með í kór en ég syng sjálfri mér til sálubótar. Maður byggir bókstaflega upp sinn innri mann með því að syngja við messu og taka þátt í henni. Það hleður sálartötrið lífshamingu og orku,“ segir Björg Baldvinsdóttir, félagi í Kór Akureyrarkirkju, sem hefur starfað í kór nánast sleitulaust frá árinu 1945. Þrátt fyrir að árin færist yfir starfar Björg af krafti í Kór Akureyrarkirkju og hefur allt- af jafn gaman af söngnum. Hún segir að kórstarfið sé hennar líf og yndi og hún skrölti á meðan hún haldi röddinni. Auk Kórs Akureyrarkirkju hefur Björg sungið í Kantötu- kórnum og hún var ein stofnenda Gígjanna á Akureyri. „Lykillinn að góðum kór eru góðar raddir og að söngstjóranum takist að samæfa þær þannig að hann fái heildarsöng. Það má engin rödd skera sig úr og til þess að fyrirbyggja það reynir á söngstjórann. í því verður að beita mikilli hörku. Við höfum yndisíegan söngstjóra í Kór Akureyrarkirkju. Honum virðist takast að fá allt út úr fólkinu sem hann vill með brosinu einu,“ sagði Björg og hélt áfram: „Kórstjórar eru mjög mismunandi. Músíkantar eru yfirleitt miklir skapmenn og stundum ráða þeir ekki við skapið. En við vitum að það er ekkert að marka. Þetta eru tilfinningar sem verða að fá að gjósa út annað slagið og síðan er allt í besta lagi.“ Margrét Jónsdóttir, félagi í Kvennakórnum Lizzie: Söngurinn er númer eitt „Ég segi að söngurinn komi númer eitt og félagsskapurinn lendi í öðru sæti,“ segir Margrét Jónsdóttir, frá Fitjum í Kinn í Suður-Þingeyjarsýslu og félagi í Kvennakórnum Lizzie. „Við byrjuðum að æfa í sláturtíðinni og við munum koma saman til æfinga fyrir jólin. Við stefnum á að syngja í endaðan mars á 60 ára afmæli Kvenfélagasambands íslands í Reykjavík. Þá höfum við hug á að fara út fyrir landsteinana síðar. Það verður ekki í ár en vonandi á næsta ári. Stefnan er tekin á Þýskaland, sem kemur til af því að stjórnand- inn okkar, Margrét Bóasdóttir, þekkir þar vel til og hefur oft sungið þar.“ Margrét segir að margt þurfi að hjálpast að við ná góðum hljóm í kór. „Mér finnst að Margrét hafi gott lag á okkur. Hún er mjög hæfur stjórnandi, heldur uppi góðum aga og nýtir tímann vel. Hvað hvern og einn kórfélaga varðar er aðalatriðið að beita röddinni rétt og koma hljóðunum rétt til skila.“ Margrét hefur samanburð af starfi í kvennakór og blönduðum kór. Fyrir nokkrum árum söng hún í Polyfónkór Ingólfs Guðbrandssonar. Hún segir að starf í þessum kórum sé að nokkru leyti ólíkt og þó ekki. „í báðum þessum kórum er lagt kapp á að mæta á æfingar og syngja af gleði og fara óþreyttur heim.“ Friðrik Jónsson, fimmfaldur organisti í S-Þing: Einraddaöur söngur er ómerkilegur Friðrik Jónsson söngstjóri er ekki af baki dottinn þrátt fyrir árin sjötíu og fjögur. Hann er ennþá organisti og stjórnandi kóra við fimm kirkjur í Suður-Þingeyjarsýslu, Þverár- kirkju í Laxárdal, Neskirkju í Aðaldal, Einarsstaðakirkju í Reykjadal, Lundarbrekku- kirkju í Bárðardal og Ljósavatnskirkju í Ljósavatnsskarði. Friðrik lætur sér fátt um finnast þegar hann er inntur eftir því hvort ekki sé mikið starf að spila og stjórna söng í fimm kirkjum. Hann segist „vera búinn að skaka í þessu um 40 ár“ og því viti hann nokkuð um hvað málið snýst. En hver er skýringin á því að menn endast í starfi sem þessu fram á efri ár? „Ég veit það ekki. Því verður þó ekki neitað að ég hef gaman af þessu og hef alla tíð haft mikla ánægju af söng og músík. Auk söng- stjórnunar og orgelspils spilaði ég á harmonikuna á böllum hér um allar sveitir í um 40 ár,“ segir Friðrik. Hann segist vera heldur fastheldinn á tónlistina og gefa lítið fyrir nú- tímatónlistina. „Ég kalla músíkina í dag ekki músík. Þegar maður getur ekki lært þau lög sem ungu tónskáldin semja, þá kalla ég það ekki músík. Það vantar í þetta ákveðna melodíu eins og gömlu karlarnir Páll ísólfsson, Karl O. Runólfsson, Sigvaldi Kaldalóns og fleiri góðir menn komu svo vel til skila.“ Friðrik segir það vandamál til sveita að menn fáist ekki lengur til að spila við messur. Hann segir að á uppvaxtarárum hafi þetta ekki verið vandamál en nú sé öldin önnur og til vandræða muni horfa til sveita þegar „þeir gömlu“ hætti spilamennskunni. Friðrik segist ekki hafa neinar ákveðnar áherslur í stjórnun kóra nema ef vera skyldi að leggja áherslu á raddaðan söng kóranna. „Ég legg rnikið upp úr fjórrödduðum kórum. Ef presturinn óskar eftir sálmi sem kórinn kann ekki læt ég hai.n stundum flytja hann ein- raddaðan en æfi hann síðar í fjórum röddum. Yfirleitt býð ég ekki upp á annað en fjór- raddaðan söng, hitt finnst mér svo ómerkilegt.“ Jóhann Már Jóhannsson, einsöngvari í Skagafirði: Óútskýranlegt hvað dregur fólk í kór „Það liggur við að sé óútskýranlegt hvað dregur fólk í kórstarf," sagði Jóhann Már Jóhannsson, bóndi Keflavík í Rípurhreppi í Skagafirði, þegar hann var inntur eftir því hvernig bæri að skýra þá ástríðu manna að syngja í kór. Jóhann Már hefur margra ára reynslu í karlakór að baki. Hann byrjaði söngferilinn í Karlakórnum Geysi á Akureyri og tók því næst þátt í starfi Karlakórs Bólstaðarhlíðar í Húnavatnssýslu og Karlakórsins Heimis í Skagafirði. Á síð- ari árum hefur hann einbeitt sér að einsöngnum og komið fram bæði á einsöngstónleikum og með kórum. Fyrir sex árum gaf hann út plötuna „Bóndinn" og á næstu dögum kemur á markaðinn ný plata Jóhanns Más sem ber heitið „Ef væri ég söngvari." Þeirri plötu verða síðar gerð nánari skil í Degi. „Hér í sveit láta menn sig hafa það að keyra allt upp í 60-80 km á æfingar tvisvar í viku ár eftir ár. Mönnum finnst þetta ekki tiltökumál. Lengsta ferð sem ég hef farið á æfingu var þegar ég bjó á fremsta bænum í Svínadal. Þá fór ég að heiman kl. 6 um kvöld og keyrði í Húnaver. Ég rétt náði á æfingu sem hófst kl. 9. Æfingin stóð til 12 og kl. 4 um nóttina renndi ég í bæjarhlaðið. Kórstarf hér er miklu meira en söngurinn. Félagsskapurinn hefur sitt að segja. Mikið er um hverskonar skemmtikvöld og kórstarfið er krydd í tilveruna. Það er mikil tilbreyt- ing frá daglegn streði að fara á kóræfingu. Menn þvo sér vel, fara í betri fötin og láta þreytuna líða úr sér í allt öðru umhverfi. Fara síðan glaðir og endurnærðir heim. Þetta jafnast á við þegar kaupstaðarmenn fara á hestbak og losna þannig við stressið.“ Jóhann Már segir að þrátt fyrir að hann hafi aldrei sungið í blönduðum kór hafi hann mjög gaman af söng blandaðra kóra. Þó verði hann að viðurkenna að karlakórssöngurinn heilli meira. „Ég er nú svo gamaldags að mér finnst alltaf skemmtilegast að hlýða á kar- lakórslög. En strangt tekið er blandaði kórinn meira hljóðfæri." Jóhann Már svaraði þeirri spurningu játandi hvort söngstjórar væru ekki mismunandi. Hann sagði aðspurður að óskasöngstjórinn væri Árni Ingimundarson þegar hann var best upplagður. „Hann átti það til að vera mjög vandvirkur en alltaf kátur og fjörugur og gíf- urlega laginn við að kenna mönnum raddir.“ “H-i 4- L-VA h s V V- A V X . T % T X X I I - V O-kj /X& Ý TE T t T É r r r r 2 7 \ j s • S 9 S S S w m m - ý, 1 • Æ i W JTT. r J -4>J «f. .M -m m - m nr w w w— ./ r J U ') J [J 1J 'J 'J ff ~w— “— y S' - ~S~i~ 2 L T T1 1 II ! 1 M 1—nr- la la la la la la la la la la la la rrt la la i 7 7 P a la la.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.