Dagur - 07.12.1989, Blaðsíða 13

Dagur - 07.12.1989, Blaðsíða 13
eSGC jsdmsatíb .7 ujnsbtdmmR - íHJOACi - <??• Fimmtudagur 7. desember 1989 - DAGUR - 13 Ályktun Landsfundar Þjóðarflokksins - sem haldinn var í Alþýðuhúsinu á Akureyri dagana 25. og 26. nóvember 1989 „Þjóðarflokkurinn hafnar sam- vinnu við aðra flokka nema ljóst sé að þeir vinni frá upphafi að sömu stefnu, það er endurskoðun stjórnarskrárinnar og breytingum á stjórnskipan með valddreifingu og auknu sjálfstæði landshlut- anna. Fyrir þá flokka sem aðhyll- ast sömu stefnu verði haldið opn- um dyrum til umræðu. Þjóðarflokkurinn krefst þess að almenningi verði birt lög og reglur Efnahagsbandalags Evr- ópu. Að þjóðin verði spurð álits á aðild að bandálaginu, í sveitar- stjórnarkosningunum í vor, að undangenginni fræðslu um rétt- indi og skyldur aðildarríkjanna. Þjóðarflokkurinn minnir á að sú efnahagskreppa sem nú herjar á landsmenn er sönnun þess að hin efnahagslega og pólitíska miðstýring, sem við búum við, er gjörsamlega misheppnað og stór- hættulegt kerfi. Vaxtaokrið og lánskjaravísital- an, sem alþingismenn halda hlífi- skildi yfir, er að sliga einstaklinga og fyrirtæki, sem leiðir af sér gjaldþrot og upplausn heimila. Þjóðarflokkurinn leggur áherslu á stuðning við fjölskyld- una grunneiningu þjóðfélagsins. Heimilið sem rekstrareining verður að njóta sömu réttinda í skattamálum hvort sem um eina fyrirvinnu eða tvær er að ræða. Heimilisstörf verði metin í þjóð- hagsreikningum á sama hátt og önnur störf í þjóðfélaginu. Orkuverð verði hið sama um land allt, þannig að rekstrar- kostnaður heimilanna til hitunar og lýsingar verði sá sami á verð- lagseiningu. Stefna Þjóðarflokksins til vald- dreifingar, ábyrgðar og sparnað- ar kallar á stuðning allra þeirra sem á ábyrgan hátt vilja vinna að endurbótum á þjóðfélaginu. Nú er mikilvægt að upp úr rúst- um óráðsíunnar rísi þjóð með nýtt gildismat." Kökubasar. Sórottimistaklúbbur Akureyrar heldur kökubasar í Lóni laugard. 9. des. kl. 14.00. Seldar verða kökur, skreytt köku- hús og servéttur. Takið eftir__________________ Al-Anon fjölskyldudeildimar eru félagsskapur ættingja og vina alkoholista, sem samhæfa reynslu sína, styrk og vonir svo að þau megi leysa sameiginleg vandamál sín. Við trúum að alkoholismi sé fjöl- skyldusjúkdómur og að breytt við- horf geti stuðlað að heilbrigði. Við hittumst í Strandgötu 21: Mánud. kl. 21.00, uppi. Miðvikud. kl. 21.00, niðri. Miðvikud. kl. 20.00, Alateen (ungi- ingar). Laugard. kl. 14.00, uppi. Vertu velkomin(n)! Grenivíkurkirkja. Guðsþjónusta n.k. sunnudag kl. 2. Sóknarprestur. Akurey rarprestakall. Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag fimmtudag kl. 17.15. Allir velkomnir. Sóknarprestarnir. Akureyrarprestakall. Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju verður n.k. sunnud. 10. des. kl. 11 f.h. Börn eldri sem yngri, eru hvött til að koma og undirbúa jólin í kirkjunni sinni. Guðsþjónusta verður í Akureyrar- kirkju n.k. sunnudag 10. des. kl. 14.00 e.h. Kór Lundaskóla syngur nokkur lög í athöfninni undir stjórn Elínborgar Loftsdóttur. Aðrir sálmar: 64 - 250 - 70 - 69. Veitingar í kapellunni, súkkulaði og heitar kleinur eftir guðsþjónustu. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin. N.k. sunnudag verður Bjðrn Steinar Sólbergsson með orgeltónleika í Akureyrarkirkju kl. 8.30 e.h. Efni tengt aðventu og jólum. Allir velkomnir. Þ.H. Guðsþjónusta verður á Hjúkrunar- deild aldraða, Seli 1. sama dag kl. 2. e.h. B.S. Athugið ■ Minningarspjöld Styrktarsjóðs Kristnesspítala fást i Bókvali og á skrifstofu Kristnesspítala. Minningarkort Akureyrarkirkju fást í Bókvali og Blómabúðinni Akri í Kaupangi. Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást í Bókabúð Jónasar. Minningakort Landssamtaka hjarta- sjúklinga fást í öllum bókabúðum á Akureyri. Vinarhöndin Styrktarsjóður Sól- borgar selur minningarspjöld til stuðnings málefna þroskaheftra. Spjöldin fást í: Bókvali,Bókabúð Jónasar, Möppu- dýrin í Sunnuhlíð og Blómahúsinu við Glerárgötu. Minningarspjöld Sambands íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá: Pedromyndum, Hafnarstræti 98, Sigríði Freysteinsdóttur Þingvalla- stræti 28, Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi 24, og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð 17. Minningarkort Sjálfsbjargar Akur- eyri fást hjá eftirtöldum aðilum: Bókabúð Jónasar, Bókval, Akri Kaupangi, Blómahúsinu Glerárgötu 28 og Sjálfsbjörg Bugðusíðu 1. Móðir mín, ELÍN ÞORSTEINSDÓTTIR, frá Svínárnesi, er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhann Jonasson. Eiginkona mln, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, MARZELÍNA KJARTANSDÓTTIR, Rauðumýri 15, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 8. des- ember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Helgi H. Haraldsson. I.O.O.F. 2 = 1711288V6 = 9.1 Minjasafnið á Akureyri. Opið á sunnudögum frá kl. 14.00- 16.00. Náttúrugripasafnið llafnarstræti 81. Sýningarsalurinn er lokaður í des- ember. Næst opið sunnudaginn 7. janúar. Spilavist hjá Sjálfsbjörg Bugðusíðu 1, fimmtu- daginn 7. des. kl. 8.30. Allir velkomnir. Spilanefnd. Félag aldraðra Akureyri. Félag aldraðra verður með jólafagnað í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14, laugardaginn 9. des. kl. 14.00. Jólahugleiðing séra Þórhallur Höskuldsson. Söngur kórs aldraðra, stjórnandi Sigríðar Schiöth. Upplestur. Danssýning barna úr dansskóla Sibbu. Kaffiveitingar, Dans. Skemmtinefndin. Leiðalýsing Lögmannshlíðarkirkjugarður Hjálparsveit skáta stendur fyrir leiðalýsingu í kirkjugarðinum eins og undanfarin ár. Tekið á móti pöntunum í síma 24752. Verð á krossi er kr. 1.000,- kr. Þeir sem vilja hætta tilkynni það í sama síma. FRAMSÓKNARMENN AKUREYRI OPIÐ HÚS í Hafnarstræti 90 laugardaginn 9. desember frá kl. 16.00. Veitingar. Framsóknarfélag Akureyrar. Opnunartími í desember Laugard. 09. desember kl. 9-18. Mánud. 11. desember kl. 9-21. Þriðjud. 12. desember kl. 9-21. Miðvikud. 13. desember kl. 9-21. Fimmtud. 14. desember kl. 9-21. Föstud. 15. desember kl. 9-21. Laugard. 16. desember kl. 9-22. Fimmtud. 21. desember kl. 9-21. Föstud. 22. desember kl. 9-21. Laugard. 23. desember kl. 9-23. Lokað verður 27. desember v/frís hjá starfsfólki. Öpnum aftur 28. desember kl. 9 HAGKAUP Akureyri * Atvinna • Atvinna [Isa Laus er til l framkvæmd Starfið er fólg stofustörfum. Umsóknir ser desember n.k Fjórðungssji sími 96-2210 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI imsóknar 50% staða á skrifstofu astjóra frá 1. janúar n.k. ð í tölvuskráningu og almennum skrif- Vinnutími er kl. 12.00-16.00. idist til skrifstofustjóra F.S.A. fyrir 15. íkrahúsið á Akureyri, 0. jffli KRISTNESSPÍTALI Sjúkraliðar óskast til starfa nú þegar, eða eftir samkomulagi. Starfsfólki búsettu á Akureyri er ekið á og af öllum vöktum. Barnaheimili til staðar. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma: 96- 31100. Kristnesspítali.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.