Dagur - 07.12.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 07.12.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 7. desember 1989 fréttir Virðisaukinn að fá á sig endanlega mynd: Frumvarp um breytingu á virðis- aukaskattslögum lagt fram - 10 reglugerðir um virðisaukaskatt komnar út Fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á virðisaukaskatts- lögunum frá maí 1988. Breyt- ingarnar varða skatthlutfallið og áhrif þess á matvælaverð og hins vegar rýmri undanþágur, einkum á mennta- og menn- ingarsviði. Alls hafa tíu reglu- gerðir verið gefnar út við lögin um virðisaukaskatt og nú fyrir helgina eru væntanlegar tvær reglugerðir til viðbótar, þær síðustu áður en lögin taka gildi um áramót. Skatthlutfallið verður 24,5% en nokkrar helstu tegundir innlendra matvæla munu bera ígildi 14% skatts með sérstakri endurgreiðslu sem fest verði í virðisaukaskattslögunum. Ýmis menningarstarfsemi er skattskyld samkvæmt gildandi lögum en samkvæmt frumvarpinu verða ýmsar undanþágur, t.d. að leikhús og tónleikastarfsemi verði undanþegin skatti, svo og útgáfa tímarita, dagblaða og hér- aðsfréttablaða. Bókaútgáfa mun einnig falla undir þessa undan- þágugrein frá 16. nóvember '1990. Húsbyggjendum verður endur- greiddur virðisaukaskattur og í frumvarpinu er gert ráð fyrir undanþágu til hitunar íbúðar- húsnæðis. Ökukennsla fellur einnig undir undanþáguákvæðið og undanþágugrein vegna íþrótta hefur verið rýmkuð frá því sem er í lögunum. Sem fyrr segir hafa alls 10 reglugerðir við lögin um virðis- aukaskattslögin litið dagsins ljós. Pær eru: reglugerð um uppgjör, uppgjörstímabil og skil fisk- vinnslufyrirtækja, reglugerð um virðisaukaskatt af eigin þjónustu og úttekt til eigin nota innan óskattskyldra fyrirtækja og stofn- ana, reglugerð um greiðslu virð- isaukaskatts af skattskyldri starf- semi sveitarfélaga og annarra opinberra aðila, reglugerð um undanþágu á virðisaukaskatti Tölvufræðslan Akureyri hf. og Framhaldsskólinn á Húsa- vík munu hafa samvinnu um skrifstofutækninám, sem fyrir- hugað er að hefjist í annarri viku jan. nk. Hér er um hag- nýta og fjölþætta starfsmennt- un að ræða sem kennd hefur verið í öllurn fjórðungum og hafa um 1200 manns lokið slíku námi, frá því að kennsla hófst 1986, að sögn Egils Arn- ars Amarssonar hjá Tölvu- fræðslunni. Egill Örn telur að hér sé um að ræða fyrsta skrefið til aukins sam- starfs Húsvíkinga og Akureyinga á þessu sviði, og þegar fram í Ákveðið hefur verið að hækka vexti húsnæðislána um eitt prósentustig þannig að lán sem báru 3,5% vexti munu bera 4,5% vexti og lán sem báru 1% vexti bera nú 2% vexti. Vextir eins flokks lána munu vegna góðgerðarstarfsemi, reglu- gerð um endurgreiðslu virðis- aukaskatts til erlendra ferða- manna, reglugerð um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskatt- skyldra aðila, reglugerð um sæki geti fleiri möguleikar á sam- vinnu komið til. Sagði Egill Örn, í samtali við Dag, að það væri ekki spurning að samstarfið kæmi sér vel fyrir bæjarfélagið á Húsa- vík, hvað varðaði kostnað við námsgagnagerð og að koma upp búnaði vegna þessa náms. Þetta er í fyrsta sinn sem skrif- stofutækni verður kennd á Húsa- vík, kennarar frá Húsavík og Akureyri, auk fólks úr atvinnulíf- inu á Húsavík, munu annast kennsluna. Námsefnið skiptist í þrjá hluta: verklegt nám á tölvu, bóklegt viðskiptanám og tungu- málanám. Heildarnámstími mun nema 256 klst., auk þess sem ekki hækka nú, en það eru vextir greiðsluerfiðleikalána. Þau lán munu áfram sem áður bera 3,5% vexti. Vaxtahækkun þessi tók gildi í gær, 6. desember og gildir um öll lán sem koma til útborgunar frá og með þeim tíma. VG framtal og skil á virðisaukaskatti, reglugerð um frádrátt innskatts, reglugerð um sjóðvélar og reglu- gerð um endurgreiðslu virðis- aukaskatts til sendimanna erlendra ríkja. JÓH nemendum er gefinn kostur á 80 vinnustundum við tölvu utan kennslustunda. Alls er kennt í 15 fögum og lýkur níu þeirra með prófi. Að námi loknu kallast þátttakendur skrifstofutæknar. Við tölvunámið er tekið á öll- um þáttum daglegrar ritvinnslu, tölvunotkun, gerð áætlana og útreikninga á tölvu, vistun gagna, flokkun og geymslu í tölvutæku formi, gagnagrunni og auk þess verður kynnig, á tölvufjarskipt- um. Aðspurður um kostnað þátt- takenda sagði Egill Örn að í sept- ember í haust hefði slíkt nám á Akureyri kostað 119 þúsund krónur, og það yrði ekki hærra verð á Húsavík. Vonandi yrði um lægri tölu að ræða þar sem leitað hefði verið til atvinnurekenda og stéttarfélaga í bænum um stuðning. Á mánudaginn var haldinn kynningarfundur í Framhalds- skólanum og næsta mánudag verður haldinn annar kynningar- fundur á sama stað og hefst hann kl. 20.00. IM Vextir húsnæðislána hækka Skrifstofutækninám eftir áramót á Húsavík - Samstarf Tölvufræðslunnar á Akureyri og Framhaldsskólans á Húsavík Samtök um sorg og sorgarviðbrögð: Einstaklmgur í sorg sækist ekki eftir mcöaunikun - segir sr. Pétur Þórarinsson stjórnarmaður í nýstofnuðum samtökum á Norðurlandi eystra Samtök um sorg og sorgarvið- brögð voru formlega stofnuð á Akureyri í gær. Undirbúning- ur fyrir stofnun samtakanna hefur staðið um nokkurn tíma, en samtökin eru fyrir fólk í Norðurlandskjördæmi eystra. Um 60 manns sóttu fundinn í gær en stofnfélagar eru alls um 70 talsins. Formaður samtak- anna var einróma kjörin Ólöf Ananíasdóttir. Með Ólöfu starfa sex einstakl- ingar í stjórn. Þau eru Kristín Halldórsdóttir, Ólöf Halblaub, Ásgeir Bragason, Sigmundur Sig- fússon, Pétur Þórarinsson og Jóhanna Ragnarsdóttir. Sr. Pétur Þórarinsson stjórnar- maður sagði að enginn vafi léki á því að mikil þörf væri fyrir sam- tök sem þessi á Norðurlandi. „Þörfin er greinilega mun meiri en kemur fram í fjölda fundar- gesta því mjög margir hafa haft samband við okkur sem vorum í undirbúningsnefndinni og spurt út í þessi samtök. Fólk áttar sig ekki á því að þessi samtök eru öllum opin,“ sagði Pétur. Hann tók það skýrt fram að samtökin væru ekki aðeins fyrir þá sem orð- ið hafa fyrir því að ástvinir látast. Þau eru líka hugsuð fyrir þá sem orðið hafa fyrir annars konar sorg sem t.d. gæti tengst miklu raski á fjölskylduhögum í tengsl- um við skilnaði. Það skiptir ekki máli hver orsök sorgarinnar er. í lögum félagsins sem byggja á lögum samtaka sem starfað hafa í Reykjavík sl. 2 ár í sama tilgangi segir, að samtökin séu öllum opin. Markmið þeirra er að styðja við bakið á syrgjendum og þeim sem fjalla um eða vinna að málefnum syrgjenda. Þar má t.d. nefna aðstandendur, starfsstéttir eins og presta, heilbrigðisstéttir, sálfræðinga, félagsráðgjafa og allt áhugasamt fólk sem t.d. vill hjálpa vinum sínum og kunningj- um. Sr. Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur, sem mikið hef- ur starfað með samtökunum í Reykjavík, hefur verið undirbún- ingsnefndinni á Akureyri innan handar með upplýsingar og leið- beiningar. Þá hafa margir félagar á Norðurlandi verið félagar í samtökunum fyrir sunnan og byggja á sinni reynslu. Samtökin um sorg og sorgar- viðbrögð í Reykavík hyggjast á næstunni senda fólk á sínum veg- um á námskeið erlendis og von- ast félagar á Akureyri til þess að geta tekið þátt í þessu með þeim. Þá er í undirbúningi útgáfa á fræðsluefni varðandi sorg og umgengni við syrgjendur. Sr. Pétur segir samtökin ekki síður fyrir þá sem umgangast syrgjendur því það þarf að læra að umgangast syrgjendur. Aðspurður um hvernig umgang- ast eigi syrgjendur sagði hann, „eins og annað fólk. Gallinn er nefnilega sá að þetta hefur ekki verið gert. Það hefur verið farið í kringum hlutina og málefnið fjarlægst. Jafnvel er reynt að sýna samúð og óþarfa hjálpsemi í stað þess að ganga beint að einstakl- ingnum. Einstaklingur í sorg sækist ekki eftir meðaumkun eða að verkin séu unnin fyrir hann. Hann vill frekar stuðning og kær- leika, en fólk á því miður erfit með að vera eðlilegt í garð syrgj- enda.“ Samtökin á Akureyri hafa fengið inni í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju og stefna að því að hafa opið hús u.þ.b. tvisvar til fjórum sinnum í mánuði þar sem félagar koma saman og spjalla yfir kaffibolla. Einu sinni í mán- uði er ætlunin að hafa fræðslu- fundi þar sem fólk með þekkingu kemur og ræðir málin. Félagið mun reyna eftir megni að senda félaga til þeirra sem verða fyrir áföllum, eða vitað er að hafa ein- angrast í sorg sinni. VG Strásykur 133,- pr. 2 kg. Juvel hveiti 68,- 2 kg pk. Bragakaffi jólablanda 93,- 250 grömm. I jola- matinn á jólaverði Léttreykt svínakjöt og léttreyktir lambahryggir. Lamba hangikjöt m/beini og lambakjöt úrbeinaö. Opið virka daga frá kl. 13-18.30. Munið! Opið laugard. 9. des- ember frá kl. 10-18.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.