Dagur - 08.12.1989, Page 5
Föstudagur 8. desember 1989 - DAGUR - 5
Jóhann Már Jóhannsson gefur út einsöngsplötuna
„Ef væri ég söngvari":
„Ég og Búnaðarbankiim á Króknum
stöndum saman að útgáfu plötunnar“
- 18 laga plata, þar af eru þrjú laganna erlend
Jóhann Már Jóhannsson, ten-
órsöngvari og bóndi Keflavík í
Rípurhreppi í Skagafirði, hef-
ur sent frá sér aðra einsöngs-
plötu sína sem ber nafnið „Ef
væri ég söngvari.“ A plötunni
eru 18 lög, þar af þrjú erlend.
Fyrri plata Jóhanns, „Bónd-
inn“, kom út fyrir sex árum og
seldist þá geysilega vel. Jó-
hann Már gefur nýju plötuna
út sjálfur og sér um dreifingu
hennar.
Að sögn Jóhanns Más hófust
upptökur á plötunni í október.
Hún var tekin upp í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði og sá Þórir
Steingrímsson um upptökur.
Lára Rafnsdóttir annaðist undir-
leik.
„Það er langt síðan ég beit í
mig að láta plötuna heita „Ef
væri ég söngvari.“ Það hafa
nefnilega fjölmargir sagt við mig
að ef ég hefði farið í söngnám
hefði ég orðið góður söngvari,"
sagði Jóhann Már þegar hann var
inntur eftir skýringu á nafni
plötunnar. „Ég myndi segja að í
heildina sé þessi plata í rólegri
kantinum. Ég hugsaði mér að
menn gætu komið þreyttir heim
eftir eril dagsins, hallað sér aftur
í stólinn og látið sér líða vel við
að hlusta á plötuna. Þetta eru að
mínu mati allt ljúf og falleg lög,
bæði þekkt og óþekkt.“
Það kennir margra grasa á
plötu Jóhanns Más. Þar er að
finna tvö lög eftir Magnús Péturs-
son, sem hvað þekktastur varð
fyrir undirspil við morgunleikfimi
Valdimars Örnólfssonar í Ríkis-
útvarpinu til fjölda ára. María
Brynjólfsdóttir er höfundur
tveggja laga og lag Sigvalda
Kaldalóns, „Ég lít í anda liðna
tíð“, er á plötunni. „Minning“,
eftir Markús Kristjánsson, heitir
lag sem Jóhann Már segist hafa
lengi sungið og verið hans uppá-
haldslag til fjölda ára. Einnig er á
plötunni fallegt lag eftir Sigfús
Halldórsson „O hve heitt ég unni
þér“ og þekkt lag eftir Inga T.
Lárusson.
Ekki má gleyma hlut skagfirskra
höfunda á plötu Jóhanns Más en
Skagfirðingarnir Eyþór Stefáns-
son og Pétur Sigurðsson eiga þar
sitt lagið hvor. Akureyringurinn
Birgir Helgason á einnig lag á
Jóhann IVlar Jóhannsson, bondi «g tenorsongvari, sæll og glaóur meo nyju
plötuna sína, „Ef væri ég söngvari“. Mynd: KL
plötunni og heitir það „Það ert
þú“.
Eitt lag plötunnar verður að
telja all sérstakt. Það er komið að
handan, ef svo má segja. Höf-
undur þess er Ingibjörg Hjör-
leifsdóttir e.t textann gerði Jón
frá Ljárskogum. Að sögn Jó-
hanns Más er íngibjörg þeim eig-
inleikum gædd að „falla í trans“
og skrifa ósjálfráða skrift. í slíku
ástandi mun Ingibjörg hafa samið
þetta lag.
Eins og áður segir eru þrjú er-
lend lög á „Ef væri ég söngvari",
eftir Schraber, Henry E. Geehl
og Oskar Merikanto.
Jóhann Már segir að auðvitað
sé mikið fyrirtæki að ráðast í
útgáfu á hljómplötu en með hjálp
góðra manna eigi dæmið að
ganga upp. Hann segir að útgáfu-
fyrirtæki í Reykjavík hafi sýnt
því áhuga eftir að „Bóndinn“
kom út fyrir sex árum að gefa út
aðra plötu með honum. „Þegar
Ríkissjónvarpið:
til átti að taka lögðu þeir ekki í
fyrirtækið og því ákvað ég að sjá
sjálfur um útgáfu og dreifingu
plötunnar. Ég á góða að í Búnað-
arbankanum á Sauðárkróki og
segja má að ég og bankinn stönd-
um saman að útgáfu plötunnar.
Yfirleitt seljast plötur með ein-
söngsmúsík heldur illa hér á landi
en það verður víst að segjast
alveg eins og er að við „Konnar-
ar“ erum í sérflokki hvað þetta
varðar. Það er eitthvað við söng
okkar sem fólki líkar.“
Óneitanlega verður spennandi
að sjá hvernig bræðrunum og
tenórsöngvurunum Jóhanni Má
og Kristjáni reiðir af í jólaplötu-
flóðinu. Ef marka má viðbrögð
við fyrri plötum þeirra bræðra
verður framlag þeirra til tónlist-
argyðjunnar í mörgum jólapökk-
um í ár. óþh
SPREK
Með Birni Th. Bjömssyni
á íslendingaslóðum
í Kaupmannahöfn
Að undanförnu hafa staðið yfir
tökur á þáttaröðinni um íslend-
ingaslóðir, er SAGA FILM vinn-
ur fyrir Ríkissjónvarpið.
í þessum þáttum fer Björn
með áhorfendur á fornar slóðir
íslendinga í höfuðstað Danaveld-
is og segir skondnar sögur af
löndum okkar og heimamönnum
út frá sögulegum bakgrunni.
Stuðst er við bók Björns, Á
íslendingaslóðum í Kaupmanna-
höfn, er kom út árið 1961. Þar
segir, í máli og myndum, frá
helstu stöðum í borginni og ná-
grenni hennar er tengjast landi
okkar og þjóð gegnum aldirnar.
Þættirnir bregða því upp sjónar-
hornum af Kaupntannahöfn er
flestum eru lítt kunn.
Þættirnir verða sex talsins, um
tuttugu mínútur að lengd hver.
Kvikmyndataka er í höndum Sig-
mundar Arthúrssonar en stjórn
upptöku annast Valdemar Leifs-
son.
í ráði er að taka þættina til sýn-
inga á næsta ári, hinn fyrsta á
nýjársdag.
FJORU
ÞJÓÐLÍFSÞÆTTIR
JÓN KR. GUÐMUNDSSON
á Skáldsstödum
Sprek úr fjöru
Þjóðlífsþættir
eftir Jón Kr. Guðmundsson,
bónda á Skáldsstöðum í Reyk-
hólasveit.
Bók sem í senn er full af
þjóðlegum fróðleik og
fræðslu um líf genginna
kynslóða.
Verð aðeins kr. 1.870,-
BÓKAÚTGÁFAN
HILDUR
Viðskipta vinir
athugið!
Vöruafgreiðsla okkar á Akureyrarflugvelli
verður opin:
Laugardaginn 9. des. frá kl. 09-16.
Laugardaginn 16. des. frá kl. 09-20.30.
Laugardaginn 23. des. frá ki. 09-21.30.
FLUGLEIÐIR
Bókin um
Listakonuna í Fjörunni
Elísabetu Geirmundsdóttur
er komin út og fæst í Bókabúð Jónasar,
Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi og
Bókabúð Rannveigar Ólafsdóttur, Laugum.
Fallecf og vönduð listaverkabók.
Útgáfunefndin.
Menntasetur íslenskra
bænda í 100 ár
Auglýsing um innritun nemenda
í Bændadeild á vorönn 1990
Kennsla er nú hafin eftir nýrri námsskrá.
Helstu breytingar frá fyrri námsskrá eru:
1. Aukin kennsla í bústjórn og rekstrartækni. Þær
greinar verða nú sérstakt námssvið.
2. Umhverfisfræði og landnýting verða sérstakar
námsgreinar.
3. Valmöguleikum í náminu er fjölgað.
4. Nemendur hafa nú möguleika á framhaldsnámi í
bændadeild, sem nemureinni önn.
Búfræðinámið er tveggja ára nám (4 annir).
Tekið er inn í 1. bekk skólans um miðjan september, og í
byrjun janúar. Stúdentar geta hafið nám á mismunandi tímum
en algengast er að þeir byrji um mánaðamótin júní/júlí.
Helstu inntökuskilyrði:
- Umsækjandi hafi lokið grunnskólanámi hið minnsta.
- Umsækjandi hafi öðlast reynslu við landbúnaðarstörf og
að jafnaði stundað þau eigi skemur en eitt ár.
Stúdentar geta lokið námi á einu ári.
Beiðni um inngöngu í 1. bekk sem hefst 4. jan, nk.
ásamt prófskírteinum sendist skólanum fyrir 15. desem-
ber nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á Hvanneyri í síma 93-70000.
Skólastjóri