Dagur - 08.12.1989, Qupperneq 20
Bautinn getur séÖ um
allt til veislunnar
Húsnæði, veitingar og starfsfólk.
Tökum á móti bókunum fyrir JAÐAR og Laxdalshús.
Hafið samband í síma 21818.
Jólatréð frá Randers í Danmörku var sett upp á Ráðhústorginu á Akureyri í gær. Kveikt verður á trénu síðdegis á
morgun. Mynd: KL
Loðnuskipin áfram með heimild til veiða:
Stendur mestur stuggur af hafísnum
- segir Garðar Guðmundsson,
útgerðarmaður Guðmundar Ólafs í Ólafsfirði
Síldarverksmiðjur ríkisins Siglufirði:
Engar uppsagnir
fyrir áramót
- þriðjungi minni loðnu landað en í fyrra
„Þessi ákvörftun kom manni
ekki á óvart. Maöur reiknaði
ekki með að loðnuveiðarnar
yrðu stöðvaðar núna enda ekki
försendur fyrir því. Ef almætt-
ið stöðvar þessar veiðar ekki
með ís þá held ég að menn gef-
ist upp fyrr en seinna,“ sagði
Garðar Guðmundsson, út-
gerðarmaður Guðmundar Ol-
afs í Ólafsfirði um þá ákvörðun
sjávarútvegsráðherra í gær að
láta heimildir til loðnuveiða
standa óbreyttar.
„Mönnum stendur mestur
stuggur af tsnum núna. Á meðan
þessi suðvestanátt stendur þá
þrengir að skipunum en núna er
spáð suðaustanátt og það er eina
vonin til að eitthvað fari að veið-
ast,“ segir Garðar.
Garðar segir ekki óeðlilegt þó
loðnuskipin sem lengra þurfa á
miðin fari nú til hafna og koini
ekki aftur á miðin fyrr en veruleg
loðna sé fundin. „Við erum nteð
okkar skip tiltölulega stutt frá
miðunum og það er mikið atriði
fyrir okkur hér fyrir norðan að
eitthvað finnist fyrir jól þar sem
loðnan byrjar að ganga austur og
suður fyrir land fljótt eftir ára-
mót.“
Pórður Andersen, verksmiðju-
stjóri Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði, tók í sama streng og
sagði miklu skipta fyrir norð-
lensku verksmiðjurnar að loðna
veiðist fyrir áramót. Þórður segir
að í dag verði 800 tonnum af
mjöli skipað út á Sigiufirði og aft-
ur verði skipað út á mánudag.
Jólaverslun er um það bil að
fara af stað og eins og venju-
lega er sala mikil á bókum og
hljómplötum. Eins og undan-
farin ár ætlar Dagur að fylgj-
ast með söluhæstu bókunum
og að þessu sinni verða sömu-
leiðis birt nöfn þeirra hljóm-
listarmanna sem eiga sölu-
hæstu plöturnar. I lið með sér
hefur Dagur fengið nokkrar
verslanir á Noröurlandi sem
ætla að fylgjast með sölunni
hjá sér til jóla.
Þær bókaverslanir sem taka
þátt í könnuninni með Degi eru
á Akureyri; Bókaverslunin
Edda, Bókabúð Jónasar og
Bókval, á Húsavík Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar og á
Sauðárkróki Bókabúð
Brynjars. Samkvæmt lauslegri
könnun sem ofantaldar verslan-
ir framkvæmdu í gær hefur orð-
ið til listi yfir þær bækur sem
helst hafa verið seldar fram til
þessa. Þess ber að geta að listi
þessi er ekki vísindalega
unninn, en um næstu helgi verð-
ur hann marktækari.
1. Lífsgleði á tréfæti með
byssu og stöng e. Stefán
Jónsson.
2. Dauðalestin e. Alistair
MacLean.
Þar með verða mjölbirgðirnar
nær uppurnar hjá verksmiðjunni,
fáist loðna ekki fyrir þann tíma.
Þórður segist búast við að þrátt
fyrir þennan brest loðnuveiðanna
í haust takist Síldarverksmiðjum
ríkisins að standa við geröa
sanminga fyrir áramót. JÓH
3. Sagan sem ekki mátti
segja. Endurminningar Björns
Sv. Björnssonar.
4-5. Aldnir hafa orðið. Skráð
af Erlingi Davíðssyni.
4-5. Eg og lífið. Saga Guð-
rúnar Ásmundsdóttur.
6. Fransí biskví e. Elínu
Pálmadóttur.
7-8. Það glampar á götu e.
Björn Jónsson.
7-8. Ég er ljón - Ég heiti
ísbjörge. Vigdísi Grímsdóttur.
9. Vadd’út í. Æviminningar
Sigurjóns Rist.
Stefán Jónsson.
Miklu minna hefur borist af
loðnu til SR á Siglufirði á þess-
ari vertíö en á sama tíma í
fyrra. Verksmiðjurnar hafa
tekið á móti 17.500 tonnum frá
21. ágúst, en á sama tíma í
fyrra hafði verið landað tæpum
50 þúsund tonnum hjá bræðsl-
unni.
Heldur illa horfir í atvinnumál-
um á Siglufirði, tugir verkafólks
er atvinnulaust vegna lokunar
rækjuverksmiðju Sigló og einnig
eru margir uggandi um framhald
loðnuvertíðarinnar. Þórhallur
Jónasson, rekstrarstjóri SR, seg-
ist tæplega búast viö meiri loönu
til bræðslu fyrir áramót. Fundur
hafi verið haldinn í verksmiðju-
stjórninni á miðvikudag, og þá
var ákveðið að bíða átekta og sjá
hver framvinda veiðanna verður.
Ekki verður gripið til neinna
uppsagna meðal starfsmanna enn
sem komið er, og verður a.m.k.
engum sagt upp fyrir áramót.
„Við erurn aðeins komnir með
einn þriðja af þeirri loðnu sem
við höfðum fengið á sama tíma í
fyrra, og þótti sú vertíð þó mjög
döpur. Menn geta því ímyndað
sér hvaða lýsingarorð sé hægt að
hafa utn þessa vertíð,“ segir Þór-
hallur.
Menn velta því fyrir sér hvort
loðnan geti leynst undir hafís.
Halda sumir því frarn að hún
muni koma undan ísnum og
ganga suður fyrir land seint í
10-11. Jakinn. Skráð af
Ómari Valdimarssyni.
10-11. Lífsreynsla III. bindi.
Bragi Þórðarson tók saman.
Þær unglingabækur sem helst
voru nefndar eru bækurnar eftir
hinn vinsæla liöfund Enid
Blyton, Ráðgátan í Klukkna-
hvoli og Fimm hittast á ný,
Krakkar í klípu e. Z. K. Snyder
og Álagadalurinn eftir verð-
launahöfundinn Heiði Baldurs-
dóttur.
Tvær plötur skera sig nokkuð
úr í vinsældum á Norðurlandi ef
Geirmundur Valtýsson.
þessum mánuði. Allt eru þetta þó
vangaveltur sem styðjast ekki við
neina vissu.
Starfsmenn SR hafa aðeins
dagvinnu, og hafa þeir sinnt við-
haldi véla og mannvirkja. Þór-
hallur segir að viðhaldverkefni
hljóti að þrjóta, ekki sé endalaust
hægt að standa í dýru viðhaldi
þegar cngir pcningar komi í
kassann. EHB
Árskógsströnd:
Ekið á hest
í gærmorgun
Um kl. 10 í gærmorgun var
ekið á hest við bæinn Kálf-
skinn á Árskógsströnd. Nokkr-
ir hestar voru á veginum en
einn þerra lenti fyrir bílnum og
varð að lóga honum á staðnum
eftir óhappið.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Dalvík varð óhappið
í ljósaskiptunum og sá ökumaður
bifreiðarinnar ekki hestahópinn á
veginum fyrr en of seint. Öku-
maður var einn í bílnum og slapp
hann ómeiddur en fólksbifreiðin
er mikið skemmd. Ekki var um
að ræða hálku á veginum þegar
óhappið varð heldur er slæmum
Ijósaskilyrðum kennt um. JÓH
marka má söluyfirlit sem Dagur
aflaði sér í gær í sex hljómplötu-
verslunum á Norðurlandi.
Sveiflukóngurinn Geirmundur
rétt nær að merja rokkkónginn
Bubba Morthens. Aðrar plötur
standa þeim félögunt langt að
baki. Þær hljómplötuverslanir
sem aðstoðu Dag við þetta yfir-
lit eru: Hljómver Akureyri,
Hljómdeild KEA Akureyri,
Tónabúðin Akureyri, Radió-
vinnustofan Kaupangi Akur-
eyri, Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar Húsavík og Kaup-
félag Skagfirðinga Sauðárkróki.
1. Geirmundur Valtýsson/Í
syngjandi sveiflu.
2. Bubbi Morthens/Nóttin
langa.
3. Sálin hans Jóns míns/Hvar
er draumurinn?
4. HLH-flokkurinn/Heima
er best.
5. Síðan skein sóI/Ég stend á
skýi.
6. Ríó/Ekki vill það batna.
7. Bjartmar Guðlaugsson/
Það er puð að vera strákur.
8. Eiríkur Hauksson/Skot í
myrkri.
9. Örvar Kristjánsson/Frjáls-
ir fuglar.
10. Ný dönsk/Ekki er á allt
kosið. VG/óþh
Söluhæstu bækur og plötur:
Iifsgleðin og sveiflan í fyrstu sætunum
- Stefán Jónsson og Geirmundur fara vel af stað