Dagur - 22.12.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 22.12.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 22. desember 1989 ÖfJKSSli ■ ' iiiiiitt UPPLYSINGAR: SIMSVARI Sauðárkrókur: Bæjarmála- punktar ■ Á fundi bæjarráðs nýlega, var lagt fram bréf frá Land- búnaðarráðuneytinu, þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að skipa nefnd til að ( leggja mat á tillögur „Afurða- stöðvanefndar." Oskað er eft- ir því að Borgarnes, Patreks- fjörður, Hvammstangi, Sauð- árkrókur, Húsavík, Þórshöfn, Neskaupstaður og Djúpivogur hafi samráð urn að tilnefna einn fulltrúa í nefndina. Var bæjarstjóra falið að hafa sam- ráð við ofangreind sveitarfélög um tilnefningu í nefndina. ■ Bæjarráð beinir því til stjórna heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss Skagfiröinga, að fela Fjármálaráðuneytinu kjarasamningagerð fyrir allt starfsfólk þessara stofnana. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að bygging kaupleiguíbúða við Jöklatún verði boðin út í cinu lagi. ' ■ Á fundi bæjarráðs nýlega kom fram, að eitt tilboð hafi * borist í húseignina Kirkjutorg 3, „Rússland“, frá Björgvini Guðmundssyni og Pétri Helga- syni og er kaupverð tilgreint kr. 400.000.-. ■ Veitustjórn hefur sam- þykkt að gjaldskrá Hitaveitu hækki um 10% frá og með I. janúar 1990. ■ Veitustjórn hefur sam- þykkt að gjald fyrir hvern rúmmetra vatns til upphitunar opinbcrra íþróttamannvirkja verði 10% af gjaldskrá frá og með 1. janúar 1990. Er þetta í samræmi við eldra sölufyrir- komulag. ■ Veitustjórn hefur sam- þykkt að vatnsskattur áriö 1990 verði 0,2%. ■ Bygginganefnd samþykkir að lóð Bóknámshúss F.á.S. é verði stækkuð til suöurs með því að brcyta legu Spítalaveg- ar, þannig að hægt sé að koma fyrir 800-1000 bílastæðum á lóðinni. ■ Bygginganefnd hefur sam- þykkt deiliskipulag suðurhluta Túnahverfis, með þeim breyt- ingum sem gerðar hafa verið vegna Jöklatúns 2-24.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.