Dagur - 22.12.1989, Blaðsíða 5
Föstudagur 22. desember 1989 - DAGUR - 5
Kvenfélag Húsavíkur:
Barnaballið verður 30. des.
Kvenfélag Húsavíkur hefur haft
þann sið áratugum saman að bjóða
börnum í bænum á barnaball um
jólin. Undanfarin ár hafa barna-
böllin verið haldin fyrstu helgina
eftir áramótin, en að þessu sinni
er barnaballsdagur Kvenfélagsins
30. des.
Börnum sem eru sex ára og
yngri er boðið á ball frá kl. 15:00-
18:00 en börnum á aldrinum 7-12
er boðið kl. 20:00 til 23:30. Kven-
félagið vill hvetja foreldra til að
Bók um íslensku
stórmeistarana
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Meistarar skák-
borðsins - Frásagnir af sex
íslenskum stórmeisturum eftir
Illuga Jökulsson.
Flestum landsmönnum er
kunnugt um árangur stórmeistar-
anna okkar í skáklistinni. En
hvernig bar þetta nú allt saman
að? Sú saga er rakin í þessari
bók.
Skákin hefur af mörgum verið
talin eins og lífið sjálft. Það er
því forvitnilegt að bera saman
lífsferil og skákferil stórmeistar-
anna okkar eins og Illugi gerir að
nokkru leyti í Meisturum skák-
borðsins.
Illugi Jökulsson er þekktur
blaðamaður og skákáhugamaður
enda tekst honum að gera efni
sínu þau skil að almenningur
jafnt sem harðsvíruðustu skák-
áhugamenn geta haft gaman af.
Bókin er 372 bls. að stærð og
með sérstökum myndakafla frá
glæstum ferli stórmeistaranna.
Það er allt
hægt vinur!
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Pað er aílt hægt
vinur! - Lögð á ráð um raunhæfa
megrun. Höfundur er Asgeir
Hannes Eiríksson. Á bakhlið
bókarinnar er bréf frá Ásgeiri
Hannesi sem hljóðar svona:
„Kæri vinur!
Þú ert væntanlega með þessa
bók á milli handanna vegna þess
að þú vilt halda þyngdinni í skefj-
un eða þú þekkir einhvern sem á
við þann sama vanda að stríða og
vilt hjálpa honum. Þá ertu í rétt-
um félagsskap.
í bókinni eru lögð á ráð um
hvernig koma má reglu á mat-
aræðið. Takast á við sjúkdóminn
hömlulaust ofát. Öðlast þannig
eðlilega líkamsþyngd og halda
henni ævilangt. Lifa samt lieil-
brigðu lífi og leyfa sér sama mun-
að í mat og drykk og aðrir.
Sjálfur tók ég mig til árið 1983
og sagði skilið við allar mínar
gömlu hugmyndir um mat og
mataræði. Tók upp nýjan sið og
ég hef haldið honum síðan þrátt
fyrir hrösun öðru hverju. Þessi
bók er byggð á þeirri reynslu og
bætt við hana efni úr ýmsum
áttum.
Ef þú vilt slást í hópinn þá ertu
boðinn hjartanlega velkominn.
Velkominn heim. Saman getum
við eflaust orðið hvor öðrum að
liöi og fleira fólki sem þjáist af
sama vanda. Þá er takmarkinu
náð. Það er nefnilega allt hægt
vinur!“
Bókin Það er allt hægt vinur er
196 bls. að stærð.
mæta með börnum sínum og er I ingar á barnaböllunum en kaffi-
aðgangseyrir fyrir fullorðna kr. sala á vegum Kvenfélagsins fyrir
200. Börnunum eru boðnar veit- | aðra gesti er einnig til staðar. IM
Lvnialangir
og annað fólk
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
barna- og fjölskyldulcikritið
Eyrnalangir og annað fólk 26.
desemberkl. 15. Leikritið er eftir
þær Iðunni og Kristínu Steins-
dætur en höfundur tónlistar er
Ragnhildur Gísladóttir.
Verkið verður sýnt daglega
milli jóla og nýárs, þ.e. 26.-30.
desember og hefjast allar sýning-
arnar kl. 15.
Forsala aðgöngumiða er hafin
og er miðasala Leikfélags Akur-
eyrar opin alla daga nema mánu-
daga kl. 14-18 og þá er símsvari
opin allan sólarhringinn.
til kl. 21
í kvöld
HAGKAUP
Akureyri
Þegar gera á
góðan mat
Grunnurinn að góðri máltíð er gott hráefni.
Hjá KEA er kjötvara unnin af þeirri vand-
virkni sem gott, íslenskt hráefni á skilið.
Með kostgæfni okkar og alúð ykkar verður
úrvalshráefni að herramannsmat.