Dagur - 22.12.1989, Blaðsíða 11
I
-i
íþróttir
Akureyrarmótið í handknattleik:
KA marði jafiitefli
- Þór náði 7 marka forskoti í fyrri hálfleik
Það var allt á suðupunkti á
lokamínútunum í leik Þórs og
KA á Akureyrarmótinu í
handknattleik í meistaraflokki
karla. Þórsarar höfðu óvænt
náð 7 marka forskoti í fyrri
hálfleik en í síðari hálfleik söx-
uðu KA-menn smám saman á
forskotið. Undir lok leiksins
fóru markmenn liðanna á
kostum, sérstaklega þó Her-
mann Karlsson í marki Þórs,
en hann réði ekki við skot
Erlends Hermannssonar á síð-
ustu sekúndu leiksins. Úrslitin
urðu því jafntefli, 20:20, og
geta KA-drengirnir vel við þau
úrslit unað.
Þórsararnir komu miklu
ákveðnari til leiks í fyrri hálfleik
en KA-strákarnir. Þórsliðið spil-
aði léttan og skemmtilegan sókn-
arleik og lék vörnina framarlega
þannig að KA náði ekki að láta
boltann ganga í sókninni. Það
var ekki að sökum að spyrja að
áður en varði var staðan orðin
8:1 fyrir Þór!
Nokkur örvænting greip um sig
í liði KA og fóru menn að skjóta
úr vonlausum færum. En þá kom
Axel Stefánsson í markið og
vörnin fór að þéttast hjá þeim
gulklæddu. Jafnvægi komst á í
leiknum en Þórsurum tókst þó að
halda þessu 7 marka forskoti
áfram. Þegar staðan var 13:6 fyrir
Þór tóku KA-menn góðan kipp
og minnkuðu muninn niður í 4
mörk fyrir leikhlé, 14:10.
Hermann Karlsson markvörður
Þórs var besti maður vallarins og
varði oft frábærlega frá KA-
mönnum.
Síðari hálfleikur vár ekki eins
skemmtilegur og sá fyrri, nema
undir lok leiksins. KA saxaði
smátt og smátt á forskot Þórsara
og var engu líkara en þeir rauð-
klæddu væru búnir að missa
trúna á sjálfa sig.
KA jafnaði leikinn, 17:17, þeg-
ar um níu mínútur voru eftir af
leiknum. Þá fór nú loksins að
færast líf í tuskurnar. Árna
Stefánssyni þjálfara Þórs var vís-
að upp í stúku fyrir að mótmæla
dómum og nokkru síðar fékk
Ingólfur Samúelsson sitt þriðja
gula spjald og þurfti að víkja af
leikvelli.
Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri:
Undirbúningur gengur vel
Undibúningur undir Vetrar-
íþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri í
mars næstkomandi gengur vel.
í fréttabréfi ÍSÍ kemur frain að
keppt verður á skíðum, skaut-
um, vélsleðum, hestum og svo í
almenningsíþróttum þannig að
flestir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Á vetrarhátíðinni verður hald-
ið alþjóðlegt mót í alpagreinum,
fyrir konur og karla. Mótið er
ætlað öllum þeim sem hafa FÍS
punkta. Keppt verður á Akureyri
og á Dalvík.
í norrænum greinum verður
keppt í unglinga- og fullorðins-
flokkum, í skíðagöngu, skíða-
stökki og þrautabrautum. Alþjóð-
íþróttir milli
jóla og nýárs:
FrjáLsar íþróftir:
Finuiituda); 28. dcs.:
Jólamót UFA í fþróttahöllinni kl. 11.00
Knattspyrna:
MiAvikudaj; 27. dcscmbcr:
Bautamótið í innanhússknattspyrnu frá
kl. 9.30
Skautaíþróttir:
Miðvikudagur 27. des.:
Íshokkílcikur yngri flokkur kl. 16.30
Fimmtudagur 28. des.:
Listhlaup á skautum kl. 16.30
Fostudngur 28. dcs.:
Íshokkíleikur, cldri flokkur.
Gulf:
F'immtudag 28. des.:
Minigolfmót í Víkurröst á Dalvík kl.
17.00
legt mót verður einnig í einstakl-
ingsgöngu fullorðinna og lands-
keppni í boðgöngu. Dagur mun
kynna fleiri keppnisgreinar eftir
áramótin.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Annað stórmeistarajafntefli
Skákmennirnir Rúnar Sigurpálsson og Jón Árni Jónsson skildu aft-
ur jafnir í síðustu viku í getraunaleiknum. Þeir voru báðir með 6
rétta og var þetta í annað skiptið sem þeir skildu jafnir. Þeir leiða
því aftur saman hesta sína í þessari viku og verður að gaman að
sjá hvor af þessum skákmönnum hefur betur í viðureigninni.
Enginn var með 12 rétta í síðustu viku hjá íslenskum getraunum
og verður því potturinn þrefaldur þessa vikuna. Leikirnir á get-
raunaseðlinum fara fram 26. desember, annan í jólum, en sölukerf-
ið lokar kl. 20.30 á morgun laugardag, Þorláksmessu. Vert er að
benda á leik Luton og Nottingham Forest því búast má viö að Þor-
valdur Örlygsson leiki með Forest-liðinu að þessu sinni. Ef ekki í
þessum leik þá einhverjum leik fljótlega því Forest leikur gegn Man.
Utd. 28. desember og gegn Liverpool 1. janúar.
Rúnar:
Aston Villa-Man.Utd. 2
C.Palace-Chelsea 1
Derby-Everton 1
Luton-Nott.For. x
Man.City-Norwich 1
QPR-Coventry 1
Southampton-Arsenal 2
Tottenham-Millwall 1
Wimbledon-Charlton 1
Ipswich-West Ham 1
Sheff.Utd.-Leeds 1
Swindon-Blackburn 1
Jón Árni:
Aston Villa-Man.Utd. 2
C.Palace-Chelsea x
Derby-Everton 1
Luton-Nott.For. 2
Man.City-Norwich 1
QPR-Coventry 1
Southampton-Arsenal 2
Tottenham-Millwall 1
Wimbledon-Charlton x
Ipswich-West Ham 2
Sheff.Utd.-Leeds 2
Swindon-Blackburn x
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
{fr
Þá var eins og Þórsarar færu að
berjast aftur. KA komst að vísu
yfir 18:17 en Þór jafnaði og
komst yfir 19:18. KA jafnaði
19:19 og fékk síðan vítakast en
Hermann gerði sér lítið fyrir og
varði frá Erlingi. Þórsarar skor-
uðu 20:19 og þegar 45 sekúndur
voru eftir varði Hermann aftur
frábærlega frá Guðntundi Guð-
mundssyni sem var í dauðafæri á
línunni. Þórsarar komust í sókn
en Axel Stefánsson varði skot frá
Kristni Hreinssyni í dauðafæri.
KA fékk hraðaupphlaup en
dæmt var aukakast á Þór þegar 6
sekúndur voru eftir. Boltinn
barst til Erlendar í horninu sem
skoraði jöfnunarmark KA á síð-
ustu sekúndunni, eins og þegar
hefur verið lýst.
Langbesti leikmaður Þórs í
leiknum var Hermann Karlsson
markvörður. Hann varði oft í
dauðafærum frá KA, m.a. 3 víta-
köst. Sævar Árnason var einnig
frískur. Annars lék allt Þórsliðið
vel í fyrri hálfleik en dalaði nokk-
uð þegar leið á leikinn. Þeir náðu
þó að hrista af sér slenið undir
lok leiksins og voru óheppnir að
sigra ekki í leiknum.
KA-liðið var dauft í þessum
leik og var engu líkara en leik-
menn liðsins héldu a.m.k. fram-
an af leiknum að þeir þyrftu ekk-
ert að hafa fyrir því að sigra. Það
var helst Bragi Sigurðsson sem
yljaði mönnum með fallegum
mörkum. Axel varði einnig
nokkuð vel í markinu, sérstak-
lcga undir lok leiksins. Hvorki
Sigurpáll Árni, Karl né Friðjón
léku með KA-liðinu að þessu
sinni og munar um minna. Karl
var á unglingalandsliðsæfingu,
Árni Palli var í Reykjavík og
Friðjón meiddur.
Mörk Þórs: Sævar Árnason 7/1, Jó-
hann Jóhannsson 4, Ólafur Hilmarsson 4/
1, Páll Gíslason 4/1.
Mörk KA: Bragi Sigurðsson 6/1, Erl-
ingur Kristjánsson 4/2, Erlendur Her-
mannsson 3, Jóhannes Bjarnason 3 og
Pétur Bjarnason 2, Jón Egill Gíslason 1.
Föstudagur 22. desember 1989 - DAGUR - 11
..^...^^
Jólatilboð!
Töfvuleikspil fyrir sjónvarp
Verð 15.900 kr.
Fjöldi ieikja til.
lólatilboð!
Casio hljómborð frá kr. 4.250,-
Jólatilbqð!
Skáktölvur frá kr. 3.663,-
Jólatilboð!
Videotökuvélar
Verð frá kr. 49.900,-
Titmuhúsið
Hafnarstræti 106 • Sími 27422
Euro og Visa raðgreiöslur.
Nýjar vörur
- vandaðar vörur
JJj
Kaupmannafélag
Akureyrar