Dagur - 22.12.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 22. desember 1989
Viðskiptavinir
takið eftir!
Lokað verður frá 27. desember til
31. desember vegna vörutalningar.
kapli
Mlum 13 I Akure)
hf
FuruvMlum 13 I Akureyrl
Simi 96-23830
Skífan:
Fjölbreytt hljómplötu-
útgáfa f'yrir jólin
Þorláksmessu-
pizzan er
sjávarréttapizza
frá e.m.
★
Súperverö
lk
Toppgæöi
Eyfírsk matvæli hf.
sími 27122.
Skífan sendir frá sér 9 hljóm-
plötur fyrir jólin og má segja
að útgáfan sé afar fjölbreyti-
leg.
HLH flokkurinn
HLH flokkurinn sendir nú frá sér
sína fyrstu hljómplötu um nokk-
urt skeið. Hún hefur hlotið nafn-
ið Heima er best. Eitt lag plöt-
unnar, í útvarpinu heyrði ég lag,
hefur þegar slegið í gegn í
útvarpi. Það ber vönduðum
vinnubrögöum þremenninganna
Halla, Ladda og Björgvins Helga
gott vitni. Og eins og fyrri daginn
eru glens og gaman aðalsmerki
HLH flokksins.
Síðan skein sól
Hægt og sígandi hefur hljóm-
sveitin Síðan skein sól hækkað í
áliti hjá unnendum íslenskrar
dægurtónlistar. Fjórmenningarn-
ir Helgi Björnsson, Eyjólfur
Jóhannsson, Ingólfur Sigurðsson
og Jakob Magnússon einsettu sér
að ná vel saman og læra hver á
annan áður en þeir snéru sér af
krafti að plötuupptökum. Platan
Síðan skein sól sem Skífan gaf út
með þeim í fyrra sannaði að mik-
10I
m »
HUMARSUPA m/sýrðum rjóma.
8 humarhalar • V/í msk olía • 1 dl koníak (má sleppa) • 50 gr gulrætur • 50 gr laukur
1 ltr gott fisksoð (t.d. af lúðu) • 2 dl hvítvín eða mysa • 1 lárviðarlauf • steinselja
1 msk tómatpúrre • Cheyennepipar • 1 dós sýrður rjómi • hvítur sósujafnari.
Kljúfið humarhalana og takið kjötið úr þeim og geymið.
Myljið skelina í mortéli og snöggsteikið í olíunni ásamt söxuðum lauknum,
gulrótunum, lárviðarlaufinu, steinseljunni og Cheyennepiparnum.
Bætið tómatpúrre út í og látið krauma. Hellið koníakinu og hvítvíninu saman við
og sjóðið örlítið niður. Hellið fisksoðinu saman við ásamt hálfri dós af sýrðum rjóma,
sjóðið niður smástund, þykkið með sósujafnara og skerið humarinn í litla bita
og bætið út í. Borið fram með matskeið af sýrðum rjóma og góðu brauði.
GRAFINN EÐA REYKTUR LAX MEÐ SÓSU ÚR SÝRÐUM RJÓMA
1 dós sýrður rjómi • 1 msk sætt sinnep • 1 msk púðursykur
f 2 msk hvítvín eða mysa • dill • rósapipar
Hrærið öllu saman. Borið fram með ristuðu brauði,
Sýrði rjóminn frá
Mjólkursamlagi KEA á alltaf við
hvort sem á borðum er hátíðar-
eða hversdagsmatur.
Verði ykkur að góðu.
ils var að vænta frá hljómsveit-
inni. Og með þeirri nýju, Ég
stend á skýi, sýna piltarnir svo að
um munar hvað í þeim býr.
Bjartmar Guðlaugsson
Bjartmar Guðlaugsson á það til
að vera beinskeyttur í ádeilutext-
um sínum. En ádeilan er oftast
góðlátleg svo að sjaldnast svíður
undan. Að því leytinu er nýjasta
plata Bjartmars, Pað er puð að
vera strákur, lík fyrri plötum. En
að sjálfsögðu þróast tónlist
stráksins og breytist með árun-
um. - Á nýju plötunni hefur
Bjartniar sér til fulltingis tvo vel
kunna hljómlistarmenn, Ásgeir
Óskarsson og Björgvin Gíslason.
Hilmar Oddsson
Hilmar Oddsson er gamalreynd-
ur dægurtónlistarniaður. Hann
hefur þó látið lítið á sér kræla á
tónlistarsviðinu á undanförnum
árum en helgað sig að öðru list-
forini, kvikmyndinni. Með plöt-
unni, Og augun opnast býður
Hilmar okkur upp á sannkallað
gæðapopp. Gestir hans á plöt-
unni eru ekki af verri endanum.
Meðal þeirra má nefna Eddu
Heiðrúnu Backman, Bubba
Morthens og Megas.
Geirmundur Valtýsson
Þegar danspoppið er annars veg-
ar fara fáir í fötin hans Geir-
mundar Valtýssonar. Geiri hefur
ekki einungis sýnt frábæra
þrautseigju og góðan árangur
með þátttöku sinni í Evrópu-
söngvakeppninni heldur stýrir
hann jafnframt einni alvinsælustu
danshljómsveit landsins. Á plöt-
unni í syngjandi sveiflu fáum við
að kynnast Geirmundi og hljóm-
sveit hans þar sem dægursveiflan
fær að njóta sín eins og hún gerist
best.
Tómas R. Einarsson
og félagar
Þegar Tómas R. Einarsson lagði
nikkuna á hilluna og snéri sér að
kontrabassanum eignaðist hin
göfuga tónlist djassinn öflugan
baráttumann á landi hér. Nýr
tónn er án efa kórónan á ferli
hans. Hér leika Tómas og félagar
nokkra ópusa eftir hann. Og fé-
lagarnir eru engir aukvisar í
djassinum. Eyþór Gunnarsson
fer fimum höndum um píanóið,
Pétur Östlund leikur á trommur,
Sigurður Flosason blæs í saxófón
og Jens Winther í trompet. -
Platan sem djassunnendur taka
fagnandi.
Björgvin Halldórsson
og gestir
Björgvini Halldórssyni er margt
til lista lagt. Til dæmis það að
vinna jólaplötur sem þorri þjóð-
arinnar tekur tveimur höndum.
Skemmst er að minnast Skífu-
plötunnar Jólagesta sem seldist í
stórum upplögum - og selst enn.
- Á Allir fá þá eitthvað fallegt er
Björgvin enn við sama heygarðs-
hornið. Hann syngur sjálfur á
plötunni eins og honum einum er
lagið og fær að auki til liðs við sig
valinkunna gesti. Þeirra á meðal
leru Guðrún Gunnarsdóttir, Eyj-
ólfur Kristjánsson. Ruth Regin-
alds, Ari Jónsson og Svala Björg-
vinsdóttir.
Brúðubíllinn
Á sumrin hcimsækir Brúðubíll-
inn gæsluvelli höfuðborgarinnar
1 og á veturna eru brúðurnar fasta-
gestir í Stundinni okkar í Sjón-
varpinu. Og aðdáendunum fækk-
ar ekki rneðan enn fæðast börn á
landinu. Brúðubíllinn sendi fyrir
nokkrum árum frá sér plötu sem
sló í gegn. Nú er liann sem
sagt . . . Aftur á ferð.
Sveitasæla
Bandarísk sveitatónlist - country
& western - nýtur mikilla vin-
sælda hér á landi um þessar
mundir. Á plötunni Sveitasæla er
að finna margan góðan smellinn.
Sumir eru nokkuð komnir til ára
sinna og orðnir sígildir á sínu
sviði. Aðrir komu fram á sjónar-
sviðið nú nýverið og hafa hlotið
góðar viðtökur. Sveitasæla cr
safnplata sem hittir í mark hjá
aðdáendum þessarar tegundar
dægurtónlistarinnar og á áreiðan-
lega eftir að afla henni nýrra
aðdáenda.
íspan auglýsir:
Spegla-blómasúlur
Spegla-flísar
Speglar í römmum
Speglar með
myndum
Smellurammar
Speglar skornir
eftir yðar óskum
Plexygler
ISPAN HF.
Norðurgötu 55
Símar: 96-22688 og 96-22333.