Dagur - 22.12.1989, Page 3
Föstudagur 22. desember 1989 - DAGUR - 3
í
rm
ÓlafsQörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Félagsmáiaráðuneytinu en
með bréfinu fylgdi skýrsla um
stöðu brunamála á íslandi. í
framhaldi af þvi samþykkti
bæjarráð að gera herferð í
eftiriiti með slökkvitækjum
hjá bæjarbúum fyrir jólin og
var bæjarstjóra falið að hafa
samráð við slökkiliðsstjóra um
málið.
■ Bæjarráð hefur í framhaldi
af bréfi frá Fjármáiaráðuneyt-
inu, samþykkt að fela inn-
heimtumanni ríkissjóðs í
Ólafsfirði að innheimta útsvar
og aðstöðugjald.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að útsvarsprósenta næsta árs,
verði 7,5%
■ Stjórn Starfsmannafélags
Ólafsfjarðar hefur samþykkt
að segja upp gildandi kjara-
samningi milli Starfsmannafé-
lags Ólafsfjarðar og launa-
nefndar sveitarfélaga fyrir
hönd Ólafsfjarðarbæjar, frá
og með 31. desember 1989.
■ Félagsmálaráð hefur lagt tii
að gjaldskrá Leikhóla verði
hækkuð um 7,5% þann 1.
janúar n.k. og verður þá 4
tíma gjald kr. 5.700.-.
■ Forstöðukonu Leikhóla
hefur verið falið að kanna þörf
á auknu dagvistarrými næstu
árin og þá einnig þörf á heils-
dagsvistun, svo hægt verði að
móta stefnu urn áframhald-
andi uppbyggingu Leikhóla.
■ Menningarmálanefnd ræddi
á fundi sínum fyrir skömmu,
um staðsetningu Árinanns ÓF
á lóð bókasaínsins. Nefndin
mun ekki setja sig á móti því
að ióðin sé notuö undir
bátinn, sérstaklega meö tilliti
til þess að í framtíðinni verði
húsnæði safnins notað sem
safnahús.
■ Landbúnaðarnefnd fjallaði
á fundi sínum nýlega, um lil-
iögur að nýrri reglugerð um
búfjárhald í lögsagnarumdænti
Ólafsfjarðar. Þar kom m.a.
fram að í undirbúningi er að
afgirða bæjarlandið með raf-
girðingu. Þá var samþykkt að
lögbirtar veröi áður gefnar
reglur um lausagöngu hrossa
og nautgripa og þeim strang-
lega framfylgt.
■ Stjórn veitustofnana hefur
samþykkt tillögu bæjarstjóra
um hækkun á gjaldskrá Hita-
veitu Ólafsfjarðar. Hækkunin
er um 4-5% umfram hækkun
byggingarvísitölu júlí 1989-
jan. 1990. Fast gjald verður
kr. 370.-, vatnsgjald kr. 600,-
fyrir hvern mínútulítra og lok-
unargjald kr. 1.400.-. Þá verði
reynt að færa heimtaugagjald
til samræmis við raunkostnað
við þá framkvæmd.
■ Kiwanisklúbburinn Súlur
hefur tekiö að sér að sjá um
áramótabrennuna og verður
hún að þessu sinni vcslan við
ósinn.
■ Bæjarstjóri upplýsti á fundi
bæjarstjórnar nýlega, að fjár-
hagstaða bæjarsjóðs væri all-
góð og tekist hefði að mestu
að framfylgja fjárhagsáætlun.
fréffir
i
Tillaga Úlfhildar Rögnvaldsdóttur í Bæjarstjórn Akureyrar:
Leiðbeiningamámskeið fyrir
atvimiulausa unglinga
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á síðsta fundi tillögu
Ulfhildar Rögnvaldsdóttur
bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokksins sem miðar að því að
til aðgerða verði gripið til
aðstoðar og Ieiðbeiningar at-
vinnulausu ungu fólki í
bænum. Því var beint til
atvinnumálanefndar að nefnd-
in hafi forgöngu um að tilnefna
í starfsnefnd sem kanni í sam-
vinnu við VMA og verkalýðs-
félögin í bænum hvort unnt sé
að koma á námskeiði fyrir
atvinnulausa unglinga.
Úlfhildur segir að hugmyndin
með námskeiðahaldi sé að auð-
velda unglingunum atvinnuleit
og/eða beina þeim í frekara nám.
Um yrði að ræða samstarf Skóla-
nefndar Verkmenntaskólans, Fé-
lagsmálaráðs, Stjórnarnefndar
vinnumiðlunar og Atvinnumála-
nefndar Akureyrar.
Miklar umræður urðu um mál-
ið í bæjarstjórn. Fyrirmynd að
slíku námskeiðahaldi má finna í
Kópavogi fyrir nokkrum árum,
en þá stóð Kópavogsbær í sam-
vinnu við Menningar- og fræðslu-
samband alþýðu fyrir slíku nám-
skeiði fyrir unglinga sem haldið
var í Ölfusborgum og þótti takast
vel.
„Þegar við horfum upp á tugi
atvinnulausra unglinga vikum og
mánuðum saman hér á Akureyri
er nauðsynlegt að gera einhverjar
ráðstafanir. I lögum um vinnu-
miðlun er sérstaklega talað um
að aðstoða beri atvinnulausa
unglinga með leiðbeiningu inn á
námsbrautir og fleira. Ég tel
brýnt að námskeiðið verðið hald-
ið sem fyrst, og vegna góðra
undirtekta bæjarfulltrúa í at-
vinnumálanefnd á fundinum er
ég bjartsýn á að þetta mál nái
fram að ganga,“ segir Úlfhildur.
Atvinnuástandið á Akureyri
hefur ekki verið jafnslæmt og nú
í mörg ár. Úlfhildur upplýsti að á
útborgunardegi atvinnuleysis-
bóta 8. desember hefðu 19 Ein-
ingarfélagar á aldrinum 16 til 20
ára og aðrir 19 á aldrinum 21 til
25 ára fengið greiddar bætur.
Fyrir utan þetta eru allmargir
unglingar sem uppfylla ekki skil-
yrði til að fá atvinnuleysisbætur,
t.d. ungt fólk sem hverfur frá
skólanámi. Við ákvörðun at-
vinnuleysisbóta er kannað hversu
mikinn hluta undanfarinna 12
mánaða viðkomandi hefur stund-
að launaða atvinnu. Reynslan
sýnir að við annaskipti fram-
haldsskólanna í bænum sækir
alltaf hópur nemenda sem hættir
námi inn á vinnumarkaðinn.
EHB
íbúar við Lyngholt á Akureyri:
Mótmæla flutningi vörubflastöðvar
Styrktarsjóður Bifreiðastjóra-
félagsins Vals á Akureyri licfur
sótt um að fá að yfírtaka þrjú
þúsund fermetra af suðurhluta
lóðarinnar Oseyri 2, en bíl-
stjórafélagið hefur staðið í við-
ræðum við Kaupfélag Eyfirð-
inga um sölu á núverandi hús-
eign á Oseyri.
Stefnt er að flutningi á starf-
seminni suður fyrir núverandi
athafnasvæði, en þessu hafa tugir
íbúa við Lyngholt mótmælt.
Skrifuðu þeir undir undirskrifta-
lista í þessu skyni og var hann
afhentur byggingafulltrúa bæjar-
ins fyrir nokkru. Bygginganefnd
Akureyrar hafa borist mótmælin.
í samtali við einn íbúa við
Lyngholt kom fram að fólkið
virðist vera óánægt með hávaða
og óhreinindi scm stafa frá
rekstri vörubílastöðvar í hverf-
inu. Þeir telja að þessi starfsemi
eigi ekki heima svo nálægt íbúða-
hverfi.
Víkingur Guðmundsson, for-
maður Vals, vísar öllu slíku á bug
sem hugarórum. „Okkar starf-
semi fylgir engin mengun, það
getur liver sem er kannað, og
ekki heldur hávaði. Ég skil ekki
hvað vakir fyrir fólkinu með
þessum undirskriftum,“ segir
hann.
Björn Jósef Arnviðarson,
bæjarfulltrúi, sagði á síðasta
bæjarstjórnarfundi að það væri
furðulegt að íbúarnir í nágrenni
vöruln'lastöðvarinnar færu fyrst
að kvarta nú eftir að stöðin væri
búin að starfa í mörg ár á þessum
stað, en ekki stæði annað til en
að flytja stöðina örlítið uin set.
Taldi hann að íbúunum hefði
mátt vera ljóst þegar þeir byggðu
hús sín að þau v'æru staðsett á
jaðri iðnaðar- og athafnasvæðis.
EHB
Áfengisvarnanefnd Akureyrar:
Höldum jól
án áfengis
Áfengisvarnanefnd Akureyrar
sér ástæðu til að hvetja fólk til
að halda jól án áfengra
drykkja og hefur í því skyni
haldið uppi áróðri gegn áfeng-
isnotkun á þessari friðarins
hátíð. Ingimar Eydal, formað-
ur nefndarinnar, segir að sér-
stök ástæða sé til að óttast
áfengisneyslu fólks um jólin
vegna tilkomu áfengs öls.
„Okkar Iífsspeki er að hvetja
fólk til varast áfenga drykki og
halda jól án þeirra. Okkur finnst
ástæða til að vekja alveg sérstaka
athygli á þessu núna vegna þess
að áfengisneysla nefur almennt
aukist og við erum komin með
nýjan þátt í henni sem er bjórsal-
an í landinu. Að sumu leyti erum
við hræddari við bjórinn en t.d.
rauðvín og sherry. Bjórinn er
ótvírætt meira alhliða áfengi.
Fólk drekkur hann með mat, til
að fara á fyllerí og daginn eftir,“
segir Ingimar.
Ingimar segist hafa hugmynd
um að áfengisneysla hafi aukist
inn á heimilum á síðari árum.
Hann telur að bjórinn muni að
nokkru leyti koma í stað rauð-
víns eða annarra borðvína. „Ég
hugsa að neysla borðvínanna
muni eitthvað minnka. Hins veg-
ar tel ég að bjórinn sé miklu
lúmskari með framhaldsdrykkju.“
„Við vitum að allskyns óknytt-
ir, skemmdarverk og innbrot fær-
ast í vöxt og mér er óhætt að full-
yrða að í lang flestum tilfellum
tengist áfengisneysla þessum
vandamálum. Ég vil í þessu
sambandi geta þess að starfsmenn
meðferðarheimila fyrir alkohól-
ista staðhæfa að ástandið í áfeng-
ismálum hafi sjaldan verið verra.
Við í Áfengisvarnanefnd viljum
því skora á bæjarbúa að setja nú
markið einfaldlega á áfengislaus
jól. Það má segja að kjörorð
nefndarinnar sé „Áfengi og jóla-
hald eiga ekki samleið. Án áfeng-
is verða jólin hátíð gleði og
friðar“ og ennfremur „Bjór er
líka áfengi.“ óþh
Kelduhverfi:
Flutningabíll
áhliðína
Flutningabíll frá Húsavík valt á
hliðina í Auðbjargarstaða-
brekku í gærmorgun. Öku-
maður slapp ómeiddur og ekki
var talið aö miklar skemmdir
hefðu orðið á bílnum, en ekki
var búið að ná honum upp síð-
degis í gær.
Bíllinn var á leið til Kópaskers
og Raufarhafnar. Snjór var á
veginum í brekkunni og er bíllinn
kom fram af brekkubrúninni fór
hann strax að renna, og valt síð-
an á hliðina upp fyrir veginn í efri
beygjunni.
Þetta er í annað sinn í vetur
sem flutningabíll lendir á hliðina
í Auðbjargarstaðabrekku. Að
sögn lögreglu á Húsavík er þarna
um stórvarasaman veg að ræða
og ráðleggur hún ilutningabíl-
stjórum að setja keðjur á bílana í
svona færi áður en lagt er í
brekkuna. IM
Jólagjafir og
jólavörur
í mikíu úrvali
Litli ljósálfurinn kr. 1.390,-
Tösku-krumpu-bylgju- og sléttujárn
í sama tæki kr. 2.380,-
Tilboð á 40 ljósa útiseríum m/spenni,
verð aðeins kr. 1.950,-
Litaðar ljósaperur verð kr. 95,-
Jólatrésfætur, sænskir, 5 ára ábyrgð,
kr. 1.750,-
Mikið úrval af seríuperum og öðrum perum.
Einnig raftækjum stórum og smáum.
Við seljum aðeins viðurkennd rafföng.
Með jólakveðju.
Brekkugötu 7, sími 26383.
Ingvi R. Jóhannsson.
1964-1989 ★ 25
ara.
Kaupmannafélag
©
Akureyrar