Dagur - 22.12.1989, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Föstudagur 22. desember 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Álitshnokkir
fyrir Alþingi
Hart hefur verið deilt á Alþingi síðustu daga
vegna ummæla Guðrúnar Helgadóttur, forseta
Sameinaðs þings, í fjölmiðlum þess efnis að
sjálfstæðismenn létu Davíð Oddsson borgar-
stjóra ráða gerðum sínum inni á þingi síðustu
dagana fyrir jólaleyfi. Þótt þessi furðulega
deila hafi verið leyst með einhvers konar
málamiðlun í gær, er full ástæða til að staldra
ögn við þetta upphlaup Guðrúnar og sjálf-
stæðismanna.
Það er svolítið hjákátlegt að sjálfstæðis-
menn skuli hafa tekið fyrrgreind ummæli
forseta Sameinaðs þings svo nærri sér sem
raun ber vitni. Um þetta leyti ár hvert eru
jafnan miklar annir á Alþingi. Þá bíða fjöl-
mörg frumvörp afgreiðslu áður en jólaleyfi
þingmanna hefst. í tímaþrönginni sem skap-
ast við þessar aðstæður er vinsæl aðferð hjá
stjórnarandstöðunni að draga afgreiðslu
mála á langinn með þæfingi og alls kyns
málalengingum, og hóta því þar með að svo
og svö mörg frumvörp dagi uppi á þingi fram
yfir áramótin. Með þessari aðferð hefur
stjórnarandstöðunni oft tekist að bæta samn-
ingsstöðu sína gagnvart meirihluta þingsins
verulega, en til þess er leikurinn einmitt
gerður. En þetta árlega málþóf er hvimleitt
og hefur oft orðið tilefni harðorðra ummæla
forseta Sameinaðs þings í fjölmiðlum á
undanförnum árum. Vel má vera að ummæli
núverandi forseta Sameinaðs þings hafi verið
óvenju harðorð og særandi. Svo mikið er víst
að sjálfstæðismenn sögðust ekki taka þátt í
störfum þingsins undir stjórn Guðrúnar
Helgadóttur fyrr en hún hefði beðist opinber-
lega afsökunar. Með hliðsjón af því hve alvara
málsins virtist mikil er furðulegt að sjálf-
stæðismenn skyldu í gær falla frá hótun sinni
án þess að Guðrún Helgadóttir bæðist af-
sökunar á ummælum sínum. Fyrir vikið er
þetta upphlaup sjálfstæðismanna og Guðrún-
ar Helgadóttur á Alþingi orðið afar hjákátlegt
og með öllu tilgangslaust.
Vonandi heyrir deila af þessu tagi til algerr-
ar undantekningar í starfssögu Alþingis.
Sjónarspil sem þetta, sem virðist fyrst og
fremst sett á svið fyrir fjölmiðlana, er síst til
þess fallið að auka virðingu almennings fyrir
þeim sem á Alþingi sitja. Barnaleg deila
forseta Sameinaðs þings og sjálfstæðismanna
er þvert á móti mikill álitshnekkir fyrir þessa
annars merku stofnun. BB.
Samtök jafnréttis og félagshyggju:
Um orkufrekan iðnað
„Vegna umræðna að undanförnu
um orkufrekan iðnað og nýjar
áætlanir í þeim efnum vilja Sam-
tök jafnréttis og félagshyggju
kynna sína afstöðu til málsins.
1. Samtökin eru ekki andvíg
orkufrekum iðnaði en setja þau
skilyrði að hann standi undir
raunverulegum orkukostnaði og
spilli ekki náttúru landsins.
2. Samtök jafnréttis og félags-
hyggju telja að íslendingar eigi
sjálfir að virkja fallvötn sín, en
einungis að byggja nýjar stór-
virkjanir ef tryggt er að hagnaður
verði af orkusölunni. I því sam-
bandi verður að taka með í
útreikninga eðlilega fyrningu,
viðhald og fjármagnskostnað af
orkumannvirkjum. Það er enn
fremur óeðlilegt að miða alla
útreikninga orkufreks iðnaðar
við hagkvæmustu virkjanakosti,
nær væri að taka meðaltalskostn-
að þeirra virkjanakosta sem eru á'
döfinni.
3. Samtökin eru andvíg bygg-
ingu álvers við Eyjafjörð vegna
mengunarhættu og telja að
Eyjafjörður eigi að vera matar-
framleiðsluhérað sem framleiði
góða, heilnæma og ómengaða
matvöru. Það er raunar alveg
óviðunandi að Eyfirðingum sé
aldrei boðinn annar valkostur í
orkufrekum iðnaði en álver. Svo
virðist sem iðnaðarráðuneytið
hafi ekkert gert í þessum máíum
á síðustu árum annað en tvöfalda
stærð þess álvers sem Eyfirðing-
um var boðið fyrir 5 árum.
4. Álver af þeirri stærð sem
iðnaðarráðherra hefur kynnt
virðast hvergi henta nema þar
sem mannfjöldi er mikill. Vegna
þess að Samtök jafnréttis og
félagshyggju vilja viðhalda
dreifðri búsetu um landið teljum
við að önnur og minni orkufrek
fyrirtæki en álver henti betur til
atvinnuuppbyggingar úti um land
og því beri að kanna slíka mögu-
leika betur.
5. Samtökin telja að ef ráðist
verði í stækkun álversins við
Straumsvík sé ekki ráðlegt að
stækka það umfram það, sem
Blönduvirkjun gefur tilefni til.
Fjárfesting í orkumannvirkjum
skal miðast við þekktar stærðir í
orkuþörf á næstu árum. Stærð og
staðsetning nýrra framleiðslufyr-
irtækja verður að ákvarðast af
hagkvæmni og byggðasjónarmið-
um. Fullt tillit verði tekið til
þeirrar búsetu sem er nú í land-
inu þegar tekin er ákvörðun um
uppbyggingu atvinnufyrirtækja
og staðsetningu þeirra. Atvinnu-
fyrirtækin til fólksins, en ekki
fólkið til fyrirtækjanna þar sem
því verður við komið.“
Sanitök jafnréttis og
félagshyggju.
Akureyri:
Akstur strætisvagna yfír hátíðarnar
Akstur Strætisvagna Akureyr-
ar liggur niðri um hátíðisdag-
ana. Þó verður ferlibíll fatl-
aðra á ferðinni en samkvæmt
upplýsingum frá SVA verður
auglýst sérstaklega hvernig
hægt verður að óska eftir þjón-
ustu ferlibílsins.
Strætisvagnar Akureyrar hafa
ekið á laugardögum í desember
vegna opnunar verslana. Næst-
komandi laugardag, Þorláks-
messu, verður svo einnig gert og
aka vagnarnir þá til kl. 24. Ekk-
ert verður síðan ekið á aðfanga-
dag, jóladag og annan dag jóla en
dagana milli jóla og nýárs ekið
samkvæmt áætlun. Enginn akstur
verður laugardaginn 30. des,
gamlársdag og nýársdag en akst-
ur hafinn á ný 2. janúar skv. áætl-
un. JÓH