Dagur - 22.12.1989, Side 6

Dagur - 22.12.1989, Side 6
6 - DAGUR - Föstudagur 22. desember 1989 Eldridansaklúbburi Dansleikur í Lóni laugardaginn 30. desember kl. 22-03. Hljómsveitin Fjórir félagar sjá um ★ Allir velkomnir ★ Stjórnin. Laugardagur kl.20:15 51. LEIKVIKA- 23. des. 1989 1 X 2 Leikur 1 Aston Villa - Man. Utd. Leikur 2 C. Palace - Chelsea Leikur 3 Derby - Everton Leikur 4 Luton • - Nott. For. Leikur 5 Man. City - Norwich Leikur 6 Q.P.R. - Coventry Leikur 7 Southampton - Arsenal Leikur 8 Tottenham - Millwall Leikur 9 Wimbledon - Charlton Leikur 10 Ipswich - West Ham LeikurH Sheff. Utd. - Leeds Leikur 12 Swindon - Blackburn Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 Þrefaldur pottur!!! Agætu viðskiptavinir! m Það eru aðeins tveir dagar til jóla! ^ Við bjóðum góðar vörur á góðu verði, hentugar tii jóiagjafa. Kápur, úlpur, kjólar, blússur, pils, náttkjólar og barnaföt í úrvali. Sængurfatnaður, handklæði og margt fleira. Vonumst til að sjá ykkur. HAFNARSTRÆTI96 SIMI 96*24423 AKUREYRI -------------------------------------------------------------------N AKUREYRARBÆR Strætisvagnar Akureyrar Ferliþjónusta fatlaðra sér um akstur hjólastóla um jólin. Panta þarf akstur: Á aðfangadag í síma 25026 frá kl. 10-11.30. Ájóladag í síma 21841 frá kl. 10-11.30. Á annan jóladag í síma 23461 frá kl. 10-11.30. Forstöðumaður. .* Samantekt Þjóðhagsstofnunar um árið 1989: Aíkoma atvinnu gr einanna batnaði frá fyrra ári - þrátt fyrir það telja atvinnurekendur enn þörf á fækkun starfsfólks „Samdráttur hefur einkennt íslenskan þjóðarbúskap á þessu ári,“ segir í upphafsorð- um yfirlits Þjóöhagsstofnunar fyrir árið 1989. Landsfram- leiðsla á þessu ári er 2,5% minni en á árinu 1988 og þjóð- artekjur eru taldar dragast meira saman en landsfram- leiðslan, eða um 4,5%, vegna rýrnunar viðskiptakjara. Ohagstæð þróun efnahagsmála stafar einkum af samdrætti í fiskalla og lækkandi verði sjáv- arafurða. Reiknað er með að fiskaflinn verði 5,5% minni á senn liðnu ári en í fyrra. Þrátt fyrir þetta sýna atvinnugrein- arnar batamerki og í heild tel- ur Þjóðhagsstofnun að afkoma atvinnugreina verði betri á árinu en í fyrra þegar almennt var halli á atvinnurekstri. Samkvæmt niðurstöðu Þjóð- hagsstofnunar hafa atvinnutekjur á mann hækkað um 13% á árinu og kaupmáttur atvinnutekna þar með lækkað um 6,5% milli ára. Kaupmáttarrýrnunin er 1% minni en stofnunin reiknaði með í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1989. Astæða þessa er meiri vinna starfsmanna á almennum vinnu- markaði. Sé inn í þessa reikninga tekin skattbyrði kemur í ljós að kaupmáttarrýrnun ráðstöfunar- tekna er meiri þar sem skatt- byrðin á árinu 1989 er þyngri en á síðasta ári. „Þjóðhagsstofnun hefur gert þrjár atvinnukannanir á árinu. I ljós hefur komið að atvinnurek- endur telja enn þörf á að fækka starfsfólki, einkum afgreiðslu- og skrifstofufólki. Á heildina litið telja atvinnurekendur þörf á að fækka fólki um sem svarar 0,5% af mannafla, samkvæmt haust- könnun. Atvinnuleysi fyrstu 11 mánuði ársins jafngildir 1,6% af vinnuframboði og er búist við að þetta hlutfall verði 1,7% þegar litið er á árið í heild, þar af 2,3% meðal kvenna og 1,2% meðal karla. Undanfarin þrjú ár hefur atvinnuleysi verið um það bil tvö- falt meira meðal kvenna er karla,“ segir Þjóðhagsstofnun í yfirliti sínu um atvinnuástandið. Afkoma botnfiskvinnslunnar hefur batnað mikið frá árinu 1988 þegar botnfiskvinnslan var rekin með tæplega 5% halla. Miðað við rekstrarskilyrði í nóvember segir Þjóðhagsstofnun að botnfis- kvinnslan verði rekin með 2-3% hagnaði. Frysting er talin skila 5% hagnaði, en saltfiskverkun Raungengislækkun íslensku krónunnar hefur komið öðrum iðngreinum en sjávarútvegi til góða. Iðngreinarnar hafa einnig notið góðs af, þá sérstaklega þær greinar sem ciga í samkeppni við innfluttar vörur. Jólin koma! Nú fer jólastemmningin að ná hámarki og þeir sem enn eru ekki komnir í jólaskap hljóta að ná því ástandi von bráðar. Á morgun, Þorláksmessu, leggja margir leið sína í bæinn til að gera síðustu innkaupin, hitta vini og kunningja eða einfaldlega til að spóka sig. Kannski eiga einhverjir eftir að kaupa jólatréð og er þá best að hafa hraðann á því sala á jólatrjám hef- ur verið óvenju mikil fyrir þessi jól. Börnin eru væntanlega orðin óþreyjufull og eiga erfitt með að sitja kyrr en fullorðna fólkinu finnst frekar að vanti stundir í sólarhringinn. En hvernig sem öllum líður eru jólin að koma því nú eru aðeins tveir dagar eftir . . . VG/Myndir: KL

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.