Dagur - 28.12.1989, Page 9
8 - DAGUR - Fimmtudagur 28. desember 1989
íþróttir
Fimmtudagur 28. desember 1989 - DAGUR - 9
Júní
Að vanda bar knattspyrnuna
hæst af íþróttum sumarsins. KA
var í toppbaráttunni allt sumarið
flestum íþróttáhugamönnum að
óvörum. Þórsarar voru hins veg-
ar nálægt botninum en unnu
góða sigra gegn ÍA á útivelli og
Fram á heimavelli þannig að
Þorpararnir settust aldrei alveg á
botninn.
í 2. deildinni lentu norðanliðin
Völsungur, Leiftur, Tindastóll og
Einherji i hinu mesta basli. Völs-
ungar, sem voru nánast með nýtt
lið frá fyrra ári, urðu síðan að
sætta sig við fall í 3. deild ásamt
Vopnfirðingum. Leiftursmönnum
gekk illa að skora en höluðu inn
nægjanlega mörg stig til að vera
ekki of nálægt botninum. Tinda-
stóllinn fór seint í gang og var í
fallhættu framan af sumri en með
góðum lokaspretti, m.a. 7:2 sigri
gegn ÍBV, tryggðu Sauðkræking-
arnir sér áframhaldandi setu i
deildinni.
í 3. deildinni höfðu Siglfirðing-
ar tögl og halgdir og endurheimtu
sæti sitt í 2. deildinni. Reynir og
Dalvík tryggðu sér áframhald-
andi sæti í hinni nýju 3. deild en
Magni og Kormákur sigldu niður í
4. deild.
Handknattleiksdrengirnir frísku
í hinu nýja TBA-liði frá Akureyri
komu á óvart á sínu fyrsta ári í
deildakeppni og tryggðu sér sæti
í 3. deild.
í kvennaknattspyrnunni komu
Þórsstúlkurnar nokkuð á óvart.
Þær byrjuðu sumarið frekar illa
en komust að lokum í úrslit í
Bikarkeppni KSÍ, þar sem þær
að vísu töpuðu fyrir ÍA. KA-liðið
náði sér ekki á strik og lenti neö-
arlega í deildinni.
JÚIÍ
Kylfingar voru á fullu allt sumarið
enda veðurblíðan með ein-
dæmum fyrir norðan á meðan
rigning og rok kvaldi Sunnlend-
inga. Björn Axelsson og Jónína
Pálsdóttir urðu Akureyrarmeist-
arar en Kristján Gylfason og Inga
Magnúsdóttir Norðurlandsmeist-
arar.
Unglingastarf GA lofar góðu
og varð sveit GA íslandsmeistari
í flokki 14 ára og yngri og 15-17
ára flokkurinn rétt missti af titlin-
um.
Arctic-Open golfmótið fór fram
í byrjun júlí og sigraði Pat Smillie
golfkennari á því móti.
Árni Stefánsson var ráðinn
þjálfari 2. deildarliðs Þórs í hand-
knattleik í júlímánuði en nokkru
síðar lét hann af störfum sem
þjálfari Leifturs í knattspyrnunni
vegna slælegs árangurs liðsins.
Ágúst
í ágústmánuöi fóru vetraríþrótta-
menn að láta á sér kræla.
Bandaríkjamaðurinn Brent
Hagwood kom til Þórs og Bo
Heyden gekk í lið með Tindstæl-
ingum. Þórsarar ráku siðan
Hagwood og fengu nýjan þjálf-
ara, Dan Kennard, sem hefur gert
ágæta hluti með Þórsliðið.
Akureyrskir skíðamenn, m.a.
Guðrún H. Kristjánsdóttir, voru í
sviðsljósinu í ágúst er þeir mættu
ekki á landsliðsæfingu í Kerl-
ingafjöllum og voru settir út úr
landsliðinu fyrir vikið. Öldurnar
lægöi nokkuð síðar og tóku Akur-
eyringar sig til og fóru í keppnis-
ferð til Júgóslavíu og Austurríkis
á eigin vegum.
Norðlenskir frjálsíþróttamenn
stóðu sig ágætleg á árinu og virt-
ist vera uppsveifla í frjálsum
íþróttum í landsfjórðungnum. Lið
UMSE og UMSS komust í 1.
deildina í Bikarkeppni FRÍ og lið
HSÞ sigraði í 3. deild og keppir
því í 2. deild á næsta móti.
Drengjalandsliðsmennirnir Þórð-
ur Guðjónsson og Eggert Sig-
mundsson úr KA og Guðmundur
Benediktsson úr Þór stóðu sig
vel með íslenska liðinu á NM í
Englandi í ágúst. Þórður og Guð-
mundur voru m.a. valdir í úrvals-
lið Norðurlandanna og skoraði
Guðmundur mark úrvalsliðsins í
2:1 tapi liðsins á Wembley gegn
Englendingum.
Aflraunamenn voru í sviðsljós-
inu í ágúst er keppnin „Aflrauna-
meistari Islands" var haldin á
Akureyri. Það voru kraftlyftinga-
menn á Akureyri sem sáu um
skipulagningu á mótinu sem fór
vel fram og vakti töluverða
athygli.
Yngri flokkarnir í knattspyrnu
náðu ágætis árangri í sumar.
Þórsarar lentu í 4. sæti í 2. flokki
í A-riðli, 3. flokkurinn komst í
úrslit og B-lið 6. flokks sigraði í
Pollamóti KSÍ í sínum flokki. í
flokki A-liða 6. flokks náði KA 3.
sætinu.
September
KA tryggði sér íslandsmeistara-
titilinn í knattspyrnu á eftirminni-
legan hátt í september. Á sama
tíma tryggöi Þór sér áframhald-
andi veru í 1. deild meö góðum
sigri á Skagamönnum á Akur-
eyri. Það var þvi mikil sigurgleði
á Akureyri laugardaginn 16.
september.
Þorvaldur Örlygsson knatt-
spyrnumaður úr KA var síðan
kosinn besti leikmaður íslands-
mótsins og kórónaði síðan
árangur ársins með því að gera
samning við enska knattspyrnu-
liðið Nottingham Forest. Þar
komst hann fljótt í liðið eftir að
atvinnuleyfið var komið í höfn.
Sundkrakkarnir i Óðni sigruðu
í 3. deildinni og keppa því í 2.
deildinni á næsta ári.
Október
Boltaiþróttirnar fóru af stað í
október og gekk norðlensku lið-
unum ekki of vel. í handknatt-
leiknum tapaði KA fyrstu fjórum
leikjum sínum í 1. deildinni en
náði sér síðan þokkalega á strik
og er nú um miðja deild. Þórsarar
byrjuðu ágætlega í 2. deildinni
en virtust missa dampinn og töp-
uðu gegn frekar léttum and-
stæöingum.
Nokkur óeining kom upp í
Tindastólsliðinu og var Kári
Marísson þjálfari látinn fara og
tók Valur Ingimundarson aftur við
þjálfun liðsins. Gengi liðsins hef-
ur verið brokkgengt og eiga þeir
varla möguleika á að komast í
úrslitakepþnina.
Þórsarar hafa sýnt miklar fram-
farir frá fyrra ári. Þar munar um
þá Dan Kennard þjálfara og Jón
Örn Guðmundsson sem kom frá
ÍR.
Ómar Torfason var ráöinn
þjálfari Leifturs frá Ólafsfirði í
knattspyrnunni, Luca Kostic tek-
ur við Þórsliðinu, Guðjón Þórðar-
son var endurráðinn hjá KA,
Mark Duffield var endurráðinn
hjá KS og einnig Bjarni Jóhannes-
son hjá Tindastóli.
Nóvember
Blakmenn í KA voru í sviðljósinu
í nóvember. Þeir léku við Strassen
V.C. frá Luxemborg í Evrópu-
keppni meistaraliða. Að vísu töp-
uðu KA-menn báðum leikjunum
en engu að síður var þetta lofs-
vert framtak hjá KA því þetta var
fyrsti Evróþuleikur í blaki á íslandi.
Ekki gekk að fá leyfi fyrir Fei
þjálfara að spila og munar um
minna fyrir liðið.
Desember
Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði
og Valdimar Valdimarsson frá
Akureyri fóru í keppnisferð með
íslenska landsliðinu á skíðum til
Norðurlandanna. Snjóleysi háði
keppendum nokkuö en að lokum
kepptu þeir á nokkrum mótum.
Þar náði Kristinn bestum árangri
íslensku keppendanna með því
að ná 15. sæti á móti í Geilo í
Noregi.
Arnar Guðlaugsson
á Húsavík:
„Ánægður með
gengi handknatí-
leiksliðs Völsunga"
„Það sem fyrst kemur upp i
hugann hlýtur að vera íslands-
meistaratitill KA í knatt-
spyrnu,“ sagði Arnar Guð-
laugsson þjálfari á Húsavík er
hann var inntur eftir því hvað
honum væri minnisstæðast frá
því ári sem er að líða í íþrótta-
heiminum á Norðurlandi.
„Á heimaslóðum getur maður
ekki annað en glaðst yfir góðu
gengi handknattleiksliðs Völs-
unga á fyrri hluta Islandsmótsins
í 3. deild, en eins og kunnugt er
þá eru nú Húsvíkingar efstir í b-
riðli deildarinnar. Einnig var ég
mjög ánægður með árangur yngri
flokka Völsungs í knattspyrnu
síðastliðið sumar. Stærstu von-
brigði sumarsins voru að sjálf-
sögðu að knattspyrnulið Völs-
unga skyldi falla niður í 3. deild.
Það þýðir hins vegar ekkert að
hengja haus yfir þeim árangri því
nú liggur bara leiðin upp á við
aftur,“ sagði Arnar.
Björn Pór Ólafsson
^ í Ólafsfirði:
,Ánægður með
skíðafólkið okkar“
„Við Olafsfirðingar vorum
mjög ánægðir með árangur
yngra skíðafólksins okkar á
síðasta kcppnistímabili. Við
eignuðumst unglingameistara í
alpagreinum og það hefur ekki
gerst lengi. Síöan héldum við
stöðu okkar í norrænu grein-
unum og áttum sigurvegarana í
stökkinu og norrænni tvíkeppni
á Landsmótinu á Siglufirði.“
Svo mælir Björn Þór Ólafsson
íþróttafrömuður í Ólafsfirði.
„Þó svo að ég sé ánægður með
árangur skíðamannanna okkar í
Ólafsfirði þá er ekki hægt að
neita því að sá árangur sem
gladdi mig mest á árinu var sigur
KA-manna á íslandsmótinu í
knattspyrnu. Það var tími til
kominn að titilinn kæmi hingað
norður. Hins vegar er ekki hægt
að vera neitt yfir sig ánægður
með árangur okkar manna í
knattspyrnunni, e.t.v. af því að
búist hafði verið við meiru af lið-
inu. En það má til sanns vegar
færa að það var sigur út af fyrir
sig að halda sig í deildinni eftir að
staðan var orðin mjög slæm á
tímabili."
Björn Þór kvaðst vera nokkuð
bjartsýnn á árangur íþrótta-
manna frá Ólafsfirði á næsta ári.
„Við eigum orðið mjög sterkan
kjarna í alpagreinunum og Krist-
inn Björnsson sýndi það með
sigri í samhliðasviginu á Flug-
leiðamótinu síðasta vetur að
hann er orðinn einn okkar besti
skíðamaður. Hins vegar er þetta
spurning hvernig okkur gengur
að vinna úr þessum kjarna því
það gengur erfiðlega að ráða
skíðaþjálfara. Leiftur er kominn
með góðan knattspyrnumann
sem þjálfara þannig að þetta ætti
að ganga ágætlega hjá okkur í
Ólafsfirði árið 1990,“ sagði Björn
Þór Ólafsson.
Eyjólfur Sverrisson
Sauðárkróki:
„Maður kemur
í manns stað“
Eins og kunnugt er stóð
Eyjólfur Sverrisson frá Sauðár-
króki sig frábæriega á íþrótta-
sviðinu hér á landi, bæði í
knattspyrnunni og körfubolt-
anum. Hann var einn af lykil-
mönnunum í Tindastólsliðinu í
báðum íþróttagreinum en sló
svo sannarlega í gegn þegar
hann skoraði öll mörk knatt-
spyrnulandsliðsins U-21árs í
4:0 sigri gegn Finnum á Akur-
eyrarvelli í sumar. Arangur
Eyjólfs var síðan kórónaður
með því að vestur-þýska stór-
Jiðiö Stuttgart gerði samning við
hann til tveggja ára. En hvað
skyldi Eyjólfi vera minnisstæð-
ast frá árinu.
„Það sem er minnisstæðast frá
árinu er íslandsmeistaratitill KA
í knattspyrnunni. Liðið kom
mjög á óvart en titillinn var verð-
skuldaður,“ sagði Eyjólfur „Hjá
mér persónulega var það auðvit-
að árangurinn með landsliðinu
U-21 árs og svo samningurinn við
Stuttgart.“
Eyjólfur heldur til Stuttgart
eftir áramótin ásamt unnustu
sinni, Önnu Pálu Gísladóttur.
Hann kvaðst vera mjög ánægður
með samninginn og vera þokka-
lega bjartsýnn á árangur sinn hjá
þessu stórliði. En er hann bjart-
sýnn á árangur Tindastólsliðsins
eftir að hann og e.t.v. Gísli Sig-
urðsson markvörður verða ekki
íslandsineistarar KA í blaki 1989, fremri röð frá vinstri: Einar Sigtryggsson, Magnús Aðalsteinsson, Haukur Valtýsson, Jón Vídalín,
Oddur Ólafsson og Þétur Ólafsson. Aftrari röð f.v.: Sigurður Arnar Ólafsson, Óskar Aðalbjarnarson, Gunnar Garðarsson, Stefán
Jóhannesson, Stefán Magnússon og Hou Xiao Fei þjálfari. A mvndina vantar Kristján Sigurðsson og Karl Hinriksson.
með liðinu. „Já, ég er mjög bjart-
sýnn á framtíðina hjá Tindastóls-
liðinu í bæði knattspyrnu og
körfubolta. Það er mjög mikið af
efnilegum strákum að koma upp
á Sauðárkróki og ég er þess fullviss
að bæði lið eigi eftir að spjara sig,
körfuboltinn í Úrvalsdeildinni og
knattspyrnan í 2. deildinni. Það
er enginn einstaklingur ómiss-
andi í hópíþrótt og það kemur
maður í manns stað,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson.
Páll Leó Jónsson
á Skagaströnd:
„Hjörtu Skag-
strendinga
slógu í takt með
KA-mönnum“
Páll Leó Jónsson skólastjóri á
Skagaströnd og þjálfari knatt-
spyrnuliðs Kormáks á
Hvammstanga sagði að það
væri einkum tvennt sem stæði
upp úr í huga hans í sambandi
við íþróttirnar á þessu ári; sig-
ur Islendinga í B-kepgninni í
handknattleik og svo íslands-
meistaratitill KA í knatt-
spyrnu. „Eg get fullyrt að
hjörtu Skagstrendinga slógu í
takt með KA-mönnum þegar
ljóst var að liðið átti góða
möguleika á titlinum,“ sagði
Páll Leó.
„Á heimavettvangi er mér
minnisstæðast er Skákþing Norð-
lendinga var haldið á Skaga-
strönd. Mótið fór vel fram og var
sérstaklega gaman að sjá hve
mikil þátttaka var í unglinga-
flokkunum. Síðan er ekki hægt
að neita því að það var mjög
gaman fyrir mig, sem gamlan
Skagamann, að skora gegn ÍA í
leik í knattspyrnu sem fram fór
hér á Skagaströnd vegna afmælis
Höfðahrepps í sumar.“
Gunnar Níelsson
kranavörður:
„Minnistætt er
iiafn mitt birtist
áíþróttasíðuDags“
Gunnar Níelsson kranavörður
sagði að árið 1989 væri eitt
besta íþróttaár sem hann
myndi eftir. í fyrsta lagði hefði
KA orðið íslandsmeistari í
bæði blaki og knattspyrnu og
svo hefðu íslendingar sigrað í
2. deildinni í handknattleik í
Frakklandi.
„Magnaðasta augnablik surn-
arsins var hins vegar kl. 15.38
laugardaginn 16. september er
Arnar Björnsson lýsti því yfir í
útvarpinu að Fylkir væri kominn
yfir gegn FH. Ég var þá staddur á
leik ÍBK og KA í Keflvík og vissi
á því augnabliki að björninn væri
unninn," sagði Gunnar með
andakt og andvarpaði með sælu-
svip er hann rifjaði upp þennan
merka atburð.
„Síðan er eftirminnilegur leik-
ur Reynis og Hugins í 3. deild en
ég starfaði sem vatnamaður hjá
Reyni í sumar. Sigur 'í þeim leik
tryggði Reyni áframhaldandi sæti
í 3. deildinni. Svo má ekki
gleyma að í desember rættist
gamall draumur hjá mér er nafn-
ið mitt birtist í fyrirsögn á
íþróttasíðu Dags.“
Snorri Finnlaugsson:
„Bjartsýnn
á árangur
Dalvíkmga“
Snorri Finnlaugsson á Dalvík
sagði að góður árangur knatt-
spyrnuliðs Dalvíkinga á síðast-
liðnu sumri væri auðvitað
minnisstæður. „Við stefndum að
einu af 4 efstu sætunum í 3.
deildinni og það tókst hjá
okkur,“ sagði Snorri. Síðan
bætti hann við að íslandsmeist-
aratitill KA í knattspyrnu væri
lyftistöng fyrir alla knatt-
spyrnuiðkun á Norðurlandi
þannig að sá sigur hefði ekki
síður glatt Dalvíkinga en
Akureyringa.
Nokkrar breytingar hafa nú
orðið á högum Snorra því hann
flutti í desembermánuði suður og
býr nú á Álftanesi. „Það eru auð-
vitað viðbrigði að búa ekki leng-
ur á Dalvík en þar bjó ég frá
1982. En knattspyrnan fylgir
manni alltaf því ég var kosinn í
stjórn KSÍ á síðasta þingi og það
verður nóg að gera á þeim vett-
vangi. Síðan má ekki gleyma því
að í hinni nýju 3. deild koma
Dalvíkingarnir þrisvar sinnum
hingað suður að keppa og þá get-
ur maður veitt þeim liðsinni af
hliðarlínunni.“
Snorri segist vera þokkalega
bjartsýnn á árangur Dalvíkinga í
deildinni á næsta ári. „Þar munar
mestu að okkur tókst að ráða
Kristinn Björnsson áfram sem
þjálfara en hann gerði góða hluti
síðasta sumar með liðið. Ég er
því nokkuð bjartsýnn á að við
eigum eftir að geta staðið okkur í
3. deildinni,“ sagði Snorri Finn-
laugsson.
Stefán G. Aðalsteinssor.
á Siglufirði:
Landsmótíð á
skíðum og sigur
KS í 3. deildinni
Stefán G. Aðalsteinsson á
Siglufiröi segir að það séu
einkum tveir viðburðir sem
standi upp úr eftir árið. Það
séu sigur KS í 3. deildinni í
knattspyrnu og svo Landsmót-
ið á skíöum sem var haldið á
Siglufirði þrátt fyrir mikinn
veðraham.
„Þar sem ég var formaður
knattspyrnudeildarinnar á síð-
asta keppnistímabili er auðvitað
sigur KS í 3. deildinni enn í
fersku minni. Næsta ár verður
mjög erfitt hjá þessum þremur
norðanliðum í 2. deildinni,
Leiftri, Tindastól og KS. Það er
líklegt að þau muni berjast í
neðri hluta deildarinnar þannig
að þetta verða hörkuleikir í
deildinni á milli þessara liða,“
sagði Stefán.
Hann sagði að Landsmótið á
skíðum yrði Siglfirðingum lengi
minnisstætt. „Snjóþunginn var
slíkur fyrir mótið að menn voru
farnir að afskrifa að mótið yrði
haldið hér. En Jóhann Möller og
hans menn gáfu aldrei upp von
og með óbilandi elju og hjálp
meirihluta bæjarbúa tókst að
liúka mótinu með sóma,“ sagði
Stefán. .
Á erlendum vettvangi kvaðst
Stefán enn muna eftir æsispenn-
andi augnablikum fyrir framan
sjónvarpið er íslendingar voru að
leika í B-keppninni í handknatt-
leik í Frakklandi. „Sigur íslend-
inga á Pólverjum var stórglæsileg-
ur og vonandi að strákarnir haldi
einnig dampi í Tékkóslóvakíu á
næsta ári.“
Sigrún Aðalsteinsdóttir:
Árangur
6. flokks Þórs
minnisstæðastur
„Sjónir manna beindust auð-
vitað að meistaraflokkunum í
knattspyrnunni og stóðu bæði
Akureyrarliðin sig vel í knatt-
spyrnunni. Hins vegar var
ánægjulegasti atburðurinn hér
á Norðurlandi í mínum huga
þegar Þórsstrákarnir í 6. flokki
B urðu Islandsmeistarar í sín-
um aldursflokki síðastliðið
sumar,“ sagði Sigrún Aðal-
steinsdóttir baðvörður í íþrótta-
húsi Glerárskóla.
„Af erlendum vettvangi var
það auðvitað sigur íslendinga í
B-heimsmeistarakeppninni í
handknattleik. Ég bjóst alltaf við
að íslendingar myndu verða ofar-
lega í þeirri keppni en það er
varla hægt að segja að ég hafi
búist við toppsætinu. Róður
íslenska landsliðsins verður erfið-
ur í Tékkóslóvakíu í A-heims-
meistarakeppninni en það þýðir
ekkert annað en að vera bjartsýn
fyrir hönd strákanna okkar,“
sagði Sigrún.
Wolfgang Sahr
sundþjálfari:
Endurheimtum
Norðurlands-
meistaratitilinn
Wolfgang Sahr sundþjálfari
hjá Sundfélaginu Óðni á Akur-
eyri sagði að það ánægjuleg-
asta í sinni íþróttagrein á árinu
væri hve mikil breidd væri að
koma í hópinn hjá félaginu.
Óðinn hefði endurheimt
Norðurlandstitilinn í sundi frá
Þingeyingum og síðan hefði
félaginu tekist að vinna sig upp
í 2. deild í Bikarkeppni SSI.
„Við eigum mikið af efnilegum
krökkum og það er sérstaklega
gaman að sjá þegar yngri strák-
arnir eru farnir að bæta gömul
met Svavars Þórs Guðmundsson-
ar. En það var tvímælalaust
Svava Hrönn Magnúsdóttir sem
var mesti afreksmaður Óðins á
árinu og bætti hún unglingametið
tvisvar sinnum í sinni bestu
grein,“ sagði Wolfgang.
Krakkarnir í Öðni unnu 3.
deildina í Bikarkeppni með
glæsibrag í sumar. Skorið sem
Óðinn var með var það sjötta
besta á landinu og hefði nægt
félaginu til þess að komast í 1.
deild, ef það hefði keppt í 2.
deild. Á þessu sést að framtíðin
er björt í sundinu á Akureyri.
En það var heilmikið um að
vera hjá Óðni í sumar og við gef-
um Wolfgangi aftur orðið.
„Krakkarnir stóðu sig mjög vel á
aldursflokkamótinu fyrr á árinu
og lentu þar í 5. sæti yfir landið.
Það var mjög góður árangur því
það mót var það sterkasta í ungl-
ingaflokki. Unglingameistara-
mótið í sumar var hins vegar ekki
mjög sterkt en við náðum samt
þokkalegum árangri. Þar má
helst nefna að Gísli Pálsson lenti
í 2. sæti í 1500 m sundi sem var
mjög góður árangur.
Við klykktum síðan út með því
að fara í keppnisferð til Kiel í
V-Þýskalandi í deseinber. Ferðin
var öll hin ánægjulegast þótt mót-
ið sem við kepptum á væri ekkert
sérstaklega sterkt. En íslensku
keppendurnir náðu flestir að
bæta árangur sinn og móttökur
heimamanna voru til fyrirmynd-
ar,“ sagði Wolfgang Sahr sund-
þjálfari á Akureyri.
Sigurður P. Sigmunds-
son formaður UFA:
Frábært að eiga
þrjá kastara í
heimsklassa
Sigurður P. Sigmundsson for-
maður UFA segir að það sé nú
ýmislegt sem komi upp í hugann
þegar hugsað er aftur. Árang-
ur Islendinga í B-keppninni í
handknattleik og svo jafnteili
íslenska knattspyrnulandsliðs-
ins við Sovétmenn á útivelli. I
sinni íþróttagrein, frjálsum
íþróttum, kvaðst Sigurður
gleðjast mest yfir því að
Islendingar skuli orðið eiga
þrjá spjótkastara í heims-
klassa, Einar Vilhjálmsson,
Sigurð Einarsson og svo Dal-
víkinginn Sigurð Matthíasson.
Á heimaslóðum kvaðst Sigurð-
urði vera hugsað til hástökkvarans
Þóru Einarsdóttur í UMSE sem
stórbætti árangur sinni í hástökk-
inu á árinu. „Þótt árangur
Sigurður Matthíassonar í spjót-
inu sé auðvitað miklu betri á
heimsmælikvarða er árangur
Þóru í sumar alveg ótrúlega
góður,“ sagði Sigurður.
í sínu félagi, UFA, kvaðst
Sigurður vera ánægður með
maraþonhlauparann Jón Stefáns-
son sem náði besta tíma íslend-
ings á þessu ári í maraþoni í
Bandaríkjunum í haust. „Jón var
ekki líklegur til mikill afreka þeg-
ar liann kom heim í vor. Bæði
átti hann við meiðsli að stríða og
svo mikið álag í sambandi við
nám hans í Bandaríkjunum. Við
settumst hins vegar niður í sumar
og plönuðum æfingarnar vel.
Árangurinn fór að koma í ljós í
júlí og svo small allt saman á
mótinu í Bandaríkjunum í
haust,“ sagði Sigurður.