Dagur - 28.12.1989, Side 11
hér & þor
Fimmtudagur 28. desember 1989 - DAGUR - 11
?-
r
Skemmtiklúbburinn
Líf og fjör
GÓÐIR FÉLAGAR!
Jólatrésskemmtun fyrir börnin og barnabörnin
verður haldin föstudaginn 29. des. kl. 14.00
í Allanum, Skipagötu 14.
Áramótafagnaður
verður haldinn um kvöldið á sama stað
frá kl. 22.00-03.00.
Húsið opnað kl. 21.30.
Við mætum öll vel og stundvíslega og verðum
í stuði með Hljómsveit Bigga Mar.
Sjáumst alveg eldhress og munum eftir
félagsskírteinunum.
Stjórnin.
Lísa eins og hún lítur út í dag. Okkur virðist sem Larrý þyrl'ti líka að losna við nokkur kíló . . .
Af ofáti og áfengis-
neyslu Lísu Taylor
- hún er nú orðin um helmingi þyngri en hún var í sumar
\ V'-.
Endurskinsmerki
storauka öryggi í umferðinni.
Elísabet Taylor kvikmynda-
stjarnan þekkta er á ný fallin fyrir
áfengi og ljúffengum mat. Eins
og margir muna eflaust, tók þessi
fyrrverandi kvikmyndadrottning
sig til fyrir nokkrum árum og fór
í afvötnun og megrun, en hún var
þá mjög langt leidd í áfengis-,
pillu- og mataráti.
Lísa eins og hún var þegar bcst lét.
Þegar best lét náöi Lísa sér
niður í 55 kíló. Nú hefur hún
bætt á sig 43 kílóum á ný og því
miður hverfa áfengisflöskurnar
eins og dögg fyrir sólu þar sem
hún kemur.
Sambýlismaður hennar, Larry
Fortensky, er miður sín út af
þessu. Hann segir að áður hafi
hann aldrei þurft að hafa áhyggj-
ur af þyngd hennar og að í raun
hafi hann frekar viljað hafa hana
aðeins búttaða. En nú líst honum
ekkert á blikuna og vill að frúin
fari aftur í meðferð og megrun.
Matarást Lísu eykst jafnt og
þétt. Gróusögur segja, að það
komi oft fyrir að hún fái einkabíl-
stjóra sinn til að aka sér að
sjoppu og bíður hún í bílnum á
meðan hann fer inn og verslar.
Það sem hann kaupir fyrir Lísu er
súkkulaðiís, sælgæti, kökur, kart-
öfluflögur og fleira og svo þarf
hann að rúnta um bæinn þangað
til hún hefur sporðrennt öllu
saman. Og ekki þarf að spyrja að
sóðaskapnum því að bíltúrnum
loknum hefur vesalings bílstjór-
inn nóg fyrir stafni við að hreinsa
bréfadrasl, ísslettur og annað úr
bílnum.
Larry, elskhugi Lísu, segir að
þegar þau fari saman út að borða
narti hún pent í salat og drekki
kóladrykk með. „Þegar við kom-
um heim þýtur hún beint inn í
eldhús og skellir frosinni „pítsu“
inn í örbylgjuna." Sjálf segir hún:
„ég verð að hætta að troða svona
í rnig, en ég bara dregst að mat
og víni eins og fiskur að vatni,“
og þá vitum við það.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum sagði heimilislæknir-
inn hennar Lísu nýlcga við hana
að hún væri feit og blóðþrýsting-
urinn væri á leiðinni upp úr öllu
valdi vegna allra aukakílóanna.
„Þú verður að hætta þessu ofáti,“
sagði hann við hana. Vesalings
Lísa gat ekki annað en tárast við
þessi orð doktorsins, en engu að
síður heldur hún ósómanum
áfram. Síðustu fréttir herma að
Larry ætli að reyna að koma
henni í meðferð á ný . . .
• iiiiiaiiiii
Filman þin
a skihð þaö
besta 1'
iiiaiiiiiiii
H-Lúx
gæðaframköllun
r ■
Hafnarstræti 106 Sími 27422 PósthóH 196
m Hrað’
f framköllun
Opið á
iaugardögum
frá kl. 9-12.
Auglýsing fró ríkisskatlstjóra
HÚSNÆÐISSPARNAÐAR-
REIKNINGUR
Samkvæmt ákvæöum 3. málsl. 7. gr. laga nr. 49/1985
um húsnæðissparnaðarreikninga hefur ríkisskattstjóri reiknað út þær
fjárhæðir er um ræðir í 2. mgr. 2. gr. laganna og gilda vegna innborgana á
árinu 1990.
Lágmarksfjárhæð skv. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna verður kr. 36.092
og hámarksfjárhæð kr. 360.920. Lágmarksfjárhæð skv. 3. málsl. 2. mgr.
2. gr. laganna verður kr. 9.023 og hámarksfjárhæð kr. 90.230.
Reykjavík 18. desember 1989
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI