Dagur - 23.01.1990, Side 1
Alvarlegur atburður á Dalvík:
Ráðist á lögregluþjón
aðfaranótt sunnudags
- eiginkona og móðir komu til hjálpar
Sundlaugin í Glerárhverfí var vígð á sunnudaginn og tóku félagar úr Óðni fyrstu sundtökin. Sjá nánar á bls. 4.
Mynd: KK
55
Kvennalistinn býður fram til bæjarstjórnar Akureyrar í vor:
Fyllsta ástæða til að vera með“
- boðið fram á sömu forsendum og árið 1982
Aðfaranótt sunnudags var ráð-
ist á lögregluþjón á Dalvík og
reynt að koma í veg fyrir að
hann tæki mann fastan.
Atburður þessi er litinn mjög
alvarlegum augum og er málið
í rannsókn hjá rannsóknarlög-
reglunni á Akureyri. Lögreglu-
þjónninn, Sævar Freyr Inga-
son, slapp betur en á horfðist
og sagðist hann geta þakkað
móður sinni Og eiginkonu fyrir
það að vera enn ofar moldu.
„Ég var á bakvakt heima hjá
mér þegar gesti bar að garði.
Mennirnir fóru að rífast út af
bifreið og létu mjög ófriðlega. Til
að tryggja öryggi heimilisins fór
ég með þá út á bílastæði enda
áflog í uppsiglingu. Þar ákvað ég
að handtaka þann sem lét hvað
verst en þá var ráðist aftan að
mér og ég á móður minni og eig-
inkonu mikið að þakka, en þær
komu mér til hjálpar og gátu
Þokkaleg færð:
Skafremiingur á
Öxnadalsheiði
í gær var þokkaleg færð á flest-
um vegum norðanlands. Um
helgina var víða þungfært, t.d.
lokaðist Ólafsfjarðarmúli, en
aðalleiðir voru mokaðar á
laugardaginn.
Ekki var fólksbílafært um
Öxnadalsheiði í gærmorgun en
mokstur var í gangi og orðið fært
eftir hádegi. Hins vegar var kom-
inn mikill skafrenningur á Öxna-
dalsheiði síðdegis og ekki ólík-
legt að færð ætti eftir að versna á
ný-
í gær var einnig mokað í Svarf-
aðardal, Saurbæjarhreppi og
Öngulsstaðahreppi og færð því
hin bærilegasta í bili. SS
fengið pilt í lið með sér,“ sagði
Sævar Freyr.
Mennirnir voru ölvaðir og
framkoma þeirra ógnun við frið-
helgi heimilisins og auk þess mik-
ið virðingarleysi gagnvart lög-
reglunni, að mati Sævars. „Það er
mjög alvarlegt að fá ekki að vera
í friði á sínu heimili og enn alvar-
legra þegar ráðist er á mann við
skyldustörf," sagði Sævar, sem
var einn á vakt þetta kvöld.
Af öðrum tíðindum frá Dalvík
má nefna að rúta með nemend-
um á leið í skóla á Akureyri fauk
út af veginum við Litlu-Hámund-
arstaði í sviptivindi á sunnudags-
kvöld og lagðist á hliðina. Enginn
meiddist í þessari veltu og er rút-
an ekki mikið skemmd. SS
Ákveðið er að Kvcnnalistinn
bjóði fram við bæjarstjórnar-
kosningarnar á Akureyri í vor.
Þetta er niðurstaða fundar sl.
Fyrsti formlegi samningafund-
ur vinnuveitenda og aðila
vinnumarkaðarins fór fram á
sunnudaginn. Samningsaðilar
vildu lítið Iáta hafa eftir sér eft-
ir fundinn en virtust þó bjart-
sýnir.
Talið er líklegt að samningar
geti tekist á einni viku þar sem
miklar undirbúningsviðræður
Ílaugardag. Næstu dagar og
vikur fara í ýmsan undirbún-
ing, gerð stefnuskrár, fjáröllun
og uppstillingu framboðslista.
hafa farið fram áður. Hins vegar
heyrast þær raddir, að takist
samningar ekki á þeim tíma verði
sífellt erfiðara að ná samkomu-
lagi eftir því sem lengra dregur.
Annar samningafundur fór
fram hjá Sáttasemjara ríkisins í
gær þar sem m.a. var skipt upp í
vinnuhópa en funda á stíft þessa
viku og reyna að ná sáttum. VG
Kvennalistinn tók ekki þátt í
slagnum við síðustu bæjar-
stjórnarkosningar en árið 1982
fékk Kvennaframboðið á
Akureyri tvo fulltrúa kjörna í
bæjarstjórn.
„Við förum fram á alveg sömu
forsendum og árið 1982, að koma
rödd kvenna á framfæri og fá
meiri umræðu um stöðu kvenna í
þjóðfélaginu," segir Valgerður
Magnúsdóttir.
Valgerður segir að ekki beri að
líta á framboð Kvennalistans sem
skilaboð til núverandi bæjar-
stjórnar um að málefnum kvenna
hafi í engu verið sinnt. „Nei, svo
er alls ekki. Hins vegar er hægt
að gera miklu betur og reynslan
sýnir að af setu okkar í bæjar-
stjórn í fjögur ár varð heilmikill
árangur og honum viljum við
fylgja eftir.“
Valgerður segir að þó svo að
stefnuskrá liggi ekki fyrir sé ljóst
að eitt af stærstu baráttumálum
Kvennalistans fyrir komandi
kosningar verði atvinnumál
kvenna í bænum. „Þar er staðan
mjög keimlík því sem hún var
árið 1982, áberandi atvinnuleysi
á meðal kvenna."
Valgerður segir að næsta skref
verði vinnufundur þann 30.
janúar. Sá fundur verður auglýst-
ur síðar. „Við erum auðvitað
bjartsýnar og raunsæjar líka.
Okkur finnst fyllsta ástæða til að
vera með í umræðunni fyrir kosn-
ingar og auðvitað vonumst við til
að korpa að bæjarfulltrúa eða -
fulltrúum," segir Valgerður
Magnúsdóttir. óþh
Kjarasamningaviðræður:
Fundað stíft þessa viku
Guðmundur Bjarnason á þingmannafundi um vanda ÚNP í gær:
„Þetta er afar stórt dæmi og erfitt úrlausnar"
- ríkisstjórnin verður að útvega Qármagn eða Þórshafnarbúar að fá ódýrara skip í stað Stakfellsins
Þingmenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra komu saman til
fundar í gærmorgun með full-
trúum frá Byggðastofnun og
Atvinnutryggingasjóði til að
fjalla um hinn mikla vanda
sem steðjar að atvinnulífinu á
Þórshöfn. Greiðslustöðvun
rennur út hjá Útgerðarfélagi
Norður-Þingeyinga um mán-
aðamótin og tinnist cngin
lausn fyrir þann tíma mun
rekstur Stakfellsins stöðvast.
Það væri mikið áfall fyrir
byggðarlagið, en hitt er Ijóst
að vandinn er stór því skuldir
ÚNÞ vegna Stakfellsins eru
tæpar 500 milljónir. En
hvaða leiðir er verið að
skoða?
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra og 1. þingmað-
ur Norðurlandskjördæmis
eystra, sagði eftir þingmanna-
fundinn í gær að nú lægi á að
finna lausn, því ef Stakfell verð-
ur innsigiað fer málið í farveg
gjaldþrots og uppboða og lítil
áhrif hægt að hafa á gang þcss
eftir það.
„Þetta er afar stórt dænti og
erfitt úrlausnar. Skuldirnar eru
tæpar 500 milljónir, hugsanlegt
söluverð togarans gæti verið yfir
400 milljónir en til að hægt sé að
reka skipið mega skuldip á því
ekki vera yfir 250-300 miíljónir.
Ef sú leið verður farin að koma
skuldunum niður í þessa tölu þá
erum við að tala um vanda upp
á 200 milljónir. Heimamenn
hafa talað um að safna hlutafé
og nefnd hefur verið talan 50
milljónir, einnig hefur verið
rætt unt að scrnja við kröfuhafa
um aðrar 50 milljónir en þá eru
samt 100 milljónir eftir,” sagöi
Guömundur.
Það kom fram á fundinum í
gær að Byggðastofnun hefur
ckki bolmagn til að leysa þetta
mál ncrna til komi sérstök fjár-
veiting fyrir tilstuðlan ríkis-
valdsins. Niðurstaða fundarins
er því sú að ríkisstjórnin verður
að taka á vanda ÚNÞ og þar
með byggðarlagsins í heild og
væntir Guðmundur þess að ntál-
ið verði rætt í stjórninni innan
skamms. En er einhver önnur
leið fær?
„Þaö hefur alltaf verið í bak-
höndinni aö skipta á Stakfellinu
fyrir ódýrara skip, sem gæti þó
sinnt þcim mikilvæga þætti að
útvega hráefni yfir vetrarmán-
uðina. Þingmenn og heima-
menn hafa vcrið efins um að
bátur myndi lcysa málið því við
vitum að bátar hafa sótt vestur
og suður fyrir land á vertíðar-
tímabilinu. Þar með erum við
farin að tala um ísfisktogara og
þeir liggja ekki á lausu. Þess
vegna leggja menn áherslu á að
halda skipinu og missa ckki
kvótann úr byggðarlaginu.”
sagði Guðmundur.
Hann sagði að þingmenn
kjördæmisins hefðu lagt áherslu
á að ríkisstjórnin fjallaði um
vanda Þórshafnar og annarra
staða í kjördæminu sem eiga t'
erfiðleikum. Má þar nefna
Presthólahrepp og einnig mun
bátaútgerðin á Húsavík eiga við
afar rnikla erfiðleika að glíma.
Guðmundur kvaðst fagna fram-
lagi því sem Ólafsfirðingar
fengu frá Byggðastofnun á
dögunum. SS