Dagur - 23.01.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 23. janúar 1990
Skútustaðahreppur:
Bætt staða við breytta verkaskiptingu
líklega tvöfaldast ráðstöfunarfé
Unnið er að fjárhagsáætlun
Skútustaðahrepps og reiknað
með að hún verði tilbúin til
samþykktar í febrúar. Utlit er
fyrir að óvenju mikið fé verði
eftir til framkvæmda eða
greiðslu skulda, eftir að rekstr-
aráætlun hefur verið gerð.
Þessi upphæð gæti numið um
20 milljónum króna, eða tvö-
faldri þeirri upphæð sem til
ráðstöfunar var í fyrra. Stafar
þetta fyrst og fremst af bættri
stöðu sveitarfélagsins vegna
breytinga á verkaskiptingu
milli ríkis og sveitarfélaga.
Greiðslustaða sveitarfélagsins
hefur verið fremur slæm og
mikið af skammtímaskuldum,
þó heildarskuldir þess séu ekki
mjög miklar. Sagði Jón Pétur
Líndal, sveitarstjóri, að nú
gæfist tækifæri til að koma
skikki á fjármálin fyrir kosn-
ingarnar.
Ekki er búið að ákveða fram-
kvæmdír á vegum sveitarfélagsins
á árinu. Verið er að byggja skóla
við Reykjahlíð og vonast er til að
húsið nái fokheldisstigi í vor.
Varmaskiptastöð hefur verið
byggð fyrir hitaveituna og settir
hafa verið upp mælar í öll hús, en
fljótlega verður farið að selja
vatnið samkvæmt mælunum.
Vatn hefur ekki verið selt sam-
AKUREYRARB/ÍR
■HLJJnWfe
Auglýsing um lausar
íbúðarhúsalóðir í
Giljahverfi
Lausar eru til umsóknar lóðir við Tröllagil og
Drekagil.
Um er að ræða 4 fjölbýlishúsalóðir fyrir 8 hæða
hús með 20 íbúðum hvert og 9 raðhús á einni
hæð og 2 parhús á einni hæð.
Umsóknum skal skilað til byggingafulltrúa,
Geislagötu 9, Akureyri fyrir 08.02. 1990.
Nánari upplýsingar um lóðirnar og umsóknar-
eyðublöð liggja frammi hjá embætti byggingarfull-
trúa.
Byggingarfulltrúi Akureyrar.
A söluskrá
kvæmt hemla- eða mælakerfi í
sveitinni að undanförnu. í fyrstu
notaði hitaveitan borholuvatn,
en í því var útfelling það mikil að
öll mælitæki vildu stíflast og eyði-
leggjast. Lagnir urðu einnig ónýt-
ar vegna efnainnihalds vatnsins
svo farið var út í byggingu varma-
skiptastöðvarinnar, þar sem jarð-
gufa er notuð til upphitunar á
köldu vatni. Uppsetning mæl-
anna og sala eftir þeim er síðan
síðasta skrefið í þessum fram-
kvæmdum.
Ein gata í þorpinu var malbik-
uð í sumar og nú er komið bund-
ið slitlag á allar götur í þorpinu.
Mikið hefur verfð unnið á tjald-
stæðum í sveitinni og er ástand
þeirra að verða nokkuð gott, þó
meira þurfi að gera til að bæta
aðstöðuna á þessum fjölsótta
ferðamannastað. Góð aðsókn var
að gistiaðstöðu sem hreppurinn
starfrækir, og nú þegar er mikið
búið að bóka fyrir næsta sumar.
í vetur var sundlaugin lokuð í
langan tíma meðan unnið var að
viðgerðum og endurbótum, m.a.
endurnýjun á ónýtum lögnum.
Nú hefur laugin verið opnuð á ný
en mikið vandamál er að plast-
efnið sem notað er í laugarkerið
flagnar af og síðan skemmist
trefjaefnið sem undir því er, en
ekki hafa fundist ráð til að gera
við þessar skemmdir.
Jón Pétur taldi mannlíf í
Mývatnssveit ágætt, og reiknar
með að menn fari að dunda sér
við kosningaundirbúninginn,
svona að afloknu þorrablótinu.
IM
Aflabrögð á árinu 1989:
Samdrátturiim á Norðuriandi
langt yfir landsmeðaltali
- desemberafli þokkalegur
fyrir utan loðnuna
Aflabrögð í desember ein-
kenndust af því að loönan lét
ekki sjá sig á haustvertíðinn
og aflatölur því mjög lágar
Þannig var heildarafli lands
manna alls 72.114 tonn í mán
uðinum, samkvæmt bráða
birgðatölum Fiskifélags
íslands, á móti 159.614 tonn-
um í dcsember 1988. Skýringin
er nær eingöngu fólgin í minni
loðnuafla. Þorskafli dróst
reyndar nokkuð saman milli
ára en flestar aðrar tegundir
veiddust í meira magni í des-
ember sl. iniðað við sama mán-
uð árið áður.
Á Norðurlandi komu 12.237
tonn á Iand í desember á móti
40.037 tonnum í desember 1988.
Þegar litið er á helstu tegundir
lítur dæmið þannig út, tölur fyrir
desember 1988 eru í sviga:
Þorskur 2.369 (5.019), ýsa 450
(303), ufsi 1.109 (640), karfi 614
(412), grálúða 413 (89), loðna
6.598 (31.864) og rækja 378
(311).
Þetta var desemberaflinn en
heildarafli landsmanna á árinu
1989 var 1.429.620 tonn á móti
1.703.169 á árinu 1988. Þetta er
19% samdráttur milli ára. Á
Norðurlandi var heildaraflinn
1989 247.010 tonn á móti 377.019
tonnum árið 1988. Þetta er 52%
aflasamdráttur og er samdráttur-
inn á Norðurlandi því langt yfir
landsmeðaltali. Það sama gildir
um Austfirði en í öðrum lands-
hlutum var samdrátturinn mun
minni, nær enginn á Vesturlandi
og á Reykjanesi var töluverð
aukning milli ára.
Þorskveiðar drógust saman urn
24 þúsund tonn milli ára og bera
Norðlendingar þyngstu byrðarn-
ar, eða 16 þúsund tonn. Sam-
drátturinn í loðnuveiðum er líka
langmestur á Norðurlandi og
Austfjörðum. SS
Afli á Norðurlandi 1989:
Víðilundur: Þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð, íbúðin er mikið
endurnýjuð.
Skarðshlíð: Þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð, ástand mjög gott.
Smárahlíð: Þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð, ástand mjög gott.
Keilusíða: Þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð, ástand mjög gott.
Flatasíða: Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi, ný íbúð.
Skarðshlíð: Fimm herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi, ásamt
bílskúr.
Hafnarstræti: Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi,
ásamt bílskúr. Steinhús.
Núpasíða: Fjögurra herbergja raðhús á einni hæð með bílskúr.
Eiðsvallagata: Þriggja herbergja íbúð, mikið áhvílandi.
Möðrusíða: Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.
Hamarstígur: Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli.
Bakkasíða: Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.
Hraunholt: Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.
Fasteignasalan hf.
Gránufélagsgötu 4,
efri hæð, sími 21878.
Hermann R. Jónsson, sölumaður
heimasími utan skrifstofutíma er 25025.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur.
Guðmundur Kr. Jóhannsson, viðskiptafræðingur.
Blönduós og Húsavík
bæta sig milli ára
- samdráttur á nær öllum öðrum stöðum
Heildaraflinn á Norðurlandi
árið 1989 var 247.010 tonn,
sem er yfir 50% samdráttur frá
árinu áður er hann var 377.019
tonn. Þessi samdráttur er fyrst
og fremst hjá löndunarstööv-
um sem taka á móti ioðnu, en
við ætlum að líta á heildarafl-
ann á einstökum stöðum á
Norðurlandi og bera saman við
tölur frá árinu áður.
Rétt er að taka fram að hér er
farið eftir bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands fyrir árin 1988
og 1989 yfir heildarafla á hverj-
um stað. Svigatölur standa fyrir
árið 1988:
Hólmavík 5.559 (5.561),
Hvammstangi 1.413 (1.305),
Blönduós 1.688 (1.099), Skaga-
strönd 11.160 (14.505), Sauðár-
krókur 9.634 (11.004), Hofsós
457 (698), Siglufjörður 52.715
(99.312), Ólafsfjörður 16.946
(23.105), Grímsey 1.972 (1.986),
Hrísey 4.106 (5.464), Dalvík
13.382 (15.510), Árskógsströnd
3.646 (3.991), Hjalteyri 183 (59),
Akureyri 64.923 (86.092), Greni-
vík 2.113 (2.542), Húsavík
11.000 (10.020), Kópasker 589
(859), Raufarhöfn 24.940
(61.640), Þórshöfn 26.143
(37.828).
Eins og sjá má er nær alls stað-
ar um samdrátt að ræða eða þá
örlitla aukningu sem vart er
marktæk. Það er helst hægt að
tala um að aflabrögð hafi aukist á
Blönduósi og Húsavík milli ára.
SS
fréftir
7
■ Bygginganefnd hcfur lagt
til að götur í 1. áfanga Gilja-
hverfis fái eftirtalin nofn:
Safngata suður úr Borgarbrau.t
heiti Kiðagil, safngata upp úr
Hlíðarbraut heiti Merkigil,
nyrðri gatan austan úr Kiðagili
heiti Tröllagil og syðri gatan
austán úr Kiðagili heiti Dreka-
gi'.
■ Bæjarráö hefur samþykkt
tillögu l'rá bæjarritara um að
leggja niður 6 sjóði í vörslu
bæjarstjórnar og ráðstöfun
eigna þeirra. Dómsmálaráðu-
neytið og Ríkisendurskoðun
hafa fallist á tillöguna. Sjóð-
irnir eru; Minningarsjóður
Önnu C. Schiöth, Minningar-
sjóður Margrethe Schiöth,
Styrktarsjóður slökkviliðs
Akureyrar (Gjafasjóður Ála-
sunds), Styrktarsjóður eld-
varna á Akureyri, Slvrktar-
sjóður C. Höeþfners og konu
lians og Trjá- og blómaræktar-
sjóður Maríu Kristínar Step-
hensen.
■ Bygginganefnd hefur falið
byggingaktjóra að auglýsa
lausar til umsóknar lóðir viö
Tröllagil og Drekagil.
■ Hafnarstjórn hefur sam-
þykkt að fela hafnarstjóra að
gera Rafmagnsveitum ríkisins
tilboð í eignarlóð þeirra sunn-
an við Gránufélagsgötu, aust-
an Laufásgötu.
■ Félagasmálastjóri Akur-
eyrar, Jón Björnsson, er kom-
inn í ársleyfi frá störfum og
samkvæmt heimildum blaðs-
ins, mun Sigfús Jónsson bæjar-
stjóri sjá um hans mál á næst-
unni.
■ Umhverfisnefnd hcfur í
tilefni skógræktarátaks 1990,
falið umhverfisstjóra að gera
tillögu um átak í skógrækt
næstkomandi sumar, Stefnt er
að því að bæjarbúum verði
gefinn kostur á að planta í úti-
vistarsvæðin á Jónsméssu.
■ Jafnréttisnefnd hefur sam-
þykkt að vcita fjárhæð kr.
150.000.-, til útgáfu á skýrslu
um könnun á vegum „BRYT“
um stöðu kvenna hjá 4 stærstu
fyrirtækjum á Akureyri.
■ Byggingafulltrúi kyntiti á
fundi bygginganefndar nýlega,
bréf frá byggingafulltrúa,
slökkviliðsstjóra og heilbrigð-
isfulltrúa til SS Byggis hf., for-
manns húsfélags Hjallalundar
18 og bæjarfógetans á Akur-
eyri, þar sem tilkynnt cr um
bann við notkun bílgeymslu-
kjallara í Hjallalundi 18-22,
vegna hættu sem skapast get-
ur, þar sent ekki hafa verið
uppfyllt ákvæði bygginga-,
heilbrigðisreglugerðar og
reglugerðar um brunavarnir
og brunamál.
■ Hafnarstjórn hefur sam-
þykkt 18% hækkun þjónustu-
gjalda hafnarinnar.