Dagur - 23.01.1990, Síða 3
Þriðjudagur 23. janúar 1990 - DAGUR - 3
fréttir
i
Viðbrögð við framboði Kvennalistans við bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri:
99
Lýðræðið býður upp á framboð
66
Ef marka má viðbrögð fjög-
urra núverandi fulltrúa í
bæjarstjórn Akureyrar við
ákvörðun Kvennalistakvenna
um framboð fyrir næstu kosn-
ingar virðist hún hafa komið
mönnum nokkuð á óvart. Dag-
ur lcitaði álits þeirra Sigríðar
„Byggingaþjónustan er eina
stofnunin á Islandi sem er vett-
vangur húsnæðis- og bygginga-
mála, þ.e. allir þættir sem
snerta vistarverur manna eru á
verksviði fyrirtækisins og okk-
ar daglegu störf eru að upplýsa
Allar líkur eru á því að á þessu
ári verði ráðist í gerð nýrrar
vatnsveitu fyrir Hvammstanga.
Þórður Skúlason, sveitarstjóri,
segir að hér sé um að ræða
mjög kostnaðarsama fram-
kvæmd sem ætla megi að kosti
tæpar 20 milljónir króna.
Vinna við gerð fjárhagsáætlun-
ar fyrir Hvammstangahrepp er að
hefjast þessa dagana og er á
þessu stigi ekki sýnt hverjar
verða helstu áherslur með fram-
kvæmdir á yfirstandandi ári.
Þórður Skúlason segir þó líklegt
að ný vatnsveita verði þar ofar-
lega á blaði.
Þegar vatnsneysla er hvað mest
í plássinu má ekki mikið út af
bera svo ékki verði vatnslaust.
Mývetningum Qölgar:
Arstíðabundið
atvinnuleysi
hjá 25-30 manns
Mývetningum fjölgaði um átta
á siðasta ári eða um H/2% og
voru íbúar Skútustaðahrepps
548 þann 1. des. sl. Síöustu
árin hefur íbúatalan verið á bil-
inu 530-570 manns.
Flestir íbúar voru í Mývatns-
sveit 1984-5, en þá voru 590 íbúar
skráðir í hreppnum.
Atvinnuástand er heldur verra
en á sama tíma í fyrra og hafa 25-
30 manns verið á atvinnuleysis-
skrá síðan í nóvember. Munar
þar mest um að Hótel Reynihlíð
hefur að mestu verið lokað í
vetur, og að Léttsteypan var lok-
uð um tíma og þar vinna færri en
í fyrravetur. Jón Pétur Líndal,
sveitarstjóri, sagði í samtali við
Dag að hann væri vongóður um
að atvinnuástandið færi að lagast,
þar sem um árstíðabundið at-
vinnuleysi væri að ræða í flestum
tilfellum. IM
Stefánsdóttur, Alþýðubanda-
lagi, Úlfhildar Rögnvaldsdótt-
ur, Framsóknarflokki, Freys
Ófeigssonar, Alþýðuflokki og
Jóns Kr. Sólnes, Sjálfstæðis-
flokki á ákvörðun Kvennalist-
ans um framboð til bæjar-
stjórnar í vor.
og fræða fólk um þessa þætti.
Húsnæðisdagar hafa verið
haldnir á okkar vegum í
Reykjavík og nú er tími til
kominn að fara út á land,“ seg-
ir Ólafur Jensson, fram-
kvæmdastjóri Byggingaþjón-
Þórður segir því mikilvægt að
ráða bót á þessu sem l'yrst og í
því sambandi sé rætt um 11 km.
lögn í lind í Vatnsnesfjalli.
„Petta er mjög kostnaðarsöm
framkvæmd og því væntum við
þess að fá lánafyrirgreiðslu úr
Jöfnunarsjóði og Lánasjóði sveit-
arfélaga," segir Pórður. óþh
„Auðvitað getur hver sem er
boðið fram og þarf ekki að spyrja
gömlu flokkana að því. Hins veg-
ar finnst mér það athyglisvert að
þegar Kvennaframboðið bauð
fram árið 1982 lögðu þær mikla
áherslu á að hlutur kvenna í
bæjarstjórn væri lítill. Ég er sam-
ustunnar í Reykjavík, um
„Húsnæðisdaga“ sem haldnir
verða á Akureyri og í Ólafs-
flrði fyrstu helgina í febrúar.
Dagskráin verður á Hótel
KEA laugardaginn 3. febrúar og
þar gefst fólki kostur á að hlýða á
fulltrúa Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins fjalla um húsnæðismál, m.a.
hið nýja húsbréfakerfi. Þá verða
einnig fyrir svörum fulltrúar m.a.
frá Verkamannabústöðum, Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins, lífeyrissjóðunum, bönkum,
tryggingafélögum, Vinnueftirliti
ríkisins, Brunamálastofnun,
Heilbrigðiseftirliti ríkisins, Neyt-
endasamtökum, Húseigendafé-
laginu og einnig Akureyrarbæ en
áætlað er að kynna drög að aðal-
skipulagi fyrir bæinn sem nú er
tilbúið. Dagskráin í Ólafsfiröi
sunnudaginn 4. febrúar verður
mjög hliðstæð en þar mun bærinn
einnig kynna drög að nýju aðal-
skipulagi fyrir Ólafsfjörð.
Ölafur segir að fjölmörgum
aðilum hafi verið gefinn kostur á
taka þátt í „Húsnæðisdögunum"
en á næstu vikum muni ráðast
hversu margir taki boðinu. JÓH
mála því að hlutur kvenna er of
lítill en mér finnst athyglisvert að
þær skuli nú taka ákvörðun um
framboð án tillits til þess hvernig
hlutur kvenna verður á hinum
framboðslistunum. Ég er mikil
baráttukona fyrir því að hlutur
kvenna aukist og kona heíur ver-
ið í forystu fyrir mínum flokki í
tuttugu ár,“ segir Sigríður Stef-
ánsdóttir, bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, segist vera sammála Kvenna-
listakonum í því að atvinnumálin
verði oddamál í kosningunum í
vor. Hins vegar segist Ulfhildur
ekki því sammála aö taka at-
vinnumál kvenna þar sérstaklega
út. Hún segir að núverandi flokk-
ar í bæjarstjórn hafi tvímælalaust
sinnt þeim málaflokkum sem
Kvennalistakonur hafi sett á
oddinn. í því sambandi nefnir
hún samhljóða samþykkt jafn-
réttisáætlunar og í framhaldi af
því ráðningu jafnréttisráðgjafa
„Ég vil segja við þessar konur;
komið í hina pólitísku flokkana
og reynið að koma ykkar sjónar-
miðum þar á framfæri," segir
Úlfhildur.
Spurningunni um hvort Fram-
sóknarflokkurinn óttaðist fram-
boð Kvennalistans svaraði Úlf-
hildur svo að auðvitað óttaðist
flokkurinn alla pólitíska and-
stæðinga, einu gilti hvort hann
héti Sjálfstæðisflokkur, Kvenna-
listi, Alþýöuflokkur eða Alþýöu-
bandalag.
„Lýðræðið býður upp á fram-
boð. Ef viðkomandi frambjóö-
endur fá nægilegt fylgi til að
koma fulltrúum í bæjarstjórn er
ekkert við því að segja," sagði
Freyr Ófeigsson, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins.
Jón Kr. Sólnes, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, sagðist ekki
hafa hugleitt þann möguleika að
Kvennalistinn myndi bjóða fram
við kosningarnar í vor. „Mér líst
ekkert illa á þetta framboð. Ég
tel hins vegar að með þessu séu
konur að keppa innbyrðis." óþh
Fjárhagsáætlun Ólafs-
Qarðarbæjar í vinnslu:
Höfhin og gatna-
gerð ofarlega
á blaði í ár
Gerð fjárhagsáætlunar Ólafs-
Ijarðarbæjar fyrir yfirstand-
andi ár er nú komin á gott
skrið. Að sögn Bjarna Kr.
Grímssonar, bæjarstjóra,
verður fjárhagsáætlunin fyrr á
ferðinni í ár en í fyrra og er
gert ráð fyrir að frá henni verði
gengið í næsta mánuði.
Bjarni segir að ekki liggi fyrir
hverjir verði helstu áhersluþætt-
irnir í fjárhagsáætlun. í fyrra var
höfuðáhersla lögð á íþróttamál,
gerð nýs grasvallar og fyrsta skref
í byggingu íþróttahúss. Áfram
verður haldið með íþróttahúsið
en Bjarni segist búast við að
áhersla verði lögð á hafnarfram-
kvæmdir. Eins og Dagur hefur
greint frá eru 22 milljónir á fjár-
lögum til hafnarinnar í Ólafsfirði
og scgir Bjarni að bærinn muni
að líkindunv einnig leggja fram
fjármagn til hafnargerðarinnar.
Hversu hárt i upphæð verður var-
ið í höfnina er hins vegar óráðið.
Þá nefnir Bjarni að gatnagerð-
in muni væntaniega skipa vegleg-
an sess í framkvæmdaáætlun
ársins. Hann nefnir að ólokið sé
malbikun Túngötu, Brimnesveg-
ar og tengingu Hlíðarvegar við
Aðalgötu. „Ég á ekki von á að
lokið verði við öll þessi verkefni á
árinu. Ég reikna þó með því að
lokiö verði við tenginguna frá
Hlíðarvegi að Aðalgötu og undir-
byggingu í Túngötu," segir
Bjarni. óþh
Rymingar-
sala
til 15. febrúar
15% afsláttur
af öllum veggdúk
Byggingavörur
Lónsbakka
Sími 96-21400
Byggingaþjónustan í Reykjavík með dagskrá á Norðurlandi:
Húsnæðisdagar haldnir á Akur-
eyri og í Olafsflrði í febrúar
Hvammstangahreppur:
Stefiian tekin á nýja
vatnsveitu á þessu ári
- kostnaður við 11 km lögn upp í Vatns-
nesíjall talinn nema tæpum 20 milljónum