Dagur - 23.01.1990, Page 7
Þriðjudagur 23. janúar 1990 - DAGUR - 7
Þór kastaði frá sér sigrinum
- Akureyringarnir voru yfir 69:68 þegar 16 sekúndur voru
eftir og höfðu knöttinn
Þegar aðeins 16 sekúndur voru
til leiksloka í Grindavík í leik
heimamanna og Þórs í Úrvals-
deildinni í körfuknattleik var
staðan 69:68 Þórsurum í vil og
þeir með knöttinn. Allt stefndi
því í sigur Akureyringanna en
fyrir fádæma klaufaskap sendu
þeir knöttinn út fyrir hliðarlínu
og Grindvíkingar brunuðu upp
og skoruðu 70:69. Til að kór-
óna ógæfu Þórsara var dæind
lína á Jón Örn Guðmundsson
strax í næstu sókn er 6 sekúnd-
ur voru leiksloka og til að
stöðva sókn heimamanna var
brotið á Guðmundi Bragasyni.
Hann skoraði úr öðru vítaskot-
inu og tryggði Grindvíkingum
sigur 71:69.
Þórsarar byrjuðu leikinn betur
og voru yfirleitt 3-5 stigum yfir í
fyrri hálfleik. Leikurinn var frek-
ar hraður og fjörugur en hittnin
ekkert sérstök hjá báðum liðum,
eins og sést á skorinu.
Þórsurum tókst ekki að hrista
heimamenn af sér og undir lok
hálfleiksins tóku þeir gulklæddu
góðan kipp og náðu að jafna leik-
inn 35:35 með fjórum stigum í
röð. Þannig var staðan er gengið
var til búningsherbergja.
Jafnræði var með liðunum í
byrjun síðari hálfleiks en síðan
náðu Þórsarar átta stiga forskoti,
47:55, um miðjan hálfleikinn.
Dan Kennard átti þá mjög góðan
kafla en hann var greinilega besti
maður vallarins,
En körfuknattleikurinn er
hverfull. Heimamenn tóku á sig
rögg og náðu forystunni í fyrsta
skipti í leiknum 64:63 er rúmar
fjórar mínútur voru til leiksloka.
Pað var hart barist síðustu
mínúturnar. Þórsarar endur-
heimtu forystuna fljótlega aftur
og höfðu leikinn í hendi sér. En
heppnin var með heimamönnum
og þeir náðu að tryggja sér sigur
á lokasekúndunum á eftirminni-
legan hátt, eins og þegar hefur
verið lýst.
Grindvíkingar sýndu jafnan
leik og er liðið skipað mörgum
jafnsterkum leikmönnum. Ef ætti
að taka einn fram yfir annan þá
var það Hjálmar Hallgrímsson
sem skoraði m.a. fjórar 3 stiga
körfur. Ron Davis var sterkur í
vörninni en hittnin var frekar
slök hjá honum. Guðmundur
Bragason hafði sig ekki eins mik-
ið í frammi eins og oftast áður.
Þórsarar geta nagað sig í hand-
arbökin að hafa kastað frá sér sigr-
inum í þessum leik. Þeirra. besti
maður var Dan Kennard sém var
í miklu stuði í skoruninni og hirti
þar að auki urmul að fráköstum í
bæði sókn og vörn. Jón Örn
Guðmundsson og Konráð Ósk-
arsson áttu einnig ágætis leik.
Dómarar voru þeir Kristján
Möller og Leifur Garðarsson og
sluppu þeir sæmilega frá hlut-
verki sínu.
Stig UMFG: Hjálmar Hallgrímsson
17, Ron Davis 15. Guömundur Bragason
12, Steinþór Helgason 8, Guðlaugur
Jónsson 7. Rúnar Árnason (í, Ólat'ur
Jóhannsson 4 og Eyjólfur Guðlaugsson
2.
Stig Þórs: Dan Kennard 34, Jón Örn
Guðntundsson 13, Konráð Óskarsson 13,
Björn Sveinsson 5, Eiríkur Sigurðsson 4.
MG/AP
Aðalfundur knattspyrnudeildar Þórs:
Sigurður endurkjörinn
- sérstakt kvennaráð sett á laggirnar
Sigurður Arnórsson var endur-
kjörinn formaður knattspyrnu-
deildar Þórs á aðalfundi deild-
arinnar um helgina. Sigurður
hlaut rússneska kosningu og er
þetta fjórða árið sem hann
gegnir stöðu formanns en hann
Steingrímur
í Leiftur
Steingrímur Örn Eiðsson
drengjalandsliðsmaður í knatt-
spyrnu frá Siglufirði er fluttur
til Ólafsfjarðar og leikur með
Leiftri á næsta keppnistíma-
bili.
Steingrímur, sem er 17 ára
gamall, hefur leikið 6 drengja-
landsleiki fyrir íslands hönd.
Hann lék 6 leiki með KS-liðinu í
3. deildinni í fyrra.
var gjaldkeri deildarinnar í tvö
ár þar áður.
Fundurinn var vel sóttur og
voru þar gagnlegar umræður um
árangur deildarinnar á síðasta ári
og markmið Þórsara fyrir kom-
andi ár.
Ásamt Sigurði voru þeir Bene-
dikt Guðmundsson varaformað-
ur, Rúnar Antonsson gjaldkeri,
Friðrik Adolfsson, Guðmundur
Svanlaugsson og Þorsteinn Árna-
son endurkjörnir í stjórn. Reynir
Karlsson og Hákon Hendriksen
gáfu ekki kost á sér áfram en í
þeirra stað koma Gestur Davíðs-
son og Þröstur Emilsson.
Á fundinum var ákveðið að
skipta upp unglingaráðinu og
stofna sérstakt kvennaráð. Svav-
ar Þór Guðjónsson var kosinn
formaður þess ráðs en formaður
hins nýja unglingaráðs var kjör-
inn Óskar Erlendsson.
Karfa:
Bo líklega á förum
Misklíð er nú komin upp í her-
búðum Tindastólsmanna í
körfuknattleik vegna ágrein-
ings um þjálfaramál. Bo Heid-
en, hinn bandaríski Ieikmaður
liðsins, var settur í leikbann
gegn IR á sunnudaginn og lík-
ur benda nú til að Bandaríkja-
maðurinn fari aftur til síns
heima þrátt fyrir að töluvert sé
eftir af keppnistímabilinu.
Aðdragandi þessa máls er sá
að Bo Heiden var aldrei sáttur
við þá ákvörðun stjórnar Tinda-
stóls að setja Kára Marísson af
sem þjálfara liðsins.
- settur úr liðinu gegn ÍR
Bo Heiden.
Þetta orsakaði ýmsa samstarfs-
erfiðleika á æfingunr sem endaði
með því að leikmenn funduðu og
tóku afstöðu með þjálfaranum,
Val Ingimundarsyni, í þessari
deilu.
Ef Bo fer er hann finrmti
Bandaríkjamaðurinn sem fær
reisupassann í Úrvalsdeildinni í
vetur. Fyrstur fór Bandaríkja-
maðurinn hjá Þór en síðan fylgdu
Kanarnir hjá ÍBK, UMFN og
Grindavík í kjölfarið. Það er
greinilegt að það er ekki tekið út
nreð sældinni að vera bandarísk-
ur leikmaður hér á landi um þess-
ar rnundir.