Dagur - 23.01.1990, Side 11
Þriðjudagur 23. janúar 1990 - DAGUR - 11
hér & þar
Bænheyrður á síðustu stundu
38 ára Bandaríkjamaður, Charles
Hisoire að nafni, varð fyrir
óskemmtilegri lífsreynslu 1. júni.
Charles er fatlaður og fer allra
sinna ferða í hjólastól, eftir að
hafa orðið fyrir vinnuslysi um
áramótin. Við slysið lamaðist
hann á báðum fótum.
- fatlaður maður komst í hann krappann á ferð yfir vindubrú
Þennan tiltekna dag var Charles
á ferð milli tveggja borgarhluta.
Veðrið var gott, sunnan andvari,
hiti og sólskin. En til að komast
leiðar sinnar varð Charles að fara
yfir vindubrú, það er brú sem
opnast í miðjunni til að hleypa
skipum í gegn. Þá gerðist nokkuð
sem fáa hefði getað órað fyrir, en
gefum nú söguhetjunni orðið:
„Ég hrópaði og kallaði þegar
ég var var við að brúargólfið fór
að lyftast. Ég sat hjálparvana í
hjólastólnum, mig langaði mest
til að standa upp og hlaupa á
brott en það gat ég vitanlega
Krossinn sýnir staðinn þar sem Charles var staddur
þegar brúin opnaðist. Strikalínan sýnir hvar hann
rann niður.
Hér sést hvernig Charles hékk í brúnni upp á líf og
dauða.
Glaumar komnir á Ma ferð á ný
Danshljómsveitin Glaumar
sem stofnuð var sl. vetur hóf
aftur störf í haust eftir að liðs-
menn sveitarinnar höfðu sinnt
öðrum verkefnum í sumar.
Hljómsveitina stofnuðu þeir
félagar Jakob Jónsson, Jósef
Friðriksson og Eggert Benja-
mínsson en hann gegnir ein-
mitt stöðu hljómsveitarstjóra
hljómsveitarinnar.
Glaumar hafa leikið á dans-
leikjum vítt og breitt um landið
og munu í vetur snúa sér af full-
um krafti að árshátíðum og
þorrablótum, enda hafa liðsmenn
hljómsveitarinnar áralanga reynslu
af slíkum samkomum og hafa
því sett saman efniskrá sem höfð-
ar til allra aldurshópa.
Hljómsveitin Glaumar er frá-
brugðin öðrum hljómsveitum að
því leyti að tækjakoátur hljórii-
sveitarinnar býður upp á hágæða
hljómburð með hæfilegum styrk
fyrir uhcyrcndur, hvort hcldur
sem er í smáum eða stórum salar-
kynnurn.
Nánari upplýsingar eru veittar
í símum 96-22682 (Eggert), 96-
21554 (Jakob) 96-22779 (Jósef).
Charles Hisoire á brúnni. „Ég hélt að mín síðasta stund væri komin.
ekki. Ég veifaöi höndunum og
kallaði eins hátt og ég gat, í þeirri
von að brúarvörðurinn veitti mér
eftirtekt. En allt kom fyrir ekki,
vörðurinn sá mig aldrci.
Brúin hélt áfram að lyftast,
hjólastólinn rann aftur á bak. Ég
setti bremsuna á, en stóllinn hélt
samt áfram að renna eftir malbik-
inu. Ég greip í stálbita með báð-
um höndum, en um leið hallaðist
brúargólfið svo mikið að ég datt
úr stólnum. Hjólastóllinn hrap-
aði beinustu leiö ofan í ána.
Heitt var í veðri, ég svitnaöi á
höndunum og átti fullt í fangi
með að halda ntér. Ég var dauð-
hræddur um að missa takið, og
hélt áfram að kalla á hjálp. Tím-
inn leið hægt, en samt voru þetta
ekki nema tvær mínútur. Ég bað
til Guðs um hjálp, en mér var
Ijóst að kæmi enginn til hjálpar
myndi ég kremjast til bana þegar
brúin væri látin síga niður aftur.
Ég sá eftir að hafa ekki hætt við
að fara yfir brúna þegar viðvör-
unarbjallan hringdi, en ég hélt að
mér myndi takast aö komast yfir
áður en hún opnaöist.
Þá var ég bænheyrður. Maður
nokkur sem hafði verið á ferð
rétt á eftir mér á reiðhjóli heyrði
í ntér, og skyndilega fann ég
hvernig tvær hendur gripu í mig.
Mér var bjargað á síðustu stundu
frá hroðalegum dauðdaga. Ég
verð þessurn manni ævinlega
þakklátur."
MYNDLISTASKOLINN
Á AKUREYRI
Kaupvangsstræti 16
Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri
5. febrúar til 16. maí
Barna- og unglinganámskeið
Teiknun og málun.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku.
5 fl. 12-14 ára. Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð fyrir unglinga.
Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeið. Einu sinni í viku.
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna
Teiknun.
Bryjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Byggingaiist.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Grafík.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Skrift og loturgerö.
ByrjendanámsKeiö. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958.
Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga.
Skólastjóri.