Dagur


Dagur - 27.01.1990, Qupperneq 11

Dagur - 27.01.1990, Qupperneq 11
tómstundir Laugardagur 27. janúar 1990 - DAGUR - 11 Vinsælustu vetraríþróttirnar: ^Skíði skautar Senn rennur sá tíini í hönd Þaö er betra aö taka fyrstu „skautasporin“ nieö varúð, en ænngin skapar meistarann. Meöal „gönguskíðapakki" fyrir þegar skíðin verða bókstaflega rifín niður úr hillunum í geymslunni og þau pússuð og strokin áður en haldið er í skíðabrekkurnar. Norðlend- ingar þurfa ekki að kvarta yfír aðstöðuleysi því mjög góð skíðaaðstaða er t.d. á Siglu- fírði, Ólafsfírði, Dalvík, Akur- eyri og Húsavík. Skíða- og skautaferðir eru aðal tóm- stundagaman fjölda fólks yfír veturinn og er hér ætlunin að fjalla lítillega um þessi tóm- stundaáhugamál, kostnaðinn sem þeint fylgir og fleira. Áður en hægt er að halda í hrekkurnar er talið nauðsynlegt að verða sér út um búnað. í laus- legri verðkönnun sem blaðið framkvæmdi er verð á skíðaút- búnaði afar mismunandi eftir teg- undum og gæðum. Ef litið er á verð á nýjurn svigskíðum kosta þau frá 4.400 krónurn fyrir börn upp í 25.000 handa fullorðnum. Skíðaskór kosta á bilinu 4.500 krónur til 23.000 krónur, bind- ingar frá 3.450 krónum til 10.800, en þar eru á ferðinni sérstakar keppnisbindingar. Skíðastafir fyrir börn kosta um 800 krónur en fyrir íullorðna kosta þeir mest 1.450 krónur. Reikna má með að „pakkinn" fyrir fullorðna kosti um 20.000-30.000 krónur. Mikill verðmunur á fatnaði Næst skulurn við líta á fatnaðinn en betra er að vera vel klæddur þegar haldið er til fjalla. Auðvit- að er hægt að draga fram gamla góða föðurlandið og lopapeysuna og utanyfir að klæða sig í ódýran vindgalla. Margir láta sér það liins vegar ekki nægja og þurfa að fylgja nýjustu tísku, enn aðrir láta gamla gallann duga ef hann passar ennþá. Þeir sem hyggjast kaupa sér nýja skíðagalla geta gert það fyrir 16.900 krónur og allt upp í 28.800 krónur. Hér skipta gæði og gerð mestu máli hvað verðmuninn snertir. Skíða- lúl'fur kosta frá 650 krónum upp í 3.380 krónur, en hanskar frá 1.790 upp í litlar 7.450 krónur, svo það er eins gott að glata ekki slíkum hönskum. Húfur eða eyrnahlífar kosta frá 500 krónum til 1.600 krónur. Milliverð á hlífð- arfötum gæti því verið á bilinu 20.000-25.000 krónur svo heild- arverð fyrir skíði og galla er því um 40.000-50.000 krónur. Það skal á það bent að á Akureyri er rekinn markaður þar sem hægt er að skipta á eldri skíðum. Notuð skíði eru um hclmingi ódýrari en ný, en mest er úrvalið af skíðum fyrir börn, enda þurfa þau vaxtar síns vegna að skipta oft um stærðir. Fimm lyftur í Hlíðarfjalli Þá er að leggja land undir fót og ákváðum við að kanna verð á skíðakortum og fleiru hjá Skíða- stöðum í Hlíðarfjalli. Fáir staðir á landinu bjóða jafn góða skíða- aðstöðu og Skíðastaðir, en á svæðinu eru 5 skíðalyftur, stóla- lyfta og 4 togbrautir. Samtals flytja þessa lyftur 3.300 manns á klukkustund en sú hæsta nær upp í 100 metra hæð. Yfir skíðatíma- bilið er svæðið opið sem hér segir: daglega frá kl. 10.00-11.45 og 13.00-18.45 og þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga til kl. 20.45. Veitingasala er opin í skíðaskálanum alla daga, en í skálanum er sömuleiðis hægt að taka á móti hópum í gistingu og fæði. Allar venjulegar skíðabrautir eru troðnar daglega í Hlíðarfjalli og helstu leiöir eru sömuleiðis flóðlýstar á kvöldin. Á skíða- svæðinu er einnig merkt göngu- braut og er hún sporuð daglega cf þess er þörf. Skíðaleiga er til staðar í Hlíðarfjalli og eru unt 25 pör af skíðum, skóm og stöfum til leigu. Þá fara reglulega fram skíðanámskeið fyrir almenning, auk þess sem hægt er að útvcga skíðakennara fyrir hópa sem sækja staðinn heim. Gjald í lyfturnar í Hlíðarfjalli er nokkuö breytilegt eftir því hvernig það er greitt. Heill dagur í allar lýftur kostar fyrir fullorðna 650 krónur en börn 300 krónur. Hálfur dagur kostar fyrir full- orðna 500 krónur en 200 fyrir börn, eitt kvöld 300 fyrir full- orðna og 160 fyrir börn. Þá er hægt að kaupa vetrarkort sem kosta 9.700 fyrir fullorðna og gilda þau nú til 1. maí 1990. Vetrarkort fyrir börn kosta 4.850 krónur. Frábær gönguskíðaaðstaða Undanfarin ár hefur fyrirtækjum verið boðinn hópafsláttur af vetrarkortum í skíðalyfturnar fyrir starfsmenn, maka þeirra og börn. í boði er 20% afsláttur fyrir 20-30 manna hópa og 30% fyrir 30 manns eða fleiri. Það eru ekki allir skíðamenn sem kæra sig unt að bruna niður brekkurnar og vilja frekar ganga á þar til gerðum brautum. Gönguskíðabúnaöur er að jafn- aði helmingi ódýrari en svig- skíðabúnaður og skulum við líta nánar á þau verð Barnagöngu- skíði kosta frá 4.800 krónur til 6.500. Fyrir fullorðna kosta þau l'rá 5.800-9.600 krónur. Göngu- skíðaskór kosta á bilinu 2.500- 5.200 og bindingar frá 650 til 1.600 en verð á bindingum fer eftir tegund af skóni. Göngu- skíðastafir kosta um 950 krónur. fullorðna kostar á bilmu 11.000- 12.000 krónur. Verslanir selja sérstaka galla fyrir gönguskíðafólk. Þeir gallar eru heldur þynnri en hefðbundnir skíðagallar og kosta frá 10.500- 20.000 krónur. Til vibótar þarf gönguskíöafólk húfu og vettlinga eins og annað skíðafólk. Auk gönguskíðabrautarinnar í Hlíð- arfjalli sem áður hefur verið minnst á, er mjög vinsælt að fara á gönguskíöi í Kjarnaskógi við Akureyri. Brautin er upplýst, troðin og sporuö þegar með þarf og er hún 2,2 kílómetrar að lengd. Við brautina er 70 fer- metra hús með snyrtingum. kaffi- og áburðaraðstöðu. Þrjú skautasvell á Akureyri Skautaíþróttin hefur átt vaxandi fylgi að fagna meðal Akureyr- inga, sérstaklega eftir að vél- frysta skautasvellið var tekið í notkun. Það er Skautafélag Akureyrar sem sér um rekstur svellsins og hefur félagið staðið fyrir æfingum fyrir félagsmenn í vetur. Vélfrysta skautasvæðið er opið fyrir almenning sem hér segir: Oll kvöld nema þriðjudaga kl. 20.30-22.30. Á miðvikudög- um og fimmtudögum kl. 16.00- 18.00 og á laugardögum og sunnudögum kl. 14.00-16.00. Notendum er þó bent á að hafa samband í st'ma 27740 ef vafi leikur á opnun vegna veðurs. Á skautasvæði Skautafélags Akur- eyrar er skautaleiga til staðar fyr- ir þá sem ckki eiga eigin skauta og boðið er upp á skerpingu á skautum fyrir eigendur þeirra. Hafi einhver áhuga á að kaupa sér nvja skauta kosta þeir frá Aknrevríirhæv vér vknni*- Glerárhverfi er skautasvell á mal- arvelli íþróttafélagsins Þórs og í Lundarhverfi á malarvelli Knatt- spyrnufélags Akureyrar. VG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.