Dagur - 15.02.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 15.02.1990, Blaðsíða 1
Mjög að lifna yfir bókunum hjá hótelunum á Akureyri: „Nú er meginmálið að veðrið haldist stillt og gott“ Þegar tími gefst til skjótast krakkarnir í Barnaskóla Akureyrar út á fótboltavöll og sparka tuöru af krafti. Mynd: kl Frumvarp um breytingar á lögum um Húsnæðisstofnun kynnt í gær: Stjórnir Verkamaimabústaða verði lagðar niður „Jú, það er heldur að lifna yfir þessu en meginmálið er að veðrið haldist nú stillt og gott síðari hluta vetrarins og ekki verði stöðugar truflanir á sam- göngum eins og gerðist í fyrra,“ segir Gunnar Karlsson, hótelstjóri á Hótel KEA um Lélegur afli netabáta við Grímsey og Kolbeinsey: „Þetta virðist vera steindautt“ „Blessaður vertu. Það er ekk- ert að hafa, þetta er minna en ekki neitt,“ sagði Hörður Gunnarsson hjá G. Ben á Arskógssandi, þegar hann var inntur eftir fyrstu vikum vetrarvertíðar. Tveir bátar fyrirtækisins, Sæþór og Arnþór, eru báðir farn- ir á net en fengið lítið sem ekkert. Arnþór dró í gær skammt við Kolbeinsey en hafði sáralítið upp úr krafsinu en Sæþór lagði hins vegar netin í gær út af Eystrahorni. Bæði Sæþór og Arnþór hafa farið einn túr austur að Eystra- horni en höfðu einungis um 20 tonn saman upp úr krafsinu. „Mér sýnist allar horfur á því að maður verði að eltast við fisk- inn hringinn í kringum landið. Þetta virðist vera steindautt hérna. Manni finnst það dálítið furðulegt að síðustu þrjú ár virð- ist varla koma fiskur hingað norður fyrir. Það hljóta að vera einhver skilyrði í sjónum sem gera þetta að verkurn," sagði Hörður. óþh Magnús Gauti Gautason, kaupfclagsstjóri KEA, segir óhjákvæmilegt að fækka starfsfólki fyrirtækisins. Hann segir að t.d. verði reynd sú leið að endurráða ekki í þau störf sem losni. „Það verður reynt að taka eins gætilega á þessum mál- um og hægt er og ef þarf að grípa til uppsagna verður reynt eftir mætti að útvega þeim sem verða fyrir barðinu á þeim störf innan KEA eða hjá dóttur- og sameignarfyrir- tækjum.“ betta segir kaupfélagsstjóri m.a. í viðtali í nýútkomnum ---BIBSVHBBBHBBBBBBIHSBSflBHBBESSBHHBBBI bókanir á næstu vikum og mánuðum. Starfsfólk hótelanna á Akur- eyri var sammála um að nú virtist rólegasti tími vetrarins að baki og meira væri um bókanir á næst- unni en verið hafi. Mest er þó bókað um helgar og þar eru áber- andi hópar sem eru að koma í skíðaferðir. Þó er einnig áber- andi aukinn áhugi fólks á að koma til Akureyrar og halda árs- hátíðir og bregða sér í leiðinni á skíði eða í leikhús. Þetta á bæði við um hópa úr nágrannabyggð- unum sem og af Reykjavíkur- svæðinu. „Jú, útlitið er ágætt næstu vik- urnar. Hér var fullt um síðustu helgi og sama er að segja um næstu helgi. Og hvað varðar páskana þá sjáum við fram á ágæta daga þá einnig,“ sagði Olga Örvarsdóttir hjá Hótel Norðurlandi. „Eins og stendur er talsvert um að hópar skólafólks panti gist- ingu en einnig er mikið um pant- anir frá öðrum hópum, bæði vegna skíðaferða og ráðstefnu- halds,“ sagði Francis Eðvarðs- dóttir hjá Hótel Stefáníu. „Ég held að rólegasti tíminn sé að baki, alla vega er mun líflegra um helgar," bætti hún við. JÓH Örvar frystitogari Skagstrend- ings á Skagaströnd er væntan- legur úr slipp næstkomamandi KEA-fregnum. í máli hans kemur m.a. fram að afkoma KEA á síðasta ári hafi batnað frá árinu 1988, hins vegar sé afkoina fyrirtækisins langt frá því viðunandi. Magnús Gauti segir að versl- unarreksturinn sé enn mjög erf- iður, ekki síst vegna minnkandi eftirspurnar almennings á síð- asta ári eftir vörum og þjón- ustu. Fram kemur í viðtalinu að á síðasta ári hafi enn dregist sam- an sala á unnunt kjötvörum frá Kjötiðnaðarstöð KEA. Reynt hafi veriö að bregðast við þess- urn samdrætti með ýmsunt að- gerðum en þær hafi ekki enn bbbbbbbbbbb——— Á blaöamannafundi í gær kynnti Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráöherra nýtt frum- varp til laga um breytingar á félagslega húsnæðiskerfinu. Endurskipulagning á kerflnu hefur staðið yfir frá því í maí laugardag en hann hefur verið frá veiðum síðan 2. janúar síð- astliðinn. Gagngerar breyting- skilað þeim árangri sem aö hafi veriö stefnt. Hins vegar kemur fram hjá Magnúsi Gauta að Mjólkursam- lag KEA sýni nú betri rekstur en árið 1988. Ástæðuna segir hann þá leiðréttingu sem fengist hafi á verðlagningu samfara því að tekist liafi að lækka kostnað og hagræða í rekstri. Um árið 1990 segist kaupfé- lagsstjóri KEA vera nokkuð vongóður. Ef takist að halda nýgerða kjarasamninga muni atvinnurekstur vcrða mun auð- veldari viðfangs og ákvarðanir og áætlanagerð markvissari. óþh 1988 og í júlí 1989 skipaði ráð- herra nefnd til starfa sem skil- að licfur tillögum um endur- skipulagningu og framtíðar- skipan félagslega húsnæðis- kerflsins. Frumvarpið var kynnt í ríkisstjórninni á þriðju- ar voru gerðar á millidekki skipsins, sett ný blóðgunarkör ásamt nýju færibandakerfl og skipið yflrfarið á allan hátt. Jafnframt fór áhöfn skipsins í björgunar- og slysavarnaræf- ingar. Atvinnuástand á Skagaströnd hefur verið nokkuð gott það sem af er árinu og næg vinna verið í frystihúsinu. Örvar, frystitogari Skagstrendings hf., fer væntan- lega á veiðar næstkomandi laug- ardag eftir breytingar á milli- dekki og almenna yfirferð. Að sögn Sveins Ingólfssonar, framkvæmdastjóra Skagstrend- ings, er atvinnuástand nokkuð gott og kemur til með að batna þegar Örvar kemst á veiðar. Arnar, ísfisktogari Skagstrend- ings, landaði góðurn afla á mánu- dag og er nú á veiðum en hann hefur séð frystihúsinu fyrir nægu hráefni til að halda uppi vinnu það sem af er árinu. Að sögn framkvæmdastjóra Skagstrendings hf. er gott hljóð í Skagstrendingum og menn bjart- sýnir á nýhafið ár. „Ef tíð verður skapleg þá verður þetta ágætis ár,“ sagði Sveinn. kg dag og í gær í þingflokkunum. Nefndin skilaði sameiginlegum niðurstöðum í fernu lagi. í fyrsta lagi drög að frumvarpi til laga um Húsnæðisstofnun ríkisins þar sem kafiinn um félagslega hús- næðiskerfið er endurskoðaður. í öðru lagi tillögur um breytt skipulag Húsnæðisstofnunar ríkisins og stjórn húsnæðismála í landinu, í þriðja lagi tillögur um húsaleigubætur, leigumiðlanir og aukið framboð leiguhúsnæðis og í fjórða lagi tillaga um endur- skoðun laga urn húsaleigusantn- inga. Nefndin lagði ríka áherslu á að jafna mun milli leigjenda og eigenda íbúða. í nefndinni voru fulltrúar frá Félagsmálaráðuneytinu, Hús- næðisstofnun, ASÍ, BSRB, VMSÍ, samtökunum Þak yfir höfuðið, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Alþýðuflokknum, Framsóknarflokknum og Alþýðu- bandalaginu. Að sögn félags- málaráðherra náðist góð sam- staða í nefndinni en ólík sjón- armið og áherslumunur kom fram varðandi skipan í húsnæðis- nefndir sveitarfélaga. Meðal breytinga í frumvarpinu má nefna að lagt er til að stjórnir Verkamannabústaða og leigu- nefndir sveitarfélaga verði lagðar niður og húsnæðismál sveitar- félaga verði sett undir sérstakar húsnæðisnefndir sveitarfélaga. í húsnæðisnefndum eigi sæti þrír fulltrúar sveitarfélagsins kjörnir af sveitarstjórn og tveir fulltrúar tilnefndir af stærstu samtökum launafólks í sveitarfélaginu. Jóhanna Sigurðardóttir vildi leggja áherslu á að húsnæðis- nefndirnar verði alfarið á ábyrgð sveitarfélaganna og þannig tækist að samræma húsnæðismál innan viðkomandi sveitarfélags. -bjb Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri KEA: Óhjákvæmilegt að fækka starfsfólki - aíkoma KEA hefur batnað frá 1988 en er langt frá því viðunandi Skagaströnd: Togarinn Örvar væntanlegur úr slipp - heldur á veiðar næstkomandi laugardag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.