Dagur - 15.02.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 15. febrúar 1990
Ófærðin á Akureyri:
Mikið að gera á bif-
reiðaverkstæðunum
Slæm færð undanfarið hefur
gert mörgum bfleigandanum á
Akureyri gramt í geði. Tals-
vert hefur verið um minnihátt-
ar tjón á bílum, en bleytan og
slabbið hafa auk þess stundum
miður æskileg áhrif á rafkerfi
ökutækja.
í samtali Dags við forráða-
menn nokkurra bifreiðaverk-
stæða kom fram að talsverð vinna
hefur verið á verkstæðunum
undanfarnar vikur sem rekja má
til vetrarveðráttunnar. Raki safn-
ast stundum saman í kveikjulok
hreyfla þegar frost og þýða skipt-
ast á, og veldur gangtruflunum.
Einnig kemur fyrir að kertaleiðsl-
ur blotna þegar vatn úr pollum
skvettist upp undir vélarhlífar
bifreiða.
„Pað hefur verið töluvert mikil
vinna hjá okkur undanfarið,
alveg frá áramótum, bæði vegna
tjóna og gangtruflana. Verkefnin
koma í bylgjum. Það eru sveiflur
í þessu, en ég get ekki sagt annað
en að það hafi verið ágætt að gera
undanfarið," segir Ellert Guð-
STAK sam-
þykkti eigin
samning
í frétt í Degi í gær þar sem fjallað
er um að STAK hafi samþykkt
kjarasamningana segir að þeir
hafi samþykkt kjarasamning
ríkisins og BSRB.
Hið rétta er að starfsmenn
Akureyrarbæjar voru að greiða
atkvæði urn samning STAK og
Launanefndar sveitarfélaga sem
semur fyrir hönd Akureyrarbæj-
ar. Efnisatriði saminganna
tveggja eru þó svotil alveg sam-
hljóða. VG
jónsson, framkvæmdastjóri Þórs-
hamars hf.
Hallgrímur Gíslason, verk-
stjóri vörubifreiðaverkstæðis
Þórshamars, segir að slæm færð
hafi ekki merkjanleg áhrif á bil-
anatíðni vörubíla. „Það er und-
antekning að nokkuð brotni í stóru
bílunum, heilu veturnir líða án
þess að við fáum hingað öxul- eða
drifbrotinn vörubíl. Þetta er orð-
ið svo sterkt og algengt að niður-
gírun sé úti í hjólunum þannig að
aðalátakið er þar. En það er
sæmilegt að gera hérna,“ segir
Hallgrfmur.
„Eg hef orðið var við mikið af
smátjónum á bílum sem enginn
veit hvernig hafa orðið. Menn
koma líka meira út af gagntrufl-
unum og öðru slíku í svona
veðráttu en annars, en hérna á
verkstæðinu hefur verið mikið að
gera frá áramótum,“ segir
Sigurður Valdimarsson, sem rek-
ur samnefnt bifreiðaverkstæði.
„Það er töluvert að gera hjá
okkur," segir Ingi Þór Jóhanns-
son hjá Bílasölunni hf. „Tjónin
koma jafnt og þétt allan ársins
hring. Þau hafa ekki aukist
undanfarið, finnst mér. Mér
finnst vera að lifna mikið yfir við-
gerðavinnunni núna en hvort
maður á að setja það í beint sam-
band við færðina og snjóinn veit
ég ekki, bílar eru ekki jafn næmir
fyrir bleytu nú og áður fyrr,“ seg-
ir Ingi Þór.
Óskar Pétursson, verkstjóri
hjá bifreiðaverkstæði Höldurs,
segir að mikið sé að gera í tjóna-
viðgerðum á verkstæðinu. „í
kringum síðustu mánaðamót var
töluvert um stærri tjón á bílum
en þau tjón sem koma núna eru
flest minniháttar. Við verðum
aðeins varir við að fólk kemur
meira vegna raka og annars sem
rekja má til veðráttunnar en það
er ekki mikið, þetta er orðið svo
vel varið í flestum bílum núna,“
segir Óskar. EHB
Tilboð
BayonesKinKa
kr.
Rúllupylsa, heil
kr.
KjúKlingabitar
kr.
9 Kg
9 kg
9 k9
Kjörbúð KEA
Brekkuqötu 1
Þessa viku huga krakkarnir í Barnaskóla Akureyrar að íslenskum gróðri. Það leyndi sér ekki í gær að krakkarnir
hafa gaman af þessu verkefni. Mynd: kl
Opin vika í Barnaskóla Akureyrar:
Fasta stimdaskráin vék
fyrir íslenska gróðrinum
Þessa vikuna stendur yfir opin
vika í Barnaskóla Akureyrar
og er íslenskur gróður viðfangs-
efni barna og kennara í vik-
unni. Skólanum er skipt upp í
nokkur svæði og blandast því
nemendur saman í skólastarf-
inu óháð aldri. Opnar vikur af
þessu tagi eru orðinn fastur lið-
ur í starfi skólans og meðal
þeirra viðfangsefna sem tekin
hafa verið fyrir eru fiskar,
Akureyri og fuglar.
„Þau eru meðal annars að ræða
um gróður í þéttbýli, læra að
þekkja íslenskar jurtir, læra
jurtalitun, fræðast um trjáteg-
undir og yrkja um blóm. í þessu
starfi er því komið inn á fjöl-
margt tengt gróðri,“ segir Soffía
Stephensen, yfirkennari í Barna-
skóla Akureyrar í samtali við
blaðið.
Soffía segir að hefðbundin
stundaskrá hafi verið lögð til
hliðar þessa vikuna en þess í stað
fái börnin fyrirmæli frá sínum
umsjónarkennara á hverjum
morgni á hvaða svæði þau eigi að
vera. Kveikjan að þessu efni seg-
ir Soffía vera landgræðsluátak í
landinu og vöntun á umfjöllun
um gróður í kennslubókum
barna. „Það hefur ekki verið
endurskoðað og unnið upp nýtt
námsefni um gróður þannig að
lítið fer fyrir þessum málum í
kennslubókunum," segir Soffía.
Áhugi barnanna á þessu efni
hefur reynst mikill og í ljós hefur
komið að börnin hafa misjafna
þekkingu á þessu sviði. „En þetta
er gaman og áhuginn er mikill hjá
öllum og til marks um það höfum
Kaupmáttur minnkaði um 8%
frá þriðja ársfjórðungi 1988
fram að sama ársfjórðungi í
fyrra þegar miðað er við að
tímakaup landverkafólks í
Alþýðusambandinu hækkaði
að meðaltali um 10% á þessu
tímabili og framfærsluvísitalan
um 19%. Þetta kemur fram í
fréttabréfi Kjararannsóknar-
nefndar.
Ef litið er á hækkun mánaðar-
tekna á sama tímabili, þ.e. hækk-
un heildarlauna með yfirvinnu,
þá er kaupmáttarrýrnunin aðeins
minni, eða 7%. í því sambandi
má geta þess að kannanir Kjara-
rannsóknarnefndar sýndu að
meðalfjöldi vinnustunda fólks í
fullu starfi dróst verulega saman
milli áranna 1987 og 1988. Á
árinu 1989 hefur vinnutími hins
við verið að veita því athygli að
klósettferðir hafa alveg dottið út
þessa vikuna,“ sagði Soffía.
JÓH
vegar nánast staðið í stað miðað
við árið 1988.
í úrtakstöflu Kjararannsóknar-
nefndar yfir starfsgreinar má sjá
að mánaðartekjur skrifstofukarla
hækkuðu mest á umræddu tíma-
bili, eða um 19,1%, úr rúmlega
105 þús. kr. í tæplega 122 þús kr.
Kaupmáttur þeirra stóð í stað.
Mánaðartekjur skrifstofukvenna
hækkuðu um 15,3%, iðnaðar-
manna um 11,2% og eru þeir
jafnframt tekjuhæstir af úrtaks-
hópunum með 123.500 kr. á
mánuði. Mánaðarlaun verka-
manna hækkuðu um 9,6%, af-
greiðslukvenna um 8,6%, verka-
kvenna um 7,5% og verkakarla
um 4,3%. Kaupmáttur hinnar
síðastnefndu minnkaði um
,12,,3% en meðaltalið er um 7%
eins og áður sagði. SS
Fréttir frá Kjararannsóknarnefnd:
Kaupmáttur minnkaði um
7-8% milii áranna ’88 og ’89
- mánaðarkaup skrifstofufólks
hækkaði mest
Skákþing Akureyrar:
Hörkukeppni í öllum flokkum
- úrslitin ráðast um helgina
Bogi Pálsson er efstur í A-
flokki á Skákþingi Akureyrar
eftir sjö umferðir með 5 vinn-
inga, en staðan er tvísýn vegna
biðskáka. Stefán Andrésson
trónir í efsta sæti í B-flokki
með 6 vinninga af sjö möguleg-
um. Biðskákir verða tefldar í
kvöld en Akureyrarmótinu
lýkur um helgina. Lítum á
stöðuna eins og hún er í dag.
A-flokkur: 1. Bogi Pálsson 5 v.
2. Rúnar Sigurpálsson 41/2 v. 3.
Magnús Pálmi Ornólfsson 3'/2 v.
og 2 biðskákir. 4.-5. Reimar Pét-
ursson og Jón Árni Jónsson 3/2 v.
6. Gylfi Þórhallsson 3 v. og 2 bið-
skákir. 7. Þór Valtýsson 3 v. og
biðskák.
B-flokkur: 1. Stefán Andrés-
son 6 v. 2. Þórleifur Karlsson 5 v.
3. Smári Teitsson 4 v. og bið-
skák. 4. Örvar Arngrímsson 3/2
v. og biðskák.
í unglingaflokki hafa verið
tefldar fjórar umferðir. Þar eru
Þórleifur Karlsson og Smári
Teitsson efstir með 3/2 vinning
og síðan kemur Örvar Arngríms-
son með 3.
Eftir 9 umferðir af 13 í drengja-
flokki eru þrír efstir og jafnir
með 7/2 vinning, þeir Páll
Þórsson, Gestur Einarsson og
Magnús Ásbjörnsson. Fjórði er
Einar Jón Gunnarsson með 7
vinninga.
Biðskákir verða tefldar á
fimmtudagskvöld, 8. umferð á
föstudagskvöld og 9. umferð á
sunnudag. Þar með lýkur keppni
í A- og B-flokki. Lokasprettur-
inn verður án efa spennandi, t.d.
mætast Bogi og Rúnar í 8.
umferð. Keppni í yngri flokkun-
um lýkur á laugardag. SS