Dagur - 15.02.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. febrúar 1990 - DAGUR - 3
-J
fréttir
Ólafs^örður:
Fasteignagjöldin lækkuð um nálægt 10%
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar sam-
þykkti í fyrradag að lækka fast-
eignagjöld af íbúðarhúsnæði í
bænum um nálægt 10 prósent.
Fasteignastuðull er lækkaður
úr 0,44 í 0,40. Þessi lækkun
svarar til 3500 króna lækkunar
á 35 þúsund króna álögðu fast-
eignagjaldi á þessu ári. Stuðull
fasteignagjalda á atvinnuhús-
næði í Ólafsfirði verður 1,15 í
ar.
Gjaldskrá hitaveitu og leikskóla í Ólafsfirði:
Fryst út þetta ár vegna
nýgerðra kjarasamninga
Bæjarstjóm Ólafsfjarðar hefur
ákveðið að frysta gjaldskrá
Hitaveitu ólafsfjarðar út þetta
ár. Birna Friðgeirsdóttir lagði
fram tillögu á bæjarstjórnar-
fundi í fyrrakvöld um að vegna
nýgerðra kjarasamninga bæri
bænum að leggja sitt af mörk-
um með því að fresta öllum
fyrirhuguðum hækkunum á
hitaveitu og leikskóla.
Að sögn Bjarna Kr. Grímsson-
ar er tekið fram að ef lagður
verði á svokallaður orkuskattur
áskilji bæjarstjórn sér rétt til að
hækka gjaldskrá.
Bjarni segir að Ólafsfirðingar
liafi legið undir gagnrýni vegna
hækkunar á gjaldskrá hitaveit-
unnar 1. febrúar sl. „En það er
allt í lagi að fram komi að við
erum með næst ódýrstu hitaveitu
á landinu ásamt með Húsvíking-
um og Dalvíkingum. Rúmmetr-
inn af heitu vatni hjá okkur ,er
seldur á 25.90 krónur meðan að
rúmmetrinn á Akureyri er seldur
á um 100 krónur. Eg hygg að
hækkunin á síðustu tveimur árum
á gjaldskra Hitaveitu Akureyrar
nemi öllum orkukostnaði í Ólafs-
firði.
Þessi nokkurra aura hækkun 1.
febrúar var hugsuð til að trvggja
rekstraröryggi Hitaveitu Ólafs-
fjarðar. Hins vegar teljum við
hitaveituna vel búna og byggja á
það gömlum merg að við treyst-
um okkur til að frysta frekari
hækkanir út þetta ár,“ sagði
Bjarni. óþh
Björn Valur Gíslason, fulltrúi í minnihluta
bæjarstjórnar Ólafsíjarðar:
Ekki öll sagan sögð af
lækkun fasteignagjalda
- tillögu minnihluta um lækkun fasteignagjalda
af atvinnuhúsnæði vísað frá
Björn Valur Gíslason, einn af minnihlutinn hafi lagt til að fallið
þremur fulltrúum í minnihluta yrði frá öllum gjaldskrárhækkun-
bæjarstjórnar Ólafsfjarðar, um, orkusölu og öðrurn gjöldum
segir að í fréttum af lækkun af þjónustu bæjarins
fasteignagjalda í Ólafsfirði,
hafi þess ekki verið getiö að
minnihlutinn hafi lagt til að öll
fasteignagjöld, af bæði
atvinnu- og íbúðarhúsnæði,
yrðu lækkuð. Meirihlutinn hafi
hins vegar vísað tillögunni frá
og sainþykkt einungis lækkun
á íbúðarhúsnæði.
Björn Valur segir ennfremur
að ekki hafi komið fram að
„Meirihlutinn vísaði tillögu
okkar frá en samþykkti frávísun-
artillögu forseta bæjarstjórnar
um að lækka aðeins fasteigna-
gjöld af íbúðarhúsnæði og hækka
hitaveitugjaldskrá ekki meira á
árinu, með þeim fyrirvara að
ekki yrði lagður orkuskattur á
hitaveitur.
Það er rétt að taka fram að
gjaldskrá hitaveitunnar var
hækkuð á nefndum bæjarstjórn-
arfundi afturvirkt til 1. janúar sl.
og með þeirri hækkun hefur hita-
veitan hækkað á einu ári um 30
prósent. Leikskólagjöldin voru
hækkuð í síðasta mánuði og því
eru öll þessi gjöld nýlega
hækkuð," sagði Björn.
Hann sagði ennfremur að ekki
hefði komið fram að meirihluti
bæjarstjórnar hafi samþykkt á
bæjarstjórnarfundinum sl.
þriðjudag gegn atkvæðum full-
trúa minnihluta að verða við
beiðni Tónskóla Ólafsfjarðar um
10% hækkun skólagjalda á þess-
ari önn. óþh
Fyrsti formlegi viðræðufundur Alþýðubandalags- og
Alþýðuflokksfólks á Dalvík í gær um sameiginlegt framboð:
Hugmyndir okkar virðast faJla
saman eins og flís við rass
- segir Þóra Rósa Geirsdóttir, bæjarfulltrúi
í gær var fyrsti formlegi við-
ræðufundur fulltrúa Alþýðu-
flokks- og Alþýðubandalags-
fólks á Dalvík um sameiginlegt
framboð þess við bæjarstjórn-
arkosningarnar á Dalvík.
Eins og Dagur hefur áður
greint frá gerði Alþýðubanda-
lagsfélagið á Dalvík samþykkt í
síðasta mánuði þar sem íýst var
yfir vilja til samfylkingar vinstra
fólks í kosningunum í vor og
ákveðið að leita eftir samstarfi
við Alþýðuflokksfólk. Þessu
erindi svaraði Alþýðuflokksfólk
jákvætt sl. þriðjudagskvöld og í
framhaldi af því var ákveðinn
fyrsti viðræðufundur í gær. Á
fundinum voru fimm fulltrúar
beggja flokka.
Þóra Rósa Geirsdóltir, fulltrúi
Alþýðubandalags og annarra
vinstri manna í bæjarstjórn Dal-
víkur, sagði í samtali við Dag fyr-
ir fundinn í gær að hún væri mjög
bjartsýn á sameiginlegt framboð.
„Þær hugmyndir sem við höfum
annars vegar og þær hugmyndir
sem Alþýðuflokksfólk het'ur hins
vegar um sameiginlegt framboð
virðast falla eins og flís við rass,“
sagði Þóra Rósa. óþh
Samningamir samþykktir
á Hofsósi
Samningarnir voru samjiykktir
hjá Yerkalýðsfélaginu Arsæli á
Hofsósi á þriðjudaginn.
Að sögn Agnesar Gamalíels-
dóttur formanns voru samning-
arnir samþykktir með öllum
greiddum atkvæðum. Frekar
dræm mæting var á fundinn,
aðcins 9 mættu. Jón Karlsson
skýrði samningana fyrir fundar-
gestum og án neinnar umræðu
voru þeir samþykktir eins og
áður sagði. kj
Vegna breyttra tekjustofna-
laga var um síðustu áramót
ákveðið að lækka fasteigna-
gjaldsstuðul úr 0,62 í 0,44. Þetta
var gert, að sögn Bjarna Kr.
Grímssonar, bæjarstjóra, í því
skyni að bærinn héldi hlutfalls-
lega sömu tekjum af fasteigna-
gjöldum og hann hafði áður haft.
„Okkur er heimilt aö hafa stuöul-
inn 0,625 en þá hefði sú gífurlega
hækkun sem varð vegna hækkun-
ar á álagningarstofninum komið
fram,“ scgir Bjarni. „Við erum
enn að vinna í fjárhágsáætlun og
töldum okkur fært aö vera í 0,44
til þess að reyna halda svipuöum
tekjum þannig að fasteignagjöld-
in sem slík hækkuðu ekki ineira
en sem næmi hækkun á bygging-
arvísitölu milli ára. Nú er komið í
ljós að hækkunin verður ekki
sem nemur byggingarvísitölu
milli ára, en er í raun raunlækkun
frá síðasta ári."
Bjarni segir að með raunlækk-
un fasteignagjalda á þessu ári
verði bæjarfélagið vissulega af
nokkrum tekjum. ,.Á móti ber aö
horfa á það að Ólafsfjörður er
skuldugt sveitarfélag og við ætl-
um að vegna minnkandi fjár-
magnskostnaðar rnuni skuldir
okkar og vaxtagreiðslur jafnvel
minnka meira en sem nemur
þeim fjármunum scm við verðum
af vegna raunlækkunar fasteigna-
gjalda." óþh
DAGUR
Sauðárkróki
S 95-85960
Xorðlcnskt dagblað
Rækjuverksmiðjan
, Sigló:
Akvörðun um
sölu tekin
á næstunni
Fjármálaráðuneytið sendi
fyrir skömmu bréf til hluta-
félaganna tveggja sem
áhuga hafa lýst á að kaupa
rækjuverksmiðju Sigló á
Siglufirði, þar sem verk-
smiöjuhúsið og hluti véla-
kostsins var boðinn til sölu.
Sveinbjörn Óskarsson,
deildarstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, segir að ákveðinn
frestur hafi veriö gefinn til að
svara bréfi þessu, og hafi svör
borist bæði frá Sunnu hf. og
Sigluncsi hf. áður en hann
rann út.
Svcinbjörn vildi ekki gefa
nánari upplýsingar um tilboö
hlutafélaganna í eigur Sigló.
Ríkissjóður keypti eignirnar á
90 milljónir króna, og sagði
Sveinbjörn að ríkið vildi fá
það fé til baka.
Þegar Siglunes hætti starf-
semi sinni og verksmiöjan var
slegin ríkinu urðu flestir
starfsmennirnir atvinnulausir.
Viðbragða fjármálaráðuneyt-
isins hefur veriö beöiö með
eftirvæntingu í bænum, en nú
virðist lausn málsins vcra á
næstu grösunt. „Viö gefum
okkur mjög skamman tíma
núna,“ sagöi Sveinbjörn,
aðspurður um það hvenær
niðurstaða liti dagsins Ijós.
Samkvæmt heimildum Dags
á Siglufiröi vill fjármálaráðu-
neytið selja verksmiðjuna á
100 milljónir króna. og verði
ákvörðun um söluna tekin fyr-
ir mánaðamót. EHB
UNNUHÍB
Föstudagur kl. 15.00-18.30
Nektarkynning
frá Sól
★
ídýfur, kex og kökur
frá Sanitas
★
TILBOÐ
Kjúklingahlutar
nú kr. 579,- áður kr. 670,-
Opnunaitími frá kl. 09.00-20.00
mánudag til föstudag
og laugardaga frá kl. 10.00-20.00.
Kjörbúö KEA
Sunnuhlíö
N