Dagur - 15.02.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 15. febrúar 1990 - DAGUR - 11
íþróttir
Getraunir:
Þórupp-
fyrir KA
I fyrsta skipti í langan tíma
tókst Þórsurum að skjótast
upp fyrir KA í sölu hjá íslensk-
um getraunum. Þetta er einnig
í fyrsta skipti sem bæði Akur-
eyrarliðin eru inni á Topp-10
listanum yfir landið á sama
tíma. Þór er í 9. sæti en KA í
10. sæti.
Þórsarar seldu í síðustu viku
5.859 raðir en KA-menn 5.569
raðir.
Að vanda eru Reykjavíkurlið-
in Fram og Fylkir langsöluhæst
en nokkru á eftir koma ÍA og
KR.
Vert er að benda tippurum á
að misritast hefur á stöðublaði
getrauna leikur nr. 2 á getrauna-
seðlinum. Þar er sagt að Crystal
Palace eigi að leika við Rother-
ham en það rétt er að Crystal Pal-
ace á að leika við Rochdale og er
sá leikur liður í 5. umferð FA-
bikarkeppninnar.
Sjónvarpsleikur vikunnar
verður viðureign Oldham og
Everton í gerfigrasinu í Oldham.
Sá leikur er að sjálfsögðu í Bik-
arnum enda er Oldham í 2. deild.
Oldham-liðið er sterkt á heima-
velli þannig að þetta er sýnd veiði
en ekki gefin fyrir Liverpool-
liðið.
Jón Örn Guðmundsson og félagar í Þór náðu sér ekki á strik gegn ÍBK.
Mynd: KL
Bikarkeppni KKÍ:
Þór tapaði í
NBA-tölu leik
„Það er alltaf svekkjandi að
tapa leik og það er enn meira
svekkjandi að tapa leik þar
sem liðið skorar yfir 100 stig.
Það er hins vegar enginn upp-
gjafartónn í okkur og við ætl-
uni að láta Keflvíkinga hafa
fyrir hlutunum í seinni leiknum
á Akureyri á sunnudaginn,“
sagði Gylfi Kristjánsson liðs-
stjóri Þórsliðsins í körfuknatt-
leik en Iiðið tapaði 133:103 fyr-
ir ÍBK í Bikarkeppni KKI í
Keflavík á þriðjudagskvöldið.
Leikur ÍBK og Þórs var
skemmtilegur á að horfa. Mikill
hraði var í leiknum og hittni
leikmanna var góð en hins vegar
var varnarleikur beggja liða ekki
upp á marga fiska eins og sjá má
af lokatölunum.
Þórsarar byrjuðu ágætlega og
héldu í við Islandsmeistarana.
Þegar staðan var 18:17 tóku hins
vegar Keflvíkingarnir mikinn
kipp og breyttu stöðunni í 31:19.
Þann mun tókst Þórsurum
aldrei að vinna upp. Staðan í
leikhléi var 59:36.
Gestirnir byrjuðu síðari hálf-
leik ágætlega og minnkuðu mun-
inn í 67:53. Síöan kom aftur
ágætur leikkafli er Þór breytti
stöðunni úr 93:68 í 93:76.
En þá var draumurinn búinn
fyrir Þórsara og heimamenn sigr-
uðu með 30 stiga mun, 133:103,
eins og áður sagði.
Bestu menn Þórs voru þeir
Dan Kennard og Konráð Óskars-
so_n. Kennard var drjúgur í vörn
og sókn og Konráð barðist nijög
vel allan tímann. Aðrir lykil-
menn Þórsara fóru allt of seint í
gang til að hafa áhrif á gang
mála.
Guöjón Skúlason átti frábæran
leik fyrir ÍBK og einnig var
Sandy Anderson drjúgur og tróð
nokkrum sinnum með miklum
tilþrifum fyrir áhorfendur.
Dómarar voru þeir Kristinn
Albertsson og Bergur St.cin-
grímsson og sluppu þeir þokka-
lega frá leiknum.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 36. Sandy
'Ándcrson 27. Sigurður Ingimundarson
19. Magnús Guðfinnsson 19. Falur Harð-
arson 16, Albert Óskarsson 7. Einar Ein-
arsson 5, Nðkkvi Jónsson 2 og Kristinn
Ingólfsson 2.
Stig Þórs: Dan Kennard 39. Konráö
Óskarsson 23, Guðntundur Björnsson
12, Eiríkur Sigurösson 8, Jóhann Sig-
urðsson 8, Jón Örn Guðmundsson 8,
Björn Sveinsson 2, Stefán Friðleifsson 2
og Ágúst Guðmundsson I. MG/AP
Úrvalsleikur í knattspyrnu:
Sex KA-menn í líðínu
Júlíus sá eini frá Þór
Eins og sagt var frá í Degi í
síðustu viku verður úrvalsleik-
ur í knattspyrnu á gervigras-
vellinum í Laugardal á sunnu-
daginn vegna komu Bo Johans-
son, hins nýja landsliðsþjálfara
í knattspyrnu. Leikurinn verð-
ur á milli úrvalsliðs landsins
sem Guðjón Þórðarson velur
og úrvalsliðs Reykjavíkur sem
Asgeir Elíasson velur. Liðin
hafa verið valin og á KA 6
menn í Landsliðinu og Þór 1.
KA á flesta leikmennina í
Landsliðinu en valdir voru menn
frá sex liðum, KA, FH, ÍA, Þór,
ÍBV og Stjörnunni. Þar að auki
var Ólafur Gottskálksson valinn í
liðið til þess að hafa fjóra bestu
markmenn landsins í leiknum.
Reykjavíkurúrvalið er að
mestu skipað leikmönnum frá
KR, Val og Fram. Síðan eiga
Fylkismenn einn mann en athygli
vekur að enginn Víkingur kemst
í liðið. En lítum þá á liðin tvö.
Það skal þó tekið fram að ekki
hafa allir þessir leikmenn gefið
svar hvort þeir ætla að vera með
eður ei.
Landið:
Haukur Bragason KA
Erlingur Kristjánsson KA
Bjarni Jónsson KA
Ormarr Örlygsson KA
Alexander Högnason KA
Kjartan Einarsson KA
Júlíus Tryggvason Þór
Björn Jónsson FH
Ólafur Kristjánsson FH
Andri Marteinsson FH
Hörður Magnússon FH
Sigurður B. Jónsson ÍA
Haraldur Ingólfsson ÍA
Sigursteinn Gíslason ÍA
Hlynur Stefánsson ÍBV
Tómas I. Tómasson ÍBV
Ingólfur Ingólfsson Stjörnunni
Ólafur Gottskálksson KR
Reykjavík:
Birkir Kristinsson Fram
Kristján Jónsson Fram
Viðar Þorkelsson Fram
Dregið í bikarnum í fótboltanum:
Leiftur fær Völsung
- TBA og Magni á Akureyri
yfir í 1. urnferð og þar á meðal
Tindastóll, Neisti, Hvöt og HSÞ-
í gær var dregið í 1. umferð
bikarkeppni KSÍ en þá eru
neðri deildarliðin í pottinum.
Fyrir okkur norðanmenn eru
athyglisverðustu drættirnir
viðureignir Leifturs og
Völsungs, Dalvíkur og KS og
TBA og Magna. Síðan hefur
Umf. Langnesinga tilkynnt
þátttöku og fær Reyni Á. í
heimsókn.
Síðan eru nokkur lið sem sitja
b.
Það er athyglisvert að Leiftur
og Völsungur mætast enn eina
ferðina í bikarnum en þessi lið
hafa oft háð harða baráttu í þess-
ari keppni. Síðan má líka búast
við hörkuleik á Dalvík er heima-
menn taka á móti Siglfirðingunt.
Áætlað er að þessir leikir fari
fram 26. maí næstkomandi.
Kristinn R. Jónsson Fram
Þorsteinn Þorsteinsson Fram
Baldur Bjarnason Fram
Guðmundur Steinsson Fram
Pétur Arnþórsson Fram
Bjarni Sigurðsson Val
Sævar Jónsson Val
Ingvar Guðmundsson Val
Antony Karl Gregory Val
Steinar Adolfsson Val
Rúnar Kristinsson KR
Gunnar Oddsson KR
Anton Jakobsson KR
Gunnar Skúlason KR
Pétur Pétursson KR
Örn Valdimarsson Fylki
Bjarni Jónsson leikur með Úrvalsliði landsins.
„Landsleikur“ í Höllinni:
KA gegn Könimum
- bandaríska landsliðið í handknattleik til Akureyrar
Bandaríska laudsliðið í hand-
knattleik kemur til landsins í
dag og tekur þátt í 6-liða móti
í Garðabæ um helgina. Síðan
bendir allt til þess að banda-
ríska liðið konii hingað norð-
ur og leiki gegn KA í íþrótta-
höllinni á Akureyri á þriðju-
dagskvöldið n.k.
Mótið í Garðabæ stendur yfir
alla helgina. Þátttökuliðin eru
Unglingalandslið íslands,
Bandaríkin, Stjarnan, KR,
Grótta og Valur. Liðunum er
skipt upp í tvo riðla og eru þrjú
fyrstnefndu liðin saman í riöli
og síðan þau þrjú síðastnefndu í
öðrum riöli.
Aö nokkru er að keppa því
sigurliðið fær 100 þúsund krón-
ur í verðlaun, liðið í 2. sæti hlýt-
ur 50 þúsund og 25 þúsund
verða veitt fyrir 3. sætið.
Bandaríska liðið kemur hing-
aö á vegum HSÍ en þar sem í
nógu er að snúast hjá Hand-
knattleikssambandinu vegna
landsleikja íslendinga gegn
Sviss í kvöld og annað kvöld tók
Stjarnan að sér að sjá um
Bandaríkjamennina.
Það liggur nánast ljóst fyrir
að Bandaríkjamennirnir koma
hingað norður og keppa við KA
á þriðjudagskvöldið. Banda-
ríkjamenn eru með vaxandi lið í
handboltanum og þeir unnu
m.a. íslendinga á Friðarieikun-
unt í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum.
Þeir hafa þó citthvað dregist
aftur úr síðan þá og þeir töpuðu
m.a. illa fyrir Kúbu í úrslitaleik
á Ameríkuleikunum fyrir
skömmu. Eins og tlestum er
kunnugt leika íslendingar
einmitt gegn Kúbumönnum í
fyrsta leik á Heimsmeistaramót-
inu í Tékkóslóvakíu síðar í
þessum mánuði.
Það verður hins vegar gaman
fyrir handknattleiksáhugamenn
norðan heiða að berja þetta
bandaríska lið augum því marg-
ir mjög frambærilegir hand-
knattleiksmenn leika með lið-
inu. Þar er fremstur í flokki
Steve Gross en hann leikur um
þessar mundir á Spáni sem sýnir
að þar er enginn aukvisi á ferð-
inni. Það er því vert að hvetja
menn til að mæta í Höllina á
þriðjudagjnn til að sjá KA eiga
við banparíska landsliðið í
handknattleik.