Dagur - 15.02.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 15.02.1990, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 15. febrúar 1990 - DAGUR - 9 Minning: Pétur Aðalgeir Steindórsson Krossastöðum Fæddur 22. febrúar 1925 - Dáinn 31. janúar 1990 Fyrst er að vilja veginn finna, vaka, biðja í nafni hans, meistaranna meistarans. Preytast ekki vinna, vinna vísdóms æðstu köllun sinna: Leita sífellt sannleikans. Guömundur Guömundsson. Hinn síðasta dag janúarmánaðar barst okkur sú harmafregn að Pétur Steindórsson á Krossastöð- um hefði fyrirvaralaust kvatt þennan heim. Pegar menn búast svo skyndilega til ferðarinnar hinstu héðan, hlýtur það aö tákna að aðkallandi störf hafi beðið í næsta áfangastað. Ég nefni þetta hér vegna þess að fyr- ir Pétri var jarðvistin hér einungis viðkomustaður á langri þróun- arbraut. Hingað var hann kom- inn frá öðrum stöðum og nú er hann genginn á vit nýrra heirna sem hann ætíð hafði í sjónmáli. Pétur var trúaður maður og segja má að trúin hafi géfið honum mesta gleði í þessu lífi. Pétur var fæddur að Gull- brekku í Eyjafirði 22. febrúar 1925. Hann var sonur hjónanna Steindórs Péturssonar ættuðum úr Mývatnssveit og Guðnýjar Sigurðardóttur frá Merkigili í Eyjafirði. Pétur var einn þriggja systkina og lifa þau hann. Pau eru Sigríður Steindórsdóttir sent lengst af hefur unnið á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri og Einar Steindórsson fyrrum bóndi að Efri-Vindhcimum á Þela- mörk. Pétur kvæntist ekki og kaus að axla sín skinn sjálfur og ganga einn og óstuddur ævibrautina á enda. Árið 1929 iluttist Pétur ásamt foreldrum sínum og systkinum að Hólum í Öxnadal og ólst þar upp. Sem ungur maður stundaði hann vinnu víða í sýslunni svo sem algengt var. Veturinn 1943-4 fór hann í Bændaskólann að Hól- um og útskrifaðist þaðan vetur- inn eftir. Pétur kcypti jörðina Krossa- staði á Þelamörk og hóf þar hefð- bundinn búskap árið 1947. Þar átti hánn sitt heimili allt til ævi- loka. Hafði hann þar lengi kúabú og einnig hross. Pétur hafði yndi af hrossum og fór hann ótaldar ferðirnar urn nágrennið á mörg- um gæðingnum. Einnig bar við að hann færi í lengri ferðir á hest- baki en bústörfin voru ætíð bind- andi og því erfiðleikum háð að bregða sér frá um lengri tíma. Pétri kynntist ég fyrst þegar við hjónin leystum hann af frá bú- störfunum á sumrin eftir 1970, svo hann gæti séð sig um í veröld- inni. Mjög svo leitaði hugur hans upp á hálcndi Islands og inargar urðu ferðir hans um víðáttur öræfanna. Stóðu þá ljóslifandi Kvenfélagasamband íslands 60 ára: Vorvaka og hátíðarfundur í Reykjavík í tUefiii tímamótanna - Lizzýarkórinn syngur á hátíðarfundinum og heldur tónleika 1. febrúar 1990 voru 60 ár liðin frá stofnun Kvenfélagasani- bands íslands. í tilefni þessara tímamóta mun K.í. halda Vor- vöku í Reykjavík dagana 29.- 31. mars nk., ennfremur verð- ur þá haldinn hátíðarfundur. Aðalræðumaður fundarins verður dr. Ellen McLean frá Nova Scotia í Canada, f.v. for- maöur Associated Countrywom- Þessar duglegu stúlkur héldu fyr- ir nokkru hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands. Þær söfn- en of the World, sem er alheims- samband kvenfélaga í 70 löndum í öllum heimsálfum. Lizzýarkórinn, sem er söngkór kvenna úr Suður-Þingeyjarsýslu mun koma til Reykjavíkur og syngja á hátíðarfundinum. Stjórn- andi kórsins er Margrét Bóas- dóttir. Kórinn ntun einnig halda tónleika í Langholtskirkju sunnudaginn 1. apríl. uðu 2.800 kr. Stúlkurnar heita Svanhvít Elva Einarsdóttir, t.v., og Halla Björk Garðarsdóttir. Vorvakan hefst með opnun listaverkasýningar á Hallveigar- stööum. Listasafn Alþýðusam- bands íslands hefur góðfúslega orðiö viö beiðni K.í. um að setja saman sýningu byggða á lista- verkum eftir íslenskar konur. Stjórn og starfsmenn K.í. stefna að því að halda á þessu afmælisári ráðstefnu um heimilis- og hússtjórnarfræðslu, sem allt frá stofnun K.í. hefur veriö áhuga- og baráttumál sambands- ins. Kvenfélagasamband íslands mun á þessu ári kynna starfsemi sína með ýmsu móti, meðal ann- ars mcð veglegri afmælisútgáfu á tímariti sambandsins, Húsfreyj- unni. Á þessu afmælisári eru 22 hér- aðssambönd í K.Í., í þeim eru um 250 kvenfélög með um 23 þúsund meölimi. Formaður K.í. er Stefanía M. Pétursdóttir. Hvað er JC? í tilefni 10 ára afmælis JC Súlna 9. inars nk. mun félagið standa fyrir kynningarfundi um JC í kvöld kl. 20.30 á Hótel Norðurlandi. Boðið er upp á kaffi og með- læti. JC er félagsskappr fyrir alla á aldrinum 18-40 ára. Verið hjartanlega velkomin. Félagar í JC. Súlum. (Frcttatilkynning.) Nauðungaruppboð þriðja og síðasta, á eftirtaldri fasteign fer fram á eigninni sjálfri á neðangreindum tíma: Naustir, við Húsavíkurhöfn, þingl. eigandi þb. Nausta hf., mánudaginn 19. feb. '90, kl.14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Landsbanki íslands, þb Nausta hf. Sýslumaður Þingeyjarsýslu, Bæjarfógeti Húsavíkur. i r-rv »■ . ..?• - Hlutavelta til styrktar Rauða krossi íslands fyrir honum atburðir þeir sem þar höfðu átt sér stað um aldabil. Einnig ferðaðist hann til fjar- lægra landa og kom hann þá til baka víðsýnni og reyndari. Fyrir nokkrum árum breytti hann búskaparháttum og hætti kúabúskap. Þess í stað fékk hann sér jarðýtu og vann með henni þar sem verkefnin kölluöu. Eftir það átti hann fleiri stundir fyrir sig og hugðarefni sín. Hin síðustu ár vann hann í Efnaverksmiðj- unni Sjöfn á Akureyri og þangað var stefnan þegar kalliö kom. Pétur \ar maður rólegur í fasi en gekk ákveðinn til verks. Hann var traustur og yfirvegaöur og honurn mátti treysta. Ég sendi ættingjum hans samúðarkveðjur og bið þess að sú framtíðarsýn sem Pétur hafði megi rætast og hann gangi nú til starfa í nýjum heimi svo sent hugur hans stefndi til. Valberg Kristjánsson. ----------------------------. —— AKUREYRARBÆR Frá Glerárskóla, Akureyri Vegna veikinda vantar nú þegar dönskukennara í fullt starf fyrir 7.-9. bekki. Upplýsingar hjá skólastjóra í símum 21395 og 21521 og hjá yfirkennara í símum 25086 og 25243. Skólastjóri. Oskum að ráða starfsmann í fullt starf til að annast umboð fyrir fiRH HiniOÐIN Þarf að vera vanur ferðaþjónustu. Upplýsingar í síma 26100. töevttmiki Kaupvangsstræti 4 BOKVAL sími 26100 Akureyri JÓN FORBERG JÓNSSON, Skarðshlíð 30 f, Akureyri, sem lést 12. febrúar verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Helga Stefánsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, HÓLMFRÍÐUR EYSTEINSDÓTTIR, Grenivöllum 16, Akureyri, lést að heimili sínu að morgni 14. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda. Reynir Vilhelmsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.