Dagur - 01.03.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 01.03.1990, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 1. mars 1990 - DAGUR - 9 ( Minning: Stefán Ólafur Jónsson bifreiðastjóri Fæddur 21. janúar 1920 - Dáinn 22. febrúar 1990 Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér Ijós- ara í fjarveru hans, eins og fjallgöngu- maður sér fjallið best af sléttunni. (Úr spámanninum eftir Kahlil Gibran). Okkur langar í fáum orðum að minnast frænda okkar Óla eða Lalla eins og við köiluðum hann í daglegu tali. Lalli og Inga áttu 3 börn, Ernu Guð- laugu sem nú er látin langt um aldur fram en hún var hjúkrunarfræðingur, Jón Óla (Bróa), bifreiðastjóra og húsa- smið á Akureyri og Kristínu Maríu (Dídí) kennara í Reykjavík. Lalli var okkur meira en venjulegur frændi þar sem þeir bræður, hann og Ingi, ásamt fjölskyldum hafa alla tíð búið í sama húsinu að Sólvöllum á Akureyri þar sem við ólumst upp ásamt börnum þeirra Ingu. Þegar hugurinn leitar til baka minn- umst við sérstaklega hans ljúfa og hlý- lega viðmóts gagnvart okkur börnun- um, og ekki munum við eftir því að hafa séð hann skipta skapi. Með þessum fátæklegu orðum kveðj- um við frænda okkar og vottum Ingu, Bróa, Dídí og fjölskyldum okkar inni- legustu samúð. Þó söknuðurinn sé sár er hann blandinn þakklæti þar sem nú eru á enda þær þrautir sem hann þurfti að líða vegna þess sjúkdóms sem hann þjáðist af síðustu árin og hafði af lok- um betur. Minningin um Lalla og alla hans ástúð og hlýju mun ylja okkur um ókomin ár. Já, þannig endar lífsins sólskinssaga! Vort sumar stendur aðeins fáa daga. En kannski á upprisunnar mikla morgni við mætumst öll á nýju götuhorni. (Tómas Guðmundsson). Gréta Berg, Eva Þórunn, Hrefna Laufey, Eggert Þór, Edda Ásrún. Kveðjur frá Karlakórnum Geysi Ólafur fæddist í Ytri-Skjaldarvík í Glæsibæjarhreppi og ólst þar upp hjá foreldrum sínum Kristínu Stefánsdótt- ur og Jóni Jónssyni sem þar bjuggu frá árinu 1917 til 1945. Snemma bar á sönghneigð og mússik- gáfu hjá Ólafi. Hann gerðist félagi í Karlakórnum Geysi haustið 1942 og sótti æfingar utan frá Skjaldarvík þang- að til að hann fluttist til Akureyrar með foreldrum sínum árið 1945. Ólafur hafði þróttmikia og blæfagra tenórrödd og var sérstaklega tónviss, enda á hann treyst sem einn af bestu tenórum kórsins, að öðrum ólöstuðum. Ólafur tók þátt í uppfærslu kórsins á Alt- Heidelberg 1943-1944, þá nýbyrjaður að syngja í kórnum. Hann mun hafa tekið þátt í öllum samsöngum kórsins á 35 ára tímabili og var með í öllum söngferðum bæði innanlands og einnig utanlandsferðum kórsins, 1952 til Noregs,_ 1971 til Skotlands og 1974 til Ítalíu. Árið 1977 hætti Ólafur að mestu að starfa með kórnum en tók þó þátt í söng með eldri félögum t.d. á 60 ára afmæli Geysis 1982. Geysir þakkar Ólafi ágætt starf í kórnum um langt árabil. Með innilegri samúðarkveðju til eftirlifandi eiginkonu Ingibjargar Ólafsdóttur og fjölskyldu hans. Ingvi Rafn Jóhannsson. Mágur minn og góður vinur, Óli frá Skjaldarvík andaðist fimmtudaginn 22. þ.m. eftir langa og stranga sjúkdóms- baráttu. Stefán Ólafur eins og hann hét fullu nafni var sonur hjónanna Jóns B. Jóns- sonar bónda í Ytri-Skjaldarvík og konu hans Kristínar M. Stefánsdóttur. Þau hjón eignuðust 3 syni, elstur var Ingólf- ur, sem dó í æsku, næstur Ólafur og nokkuð lang yngstur annar Ingólfur. Fjölskyldan bjó í Skjaldarvík meðan þeir bræður slitu barnsskónum, en flutti til Akureyrar árið 1945. Ymis störf stundaði Óli á sínum yngri árum, bæði til sjós og lands en hann hóf leigubifreiðaakstur fyrir 40 árum og hélt því áfram meðan heilsa og kraftar leyfðu. Ég kynntist Óla fyrst árið 1953 er ég trúlofaðist Ingólfi bróður hans. Þegar við síðan giftum okkur haustið 1954 fluttum við í hús sem þeir feðgar voru búnir að byggja yfir fjölskyldurnar að Sólvöllum 7 Akureyri, og þar höfum við öll búið síðan. Óli kvæntist árið 1951 Ingibjörgu Ólafsdóttur ættaðri úr Skagafirði, og eignuðust þau 3 börn, Ernu sem fórst af slysförum fyrir 2 árum, Jón Óla sem búsetlur er á Akureyri og Kristínu Maríu búsetta í Reykjavík. Barnabörn þeirra eru 5. Á okkar heimili urðu börnin 5, svo oft var fjör og mikið um að vera í kring um allt þetta ungviði. En í Óla augum var sjálfsagður hlutur að líta til með unga fólkinu - hann var sérstaklega barngóður og heimakær. Ekki leitaði hann hamingjunnar langt yfir skammt, því hana fann hann á heimilinu með sínu fólki. Fjölskyldurnar héldu áfram að stækka í allar áttir. Tengdabörn - barnabörn - ættingjar og vinir söfnuð- ust gjarnan saman á Sólvöllunum, og var þá oft leitað til Óla frænda, sem öll- um vildi gott gera, ekki síst þeim yngstu í fjölskyldunum. Ætíð var hann ljúfur og í góðu skapi, ég man aldrei eftir að hafa séð hann reiðan eða argan. Að leiðarlokum er gjarnan litið um öxl og rifjaðar upp minningar um sam- verustundir liðinna ára, þær eru margar hjá þessum 2 fjölskyldum sem búið hafa „Undir sama þaki“ síðastliðin 36 ár. Það er margs að minnast, ekki síst í sambandi við starf þeirra bræðra í Karlakórnum Geysi. Þar sungu þeir báðir í tugi ára. Margar góðar minningar eru frá söngferðum með Geysi bæði innanlands og utan. Oft var safnast saman við störf og Ieiki í þágu kórsins, þá lét ÓIi falla ýmsar smellnar athuga- semdir sem komu öllum í gott skap. Hans persónueinkenni var þessi nota- lega glettni, en aldrei sagt neitt öðrum til hnjóðs. Sagt er að þeir sem eru góðir við börn og gamalt fólk séu góðmenni. Þetta á vel við Óla, því eins og áður segir var hann einstaklega barngóður, og einnig reyndist hann öldruðu fólki mjög vel og í áraraðir var hann Stefáni Jónssyni föðurbróður sínum, sem stofnaði Dvalarheimili aldraðra í Skjaldarvík, ómetanleg stoð og var þar á bæ litið á hann sem nokkurskonar bjargvætt. Óli minn, ég kveð þig í hinsta sinn með hlýhug og þakklæti frá mér og fjöl- skyldunni, við vonum að þú megir öðl- ast frið og vellíðan í þínum nýju heim- kynnum. Fjölskyldu og vinum sendum við samúðarkveðjur. Hulda. Hann Óli frændi minn er látinn, búinn að fá hvíld eftir langan og erfiðan sjúkdóm. Ég trúi því að hann sé með dóttur sinni, foreldrum og öðrum skyldmennum sem flust hafa áður yfir móðuna miklu sem skilur á milli lífs og dauða. Stefán Ólafur Jónsson eins og hann hét fullu nafni, fæddist í Ytri-Skjaldar- vík í Glæsibæjarhreppi. Foreldrar hans voru: Faðir Jón Jónsson Jóhannessonar bónda í Ytri-Skjaldarvík, en kona Jóns Jóhannessonar var Sólrún Odds- dóttir Benediktssonar í Flöguseli. Móðir Kristín Stefánsdóttir Oddssonar frá Dagverðareyri og kona Stefáns var Ólöf Árnadóttir Árnasonar á Björgum í Arnarneshreppi. Forfeður Ólafs hafa því verið bændafólk duglegt og vel gert. Ólalíur ólst upp í Ytri-Skjaldar- vík til fullorðinsára. Eftir barnaskóla var hann á námskeiði í Syðri-Skjaldar- vík sem Stefán klæðskeri föðurbróðir hans kostaði og hugsað var sem undir- búningur að skólanámi. Þetta nám- skeið stóð í þrjá mánuði seinnipart vetrar 1936. Kennari var Eiríkur Stefánsson í Skógum á Þelamörk. Að loknu þessu námskeiði fór Ólafur í Laugarvatnsskóla sem þá var tveggja vetra skóli. Þar vakti hann meðal ann- ars athygli fyrir ágætan árangur í sundi. Eftir námið á Laugarvatni stundaði hann sjómennsku um tíma ásamt fleiri störfum. Snemma bar á góðri söngrödd hjá Ólafi. Hann gerðist félagi í karlakórn- um Geysi og sótti æfingar utan frá Skjaldarvík tvo fyrstu veturna og far- arskjótinn var oftast reiðhjól, þar til fjölskyldan flutti til Akureyrar árið 1945 í Glerárgötu 9 þar sem búið var í 9 ár. Árið 1954 flutti fjölskyldan að Sól- völlum 7 í tveggja hæða hús sem Ingólf- ur bróðir hans byggði, en hann var þá orðinn byggingameistari, nú forstjóri Trésmiðjunnar Reynir sf. á Akureyri. Ólafur giftist Ingibjörgu Ólafsdóttur 1. ágúst 1951, og hafa þau búið á Sól- völlum 7 síðan. Þau eignuöust þrjú börn: Ernu Guðlaugu, sem lést í bíl- slysi fyrir rúmum tveimur árum, Jón Óla sem er leigubílstjóri á Akureyri og Kristínu Maríu, sem sér um heimili lát- innar systur sinnar. Eins og fyrr segir byrjaði Ólafur ung- ur að syngja í Geysi og söng þar fyrsta tenor um hálfan fjórða áratug. Hann hafði þróttmikla og blæfagra tenorrödd og var mjög tónviss og öruggur söng- maður og hafði glöggt eyra fyrir öllu því er betur mátti fara í söng. Ólafur hóf leigubílaakstur árið 1947, fyrst með annari vinnu en síðar sem aðalatvinnu. Hann vann sér traust í því starfi og hafði jafnan nóg að gera. Hann þótti mjög góður bílstjóri og alveg sérstaklega áreiðanlegur í öllum viðskiptum og var þess vegna mjög eftirsóttur ökumaður. Mörg ár hafði Ólafur fastar ferðir milli Akureyrar og Elliheimilisins í Skjaldarvík, sem Stefán klæðskeri stofnaði og rak af miklum myndarskap. Segja má að Ólafur hafi verið Stefáni sem hægri hönd í mörg ár. Hann annaðist allskon- ar innkaup og útréttingar fyrir Stefán, auk þess sem hann ók honum hvert sem hann þurfti að fara. Kynni mín af Ólafi frænda mínum voru mikil og góð allt frá barnsaldri og fram á síðustu ár. Til hans var leitað ef eitthvað bar útaf og mig vantaði bíl og alltaf var sömu góðu fyrirgreiðslunni að mæta hjá honum. Ég er honum sérstak- lega þakklátur fyrir öll góðu samskiptin á liðnum árum og alla hans miklu greiðasemi. Blessuð sé minning hans. Eftirlifandi eiginkonu, börnum, bróður og öðru skyldfólki votta ég inni- lega samúð niína. En minningin um góðan dreng lifir. Árni J. Haraldsson. FRAMSÓKNARMENN AKUREYRI Skrifstofa Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 90, Akureyri, veröur opin fyrst um sinn mánudaga til föstudaga frá kl. 16.00 til 19.00, síminn er 21180. Hafið samband - Lítið inn - Látið skrá ykkur til starfa vegna bæjarstjórnarkosninganna. METHUSALEM GUÐJÓNSSON, Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, er andaðist þann 25. febrúar verður jarðsunginn frá Akureyr- arkirkju mánudaginn 5. mars kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans, er bent á Dvalarheimilið Hlið Akureyri. Vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, HÓLMFRÍÐAR EYSTEINSDÓTTUR, Grenivöllum 16. Guð blessi ykkur öll. Reynir Vilhelmsson, Eysteinn Reynisson, Jórunn Marinósdóttir, Páll Reynisson, Kristín Jóhannsdóttir og barnabörn. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS (2.FLB1985 Hinn 10. mars 1990 er níundi fasti gjalddagi vaxtamiöa verötryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 9 verður frá og með 10. mars nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiðimeð 50.000,- kr. skírteini kr. 3.787,40 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. september 1989 til 10. mars 1990 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985 til 2844 hinn 1. mars 1990. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 9 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. mars 1990. Reykjavík, febrúar 1990 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.