Dagur - 01.03.1990, Blaðsíða 12
Sauðárkrókur Húsavík
95-35960 96-41585 IMiM
Akureyri, fimmtudagur 1. mars 1990
Verðlækkun á lambakjöti í dag:
- verðlækkun um 26%
á síðustu þremur mánuðum
Hópur manna safnaðist saman i Sjallanum í gær og fylgdist með leik Islendinga og Kúbumanna í úrslitakeppni HM
í handknattleik sem sýndur var í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Leiknum lauk með sigri íslendinga, 27:23, og eru
þeir nú í efsta sæti C-riðils. Sjá nánar á bls. 11. Mynd: kl
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar samþykkt sl. þriðjudag:
Stærstu framkvæmdaliðir verða
skólabygging og umhverfismál
- rekstrarafgangur bæjarsjóðs nemur 35% af tekjum
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar
var samþykkt samhljóða á
bæjarstjórnarfundi sl. þriðju-
dag. Heildartekjur bæjarsjóðs,
vatnsveitu, hitaveitu og hafn-
arinnar nema 190 milljónum
króna. Rekstrarafgangur er
áætlaður 71,2 milljónir. Til
ráðstöfunar eftir aðra fjáröflun
eru 119,7 milljónir króna. Af
því renna 100 milljónir til
framkvæmda.
Sameiginlegar tekjur bæjar-
sjóðs eru áætlaðar um 136 millj-
ónir króna, af útsvari 82 milljón-
ir, tekjur af aðstöðugjöldum 29,1
milljón og af fasteignagjöldum
16,3 milljónir. Rekstrarafgangur
bæjarsjóðs er 47,7 milljónir, 35%
af tekjum. Helstu gjaldaliðir í
rekstri eru fræðslumál með 12%
af tekjum, yfirstjórn bæjarins
11%, fjármagnskostnaður 9% og
hreinlætismál 7%.
Afborganir langtímalána eru
9,2 milljónir og tekin ný lán 8,2
milljónir króna. Ráðstöfunarfé
bæjarsjóðs er 66,5 milljónir, 47,7
milljóna rekstrarafgangur að við-
bættum 18,7 milljóna tekjum af
skuldabréfum, gatnagerðargjöld-
um og framlagi úr ríkissjóði.
Til fjárfestinga og fram-
kvæmda renna 55,6 milljónir
króna og eru stærstu fram-
kvæmdaliðir skólabygging, 25
milljónir, og gatna- og gang-
stéttagerð, 17,3 milljónir.
Trausti Þorsteinsson, forseti
bæjarstjórnar, segir að enginn
ágreiningur hafi verið um fjár-
hagsáætlunina. „Menn lýstu
almennt ánægju með fram-
kvæmdagetu bæjarsjóðs sam-
kvæmt áætluninni og menn voru
sáttir við að höfuðverkefni á
árinu verði skólabygging og
umhverfismál, gatnagerð og því-
urnlíkt," sagði Trausti. Hann
sagði að þrátt fyrir svigrúm til
framkvæmda væri áfram gætt
„Jú, hér er mjög mikill snjór
og þarf ekki að bæta miklu á til
að hann verði álíka og í fyrra,“
sagði Guðný Sverrisdóttir,
sveitarstjóri á Grenivík.
Leiðin til Grenivíkur var rudd
í gær en snjómokstur sóttist
seint, enda mikil fyrirstaða. Pá
Hjalteyrin EA er nýkomin til
Akureyrar, en skipið hefur
ekki komið til heimahafnar frá
því í október. Ætlunin er að
taka Hjalteyrina í viðgerð og
endurbætur hjá Slippstöðinni
hf.
Hjalteyrin hefur verið á ísfisk-
veiðum undanfarna mánuði, að-
allega á karfa, og hefur aflanum
verið landað í gáma í Hafnarfirði
og Reykjavík. Togarinn sigldi
með aflann úr einni veiðiferð og
landaði þá í Englandi.
Kristján Vilhelmsson hjá Sam-
herja hf. segir að ætlunin sé að
breyta vinnslulínunni um borð og
nota skipið sem frystitogara.
Ákveðnar breytingar eru fyrir-
hugaðar í því sambandi, og verð-
ur Hjalteyrin í slipp^ um það bil
aðhalds og sem dæmi um það
yrðu skuldir bæjarins áfram
greiddar niður. óþh
voru götur á Grenivík hreinsaðar
í gær. „Mér finnst allt í lagi að
hafa snjó, ef hann bara er til
friðs,“ sagði Guðný.
Hún sagði að skíðaunnendur á
Grenivík kynnu vel að meta
snjóinn og skíðatogbrautin væri
opin fjórum sinnum í viku. Þá
sagði hún að áhugi væri mikill og
þrjár vikur, að því að áætlað er.
Auk þess verður gert við nokkrar
.ísskemmdir sem urðu á botni
Starfsmcnn Slippstöðvarinnar
hf. munu vinna á vöktum
vegna viðgerða á Hjalteyrinni
EA, skipi Samherja,sem kom-
ið er í sleða stöðvarinnar. Botn
togarans þarfnast viðgerða
vegna skemmda sem urðu í ís.
Að sögn Gunnars Arasonar,
framleiðslustjóra Slippstöðvar-
innar, verður vaktavinnan vegna
í dag verður lambakjöt, það
sem merkt er „Lambakjöt á
iágmarksverði“, lækkað um
16% í verði og nær verðlækk-
un einnig til vinnslukjöts úr 5.
og 6. verðflokki. Verðlækkun-
in nú tekur til 1050 tonna af
lambakjöti og stendur þessi
verðlækkun næstu þrjá mán-
uði.
Ætlunin er að selja 800 tonn af
„Lambakjöti á lágmarksverði“ á
þessum tíma og 250 tonn af
vinnslukjöti. Verðlækkunin í
fyrrnefnda flokknum er 66,25 kr/
kg, eða 16%, en verðlækkunin á
vinnslukjötinu er 30,00 kr/kg,
eða 14%.
„Lambakjöt á lágmarksverði"
verður næstu þrjá mánuðina selt í
6 kg. pokum í gæðaflokkunum
Dl-úrval og DI-A. Smásöluverð-
ið í fyrrnefnda flokknum verður
437 kr/kg en 417 kr/kg í DI-A.
Samkvæmt þessu kostar 6 kg.
poki í Dl-úrval 2.622 kr. en 2.502
kr. í DI-A.
Samkvæmt upplýsingum Sam-
starfshóps um sölu lambakjöts er
þetta önnur verðlækkun á þessu
kjöti á rúmum 3 mánuðum.
Samtals hefur þetta kjöt lækkað í
verði um 26% á þessu tímabili.
Talið er að jafnvægi náist milli
framboðs og eftirspurnar um
miðjan þennan mánuð en dreif-
ing á kjöti í verslanir hefst nú um
vaxandi á Grenivík á gönguskíð-
um. „Ætli séu ekki flestar konur í
þorpinu sem ganga um á göngu-
skíðum og töluvert af karlpen-
ingnum líka,“ sagði Guðný.
„Segja má að þetta svæði henti
vel fyrir gönguskíðin. Menn geta
sett skíðin á sig við húsvegginn
hjá sér og valið um fjölda
skipsins.
Áð sögn Kristjáns verður frysti-
fyrirkomulaginu um borð breytt
bolvinnu við skipið. Samkvæmt
samningum málmiðnaðarmanna
er um að ræða tvær átta tíma
vaktir, sú fyrri hefst kl. 5.30 að
morgninum en síðari vaktinni
lýkur kl. 22.30.
Áætlað er að þessi verkþáttur
taki tvær vikur, unnið verður á
laugardögum en ekki sunnudaga.
Gunnar segir að eftir sé að kanna
helgina. Eingöngu er um að ræða
nýtt kjöt á þessari útsölu en sem
kunnugt er hefur öllu eldra kjöti
verið ráðstafað. JOH
1. mars í dag:
Ár frá
„Bjórdegmum“
Eitt ár er nú liðið frá því að
sala á áfengum bjór var leyfð á
ný hérlendis. Um síðustu ára-
mót höfðu verið seldir tæplega
7 milljónir lítra af bjór í versl-
unum ÁTVR um allt land frá
1. mars í fyrra sem er um 37
lítrar á hvert mannsbarn yfir 15
ára aldri.
í Dagsijósi í Degi í dag er
spjallað við ýmsa aðila sem tengj-
ast komu bjórsins á einn eða ann-
anshátt og eru þeir allir sammála
um að.reynslan hingaðtil sé frek-
ar góð. Framkvæmdastjóri Sanitas
er ánægður með þeirra hlutdeild í
markaðnum þó hann hafi sjálfur
spáð meiri heildarsölu í upphafi.
Lögreglan segir að ölvunarakstur
hafi ekki aukist og reynsla veit-
ingamanna virðist sú að menn
verði ekki eins illa drukknir af
bjór og öðru áfengi. Sjá nánar í
Degi í dag. VG
skemmtilegra gönguleiða.“
Vitlausu veðri dag eftir dag
fylgir gæftaleysi og vegna þess
hefur lítill afli borist á land á
Grenivík síðustu daga og vikur.
Guðný segir þetta afleitt ástand,
en ekki sé um annað að ræða en
vona að úr rætist með hækkandi
sól. óþh
nokkuð, og er hluti vinnunnar
við breytingarnar í formi tilboðs
hjá Slippstöðinni hf. EHB
ísskemmdirnar, en eftir að það
verður gert er hægt að segja til
um hversu margir starfsmenn
verði á hvorri vaktinni. „Segja
má að lágmarkið sé að tíu menn
séu á vaktinni en þeir geta líka
verið fleiri. Það fer eftir umfangi
skemmdanna,“ segir Gunnar
Grenivík:
Nóg af snjó og flestar konur á gönguskíðum
Hjalteyrin EA:
Slipptekin á Akureyri og vmnslidínu breytt
Slippstöðin hf.:
Vaktavinna við Hjalteyrina EA
Þúsund tonn á þriggja
mánaða útsölu