Dagur - 12.04.1990, Blaðsíða 10
10—©AtSWR—'RftlírihfdajjUi’ 12yápr1t"t'990
AUGLYSING
FRÁ FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTINU
Félagsmálaráðuneytið hefur að ósk hlutaðeigandi sveitarstjórnar heimilað
að almennar sveitarstjórnarkosningar fari fram 9. júní 1990 í eftirtöldum
sveitarfélögum:
Skorradalshreppur, Lundarreykjadalshreppur, Norðurárdalshreppur, Hvítársíðu-
hreppur, Stafholtstungnahreppur, Miklaholtshreppur, Skógarstrandarhreppur,
Hörðudalshreppur, Haukadalshreppur, Hvammshreppur, Fellsstrandarhreppur,
Skarðshreppur í Dalasýslu, Saurbæjarhreppur í Dalasýslu, Rauðasandshreppur,
Mýrahreppur í Vestur-ísafjarðarsýslu, Ögurhreppur, Reykjarfjarðarhreppur, Naut-
eyrarhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Kirkjubólshreppur, Fellshrepp-
ur, Strandasýslu, Óspakseyrarhreppur, Bæjarhreppur í Strandasýslu, Staðar-
hreppur í Vestur-Húnavatnssýslu, Fremri Torfustaðahreppur, Ytri-Torfustaða-
hreppur, Kirkjuhvammshreppur, Þorkelshólshreppur, Sveinsstaðahreppur, Skaga-
hreppur, Skefilsstaðahreppur, Skarðshreppur í Skagafjarðarsýslu, Lýtingsstaða-
hreppur, Skriðuhreppur, Óxnadalshreppur, Hálshreppur, Bárðdælahreppur, Reyk-
dælahreppur, Öxarfjarðarhreppur, Presthólahreppúr, Svalbarðshreppur, Hlíðar-
hreppur, Jökuldalshreppur, Fljótsdalshreppur, Tunguhreppur, Skriðdalshreppur,
Mjóafjarðarhreppur, Fáskrúðsfjarðarhreppur, Geithellnahreppur.
[ öðrum sveitarfélögum en ofantöldum skulu kosningar til sveitarstjórna fara fram
26. maí 1990.
Dagsetningar vegna sveitarstjórnarkosninga 9. júní 1990.
Kjörskrá skal hafa verið lögð fram eigi síðar en........................... 8. apríl
Krafa um bundnar hlutfallskosningar í sveitarfélagi með 300 íbúa eða færri
berist oddvita (yfir)kjörstjórnar, bréflega, eigi síðar en .............. 27. apríl
Sveitarstjórnarmaður, sem skorast undan endurkjöri, skal tilkynna
(yfir)kjörstjórn þá ákvörðun sína eigi síðar en................................. 5. maí
Kjörskrá skal liggja frammi til og með.......................................... 6. maí
Framboðsfrestur rennur út ................................................ 11. maí
Framlengdur framboðsfrestur, ef aðeins kemur fram einn listi, rennur út. 13. maí
(Yfir)kjörstjórn auglýsir framboðslista þegar eftir að listar hafa verið úrskurðaðir
gildir og merktir.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist .............................. 14. apríl
Kærufrestur til sveitarstjórnar vegna kjörskrár rennur út ................ 25. maí
Afrit kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörskrá eigi síðar en ....... 28. maí
Sveitarstjórn boðar fund til afgreiðslu á kærum fyrir ..................... 29. maí
Sveitarstjórn úrskurðar kærur og undirritar kjörskrá eigi síðar en...............1. júní
(Yfir)kjörstjórn auglýsir, hvenær kjörfundur hefst fyrir.........................6. júní
Sveitarstjórn tilkynni hlutaðeigandi, svo og hreppsnefnd eða bæjarstjórn, sem mál
getur varðað, um breytingar á kjörskrá strax og úrskurður liggur fyrir.
Kjörstjórn tilkynni (oddvita yfirkjörstjórnar, svo og) hreppsnefnd eða bæjarstjórn,
sem mál getur varðað, um breytingar á kjörskrá strax og dómur er genginn.
(Yfir)kjörstjórn auglýsir hvar og hvenær atkvæðatalning verður með nægum fyrir-
vara á undan kosningum.
Atkvæðataling hefst svo fljótt sem unnt er að loknum kjörfundi.
(Yfir)kjörstjórn setur notaða kjörseðla undir innsigli að talningu lokinni, þegar kosn-
ing er óbundin.
Kæra vegna kosninganna skal afhent hlutaðeigandi sýslumanni eða bæjarfógeta
innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga.
(Yfir)kjörstjórn eyðir innsigluðum kjörseðlum að kærufresti loknum eða að fullnað-
arúrskurði uppkveðnum hafi kosning verið kærð þegar kosning eróbundin, sbr. 19.
Félagsmálaráðuneytið, 10. apríl 1990.
Au&lýsendiir
auiugiö
Miðvikudaginn 18. apríl er fyrsta
blað eftir páska.
Skilafrestur á smáauglýsingum er
fyrir kl. 11, þriðjudaginn 17. apríl,
og fyrir 2ja dálka og stærri fyrir kl.
11, þriðjudaginn 17. apríl.
auglýsingadeild,
sími 24222.
Rafgeymar
09
hjólbarðar
Úott verð.
10% afsláttur
næsta mánuð á rafgeymum.
Verð:
107 a.h. kr. 8.662,50
133 a.h. kr. 10.296,-
70 a.h. kr. 4.940,10
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtöldum fasteignum
fer fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Bakkagata 3, (Melar), Kópaskeri,
þingl. eigandi Sveinn Árnason,
þriðjudaginn 17. apr., ’90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Örlygur Hnefill Jónsson hdl., Skúli
J. Pálmason hrl., Valgarð Briem
hrl., Sigurmar Albertsson hdl. og
Veðdeild Landsbanka (slands.
Baldursbrekka 9, Húsavik, n.h.,
þingl. eigandi Hermanri Jóhanns-
son, miðvikudaginn 18. apr., '90, kl.
14.00.
Uppboösbeiðandi er:
Veðdeild Landsbanka íslands.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu,
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Sérrit Siglingamála-
stofnunar ríkisins:
Eldur um borð
Siglingamálstofnun ríkisins hefur
nú gefið út sérrit no. 5 ELDUR
UM BORÐ. Áður hafa komið út
sérritin NOTKUN GÚMMÍ-
BJÖRGUNARBÁTA, LÆKN-
INGAHANDBÓK FYRIR
SJÓFARENDUR, BJÖRGUN
ÚR KÖLDUM SJÓ og KYNN-
ING Á STÖÐUGLEIKA
FISKISKIPA.
Tilgangurinn með útgáfu þess-
ara bæklinga er að vekja athygli
starfandi sjómanna á þeim þátt-
um sem reynslan hefur sýnt að
öðrum fremur valda slysum um
borð í skipum. Á þennan hátt er
Siglingamálastofnun að leitast
við að efla forvarnarstarf og
fækka þannig slysum og óhöpp-
um um borð í íslenskum skipum.
Mönnum hefur á seinni árum
orðið æ ljósara hversu mikilvæg
fræðsla og þjálfun sjómanna er í
þessum tilgangi.
í bæklingnum ELDUR UM
BORÐ er að finna nokkur mikil-
væg atriði sem reynslan hefur
sýnt að varast ber öðrum fremur
vegna eldhættu í skipum. Par er
gerð grein fyrir mismunandi teg-
undum elds og hvernig sjómenn
geta sem best búið sig undir að
takast á við eldsvoða í skipi, þá
er þar einnig að finna leiðbein-
ingar um eldvarnaræfingar í
skipum, sem skylt er að halda
reglulega í öllum stærri skipum.
Undanfarin ár hafa stjórnvöld
í samvinnu við útgerðarmenn og
sjómenn unnið að því með marg-
háttuðum aðgerðum að bæta eld-
varnir skipa. í þessu sambandi
má nefna uppsetningu eldvið-
vörunarkerfa, innbyggð slökkvi-
kerfi í vélarrúm, endurbætur á
neyðarútgöngum og þjálfun í
Slysavarnaskóla sjómanna.
Bæklingur þessi er enn einn liður
í þeim aðgerðum.
Við gerð þessa bæklings hefur
Siglingamálastofnun notið
aðstoðar ýmissa sérfróðra aðila.
Bæklingurinn verður á næstunni
sendur til eigenda allra íslenskra
skipa og þeir beðnir um að koma
honum um borð í skip sín til
notkunar fyrir áhöfnina.
Það er von Siglingamálastofn-
unar að bæklingurinn megi verða
til að efla virkar eldvarnir í skip-
um og stuðla þannig að enn frek-
ara öryggi íslenskra sjómanna.
Brýr og ræsi krefjast sérstakrar varkárni.
Draga verður úr hraða og fylgjast vel með
umferð á móti.
Tökum aldrei áhættu! b|umferoar
Bridge •
Tvímenningur
Svæðamót Bridgesambands Norðurlands eystra,
tvímenningur, ferfram í Félagsborg laugardaginn
14. apríl og hefst kl. 10.00 fyrir hádegi. Öllu
spilafólki á Norðurlandi eystra heimil þátttaka .
Skráning á staðnum. Þátttökugjald 2000.- kr. á
parið. Spilað verður um silfurstig.
Stjórn Bridgesambands Norðurlands eystra.