Dagur - 12.04.1990, Blaðsíða 20

Dagur - 12.04.1990, Blaðsíða 20
20 - DAGUR - Fimmtudagur 5. apríl 1990 Fljótlagaður Mexíkanskur rækjuréttur - Helga Magnúsdóttir fóstra leggur til spennandi uppskrift í Matarkrók Hræðilegar fréttir Síðasti „Matarkrókur“ Einar Sveinn Ólafsson verksmiðju- stjóri hjá ístess hf., skoraði á Helgu Magnúsdóttur fóstru á dagvistinni Árholti á Akureyri í næsta þátt. Helga tók áskorun Einars Sveins og ætlar hún að gefa uppskrift af forláta rækju- rétti. „Þessi réttur er mjög fljót- lagaður og vinsæll á mínu heimili. Ég smakkaði hann fyrst í Svíþjóð 1977 en eftir það hef ég notað hann mjög oft.“ Rétturinn heitir Mexíkanskur rækjuréttur og aðferðin við að laga hann er eftirfarandi: / stór laukur 1 grœri paprika 1 bakki sveppir Grænmetið er skorið og látið krauma í smjöri smá stund. 2 msk tómatkraftur '/2 dl óblandað appelsínuþykkni svartur pipar cayenne pipar Látið út í pottinn og látið krauma um stund til að styrkja bragðið, en Helga segir að því lengur sem blandan kraumar, þvf bragðmeiri verður hún. 2 dl rjómi 500 g rœkjur Rjómanum helt saman við blönduna og ef vill, má jafna þetta með hveiti finnist fólki blandan of þunn. Að lokum eru rækjurnar settar útí en eftir þaö verður að gæta þess að þær sjóði ekki heldur hitni bara að suðu. Með þessum rétti ber Helga hrísgrjón sem soðin eru með grænmetiskrafti, þ.e. salt og grænmetiskraftur er sett út í suðuvatnið. Þá er borið með nýtt snittubrauð. „Þessi réttur er oft á boðstólum síðdegis á fóstudögum og þá drekkum við gjarnan öl með,“ sagði Helga. Hún segir að ef börn borði rækjur á annað borð, borði þau þennan rétt, a.m.k. hafi hennar börn góða lyst á honum. Þá var komið að því að fá upp hjá Helgu hver næsti „Matar- krókur“ verður. Helga skoraði á „kollega" sinn, Ingigerði Traustadóttur, en hún er líka fóstra á Árholti. Lesendur verða hins vegar að bíða í hálf- an mánuð með að sjá hvað Ingi- gerður ber á borð fyrir þá, en á meðan ætti að vera nægur tími til að prófa rækjuréttinn hennar Helgu. VG Góðan daginn, ágætu lesend- ur. Ég er rétt að jafna mig eftir þær hræðilegu fréttir sem dun- ið hafa á hlustum mínum und- anfaruar vikur. Það er engu líkara en að fjölmiðlarnir hafi tekið sig saman um að gera mér gramt í geði og mér er skapi næst að kæra þá fyrir persónulegar árásir. Þetta á ekki síst við um ljósvakamiðl- ana en blöðin hafa þó einnig skorið í augu með svívirðileg- um greinum og aðdróttunum um líferni mitt. Ég veit ekki til þess að ég hafi skapraunað nokkrum einasta fjölmiðla- manni og get alls ekki skilið þessa áráttu að draga hegðun mína og neysluvenjur fram í dagsljósið á svo lúalegan hátt sem raun ber vitni. Nýlegt dæmi úr útvarpi: Fullvíst má telja að kaffi- drykkja auki líkur á krabba- meini og hjartasjúkdómum. Sá sem drekkur meira en tíu bolla á dag er í mikilli hættu og ef viðkomandi reykir líka meira en einn sígarettupakka á dag þá er hann bráðfeigur. Tíðindi úr sjónvarpi: Streita er stigvaxandi sjúkdómur. í fyrstu eru einkennin væg, hraði og almennt stress, verkir í öxlum. Síðan fer þetta vax- andi, ekki síst ef kaffi og tóbak er með í spilinu. Heiftarleg vöðvagigt, hjartsláttartruflan- ir, meltingartruflanir, svefn- leysi, martraðir og skapsveifl- ur. Loks krónískt þunglyndi og margháttaðir skaðar á líffær- um, viðkomandi sér enga lausn og hann er í bráðri lífshættu. Greinar í blöðum: Hreyfing- arleysi, neysla feitmetis, sólböð, kaffi- og tóbaksneysla, streita, vörtur og fæðingar- blettir margfalda líkurnar á krabbameini og öðrum sjúk- dómum sem geta verið ban- vænir. Þarna sjáið þið, allt eru þetta persónulegar árásir á mig og neysluvenjur mínar. Ég botna samt ekkert í þessu með vörturnar því mér vitanlega hef ég enga vörtu á holdmikl- um líkama mínum, nema þá að hún leynist einhvers staðar á milli fellinga. Hins vegar játa ég á mig nokkra litla fæðing- arbletti og öll hin atriðin sem fjasað hefur verið um passa mjög vel við lífsmynstur mitt, svo vel að þetta getur ekki ver- ið tilviljun. Að vísu er ég ekki mikið gefinn fyrir sólböð en kemst þó ekki hjá því að hún skíni á mig stöku sinnum. Já, ég nota tóbak og kaffi í ríkum mæli, enda eru nikótín og koffín þau lyf sem halda mér gangandi. Stressaður er ég líka og vinn vel undir álagi. Hjartað og meltingin hafa ver- ið með ýmsar kúnstir og vöðvabólgu get ég ekki svarið af mér. Eg á oft bágt með að sofna en líka erfitt með að vakna. Þá eru matarvenjur mínar með þeim hætti að ham- borgarar, pylsur og feitt súpu- kjöt eru uppáhaldsréttir mínir en korn og gras tel ég vera skepnufóður. Ég hreyfi mig heldur aldrei meira en ég nauðsynlega þarf og sjást þess greinileg merki á áður spengi- legum líkama mínum. Þannig eru staðreyndirnar um lífsvenjur mínar og þessi atriði eru fjölmiðlamenn nú að gera tortryggileg með ótrúlega hatrömmum ofsóknum. Ég vil bara upplýsa þessa fáfróðu menn um það að mér líður hreint ágætlega, eða leið a.m.k. mjög vel áður en þessar ofsóknir hófust. Ég geri það sem mér finnst gott og þá líður mér vel. Það lýsir ósvífni og hroka að berjast gegn lífsvenj- um annarra og margir bíða varanlegt tjón af þessum kross- ferðum. Ég ætla ekki að láta teyma mig eins og asna inn á líkamsræktarstöð, í heilsu- vörubúð, reykingabindindi eða til sálfræðings. Fyrir utan það að fara á hausinn þá myndi þetta ríða mér að fullu, and- lega sem líkamlega. Þegar ég andast rúmlega sjö- tugur að aldri má vera að ein- hverjir kenni tóbakinu um, aðrir kaffinu og enn aðrir súpukjötinu. En lífshlaup mitt er fyrirfram ákveðið og fæ ég engu um það breytt. Þess vegna ætla ég að njóta lífsins og láta mér líða vel og ég þarfnast engrar hjálpar frá sjálfskipuðum heilsupostulum. Takk fyrir. UTBOÐ Dalvíkurbær óskar eftir tilboði í að byggja annan áfanga Grunnskóla Dalvíkur. Útboðsgögnin verða afhent á tæknideild Dalvíkur- bæjar og Teiknistofu Hauks Haraldssonar, Kaup- angi, Akureyri frá og með mánudeginum 9. apríl ’90 gegn 20.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á Tæknideild Dalvíkurbæjar, miðvikudaginn 21. apríl, 1990, kl. 14.00. Tæknideild Dalvíkurbæjar. Hallfreður Örgumleiðason: Hvað hef ég gert? Hví eru allir að ráðast á mig? Ég burða góðan mat, reyki, drekk kaffi og reyni að hreyfa mig sem minnst. Ég sé ekkert athugavert við það þótt maður láti sér líða vel.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.