Dagur - 19.04.1990, Síða 3
Fimmtudagur 19. apríl 1990 - DAGUR - 3
f
m
m
m
m
m
-1
fréffir
Húsnæðismálastjórn úthlutar framkvæmdalánum:
Norðurland fær 131 íbúð af 315 á landsbyggðmni
- þörf á félagslegu húsnæði metin 55% af árlegri nýbyggingaþörf
Á fundi liiisnædisstjórnar í
byrjun þessa mánaðar var sam-
þykkt að veita 80 félagslegum
aðiluin framkvæmdalán til að
byggja og/eða kaupa samtals
802 félagslegar íbúðir og
almennar kaupleiguíbúðir.
Um mitt síðasta ár var kallað
eftir umsóknum um þessi Ián,
samtals 80 umsóknir reyndust
gildar og var þar óskað eftir að
framkvæmdalánum frá stofn-
Sparisjóður Akureyrar
og Arnarneshrepps:
Aukningá
ölhim sviðum
fjármála
Aðalfundur Sparisjóðs Akur-
eyrar og Arnarneshrepps var
haldinn 2. apríl síðastiiðinn.
Formaður sjóðsstjórnar er O.
C. Thorarensen, en sparisjóðs-
stjóri Helga Steindórsdóttir. I
ársskýrslu Sparisjóðsins kemur
fram að reksturinn hefur geng-
ið með ágætum og eiginfjár-
staðan batnaði um 36,10%.
Að sögn sparisjóðsstjórans var
aukning á öllum sviðum fjár-
mála. Eigið fé er 53.332.000,00
kr., jókst um 14.145.000.00 kr.
eða 36,10%. Hagnaður Spari-
sjóðsins árið 1989 reyndist
5.715.000,00 kr.
Innlán Sparisjóðsins námu
160.775.000,00 kr., aukning
26,6%, en útlánin reyndust
145.971.000,00 kr.
Aðalfundurinn ákvað að gefa
Sjávarútvegsbraut Háskólans á
Akureyri kr. 100.000,00 svo og
Skógræktarfélagi Eyfirðinga
sömu upphæð en Krabbameins-
félagi Akureyrar kr. 50.000,00.
Starfsmenn Sparisjóðsins eru
fjórir og afgreiðslan að Brekku-
götu 1, Akureyri. ój
Sundlaugin í
Glerárhverfi:
Skemmdarvargar
áferð
Nú nýverið var glæsileg sund-
laug tekin í notkun í Glerár-
hverfi öllum til ánægju er
Glerárhverfið byggja.
í dymbilviku og um páskana
var laugin lokuð vegn lagfæringa
og endurbóta á baðaðstöðu
karla, en búið var að skemma
blöndunartækin það mikið að
skipta varð um. Einnig var unnið
að lagningu uretan kvarts á góll'
sem ekki hafði unnist tími'til að
ljúka fyrir opnun laugarinnar.
Rétt er að nefna að engar
skemmdir voru unnar í búnings-
og baðaðstöðu kvenna.
Á föstudaginn langa voru
veggjakrotarar á ferð við sund-
laugina og létu gamminn geisa
með úðabrúsum á veggi svo lítill
sómi var af.
Skemmdarstarfsemi sent þessi
er ekki óalgeng hér í bæ, því ýmis
fyrirtæki og stofnanir hafa orðið
fyrir henni. Leitt er til þess að
vita að ný og þörf mannvirki, sem
reist eru bæjarbúum til ánægju og
heilsubótar, fái ekki að vera í
friði. Kostnaður vegna viðgerða í
sundlauginni var ekki fáanlegur,
en er þó töluverður. ój
uninni til að byggja 1.511 íbúð-
ir.
Umsóknirnar skiptust þannig
milli íbúðaflokka, að óskað var
eftir lánum vegna 547 verka-
mannabústaða, 191 leiguíbúð
sveitarfélaga, 343 félagslegra
kaupleiguíbúða og 430 almennra
kaupleiguíbúða.
Framkvæmdalánin sem veitt
voru nú skiptast þannig að verka-
mannabústaðir fá 351 íbúð, leigu-
íbúðir verða 142, félagslegar
kaupleiguíbúðir 156 og almennar
kaupleiguíbúðir 153. Alls 487
þessara íbúða verða byggðar á
höfðuborgarsvæðinu og 315 í
öðrum landshlutum. Þar af verða
20 íbúðir byggðar á Norðurlandi
vestra, 111 á Norðurlandi eystra
og 54 á Austurlandi.
I umsóknunum mátu umsækj-
endur þörf sína fyrir félagslegt
húsnæði næstu 3 árin og kom í
ljós að koma þarf upp 4.500
íbúðum í verkamannabústöðum
og leiguíbúðunt og um 1.650
almennum og félagslegum kaup-
leiguíbúðum. Alls eru þetta um
6.150 íbúðir eða 2.050 á ári fyrir
utan þær sem lánað er til í
almenna húsnæðiskerfinu.
Á fundi húsnæðisstjórnar þeg-
ar úthlutunin fór fram lagði
Pálmi Kristinsson, fulltrúi Vinnu-
veitendasambandsins í stjórn
fram bókun þar sem hann lýsir
sig mótfallinn þeim tillögum um
lánveitingar sem lagðar voru
frarn. Hann segist m.a. telja að
lánshlutfall til félagslegra íbúða-
kaupa sé of hátt miðað við áætl-
aða heildarþörf nýrra íbúða í
landinu. Láti nærri að hlutfallið
sé 55% af árlegri nýbyggingaþörf
en til samanburðar megi geta. að
á undanförnum árum hafi hlut-
fallið verið um 30-40%. VG
• •
Oryggi í viðskiptum
- heiðarleg skattskil!
Nótuviðskipti eru allra hagur. Með rétt útfyllta nótu (sölureikning) í
höndunum hefur viðskiptavinurinn tryggingu íyrir því að skatturinn sem
hann greiðir í verðinu kemst til skila. Viðskiptavinurinn hefur þá líka réttinn
sín megin ef eitthvað kemur upp á. Fyrirtækið hefur öll bókhaldsgögn
á hreinu og báðir aðilar standa skil á sínu í sameiginlegan sjóð okkar allra.
Það er því mikilvægt að vita hvemig löglegir reikningar eiga að vera.
Nafri kaupanda (og auk þess
kennitala ef kaupandi er
virðisaukaskattsskyldur).
Nafn, kennitala og vsk.-númer
seljanda.
Útgáfudagur.
Reikningur tölusettur
fyrirfram.
Fjöldi vinnustunda,
einingarverð og heildarverð.
Tegund sölu, þ.e. lýsing á því
sem selt er.
Réttir viðskiptahættir tryggja heiðarleg skattskil.
Þau eru undirstaða þeirra sameiginlegu verkefna í
landinu sem við njótum öll góðs af.
Fjárhæð virðisaukaskatts.
HamPín
viðskipti
Q tlffÍlW’
FjÁRMÁl ARÁÐUNEYTIÐ