Dagur - 19.04.1990, Side 9

Dagur - 19.04.1990, Side 9
Fimmtudagur 19. apríl 1990 - DAGUR - 9 Akureyri: Lokaráðstefna „Brjótum múrana" í Alþýðuhúsinu Lokaráðstefna vegna verkefnis Norrænu ráðherranefndarinn- ar um fjölbreyttari atvinnu- þátttöku kvenna, „Brjótum múrana - BRYT“, verður haldin í Alþýðuhúsinu á Akur- eyri nk. föstudag og laugardag, 20. og 21. apríl. Norræn loka- ráðstefna BRYT var haldin í Reykjavík í byrjun desember 1989, en lokaþáttur íslenska hluta verkefnisins verður sem sagt haldin í Alþýðuhúsinu um næstu helgi. Fram kemur í fréttatilkyrm- ingu frá „Brjótum múrana" að BRYT-verkefninu sé ætlað að þróa og prófa leiðir til að auka fjölbreytni í náms- og starfsvali kvenna, en einnig að skilgreina þær hindranir, þá múra sem aðskilja vinnumarkaði kvenna og karla. Á vegum BRYT á Akureyri hefur verið unnið fjölbreytt starf sem snertir stöðu kvenna á vinnumarkaði og í skólum. Niðurstöður verða kynntar á ráð- stefnunni, en einnig verða gefnar út skýrslur um nokkur þessara verkefna. Nýlega kom út skýrsl- an „Konur í tækni- og iðngrein- um“, en aðrar skýrslur: „Óhefð- bundin náms- og starfsfræðsla í grunnskólum", „Konur stofna fyrirtæki" og Ábyrgð-áhrif-álag" eru væntanlegar á næstu vikum. í nefndri fréttatilkynningu segir: „Tilgangurinn með ráð- stefnunni er að áhrifa- og áhuga- fólk um jafnréttismál hittist, fræðist, ræði saman og nái að sameina þá þekkingu og reynslu sem fengist hefur með BRYT og þeirri þekkingu sem aflað hefur verið með öðrum jafnréttisverk- efnum. Þannig getur skapast grunnur að sameinuðu átaki í þá átt að opna konum og hugmynd- um kvenna greiða leið í allar atvinnugreinar og til áhrifa." Búist er við fjölda þátttakenda á lokaráðstefnunni í Alþýðuhús- inu hvaðanæva að úr þjóðfélag- inu, fulltrúum ráðuneyta, stjórn- málaafla, stofnana og félaga. Fyrir hádegi á föstudag verður ráðstefnan öllum opin. Þá verða flutt erindi um frumvarp að nýj- um jafnréttislögum, um niður- stöður starfshóps menntamála- ráðuneytisins um jafna stöðu kynja í skólum, um aðgerðir á vegum félagsmálaráðuneytisins, svo og meginniðurstöður „Brjót- um múrana". Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í allri ráð- stefnunni og vilja fá upplýsingar um möguleika, verð og tilhögun geta haft samband við skrifstofu „Brjótum múrana" í síma 96- 26845. Ráðstefnan hefst kl. 9.30 á föstudagsmorgun með skrángu. Að því búnu býður vcrket'nis- freyja fólk velkomið og Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráð- herra, setur ráðstefnuna og gerir grein fyrir starfi ráðuneytisins að jafnréttismálum. Sigríður Jóns- dóttir, formaður starfshóps menntamálaráðuneytisins um jafna stöðu kynja í skólum, gerir grein fyrir starfi starfshópsins. Klukkan 11.30 gerir Ragnhildur Benediktsdóttir, formaður Jafn- réttisráðs, grein fyrir frumvarpi að nýjum jafnréttislögum og Val- gerður H. Bjarnadóttir, verkefn- isfreyja „Brjótum múrana" gerir grein fyrir niðurstöðum og tillög- um BRYT. Að loknum hádegisverði, kl. 14.30, verða „smiðjur" um ýmis mál sem tengjast stöðu kvenna í skólum og á vinnumarkaði og aö því búnu hópvinna. Á laugardag taka ráðstefnu- gestir upp þráðinn kl. 09.00 með því að fara yfir niðurstöður hóp- vinnu fyrri dagsins og hópvinna dagsins útskýrð. Þátttakendur velja sér hópa út frá áhuga/starfs- sviði. Þá tekur við hópvinna og gerð framkvæmdaáætlana og að loknum hádegisverði í boði bæjarstjórnar Akureyrar verður hópvinnunni fram haldið. Klukk- an 16.30 er áætlað að kynna helstu niðurstöður hópvinnunnar og efna til almennra umræðna um framtíðarstefnu í jafnréttis- málum. Ráðstefnuslit eru tíma- sett kl. 18 á laugardag. óþh /F2- » Óskum viðskiptavinum okkar ^ gleðilegs sumars með þökk fyrír veturínn. \ /fe HS-VÖRUMIÐAR SF HAMARSTlG 25 • 602 AKUREYRI SÍMI 96-24101 • PÓSTHÓLF 109 <r u \ Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegs siunars með þökk fyrir veturinn. Mjólkursamlag <j||> % /J3 * "7 ---------- — Á Oskum viðskiptavinum okkar w gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn. Blikkrás hf. Hjalteyrargötu 6, sími 26524 og 27770 \ J Æ2 » <7 Oskum viðskiptavinum okkar gleðilegs sumars með þökk fyrír veturinn. ISLANDSBANKI J Æ^ » Óskum viðskiptavinum okkar gleðUegs sumars með þökk fyrir veturinn. Kaffibrennsla Akureyrar Tryggvabraut 16, sími 23800 rP Æ Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn. Garðyrkjustöðin Grísará 601 Akureyri, sími 96-31129 Á -47

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.