Dagur - 19.04.1990, Side 14

Dagur - 19.04.1990, Side 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 19. apríl 1990 Menntamálaráðuneytið Frá Fjölbrautaskóla Suðurlands Fyrirhugað er að koma á fót framhaldsnámi við Skógaskóla í tenglsum við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi næsta vetur. Auk þess mun þar starfa 9. bekkur grunnskóla. Hér með er auglýst eftir kennurum I eftirtaldar greinar: Dönsku, ensku, stærðfræði og raungreinar. Umsóknarfrestur er til 8. maí. Umsóknir skulu sendar til skólastjóra Skógaskóla sem veitir allar nánari upplýsingar. I FRAMSÓKNARMENN IIII AKUREYRl Bæjarmálafundur verður í Hafnarstræti 90, Akureyri, mánudaginn 23. apríl kl. 20.30. Rætt um dagskrá bæjarstjórnarfundar á þriöjudag 24. apríl. Rætt um kosníngaundirbúninginn vegna bæjarstjórnarkosninganna. Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram- sóknarflokksins eru hvattir til aö mæta og einnig varamenn. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar. Krossfesting Ólundar í Samkomuhúsinu Ég hafði hugsað mér að skrifa dálítið um Krossfestingu Olundar í Samkomuhúsinu síðastliðið þriðjudagskvöld. Það verður nefnilega önnur sýning í kvöld, fimmtudaginn 19. apríl, kl. 20.30. Lokasýn- ing. Nú er því lag til að vara fólk við þessari dagskrá, eða hvetja alla sem nýjum vettlingi geta valdið til að sjá hana. Áður en ég lýsi því sem fram fór á Krossfestingunni ætla ég að skrá niður þau hugtök sem komu upp í huga mér eftir sýninguna: Súrrealismi, absúrdismi, riaivismi, dadaismi, nihilismi, futurismi, exibitionismi, per- formance. En víkjum þá að sýn- ingunni. Krossfesting Ólundar er að sönnu viðamikil fjöllistasýning. Þar ægir saman 22 atriðum úr ýmsum áttum. Má þar nefna tónlist; klassík, rokk og óskil- greindan hávaða. Leikþættir eru nokkrir, ljóð eru lesin og gjörn- ingar (performance) framdir. Sumt af þessu má flokka undir list, annað rugl, en satt að segja kom mér dagskráin á óvart því ég hafði ekki búist við miklu. Ég ætla nú að hlaupa yfir atrið- in og gefa þeim stutta umsögn. 1. Tromm Tromm: Býsna taktviss hávaði. 2. Ásmundur Ásmunds- son: Sjúk sagnagerð, tilvalin til að hneyksla fólk. 3. Engill Ónæði: Kröftug rokkhljómsveit. 4. Leikbrúðuleikhús: Ólýsanlegt athæfi. 5. Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson: Þetta er ansi smellin kveðskapur, stutt Ijóð og stundum hnyttin í lokin. 6. Hindemith og Bach: Þokkalegur samleikur Helgu Kvam og Þór- unnar Marinósdóttur á þvertlautu og fiðlu. 7. Bimmbirimmbirimm- bamm: Skemmtileg útfærsla á alþekktum leik. Hlynur Hallsson og Kristján Ingimarsson leika sér af innlifun. 8. Fugl: Hljóm- sveit sem kom á óvart. Röggi afskaplega lipur og melódískur á bassann, Siggi föndrar við gítar- inn og Gummi lemur húðir. 9. Pétur Eyvindsson: Sagnagerð í ætt við Ásmund, tilgangurinn óljós. 10. Stigmata: Nokkuð skondin hreyfilist í sjónvarpi en aðeins of langdregin. 11. Súrt líf: Stutt leikrit eftir Hlyn Hallsson en ekki nægilega hnitmiðað. Til- raun til orðaleikja. Eftirhlé. 12. Þetta er sjónvarp, þetta er örbylgjuofn: Þáttur úr smiðju Gersemi Tut sem kalla má gjörning. Ekki fyrir minn smekk. 13. Kristján Pétur Sig- urðsson: Mættur á sviðið með gítarinn, skrambi góður og kann sitt fag. 14. Hlynur Hallsson: Látlaus ljóð, vel flutt, sum góð. 15. Skrím íls: Æ, þetta er ekkert sniðugt. 16. Limlest, ég er limlest: Ekki svo galin hljómsveit miðað við aðstæður. 17. Helga Kvam: Allgóð smásaga sem nær flugi undir lokin. 18. Lúna Skrospýjan: Merkilega góð stuð- grúppa og melódísk. Röggi spilar á gítar, Kiddi á bassa og Hjalti á trommur. 19. Jón Laxdal: Fögur ljóð með stuðlum og reglubund- inni hrynjandi til áhersluauka, afar vel flutt, sum innihaldsrík. 20. Þórunn Ósk Marinósdóttir: Býsna hrífandi fiðluleikur þar sem partía eftir Bach líður um sal Samkomuhússins. 21. Gersemi Tut: Hörmung. 22. Frelsarinn og vinir hans: Leikþáttur úr heimi fáránleikans. Nú hef ég ekki meira pláss og segi því að lokum: Krossfesting Ólundar er skemmtilegri dagskrá en ég hafði vænst. Hún er fjöl- breytt en full löng og mætti að skaðlausu skera nokkur atriði niður. Stefán Þór Sæmundsson Z)reymir þig stundum um að vinna milljónir?

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.