Dagur - 21.04.1990, Side 5

Dagur - 21.04.1990, Side 5
Laugardagur 21. apríl 1990 - DAGUR - 5 tómstundir Leirdúfuskotfími er tiltölulega nýleg íþrótt á Islandi. Þó hafa nú á seinni árum sífellt fleiri skotmenn tekið leirdúfukastara í þjónustu sína. Yfír vetrarmánuðina eftir að rjúpnavertíðinni lýkur er frekar daufur tími fyrir haglabyssuskyttur. Þá er leirdúfu- skotfími tilvalin leið til að halda sér í æfíngu. Til að kynna sér sportið heimsótti Dagur skotmenn sem eiga leirdúfukastara og æfa haglabyssuskotfími. Við leirdúf'uskotiinii má nola allar gerðir al' liaglabyssiim. Æskilegt er að skotmenn noti |iá byssu seni þeir ;etla síðan að nota til veiða. Leirdúfuskotfími - og hugleiðing um hagnýti hennar Handvirkur leirdiifukastari frá Hoppers. Kastarar af þessari slærð eru bentugir fvrir cinstaklinga til ælinga. Leirdúfukastarar eru til af ýms- um gerðum og stæröum. Ekki verður fjallað um rafdrifna keppniskastara enda er ekki á allra færi að bera kostnað af slík- um búnaði jxí góður sé. Hentugir kastarar fyrir einstaklinga eru til í nokkrum mismunandi útgáfum. Peir kastarar eru knúnir af stál- gormi sem trckktur er upp með handafli. (Sjá mynd.) Slíkir kast- arar kosta frá tíu til tuttugu þús- und krónur. Kastarar eru mis- jafnir aö gerð og gæðum. Byrj- endum er ráðlegast að leita til afgreiðslumanna i sportvörubúð- um og fá upplýsingar um traust vörumerki. í flestum betri sport- vörubúðum fást leirdúfur og kastarar. Einnig hefur Hlaö sf. á Húsavík haft þessa vöru á boð- stólnum. Leirdúfur eru seldar tvö hundruð í pakka og kostar stykk- ið um sjö krónur og pakkinn um fimmtán hundruö krónur. Þær eru til í nokkrum mismunandi tegundum. Þær dúfur sem hafa verið á bóðstólnum í sportvöru- verslunum hérlendis hafa verið traust vara. Þeir scm stunda leirdúfuskot- fimi nota svokölluð „Skeet" haglaskol. ..Skeet" er enskt orð yfir þessa íþrótt sem hér er köll- uð leirdúfuskotfimi. Til eru fleiri þýðingar en hér verður leirdúfu- skotfimi notað. Skot þessi í haglabyssur no. 12 eru 70 mm, hlaðin 28 gramma haglahleðslu. Höglin eru númer níu eftir cnsk- um og amerískum staðli. Tuttugu Tvíhleypt haglabyssa ásanit viðeigandi vinsælar í kcppnum í leirdiífuskotilmi og fimm skota pakki af Seller og Belliot kostar t.d. 350 krónur í Veiðihúsinu í Reykjavík. Af gefnu tilefrii er rétt að minna á að leirdúfuskot, hlaðin 28 gramma haglahleðslu af liögl- um númer níu cru alls ekki ætluð til neinskonar veiða. Höglin eru smá og hleðslan lítil og ekki til þess fallin að bana fuglum eða annari veiðibráð. Aðrar gerðir af skotum er hægt að nota í leir- dúfuskotfimi en ódýrari skot en leirdúfuskot eru ekki á boöstóln- um hérlendis. Mismunandi byssur við leirdúfuskotfimi Við leirdúfuskotfimi má nota all- ar geröir af haglabyssum. Bestar eru þær byssur sem hafa „Skeet" þrengingar, en þaö eru sérstakar þrengingar sem notaðar eru í kcppnum í leirdúfuskotfimi. Æskilegast er aö skotmenn noti þær byssur sem þeir ætla síðan að ganga til veiða með. Þó fylgir því viss ókostur. Veiðibyssur eru jafnan mikið þrengdar séu þær ekki með skiptanlegum þrenging- um og veröur leirdúfuskotfimin því erfiðari en ella. Það hefur þó þann kost í för með sér að skot- maður venst sinni byssu bctur og er líklegur til að ná betri árangri þegar á hólminn er komið. Rétt er aö gera skýran greinarmun á keppnisskotfimi og þeirri sem hér er rætt um. Þeir sem æfa og stunda keppni í leirdúfuskotfimi skotum. „Undir yfir" haglabyssur eru nota í flestum tilfellum tvíhleyp- ur „undir yfir" byssur og ávallt með „Skeet" þrengingum. Þar eru um að ræða keppnisíþróttina „Skeet" sem ekki er á allra færi aö stunda, miklar æfingar þarf til að ná árangri. Löglegir „Skeet" keppnisvellir eru ekki til hérlend- is utan Reykjavíkursvæðisins. Gæta skal fyllstu varúðar og tillitssemi Þegar leirdúfuskotfimi er stund- uð þurfa að vera tveir menn saman. Annar til að hlaða og hleypa af kastaranum og hinn til að skjóta sjálfar leirdúfurnar. Við staðsetningu kastarans ber að hafa margt í huga. Ekki má stafa hætta eöa ónæöi af skotum eða leirdúfum. Varast ber að staðsetja kastarann í beitilandi búfjár eða í nánd viö veiðivötn. Þó ekki sé mikið blý í hverju haglaskoti safnast þegar saman kemur séu æfingar stundaðar lcngi á sama stað. Búfé getur stafað hætta að blýmengun og einnig fiskum. Leirdúfubrot eru engin umhverfisprýði og cr því rétt aö staðsetja kastarann ekki þar sem mikil umferð er. Sjálf- sögð rcgla er að tína ávallt upp tóm skothylki þegar æfingum lýk- ur í hvert skipti. Fjölbreytileg skotmörk Hvernig haga skal æfingum fer eftir hverjum og einum. Þó er skynsamlegt að hafa fjölbreytn- ina sem mesta. Rétt er að æfa til skiptis að skjóta á dúfur á leiö til hægri og vinstri. Mörgum rétt- hendum mönnum reynist erfið- ara að hæfa dúfur sem fljúga frá vinstri til hægri. Þetta má oftast laga með markvissri æfingu. Sjálfsagt er að æfa skot á dúfur sem koma beint í átt til skot- manns og einnig er gott að æfa skot á dúfur sem eru á leiö frá skotmanni. Hvernig skotmönnum gengur að hæfa leirdúfurnar í fyrstu skiptin er misjafnt. Þó ná flestir vanir skotmenn fljótlega góðum tökum á dúfunum og eftir nokk- urn tíma missa menn varla „fugl". Leirdúfuskotfinii, raunveruleg æfíng Munurinn á því að skjóta leirdúf- ur og lifandi fugla er helstur sá að dúfan fer alltaf á svipuðum hraða gagnstætt viö fugla sem hafa mis- munandi flughraöa. Þó fæst mikil æfing við að skjóta á leirdúfur. Sú æfing nýtist síðan þegar skot- menn fara að skjóta á lifandi bráð. Byrjendum í skotveiði er því mikið gagn af leirdúfuskotfimi. Mögum kann að finnast óþarfa bruðl með skotfæri að eyða þeim á lcirdúfur. Svo er hins vegar alls ekki málum farið. Við leirdúfu- kastarann geta menn lært af mistökum sínum og orðið með tímanum öruggir skotmenn. Ekki getur talist skynsamlegt að sá sem ekki hefur stundaö veiðar með haglabyssu fari í gæs cða aðra fuglaveiði án þess að æfa sig fyrst. Mikilvægt er að byrjendur geri sér grein fyrir á hvaða færi vopn þeirra hæfa bráöina. Þjálfun er byrjandanum nauösyn Skotveiði er stunduð af mjög mörgum Islendingum. Samt hafa mjög fáar licföir skapast við þær veiðar sem hér eru stundaðar. Mjög litlar kröfur eru gerðar til hæfni þeirra sem þreyta skot- vopnanámskeið fyrir bvssuleyf- isveitingu. Allt of algengt er að menn kaupi byssu og haldi beint ;í veiðar án verklegrar þjálfunar í skotfimi. Ekki er furða að margir komi veiðilausir heim úr mörgum fyrstu veiðiferðunum. Þá er ástæðan yfirleitt ekki sú að illa hafi gengið að koma skotunum úr byssunni. Litlir leirdúfukastarar eru ekki dýrir. menn geta sameinast um kaup á kastara og náð þannig kostnaðinum verulega niður. Aðstöðu fyrir kastarann er yfir- leitt hægt að finna í malargryfjum eða öðrum álíka stööum. Allir skotmenn. sama hversu góðir þeir eru hafa gott af æfingu á þeim árstíma þegar ekki er mikla bráð að hafa. Byrjendum er ómetanlegt að geta æft sig á skot- marki á hreyfingu áður en haldið er í gæs eða aðra fuglaveiði. Þeir seni ekki geta hæft leirdúfur eru ekki líklegir til að gera stóra hluti á anda- eða gæsaskytteríi. Æflngin skapar ineistarann í pistli þessum hefur verið ætlun- in að kynna fyrir skotmönnum þá möguleika sem leirdúfuskotfimi býður upp á. Hvernig má hafa not af þcirri þjálfun við raun- verulegar fuglaveiðar. Hvernig byrjendum opnast skilningur á hvaða lögmál gilda þegar skotið er á skotmark á flugi. Ástæðulaust er sjá ofsjónir yfir kostnaðinum við leirdúfu- skotfimina. Ný haglabyssa af sæmilegri gerö kostar um fjörtíu þúsund. Sá skotmaður sem ekki nær árangri með sinni byssu situr uppi með óarðbæra fjárfestingu. Sá sem nær árangri. sem næst ekki netna með æfingu, þarf ekki að sjá eftir þeim peningum sem liggja í góðri haglabyssu. kg Skotveiöifélag Akrahrepps fær þakkir fyrir veitta aðstoð og uppiýsingar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.